Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1983, Qupperneq 35
DV. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR1983.
35
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
— lætur hárin á Kojak
rísa
Leikarinn frægi, Telly Savalas, eöa
öllu heldur lögreglumaöurinn Kojak,
er nú heiftarlega reiöur út í dóttur
sína, Nieholette, sem er 18 ára aö aldri.
Ástæöan fyrir reiðinni er sú aö hún
er í ástarsambandi viö söngvarann
Leif Garrett sem nú er tvítugur.
Telly er ákaflega á móti Garrett og
getur ekki hugsað sér hann sem
tengdason. Telly segir aö þaö skipti sig
engu máli þótt Leif Garrett sé bæöi
ungur, ríkur og lofi góöu sem leikari,
dóttir hans eigi eitthvaö annað og
betra skiliö. Já, langtum betra.
Svo reiöur ku Telly vera að kunningj-
ar hans eru famir aö hafa þetta í
flimtingum og segja aö það sé augljóst
aö hárin séu ekki farin aö rísa en fyrr
megi nú vera reiöin fyrst skinnið á
toppstykkinu sé farið aö bærast.
Ferill Garretts i kvennamálum þyk-
ir nokkuö skrautlegur. Hefur hann
veriö meö hinum og þessum og var á
tímabili bæöi meö Kristy McNichol og
Tatum O’Neal — á sama tíma. Þá hef-
ur hann tvisvar veriö tekinn ölvaður
viö akstur.
En hvaö sem öllu líður þá er togast á
innan fjölskyldunnar. Sviöljósiö bíöur
spennt eftir aö fá aö vita hvorum stúlk-
an tekur meira mark á, fööur sínum
Kojak eöa elskhuganum Leif Garrett.
„Svona Lebbi, taktu utan um mig.
Ég skii ekki gömlu felguna hann
pabba. Nú erhann alveg að krebera
yfir sambandi okkar og þú sem ert
svo sætur og klár." „Svona, Nikki,
andaðu rólega. Segðu honum að
hann geti fengið nóg af sleikjó úti i
sjoppu þurfi hann að þenja sig."
Dóttir Telly Savalas, Nicholette, og
söngvarinn Leif Garrett eru nú sam-
an á föstu. Kojak er þó ekkert hrif-
inn.
A góðum degi er gott að gleðjast. Kampakátir borgarfulltrúar i sextugsaf-
mæli Kristjáns. Talið frá vinstri: Sigurjón Pétursson, Davið Oddsson
borgarstjóri, Sigurður E. Guðmundsson, afmælisbarnið Kristján Bene-
diktsson og Markús örn Antonsson.
„Hann á afmæli, hann Kristján”
— hanná
„Sjonni, sástu hvernig óg tætti strætóinn iáramótaskaupinu isundur, maður. Þetta var ekkert mál, þó ég
viðurkenni að óg varð rosalega svekktur þegar óg vissi að þetta var Volvo en ekki Ikarus. En ævintýrið
kostaði skildinginn. Svo eru menn hissa þó maður hafi orðið að hækka fargjöldin i kjölfarið. Það er eins
og ekkert megi lengur i þessu þjóðfólagi."
DV-myndir: GVA
Kristján Benediktsson, borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins, varö
sextugur á dögunum. Og eins og flestra
er siður á slíkum tímamótum hélt hann
uppádaginn.
Aö sjálfsögöú litu flestir borgarfuli-
trúarnir inn til hans og fögnuöu meö
honum. Viö í Sviðsljósinu komum við
hjá kempunni og smelltum nokkrum
myndum af veislugestum. Ekki bar á
ööru en glatt væri á hjalla og menn
heföu um nóg aö ræöa þótt eflaust hafi
þeir ekki allir verið sammála frekar en
fyrridaginn.
Þess má geta að borgarráð gaf
Kristjáni forkunnarfagurt málverk
eftir Hring Jóhannesson í tilefni
afmælisins.
Við óskum Kristjáni til hamingju
meö afmæliö.
-JGH
mBm
MK
Lebbi
Blebbi