Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Qupperneq 18
DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983.
Prófkjör sjálfstæðismanna í Suðurlandskjördæmi
Prófkjör sjálfstæðismanna í
Suðurlandskjördæmi - fer fram
helgina 22. og 23. janúar. Kosninga-
rétt hafa allir flokksbundnir sjálf-
stæðismenn, 16 ára og eldri, svo og
allir stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins, 20 ára og eidri, og jafn-
framt þeir stuðningsmenn sem ná 20
ára aldri á yfirstandandi ári.
Kosið verður á eftirtöldum
stöðum: Kirkjubæjarklaustri og Vík,
báða dagana frá kl. 14—18, Skógum,
laugardag frá kl. 16—20 og sunnudag
frá kl. 13—18, Félagsheimiiinu í
Vestur-Eyjafjailahreppi, sunnudag
frá kl. 12—18, Gunnarshólma og
Njálsbúð, laugardag frá kl. 11—18,
Fljótshliðarskóla, laugardag frá kl.
12—18, Félagsheimilinu Hvoli,
laugardag frá kl. 10—19 og sunnudag
frá kl. 10—20, Hellubiói, báða dagana
frá kl. 10—20, Félagsheimilinu
Brúarlundi, laugardag frá kl. 13—18,
Laugalandi, báða dagana frá kl. 13—
16, Ásmundarstöðum, laugardag frá
kl. 13—16, Samkomubúsinu í Djúpár-
hreppi, laugardag frá kl. 17—20 og
sunnudag frá ki. 13—20, Árnesi,
Flúðum og Aratungu báða dagana
frá kl. 14—18, Selfossi, Eyrarbakka,
Stokkseyri, Hveragerði, Þorlákshöfn
og Vestmannaeyjum, báða dagana
frá kl. 10—20.
Kjördæminu er skipt niður í 4 hólf:
1. Árnessýsla og Selfoss. 2. Rangár-
vailasýsla. 3. Vestmannaeyjar. 4.
Vestur-Skaftafellssýsia.
Kjósa skal 4 frambjóðendur alls, 1
úr hverju hólfi með þvi að setja tölu-
stafi fyrir framan nöfnin (1, 2, 3 eða
4). Kosning er bindandi i 4 efstu
sætin.
Byrjað verður að telja atkvæði
mánudaginn 24. janúar á Selfossi.
Urslita er að vænta eftir kvöldma*
. -JBH.
„ðlfusárbrú vegna
öryggis-
sjónarmiöa”
„Við þurfum að efla viðbrögð okkar
gagnvart verðbólgunni og taka
ákveönari stefnu gegn henni,” sagði
Kristján Torfason. „Við þurfum líka að
huga aö alhliöa atvinnuuppbyggingu á
Suöurlandi og skapa möguleika fyrir
orkufrekan iðnað. Skapa þarf byggöa-
kjarna með byggingu Ölfusárbrúar.
Það er þó ekki helsta ástæðan fyrir því
að byggja á brúna. Aðalástæðan er aö
það er rétt frá öryggissjónarmiði,
vegna hugsanlegra jaröskjálfta, til að
halda tengslum viö höfuðborgarsvæð-
ið.
Draga veröur úr styrkjaf arganinu til
atvinnuveganna og gera þeim kleift að
standa á eigin fótum. í Vestmannaeyj-
um þarf aö byggja bátaflotann upp og
iðnaðsamhliöa.”
Kristján Torfason er fæddur árið
1939. Hann er lögfræðingur, var f ulltrúi
borgardómara og starfaði líka í
Hafnarfiröi. Stundaði framhaldsnám í
Noregi. Kristján hefur verið bæjar-
fógeti í Vestmannaeyjum síðan 1975.
Hann er kvæntur Sigrúnu Sigvalda-
dóttur og eiga þau 3 börn. jbh
Kristján
Torfason:
„Uppbygging
stórskipahafnar
íÞoriákshöfn”
„Eg legg fyrst og fremst áherslu á
atvinnuvegina og atvinnulífiö,” sagöi
Guðmundur Karlsson. „Aðstoða
verður við uppbyggingu iðnaöarins í
kjördæminu. Einnig vil ég uppbygg-
ingu stórskipahafnar i Þorlákshöfn
enda erum við búnir að leggja fram
þingsályktunartiliögu um það. Byggja
þarf brú yfir Ölfusá og gera Árborgar-’
svæöiö þannig að einni heild. Þar yrði
þá þriðji stærsti vinnumarkaður í
landinu.
I Vestmannaeyjum veröur að hugsa
um viöhald bátaflotans. Hann er
orðinn nokkuð gamall og úreltur.
Þeirri þróun þarf að snúa við. Auka
veröur þar fjölbreytni í atvinnulífinu
og skapa fieiri atvinnutækifæri.”
