Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Page 8
8
DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983.
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Nakasone vildi
ekkikaupa
meiraaf
Bandaríkjunum
Nakasone, hinn nýi forsætisráö-
herra Japans, heldur til Tokyo í
dag aö loknum tveggja daga
viðræðum viö Reagan forseta og
fleiri bandaríska embættismenn.
Til Washington kom hann aö lok-
inni heimsókn til fimm landa EBE,
þar sem hann haföi haft góö orö um
aö liðka fyrir innflutningi á EBE-
varningitil Japans.
En í viöræðunum viö Reagan var
Nakasone ófáanlegur til þess aö
lofa nokkru um aö aflétta inn-
flutningshöftum á bandarískum
iðnaöarvörum, en hét hins vegar í
staðinn aö auka fjárveitingar til
hermála Japans.
Geröi hann Washingtonstjórninni
grein fyrir því aö hann væri þegar
kominn í pólitískar kröggur heima
fyrir vegna undanlátssemi sinnar
viö EBE og treysti sér ekki til þess
aö ganga lengra á þessu sviöi í bili.
Alsírstjórn gaf
Arafat vopn
Utanríkisráöherra Alsír, dr.
Ahmed Taleb Ibrahimi, hefur upp-
lýst að stjórn hans hafi afhent
sovéska sendiherranum í Alsír 20
milljónir Bandaríkjadala til vopna-
kaupa til handa PLO á meöan bar-
dagar stóöu yfir á milli þeirra og
Israelsmanna í Beirút. Fóru vopna-
flutningarnir fram nokkrum
dögum síöar meö rússneskum flug-
vélum. Voru vopnin valin sam-
kvæmt skriflegum fyrirmælum
Arafats, leiötoga palestínsku
skæruliöanna, og segir utanríkis-
ráðherrann aö Alsírstjórnin hafi
oröið viö öllum óskum Arafats í
þeimefnum.
Sárasóttí
Óöinsvéum
Sjúkrahúsiö í Oðinsvéum í Dan-
mörku hefur nú varað alla lækna á
Fjóni viö því aö sárasótt gangi nú
sem faraldur á meöal kynviiltra í
borginni. Ásíöustutveimurmánuö-
um hafa 20 tilfelli veriö skráö viö
húö- og kynsjúkdómadeild spítal-
ans. Venjulega er fjöldi þeirra sem
leitar til spítalans vegna sárasóttar
lOáári.
Eru allir þeir sem telja sig finna
til einkenna beönir aö snúa sér
tafarlaust til spítalans, en hingað
til hefur sárasóttar aöeins orðiö
vart á meöal kynvilltra. Er því
afar erfitt aö finna smitberana, þar
sem margir þeirra eru giftir menn
sem vilja helst ekki viöurkenna
þessi hliöarspor sin. Aðrir sem
leitað hafa til spítalans af þessum
sökum hafa lifaö svo fjölskrúöugu
ástalífi aö þeir telja sig ekki geta
hent reiður á hugsanlegum smit-
berum.
Vinnuerjurhjá
Ford á Englandi
Verkfall um 100 starfsmanna
Fordverksmiöjunnar í Halewood í
norðvestur Englandi stöövaöi
framleiöslu í morgun. Verksmiöju-
stjórnin hefur gripiö til samdráttar
og sendi um4.50O,tímavinnufólk,af
dagvaktinni og heim í gær. AHi þaö
ekki aö mæta aftur til vinnu fyrr en
á mánudag. Ámóta hóp átti aö
senda heim af næturvaktinni þegar
hún lyki störfum í nótt. En deilan
stendur ekki um samdráttinn
heldur aöstæður á vinnustaö hjá
þeirri deildinni sem framleiðir
sætisáklæðin. Voru þaö aöallega
konur sem lögöu niöur störf í
morgun og eru ekki einu sinni til
viötals við fulltrúa eigins verka-
lýðsfélags fyrr en á mánudag.
Fagan var aldrei sóttur til saka fyrir
innbrotin og fær nú aö ganga laus.
Fær nú að ganga laus
eftir innbrotin í höll
hennar hátignar
Michael Fagan, sem braust að
næturþeli inn í Buckinghamhöll til
Elizabetar drottningar til þess aö þylja
yfir henni raunir sínar á rúmstokkn-
um, hefur nú veriö látinn laus úr
öryggisvörslu á geöspítala. Þar hefur
hann veriö frá því í október.
Geölæknar segja aö Fagan (32 ára)
sé enn vanheill andlega en engin þörf
sé á því lengur aö hafa hann í öryggis-
gæslu.
Fagan braust tvívegis inn í Bucking-
hamhöll, í júní og í júlí. Ekki var þaö í
auögunarskyni, því aö í fyrra sinnið
haföi hann ekki annað á brott meö sér
en vínflösku eina og í seinna skiptiö,
þegar hann komst inn í dyngju Breta-
drottningar, geröi hann ekki annað en
rekja fyrir henni raunir sínar í
atvinnuleysinu og baslinu. Nema aö
hann skjallaði hennar hátign fyrir aö
vera svo „falleg” og sagðist „elska
hana afskaplega”.
Hann var ekki sóttur til saka fyrir
innbrotin en dæmdur fyrir bílþjófnaö
út af ööru tilviki og þá úrskurðaöur til
geöspítala vistar um óákveöinn tíma.
