Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Side 4
4
DV. MÁNUDAGUR14.FEBROAR1983.
Hjálparsveit skáta
íKópavogi:
Einhver
tók
hjólin
undan
gúmmí-
bátnum
Síödegis í gær voru skátar úr
hjálparsveitinni í Kópavogi á gúmmí-
bát sínum og skildu hjól undan honum
eftir í fjörunni yst á Kársnesi. Voru
þau horfin þegar þeir sneru til baka.
Hjólin eru svipuö hjólböruhjólum og
föst á prófíl sem er skrúfaður aftan á
bátinn. Gúmmíbátur þessi er
björgunartæki fyrir Kópavogsbúa og
vilja hjálparsveitarmenn hvetja fólk,
sem hefur oröiö hjólanna vart, aö láta
lögreglu eöa hjálparsveit vita.
JBH
Jassverk
frumflutt
— eftir Atla Heimi
Sveinsson
I þættinum Glugganum í sjónvarpi
annaö kvöld veröur frumflutt tónverk
eftir Atla Heimi Sveinsson. Þetta er
jassverk sem upphaflega var samiö
fyrir Benny Goodman. Aldrei varö þó
úr því aö hann léki það s jálfur.
Flytjendur verksins eru þrír,
Siguröur I. Snorrason, klarinettu, Jón
Sigurösson, bassa, og Gunnlaugur
Briem, trommur.
Leiðrétting
I helgardagskrá er sagt frá nýjum
sjónvarpsþætti sem hefst á þriöjudags-
kvöld klukkan 20.40. Þátturínn nefnist
Á skíöum og veröa þar kennd undir-
stööuatriöi og fjallaö um skíöaút-
búnaö. Ekki er rétt að fjallaö verði um
undirstöðuatriði fyrir byrjendur í
bruni eins og segir í dagskránni.
Byggingu sjúkrastöðvarinnar miöar vel áfram, eins og sjá má. Erfitt tiðarfar i vetur hefurþó dregið nokkuð úr framkvæmdahraða.
DV-mynd: Einar Ólason.
Bygging sjúkrastöðvar SÁÁ gengur vel
Bætir úr brýnni þörf
fyrir nýtt húsnæði
Hin nýja sjúkrastöð SÁÁ viö
Grafarvog er nú komin vel áleiðis í
byggingu og er stefnt aö því að húsið
veröi fokhelt í aprílmánuði.
Guðni Eiríksson hjá Vöröufelli hf.,
verktaka hússins, sagði að áætlun
heföi staðist nokkuð vel og er nú lokið
uppsteypu 70% hússins. Tíðarfar
undanfariö hefur þó seinkaö verkinu
nokkuö, sagöiGuðni.
Það var í ágúst síðastliðnum sem
byrjað var að grafa fyrir húsinu,
gengið var frá sökklum í byrjun
október og uppsteypu ofan botnplötu
í byrjun nóvember. Stefnt er aö því
aö húsið veröi fokhelt í apríllok. Að
því loknu tekur við innivinna; pípu-
lögn, múrverk og annað.
Hin nýja sjúkrastöð SÁÁ er 2200
fermetrar aö stærð, á tveimur
hæðum. Að sögn Áma Reynissonar
hjá SÁÁ mun hún koma í staö
Silungapolls og rúma helmingi fleiri
en þar komast fyrir. Húsnæðiö aö
Silungapolli er orðiö mjög lélegt og
þrengsli em þar mikil.
Hin nýja sjúkrastöö bætir úr
brýnni þörf samtakanna fyrir nýtt og
stærra húsnæöi. Þar veröur aöstaða,
ÖU meö besta móti; auk sjúkradeilda
verða í byggingunni fundarherbergi,
viðtalsherbergi, matsalur og þvotta-
hús, svo nokkuð sé nefnt. Arkitekt
hússins er Ingimar Haukur Ingi-
marsson.
Fjár til byggingarinnar var að
mestu aflað í árangursríku happ-
drætti SÁÁ í fyrra. Þaö fjármagn er
nú senn á þrotum og hyggjast for-
ráðamenn samtakanna brátt hefjast
handa um fjársöfnun til að ljúka
byggingu stöðvarinnar. Áætlaöur
heUdarkostnaður er 32 mUljónir
króna.