Guðmundur Karlsson er fæddur áriö
1936 í Vestmannaeyjum. Hann er
stúdent frá Laugarvatni, hefurstarfað
við fiskiðnað og var frystihússtjóri í
Eyjum. Starfaði um skeið í Japan.
Guðmundur var bæjarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og alþingismaöur
frá 1978. Hann er kvæntur Ástu
Þórarinsdóttur, þau eiga 1 bam. -JBH.
STTi Brynleifur
: L Stein-
grímsson:
„Sá gæti réttar
semréttinn á”
„Stefnumál min eru þau að stjórn-
mál þessa lands séu í þágu heilbrigðis
á andlegu, líkamlegu og félagslegu
sviði,” sagði Brynleifur Steingríms-
son. „Hagvöxtur, atvinnumál og allar
athafnir þjóöfélagsins eigi að miðast
við þetta og séu tæki til að skapa frjótt
mannlíf þar sem menning og frjálst líf
dafnar.
Eg iegg áherslu á að Suðurlandskjör-
dæmi sé hlutgengt í ríkismálum og at-
vinnumálum. Þeim málefnum sem
koma fólki kjördæmisins viö sé stýrt
af heimamönnum og sú tilhneiging til
miðstýringar sem veriö hefur aö
undanförnu breytt til raunhæfrar vald-
dreifingar. Hið einfalda lögmál gildi aö
sá gæti réttar síns sem réttinn á. Gott
dæmi eru heilbrigöismál og þjónustu-
mál. Sá er alltaf eldurinn heitastur
sem á sjálfum brennur.”
Brynleifur Steingrímsson er 53ja
ára, læknir á Selfossi og sérfræöingur í
embættislækningum sem er menntun
um stjórnun heilbrigðisstofnana og
félagslækninga. Hann er kvæntur
Huldu Guöbjömsdóttur frá Vest-
mannaeyjum. -JBH.
Þorsteinn
Pálsson:
„Þarfbreytta
efnahagsstefnu”
„Það sem mestu máli skiptir í dag er
að knýja fram breytta efnahagsstefnu
og skjóta styrkari stoöum undir at-
vinnulífiö, vinna að úrbótum í sam-
göngumálum og tryggja eðlilega at-
vinnuuppbyggingu,” sagði Þorsteinn
Pálsson. „Annars hef ég enga einka-
stefnu í þessu prófkjöri. Við sem bjóð-
um okkur fram emm allir sjálfstæðis-
menn og berjumst sameiginlega fyrir
stefnuSjálfstæðisflokksins.
Urbætur í samgöngumálum veröa
auðvitað aö gerast um land allt en ekki
síður hér en annars staðar. Hér eru
samgöngur fremur einhæfar. En
meginmálið nú eraðtryggja jafnvægi í
atvinnuuppbyggingu um land allt. ”
Þorsteinn Pálsson er fæddur árið
1947. Hann er lögfræðingur. Hann var
blaðamaður á Morgunblaðinu og rit-
stjóri á Vísi en er nú framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambands Is-
lands. Þorsteinn er í miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins. Hann er kvæntur Ingi-
björgu Rafnar og eiga þau 3 böm. JBH
* y
Jón
Þorgilsson:
„Koma atvinnu-
lífinuá traustan
grundvöll”
„Sem sveitarstjórnarmaður hef ég
áhuga á öllum þeim málum sem teljast
til almennra þjóðmála og horfa jafn-
framt til heilia fyrir Suöurland,” sagði
Jón Þorgilsson. „Atvinnu- og efna-
hagsmálin eru þó grundvöllur alls
annars. Nauðsynlegt er að koma
atvinnulifinu á traustan grundvöli en
það verður ekki gert nema með því að
koma lagi á efnahagsmálin og minnka
verðbólguna. Við getum ekki haft 60—
80% verðbólgu til langframa ef halda á
viðunandi lífskjörum í landinu. Verð-
bólgan og efnahagsmálin eru því brýn-
ustu verkefnin nú sem verður að
leysa.”
Jón Þorgilsson er fæddur áriö 1931 á
Ægissíðu. Eftir nám á Laugarvatni
hefur hann átt heima á Hellu. Vann þar
fyrst hjá Kaupfélaginu Þór en var
síðar fulltrúi á skattstofunni. Oddviti
Rangárvallahrepps 1966—1974 og
sveitarstjóri frá 1978. Hefur gegnt
mörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn og hann er formaöur
Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
Hann er kvæntur Gerði Jónasdóttur og
eigaþau2böm. -JBH.
Siggeir
Björnsson:
„Hafnargerð
íDyrhólaey”
„Eg legg áherslu á að efia atvinnulíf
á Suöurlandi sem því miður er lág-
launasvæði,” segir Siggeir Bjömsson
bóndi í Holti á Síöu. Siggeir bendir á að
nú, þegar landbúnaður er í lægð, sé
brýnt aö efla aðrar atvinnugreinar svo
fólk flytjist ekki burt úr kjördæminu.
