Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Blaðsíða 20
20 DV. MÁNUDAGUR14. FEBRUAR1983. MOTOROLA Alternatorar Haukur og Ólafur Ármúla 32 - Sími 37700. Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að gjalddagi söluskatts fyrir janúarmánuð er 15. febrúar. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskatts- skýrslu í þríriti. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ 10. febrúar 1983. ÞRÓUNAR SAMVINNU SÍOFNUN (SLANDS Þróunarsamvinnustofnun Islands auglýsir hér með lausar til umsóknar stöður verkefnisstjóra og skipstjóra viö fiskveiði- verkefnið á Cabo Verde. Verkefnisstjóra sem skal stjórna á staönum af hálfu ÞSSÍ framkvæmd aðstoðarverkefnis á sviði fiskveiða í samráði viö stjórnvöld Cabo Verde á grundvelli fyrirframgerðrar áætlun- ar. Um er að ræða m.a. almenna útgerðarstjórn, skýrslugerð og bókhald. Skipstjóra á nýtt 150 smál. fjölveiðiskip sem er í smíðum hjá Slippstöðinni hf., Akureyri. Skipinu er ætlað að stunda veiðar, veiöitilraunir, haf- og fiskirannsóknir viö Cabo Verde, auk þess að vera notaö til kennslu í fiskveiðum. I umsóknunum þarf m.a. að koma fram menntun, tungu- málakunnátta og starfsreynsla, þar á meðal í þróunarlöndun- um ef um er að ræða. Jafnframt er óskað eftir meðmælum. Umsækjendur verða að vera reiðubúnir til náms í portú- göisku. Gert er ráð fyrir að þeir sem ráðnir verða taki þátt í 4ra vikna undirbúningsnámskeiði og hefji störf um mitt ár eða samkvæmt nánara samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 12. mars 1983. Allar nánari upplýs- ingar verða veittar á skrifstofu ÞSSI, Rauðarárstíg 25, sími 25133, kl. 9—10 daglega. Ymur allsherjargoðans Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoði kveöur hluta Völvuspár, Hávamála og Sigurdrrfumála. Hljómplata í útgáfu Gramms. Um áratugar skeiö hefur Asatrúar- félag veriö við lýöi á Islandi. Mér liggur við aö halda aö fregnir af félagi þessu hafi veriö öllu fyrirferðarmeiri á erlendum vettvangi en innlendum. Meginþorra Islendinga viröist tilvist þessa trúfélags litlu máli skipta, en áhuga erlendra túrhesta verða þeir sem þá leiöa, áþreifanlega varir við. Fer þá jafnan vel á að reifa þau mál þegar ekið er um Geldingadraga og bær allsherjargoðans blasir viö, og reynast menn yfirleitt áhugasamir um blótsiðu og aðra ímyndaða villimennsku heiðingjanna. Grunar mig raunar að Islendingar sjálfir séu haldnir ámóta bábiljum um þennan landsins sið, og fávitandi túrhestar úr öðrum löndum. Er ýmislegt til að renna stoðum undir þá tilgátu og skulu hér tekin nokkur dæmi. Er því til dæm- is nokkurn tima á loft haldið að heiðnir menn á Islandi hafi sett lög um sam- hjálp, hefndar-, erfða- og fram- færsluskyldu allt í fimmta lið? Er það nokkum tíma útskýrt fyrir skóla- bömum að hreppurinn hafi verið gagnkvæmt tryggingafélag frjálsra búenda, en ekki stjórnskipuleg; rekstrareining eins og kirkjusóknin og síðar sveitarfélagið? — Eða að líflát og likamsmeiðingar hafi ekki þekkst sem refsing samkvæmt heiðinna manna lögum, heldur fésektir eða útlegð? Nú, einhvern vísdóm hljóta menn svo að hafa lagt til grundvallar svo mannúðlegu þjóöskipulagi. Jú, mikiö rétt, og þar er hlutur Eddukvæða stór. Hluta úr þeim kveður Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoði á hljóm- plötu sem út kom hjá Grammi á nýliðn- um ýli. Varla getur kveðandi Svein- bjamar talist margslungin eöa rishá músík, en kveðandin er þekkileg og af öðrum toga en hið viötekna Iðunnarlag sem menn þekkja af rímnaþulum nútímans. I allri einfeldni talsöngs þessa kemur innihald kvæðanna einungis skýrar í ljós. Vísdómur sem á jafnt erindi við nútímamanninn, hvort sem hann aðhyllist trú á Æsi eða önnur máttarvöld. Ymur, gæti söngliö með góðu móti nefnst og væri það þá í samræmi við goðsögnina „Borssynir drápu Ymi jötun ...” Ymir, tákn hljóðsins, er eitt af þeim meginatriöum sem tengir Ásatrú við önnur meiri háttar og merkileg trúarbrögð. Þeim er það öll- um sameiginlegt aö telja að hljóö hafi komiö veröldinni í gang. Það var fylli- lega tímabært að festa „Ym” alls- herjargoöans á hljómplötu, ekki síst þar sem platan er í alla staði vel úr garði gerð, með vönduðu textafylgiriti á germönskum megintungum og þar með aðstandendum sínum öilum til sóma. -EM. Orghestar—Konungar frumskógarins: Reðurmenning f fyrirrúmi Nýverið barst mér í hendur stór 45 snúninga plata með Orghestunum en nafniö á henni er Konungar frumskóg- arins. Platan geymir fjögur lög sem tekin voru upp í október 1981 og eru því komin til ára sinna. En platan kom semsagt ekki alls fyrir löngu. Orghestamir hafa nokkuð látið til sín taka áður og eru upprunnir frá kóngsins Kaupinhafn ef mig mis- minnir ekki. Þeir hafa ávallt verið orðaöir við flipp og andborgaralegan boðskap, í min ey ru í það minnsta. Hestamir em: Benóný Ægisson, söngur og hljómborð og semur auk þess þrjú laganna, Brynjólfur Stefáns- son bassi, Gestur Guðnason, gítar og á fjórða lagið og Sigurður Hannesson trommur. Fjórir em þeir allra sæmilegustu hljóðfæraleikarar og sér- staklega vil ég nefna þá Brynjólf og Sigurð sem fá þó fæst tækifærin. Gestur hefur lag á að kreista eymdar- væl út úr gítamum sinum og er auk þess fingralipur. Benóný leikur hæ- versklega á hljómborðin sín og hefði gjaman mátt fylgja sama heilræði í söngnum. Þar liggur nefnilega veikasti hlekkur plötunnar. Söngurinn er ansi slæmur. Nema kórsöngurinn á bak við. Lögin fjögur em misjöfn. Best er Flogið í fjórvídd þótt stefið hljómi kunnuglega. Að því get ég þó ekki fært nein rök. Sérstakt lag sem söngurinn nær að draga niður á við. Þá vil ég nefna lagið Kannski þar sem fjór- menningarnir þreifa fyrir sér í skatakti. Nokkuð þekkilegt lag. Þar sýna þeir bestu frammistöðuna á hljóðfærin. Textarnir em oft sannkallaður leir- burður og þaö sem meira er þá falla þeir oft illa að laglínunni. Innihaldið er fátæklegt sömuleiðis en fjallar aö mestu um vandamál daglegs lífs. Það er þó reðurmenningin sem situr í fyrir- rúmi, samanber forsíðumyndina. Orghestarnir eru enn „ein af þessum hljómsveitum”. Allir geta þeir leikið á hljóðfæri. En lífsneistann vantar. Eg er þó ekki frá því að hann finnist bráðlega. Hver veit? -TT. NÝJAR PLÖTUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.