Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Blaðsíða 9
DV. MÁNUDAGUR14. FEBRUAR1983. UtBönd Utlönd Útlönd Utlönd Jerry Lewis kvænist öðru sinni Kvikmyndastjarnan Jerry Lewis gekk í gær að eiga ballettdans- meyna Söndru Pitnick (32 ára ), sambýliskonu sína síðan 1979. Þetta er annað hjónaband þessa 56 ára gamla grinleikara. Hann kvæntist átján ára gamall söngkon- unni Patti Palmer en þau skildu lögskilnaði 1980. Attu þau sex syni. — Greiðir Lewis henni 400 þúsund dollara í lífeyri á ári. Hann gekk undir hjartauppskurð í fyrra, seint, en læknar sögðu í síð- ustu viku að hann hefði náð sér algjörlega. Jerry Lewis sagði blaðamönnum í gær í Miami að hann léti það ekki hrella sig að kvænast 13. febrúar, því að þrettán væri happatala sín. Dauði Dlimi hershöfðingja: Enn vex granur- inn um morð Enn berast fregnir frá Marokkó, sem benda til þess að eitthvað sé athugavert við frásagnir stjórnvalda þar af dauða Dlimi hershöfðingja. Eins og sagt var frá hér í síðustu viku rekst framburður vitna, sem nærstödd voru, á við framburð stjórnvalda. Frá- . sögn DV af þessu máli var byggð á fréttum úr franska dagblaðinu Le Monde og nú hefur fréttaritari þess blaðs, Roland Delcour, verið rekinn úr landi í Marokkó, en hafði áður verið í haldi lögreglunnar í tvo daga og yfir- heyrður. Hann neitaði að láta uppi heimildarmenn sína, en gat þess aöeins að hann hefði upplýsingar sínar eftir „áreiðanlegum heimildum.” Þá er því viö aö bæta að frekari upplýsingar hafa komið fram, sem virðast enn frekar grafa undan yfir- lýsingum stjórnvalda um dauða Dlimis. Þannig segir í Le Monde að ekkert bama eða ættingja hers- höföingjans hafi fengið að sjá líkið. Sonur hershöfðingjans kom þó á slys- stað örskömmu eftir atburðinn. Það var svo skömmu fyrir jaröarförina að lokaðri kistu hershöfðingjans var skilað til ætting janna. Þá hefur fyrrum liðsforingi í her Marokkó, Ahmed Rami, nú búsettur í Svíþjóð, lýst því yfir að hann hafi hitt Dlimi í Stokkhólmi fyrir rúmum tveim mánuðum og að þá hafi Dlimi trúað honum fyrir þvi að hann ráðgerði valdatöku í sumar. Það er ekki víst hvað skal treysta þessum vitnisburði, en vert aö rifja upp aö um viku fyrir dauöa Dlimis voru liösforingjar úr flughemum handteknir og hafa verið í haldi síðan. Dllmi hershöfðingi, helsti ráðgjafi Hassans II Marokkókóngs og lengi yfirmaður leyniþjónustunnar þar í landi. Hugði hann á valdarán? ROSTUR VEGNA KOSN- INGA Fylkiskosningar hófust í Assam í norðausturhluta Indlands í morgun, en þar ríkir mikil ólga með tilburðum til þess að fá fólk til að sniðganga kosningamar. 90 manns hafa látið þar lífið síðustu tvær vikur í óeirðum hindútrúarmanna og múslima. Kosningamar eiga að fara fram í þrem áföngum. I dag, á fimmtudag og á sunnudaginn. Hafa þúsundir vopnaöra lögreglumanna verið sendir til fylkisins til þess aö halda uppi lögum og reglum. Hindútrúar íbúar Assam eru æfir vegna mikils innflutnings Bengali- talandi múslima í fylkið og vilja ekki að þeir hafi atkvæðisrétt í kosningun- um. Vilja þeir fæla fólk frá því að kjósa. Stúdentasamtök þeirra hafa hótað að ræna kjörkössum og sækja að kjörstöðum. Kosnir skulu 126 fulltrúar á fylkis- þingið og tólf á landsþingið í Delhí. Fjórir frambjóðendur úr Kongress- flokki Indiru hafa þegar veriö lýstir sjálfkjömir. S Þessi mynd var tekin við Hilton-hótelið í Washington, í sömu mund og byssukúia tilræðismannsins hæfði Reagan Bandarikjaforseta. Tilræðismaður Reagans reynir siálfsmord Hinckley færður á milli réttarsala. John Hinckley jr., sem særði Reag- an Bandaríkjaforseta í banatilræði hér um árið, hefur enn gert tilraun til þess að fy rirf ara sér. Gley pti hann einhvern óþverra og var fluttur í ofboði af geð- spítalanum á slysavarðstofu. Segja læknar að honum muni ekki verða meint af. Hinckley var úrskurðaður geðveikur og því ekki ábyrgur gerða sinna þegar hann skaut Reagan og þrjá menn aðra í Washington 30. mars 1981. Verjendur hans sögðu að hann hefði reynt að ráða Reagan af dögum til þess að ganga í augu leikkonunnar Jodie Foser, sem hann hafði fengið á heilann þótt hún þekkti ekki hið minnsta tU hans nema af geðveikis- legum aðdáendabréfum sem hann sendi henni. Meðan á réttarhöldunum stóð reyndi Hinckley að hengja sig í jakfea sínum og í maí 1981 tók hann inn of stóran skammt af höfuðverkjartöflum. kvikmyndahúsi I morgun leituðu björgunarmenn enn í rústiun kvikmyndahúss í Torino þar sem 64 létust þegar kviknaði í húsinu í gærkveldi. Mörg líkanna sem þegar hafa fundist eru óþekkjanleg. Þetta er versti bruni í langan tíma á Italíu. Rúmlega 30 likanna fundust á salernum kvikmyndahússins, sem heitir Statuo, og er tahð að óttaslegnir gestirnir hafi viUst á dyrunum að sal- ernunum og neyðarútgöngum. Snemma í morgun sögðu lögregluyfir- völd að ekki hefðu fundist fleiri lUc í nokkra klukkutíma. Menn vonast til að ekki hafi fleiri farist í brunanum en þegar hafa fundist. Ekki er enn komin endanleg tala um slasaöa og látna en allir spítalar í nánd við slysstaðinn hafa fengið sjúklinga til ummönnunar. Slökkvihðsmenn, sem leituðu að líkum, fundu í gærkveldi óvarðar raf- magnsleiöslur sem lágu eftir aðal- gangi kvikmyndahússins. Sérfræö- ingar slökkviliðsins töldu, að skamm- hlaup í þessum leiðslum hefði getað valdið brunanum. Yfirsaksóknari Torinoborgar, Bruno Caccia, kærði framkvæmdastjóra kvikmynda- hússins fyrir manndráp og hirðuleysi í starfi. Lögregluyfirvöld hafa gefið út hsta með nöfnum um 20 fórnardýranna en flesti þeirra voru milli tvítugs og þrítugs. Seint í gærkveldi hafði safnast saman hópur fólks fyrir utan bruna- rústirnar, meðal þeirra ættingjar ungs fólks sem hafði ætlað í bíó og ekki komið heim á tilsettum tíma. Stórbruni á Ítalíu: Sextíu brunnu inni í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.