Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Blaðsíða 2
2 DV. MÁNUDAGUR14. FEBRUAR1983. Alþýðubandalagið og vísitölumálið: Við minnum á ákvæðin í stjómarsáttmálanum — segir Kjartan Olafsson, varaformaður flokksins Alþýöubandalagið hélt miö-| stjórnarfund um helgina þar sem réedd voru þau mál sem efst tróna á stjómmálasviöinu þessa dagana. Þar var meðal annars samþykkt ályktun er varöar vísitölumáliö. Einnig var samþykkt aö Svavar Gestsson heföi áfram í samráöi viö þingflokk og framkvæmdastjórn umboö varöandi kjördæmamálið. „Það er auövitað mjög alvarlegt mál ef slík lög verða samþykkt á Alþingi,” sagöi Kjartan Olafsson, varaformaður Alþýöubandalagsins, um vísitölumálið í samtali við DV í gær. „Viö hljótum aö minna á það ákvæði í stjórnarsáttmálanum að ekki veröi aö tilhlutan þessarar ríkis- stjómar sett lög sem feli í sér inngrip; í kjarasamninga, nema um sé aö ræöa samþykki allra stjórnar- aðilanna. Eins og þetta frumvarp hefur veriö höfum við ekki verið sáttir viö þaö. Alveg sérstaklega höfum við verið með kröfur um aö ef þama ætti aö stíga einhverskref eins og aö lengja visitölutímabil, þá yröu um leið samþykktar ráöstafanir á öðrum sviðum sem einnig gætu haft áhrif á verðbólguþróunina til þess aö draga úr verðbólguhraðanum. Við höfum ekki viljaö taka þetta eitt sér út úr, semsnýr aö launafólkinu. Hins vegar höfum viö allan tímann verið fyllilega til viötals um vissar breytingar á vísitölukerfinu. Viö emm ekki tilbúnir að gera neinar breytingar fyrir 1. mars, nema þaö yrði þá liður í mikiu víötækari sam- komulagi, og höfum reiknað meö því aö laun veröi borguö 1. mars eftir þessueldrakerfi.” -JBH. Skreiðarmat og prófkjör — úrslit í myndgátu DV Lausn myndgátu DV, sem lesendur spreyttu sig á um jólin, liggur nú fyrir.' Rétt lausn gátunnar er svona: Skreiðarmat og prófkjör hafa mikiö verið á dagskrá um skeiö og ef nánar er skoðað er hér um svipaöa athöfn aö ræöa. Vömmst skemmt hráefni. Fyrstu verölaun eru 1.500 krónur og koma þau í hlut Helgu M. Valsdóttur á Sólvöllum 8, Egilsstöðum. önnur verölaun veröa hér á Reykjavíkur- svæöinu og renna til Þorvarðs ömólfs- sonar, Vorsabæ 3. Þriöju verðlaun fá Stefán Jónmundsson og Helen Ármannsdóttir, Sunnubraut 7 á Dalvík. önnur verölaun eru 1000 krónur og þriöju verðlaun 750 krónur. Verölaunahafamir fá þau send í pósti á næstunni. -óm. Snjókoma stöðvaði Ameríkuflug Ameríkuflug Flugleiöa raskaðist um helgina vegna mikillar snjókomu á austurströnd Bandarikjanna. Þota á leiöinni vestur á föstudagskvöld varð aöhætta viðNewYorkogfaraallaleið til Ottawa í Kanada. Þaðan komst hún ekki fyrr en um miðjan dag í gær. 115 farþegar gistu á hóteli í borginni á kostnaö Flugleiða. Þá beiö önnur þota á Keflavíkur- flugvelli i sólarhring eftir að komast á- fram til New York. Sú vél kom frá Lúxemborg á laugardag, en hélt áfram í gær. Erlendum farþegum var komiö fyriráhótelumíReykjavík. -KMU. Jólakrossgáta DV: Konurnarurðu sigurvegarar Dregiö hefur veriö í jólakrossgátu DV. Eins og þátttakendur í kross- gátunni eflaust muna var lausnin fólgin í því aö finna tvær vísur. önnur þeirra var ný öfugmælavísa en hin' gömul krossgátuvísa. Fyrri vísan er svona: Kvikar áin krapa blá koönar í f jalli hengja. Blessuð sólin sækir á senn fer dag að lengja. Síðari vísan erá þessa leiö: Sá ég f eitan soltinn hrút sautján geitur annast. Þorskinn feita þamba af stút. Þetta veit ég sannast. Fyrstu verðlaun, 750 krónur, hlaut Freyja Geirdal, Bjamhólastíg 8, Kópa- vogi. önnur verðlaun, 400 krónur, hlaut Þórdís Hjálmarsdóttir, Húna- braut 38, Blönduósi og þriöju verölaun, 300 krónur, komu í hlut Hólmfríðar Traustadóttur, Kirkjubraut 18, Höfn Hornafirði. Þessum sigursælu konum verða send verðlaunin í pósti á næstu dögum. Svo þökkum við lesendum okkar fyrir mikla þátttöku og mörg skemmtileg bréf sem fylgdu lausnun- Nýja skiðalyftan er lengst til vinstri og við hliðina á henni er hin glæsilega þjónustumiðstöð sem nýlega var tekin inotkun. Nýja skíðalyftan Skála- fe,,: vfgð í fyrradag Hin nýja skíðalyfta KR í Skálafelli var formlega vígö á laugardaginn með tilheyrandi viöhöfn. Þaö var Davíð Oddsson borgarstjóri sem lýsti lyftuna opna en meöal þeirra sem fyrstir fóru upp meö henni vom Steingrímur Hermannsson ráöherra og Eysteinn Jónsson, fyrrverandi ráðherra. Helmingur stólanns í lyftunni var tekinn í notkun fyrir hálfum mánuöi. Aö sögn Þóris Jónssonar, for- manns byggingarnefndar, veröur lyftan nú opin daglega milli 2 og 6. Hún flytur 1200 manns á klukkutíma og er vegalengdin um 1200 metrar. •Hæöarmismunur er 272 metrar. Þessi nýja skíðalyfta KR er stærsta stólalyfta á landinu. Undir- búningur hófst síðastliöiö vor en framkvæmdir í ágúst síðastliðnum. -PÁ. LONDON Helgar- og vikuferðir Brottför alla laugardaga. Verðfrá 6.650 pr. mann í tveggja manna herbergi. FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstígl.Símar 28388 og28580

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.