Hann vill minna ó þingsályktunartil-
lögu sem hann hefur flutt um hafnar-
gerð í Dyrhólaey. Þá vill hann og efla
útgerð í Þorlákshöfn. Siggeir telur aö
tímabærtséaðfaraaðhugaaöstóriöju
á Suöurlandi og nefnir Eyrarbakka í
því sambandi. „Þar sem stærsti hluti
raforkunnar kemur frá Suðurlandi
finnst mér réttiátt að kjördæminu gef-
ist kostur á stóriðjurekstri. Fara verð-
ur þó að öllu með gát í þeim málum svo
ekki raskist annað atvinnulíf eða um-
hverfi,” segir Siggeir.
Að auki leggur hann áherslu á aukn-
ar samgöngur meö varanlegu slitlagi á
vegiíkjördæminu.
Siggeir Bjömsson er fæddur 15. janú-
ar 1919 í Holti á Síðu og rekur þar bú-
skap, jafnframt því sem hann er
varaþingmaöur fyrir Suöurland. Hann
er kvæntur Margréti Jónsdóttur og
eiga þau tvær dætur.
SÞS
Eggert
Haukdal:
„Nýtt stórátak
meginmálið”
„Ég vil leggja áherslu á aö þó að allt
of hægt miði hefur nú, eftir langt kyrr-
stööutímabil, verið gert verulegt átak
á Suðurlandi, sérstaklega í lagningu
hitaveitu og gerð varanlegs vegar frá
því Ingólfur Jónsson gerði stórvirki í
vegamálum á Suðurlandi,” segir
Eggert HaukdaJ alþingismaður.
„Framkvæmdastofnun hefur sýnt
málum þessum skilning og lagt fé til
þessara framkvæmda. Þrátt fyrir
þetta er meginmálið fyrir Suöuriand
nýtt stórátak, sérstaklega í vegamál-
unum og vil ég þar nefna brú á ölfusár-
ósa, en því máli verður aö hraða. Þá
vantar orkufrekt fyrirtæki í kjördæm-
ið, en grundvöllurinn fyrir því er ein-
mitt brúin á Ölfusárósana ásamt stór-
skipahöfn í Þorlákshöfn. Eg vil einnig
leggja áherslu á hafnarmál víðar og
iönaðarmál og ekki má gleyma að efla
þá atvinnuvegi sem stærstir eru fyrir í
fjórðungnum, landbúnað og sjávarút-
veg, en þeir hafa stóru hlutverki að
gegna á þessu svæði. ”
Eggert Haukdal er fæddur í Flatey á
Breiöafirði 1933 en hefur búið á Berg-
þórshvoli frá 12 ára aldri. Hann hefur
setiö á Alþingi síðan 1979 og er stjóm-
arformaður Framkvæmdastofnunar.
SÞS
Ámi
Johnsen:
„Þarfmenn sem
vilja taka
afskarið”
„Eins og þorri almennings í landinu
er ég orðinn þreyttur á afstööuleysi allt
of margra ráðamanna. Það þarf menn
sem vilja taka af skarið, framkvæma
það sem þarf að framkvæma, taka af-
stööu þótt því fylgi sú áhætta að ein-
hver mistök eigi sér staö. Eg vil heldur
taka slíka áhættu en sitja aðgerða -
laus. Stjómmálamenn eiga að standa
og falla með gjörðum sínum.
Við unga fólkið í landinu viljum
bjartari tíö með betri vinnubrögðum á
sviði stjórnmála. Við viljum bjartsýni
og áræði í stað samdráttarstefnu á
sviði sjávarútvegs, landbúnaðar og
iönaðar. Eg vil berjast fyrir Suður-
landskjördæmi sem hefur verið svelt á
margan hátt á sama tíma og dekrað er
viö aðra landsfjórðunga.”
Ámi Johnsen er fæddur í Vest-
mannaeyjum 1. mars 1944. Hann er
kennari að mennt en hefur starfaö sem
blaðamaður við Morgunblaðiö í 15 ár.
SÞS
ÓliMár
Aronsson:
„Stórbæta
atvinnumál”
„Eg legg aðaláherslu áaðstórbæta
atvinnumól hér á Suöurlandi með auk-
inni fullvinnslu sjávar- og landbúnaö-
arafurða ásamt því að hlúa aö þeim
iönaði öðrum sem fyrir er,” segir Oli
Már Aronsson iðnrekandi á Hellu.
„Forsenda þess eraðstjómmálamenn
komi efnahagsmálum þjóðarinnar í
samt lag til frambúðar án þess að
hugsa um stundarhagsmuni. Þeir
verða að þora aö gera óvinsælar ráö-
stafanir þegar þeirra er þörf. Eg hef
trú á að Sjálfstæðisflokkurinn sé eina
aflið í stjómmálum þjóðarinnar í dag
sem getur leyst þetta af hendi.