Barnabarn Roose-
velts i málaferl-
um vegna sam■
búöarslita
35 ára gömul kona í New York hefur
höföaö mál á hendur William Donner
Roosevelt, barnabami Franklins
Roosevelts fyrrum forseta, en þau
bjuggu saman í óvígöri sambúö, sem
slitnaðhefur upp úr.
Anya Sonders heitir konan, sem
segir aö William hafi snúiö viö henni
baki af því aö hún hafi ekki verið nógu
leikin í tennis og „skeet’Mþróttinni.
Krefst hún þess aö hann veröi dæmdur
til þess aö greiöa henni 912.500 dollara í
„lífeyri”.
Hún heldur því fram að þegar hann
flutti inn til hennar, í nóvember 1978,
hafi hann heitiö henni aö sjá fyrir
henni þaö sem eftir væri ævinnar. En í
nóvember sl. sleit hann sambúöinni og
haföi þá í bígerö aö kvænast annarri
konu núna í janúar.
Anya segir aö William hafi greitt alla
framfærslu hennar en hún haldiö
honum heimili og þjónaö honum til
borös og sængur. Á sáttafundi þeirra
núna um miöjan janúar segir hún aö
hann hafi lofaö aö greiöa henni
mánaöarlega lífeyrir en hafi ekkert
látið af höndum rakna síöan fyrsta
janúar.
Henni reiknast svo til aö hún geti
vænst þess að lifa 44,6 ár til viðbótar og
því skuldi Roosevelt henni 535.200
dollara til mánaðarlegrar framfærslu,
afþreyingar og annars kostnaðar og
þar aö auki 334.500 dollara í orlof, sem
hún segir aö hann hafi lofað henni.
Einnig gerir hún kröfu til 28.800 dollara
fyrir þjónustu hennar í sambúðinni og
14 þúsund dollara fyrir bifreið, sem
hann hafði lofað henni en ekki staðiö
viö.
35 ARA FANGELSI
FYRIR ÓLÖGLEGAR
FÓSTUREYÐINGAR
Hjúkrunarmaöur í Barcelona á
'Spáni hefur veriö dæmdur til 35 ára
fangelsisvistar fyrir ólöglegar fóstur-
eyðingar. Alls er hér um 7 konur aö
ræöa og voru aðgeröirnar fram-
kvæmdar á árunum 1977—1979. Fengu
sex af konunum sex mánaöa fangelsis-
dóm, en sú sjöunda var dæmd til f jár-
sekta þar sem hún var enn ekki orðin
16 ára er fóstri var eytt.
Dómur þessi féll skömmu eftir aö
stjóm sósíalista tilkynnti aö hún ætlaði
aö milda hinar ströngu reglur um
fóstureyöingar sem hafa verið í gildi á
Spáni síöan á dögum Frankós. Á ný
fóstureyöingalöggjöf aö liggja fyrir í
júní og gerir hún ráö fyrir aö fóstur-
eyðingar veröi leyföar af félagslegum
ástæöum. Hefur löggjöfin væntanlega
mætt haröri gagnrýni af hálfu kirkj-
unnar manna og hægri flokkanna í
stjómarandstööunni.
Marilyn úr vínil
Þótt 20 ár séu lidin frá dauda kvikmyndaleikkonunnar
fögru, Marilyn Monroe, er enn hœgt að grœða á henni.
Nokkrir snjallir kaupsýslumenn hafa nú hafið fram-
leiðslu á Monroe-dúkku, sem selst eins og heitar lummur.
Um 3 gerðir er að rœða og kostar sú ódýrasta 1400
krónur. Þar er Marilyn úr vínil, klœdd rauðum kjól og
með loðkraga. Milligerðin er úr postulíni og kostar 7000
krónur. Þriðja og dýrasta gerðin kostar 100.000 krónur
en þar er Marilyn klœdd minkapels og með demanls-
eyrnalokka.
HAUGHEY BER AF SÉR ÁKÆR-
UR UM SÍMAHLERANIR
— og krefst opinberrar rannsóknar á áburðinum
Charles Haughey, fyrrum forsætis-
ráöherra Irska lýðveldisins, hefur
óskaö eftir sérstakri dómrannsókn
vegna áburðar nýju ríkisstjórnarinnar
um aö hiö opinbera hafi staðiö fyrir
hlemnum í stjórnartíö hans.
Haughey, sem féll þegar Fianna
Fail-flokkur hans tapaöi í þing-
kosningunum í nóvember síðasta,
haröneitar aö vita nokkuð til sh'kra
vinnubragða og segir þetta hinn alvar-
legasta áburö og mannorösmyröandi
fyrir of marga til þess aö undir því
verði legiö.
Talsmaður stjómarinnar sagöi
blaðamönnum í gærmorgun aö notuð
heföu veriö áhöld lögreglunnar í
stjómartíö Haugheys til þess aö hlera
pólitískt samtal sem var hljóöritaö og
síöan skrifaö upp. Sagði hann aö þetta
heföi komist upp í rannsókn varðandi
ásakanir um að hleruð heföu veriö
símtöl tveggja pólitískra blaöamanna í
Dublin.
En nánar var ekki fariö út í einstök
atriöi málsins og ekki lýst frekar
hvernig símtaliö heföi veriö hleraö.