Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Side 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR
37.TBL.—73.og9.ARG. —MANUDAGUR 14. FEBRUAR 1983.
Miðstjómarfundur Framsóknarflokksins um kjördæmamálið:
Steingrímur fékk umboð
ágreiningur varð um skilyrði fyrir umboðinu
Miðstjórn Framsóknarflokksins
samþykkti á fundi sínum í gær að veita
Steingrími Hermannssyni, formanni
flokksins, umboð til þess að vinna
áfram að samkomulagi um breytingar
á stjómarskrá og kosningalögum. Þau
atriði sem fundurinn viidi leggja
áherslu á vora 4, að sögn Tómasar
Ámasonar ráðherra og voru þau ein-
róma samþykkt: 1. Vægi atkvæða á
milli þéttbýlis og dreifbýlis verði svip-
að og 1959, 2. Fjölgun þingmanna verði
sem minnst, 3. Kjördæmakjömir þing-
menn verði semflestir (t.d. 53 af 63),4.
Þingmönnum verði hvergi fækkað.
Einnig var ályktað um hvernig jöfn-
unarsætum ætti að útbýta. Jöfnunar-
sætum í þéttbýli veröi úthlutað fyrst en
einnig komi til greina að jafna í öðmm
kjördæmum.
A fundinum sem stóð frá 14 í gær til
24 urðu miklar umræður. Fram komu
meðal annars þau sjónarmið að gæta
þess við setningu nýrrar stjórnarskrár
og kosningalaga aö veikja landsbyggö-
ina ekki of mikið.
Inni í samþykkt miðstjórnar nú er
ekki ákvæði um hvenær kosningalög-
unum verði breytt. „En við höfum lagt
á það áherslu,” sagði Tómas, „að það
verði kosið eftir gildandi kosningalög-
um í næstu kosningum.”
Þrátt fyrir að umboðið til handa
Steingrími hafi verið samþykkt sam-
hljóða varð töluverður ágreiningur um
skilyrði umboðsins.
„Það hefur verið samþykkt af
flokknum að fækka hvergi kjördæma-
kjörnum þingmönnum,” segir Páll
Pétursson alþingismaður. „En sam-
kvæmt umboðinu er ekki hægt að líta á
síðasta þingmann litlu kjördæmanna
sem kjördæmakjörinn, því við úthlut-
un þess þingsætis er tekið mið af úrslit-
um annars staöar á landinu. Sá þing-
maður er því í eðli sínu uppbótarþing-
maður og þar meö tel ég vikið frá fyrri
samþykkt flokksins.”
JBH/SþS
Já við jöfnun atkvæðisréttar
— sjábls.3
Fresta varð 32 leikjum
— sjá átta síðna blaðauka um íþróttir
Shakespeare kallinn og
rækjusjómennimir
— sjá Menning á bls. 14-15
Bolla bolla
DV-mynd GVA
Áskriftarþjónusta DV:
771 Lundúna í viku fyrir 7900 krónur
Áskrifendum DV býðst að taka
þátt í Lundúnaferö vikuna 13.—20.
mars næstkomandi. Verð er frá
krónum 7900. Það er vegna einstak-
lega hagstæðra samninga viö Ferða-
skrifstofuna Polaris sem DV veitist
sú ánægja að bjóða áskrifendum
sínum upp á þessa ferö. Þeim áskrif-
endum DV sem áhuga hafa á að taka
þátt í þessari fyrstu ferð er bent á að
hafa samband við Ferðaskrifstof-
una Polaris, Bankastræti 8, í símum
28622 og 15340 sem fyrst.
I ferðinni er innifalið flug, gisting í
sjö nætur með morgunverði,
flutningur til og frá hótelum, leikhús-
ferð á hinn vinsæla söngleik „Cats”,
og kvöldferð á „Pub” (Aba Daba
Music Hall), þar sem ýmsir
skemmtikraftar koma fram.
Hægt verður að útvega aögöngu-
miða í önnur leikhús borgarinnar þar
sem ýmis vinsæl leikrit og söngleikir
eru í gangi. Þar á meöal má nefna
söngleikina „Evita” og „Guys and
Dolls”. Einnig má benda á hið
sívinsæla leikrit Músagildruna eftir
Agöthu Christie, en leikritið er nú á
31-sýningarári.
Fyrir þá er unna klassískri tónlist
er hægt að útvega miða á hljómleika
London Symphony Orchestra, en
mörg vinsæl klassísk verk verða á
dagskrá hljómsveitarinnar þessa
vikusem dvalið er í Lundúnum,
Knattspyrnuunnendum er bent á
leik Arsenal og Luton í fyrstu deild-
inni ensku laugardaginn 19. mars,
auk ýmissa annarra knattspyrnu-
leikja. Þá verður hægt að útvega
aðgöngumiða aö ýmsum sýningum,
söfnum og í skoðunarferöir.
Fararstjóri verður með í ferðinni
og mun hann aðstoða fólk viö hvers
konar þjónustu aðra, sem er á
boðstólum í þessari gamalgrónu
heimsborg.
Þeir sem hafa hug á að tryggja sér
sæti í þessa fyrstu ferð er bent á að
hafa samband við Ferðaskrifstofuna
Polaris semfyrst.
-SþS