Af öðrum málum má nefna símamál
og verðlag á raforku sem em vanda-
mál í nokkrum héruðum sem verður
að leysa,’ ’ segir Oli Már.
Oli Már Aronsson er fæddur í
Reykjavík 1947, er vélstjóri aö mennt
og hefur síðan 1973 rekið iðnfyrirtæki á
Hellu. Hann er kvæntur Kristínu Guð-
mundsdóttur og eiga þau þrjú börn.
SÞS
Óli Þ.
Guðbjarts-
son:
„Megináhersla
áfimmatriði”
„Ég legg megináherslu á fimm at-
riði sem miða aö fjölgun atvinnutæki-
færa á Suðurlandi og eiga aö koma í
veg fyrir að þau flytjist burt af svæö-
inu,” segir Oli Þ. Guöbjartsson skóla-
stjóri. „I fyrsta lagi em það úrbætur í
samgöngumálum á Suöurlandi. I ööm
lagi efling landbúnaöar með nýjum
tökum í markaösmálum. I þriðja lagi
frekari nýting sunnlenskrar orku og
iönaðarhráefna í kjördæminu sjálfu
með alhliða iðnaðaruppbyggingu. I
fjórða lagi legg ég áherslu á aukningu
útgerðar á Suöurlandi með vemlegum
ha&iarbótum og enn fremur með
bættri nýtingu alls sjávarafla. I
fimmta lagi samræmingu og eflingu
skólakerfis á Suðurlandi með sérstöku
tilliti til atvinnuvega þar, auk þess að
byggja upp sjálfstætt og fjölþætt lista-
og menningalíf í k jördæminu. ”
Oli Þ. Guðbjartsson er fæddur 27.
ágúst 1935 á Bíldudal. Hann hefur verið
skólastjóri gagnfræðaskólans á Sel-
fossi frá 1970 og er forseti bæjarstjóm-
ar Selfoss í dag. Hann er kvæntur
Svövu Kjartansdóttur frá Torfastöðum
í Fljótshlíö og eiga þau þr jú börn.
SÞS
Björn
Þorláksson:
„Fyrirtæki
skattlögðúrhófi”
„Eitt af helstu verkefnunum í Suður-
landskjördæmi eru atvinnumálin,”
segir Bjöm Þorláksson bóndi á Eyjar-
hólum í Dyrhólahreppi. „Næg atvinna
er skilyrði til þess að fólk setjist að á
hinum ýmsu stööum og stjórnvöld
verða að skapa þau skilyrði til þess að
einstaklingar eða félagasamtök geti og
vilji leggja út í atvinnurekstur. Nú eru
öll fyrirtæki skattlögð úr hófi fram
þannig að þau hafa ekki getað myndaö
sitt eigið f jármagn til endumýjunar og
uppbyggingar á starfsemi sinni.
Önnur mikilvæg mál í kjördæminu
eru samgöngumálin. Þar sem engin
höfn er frá Þorlákshöfn til Hafnar í
Homafiröi eru góðar samgöngur á
landi nauðsynlegar,” segir Björn.
Björn Þorláksson er fæddur á Eyja-
hólum í Dyrhólahreppi 29. júní 1939.
Hann er mjólkurfræðingur að mennt,
kvæntur Rósu Haraldsdóttur og eiga
þaufimmböm.
SÞS
Einar
Kjartans-
son:
„Suðurland hefur
dregistafturúr”
„Atvinnumál okkar Sunnlendinga
eru ofariega á baugi hjá mér,” sagði
Einar Kjartansson. „Ég tel að Suður-
land sé ein heild í þeim efnum þó að
Vestmannaeyjar séu þar að sumu leyti
sér á báti. Eins og allir vita hefur
Suðurland dregist að mörgu leyti aftur
úr, til dæmis varðandi fólksfjölgun.
Upp á síðkastið hefur verið sam-
dráttur í landbúnaði. Hefur það komið
niður á bændum en ekki síður byggða-
kjömum í sambandi við þjónustu. Úr-
vinnsla landbúnaðarvara hefur ekki
vaxiö til neinna muna og mikið verið
flutt óunniö til Reykjavíkur og unnið
þar. Ég vil færa úrvinnsluna meira
heim í hérað. Aukin framleiösla hefur
ekki verið helsta ástæöa þessarar
kreppu í landbúnaöi heldur verðbólg-
an.”
Einar Kjartansson er fæddur árið
1930 í Þórisholti Vestur-Skaftafells-
sýslu og er bóndi þar. Var hrepps-
nefndarmaður um 12 ára skeiö. Hann
er kvæntur Sigurbjörgu Pálsdóttur og
eigaþauöböm. jbh