Hátt í þrjátíu manns hafa unnið af
hálfu verktaka viö bygginguna.
Stefnt er aö því aö húsiö veröi
fullbúið frá hendi Vörðufells í
október næstkomandi en þá veröur
tekiö til viö innréttingar, uppsetn-
ingu ýmiss sérbúnaöar, frágang
lóðar og fleiri þætti. -PÁ
Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði
'■■■'■■■■ . —^———mmmm———xmmmmwp—w'ih nm. ■
Fósturmóðir hinna flibbalausu afhjúpuð
Tvær til þrjár kynslóðir eru risnar
á legg, sem aldar hafa verið upp með
alveg sérstökum hætti samkvæmt
frjálslyndiskenningum, sem spruttu
upp í byrjun aldarinnar og áttu m.a.
rætur aö rekja til Frans Boas,
prófessors viö Kolumbíaháskólann í
New York. Boas var þeirrar skoöun-
ar að hegðun manna væri sprottin af
viðhorfum og atlæti í æsku og upp-
vexti, en kæmi meðfæddu eðli ekkert,
við, og nemendur hans ferðuöust
víða og í öllum tilfellum tókst þeim
að sanna kenningar prófessors sins.
Ein mesta áhrifamanneskjan i hópi
nemenda Boas var mannfræðingur-
inn Margaret Mead, sem látin er
fyrir nokkrum árum, og þótti þá
kenningin um frjálst uppeldi full-
sönnuð, þegar bók hennar um ungar
stúlkur á Samoa kom út árið 1928.
Segja má að allar götur síðan hafi
kenningar Mead um forsendur fyrir
friðsömu lífi, án deilna og afbrýði-
semi, ráðið stefnunni i uppeldis-
málum á Vesturlöndum. Margrómað
kynslóðabil, sem leiddi m.a. af sér að
unglingar héldu að heiman ómótaðir
og óþroskaðir og stofnuðu til hávaða-
byltingar, hasskólonía og frjálsra
ásta í byrjun kynþroskaaldurs, á
rætur að rekja til uppeldishátta, sem
Margaret Mead var í forsvari fyrir
og byggðir voru á reynslu hennar á
Samoa-eyjum. Allt það fjölmenna
lið, sem skiptir sér af uppeldis-
fræöum í dag, frá fóstrum til sálfræð-
inga, hefur lært fræði Mead og hagar
starfi sínu samkvæmt því. Þrjár
kynslóðir hafa veriö aldar upp sam-
kvæmt Samoa-kenningunni og
standa nú flibbalausar og á skyrt-
unni frammi fyrir hörðum heimi,
ýmist örvita af löngu, frjálsu svalli
eða úrræðalausar vegna þess að
þeim hefur ekkert mátt kenna. Hald-
reipið hefur orðið að trúa á kenning-
ar, sem hvorki Mead eða Samoar
hefðu kært sig um.
Nú er risinn upp Ný-Sjálendingur,
Freeman að nafni og sérfræðingur í
háttum Samoa, sem lýsir þvi yfir í
bók um kenningar Mead og Samoa,
að öll skrif hennar um Samoa séu
einskisvert bull, sem hún hafi sett
saman á skömmum tíma, eftir aö
hafa dvalið sex mánuði á Samoa-
eyjum, ótalandi á tungu eyjar-
skeggja. Mestan tímann hafi hún
búið hjá amerískri fjtílskyldu af því
henni líkaði ekki fæði innlendra og
vildi heldur niðursuðu. Bók Mead
virðist því ekki hafa þjónað öðrum
tilgangi en falla að kenningum
prófessors hennar í New York og
eyðileggja uppeldisvenjur á Vestur-
löndum með hrikalegum árangri.
Mead hafði eftir ungum stúlkum á
Samoa, að þær lifðu í frjálsum
ástum, þar væri aldrei um nauðganir
að ræða, trúarlif væri ekkert,
meydómur álltinn ómerkllegur og
tryggð í samlífi einskis nýt. Nú hefur
Freeman afsannað þetta og annað í
kenningum Mead, sem er að finna í
öllum kennslubókum og uppsláttar-
ritum. Samoa var ekki og er ekki
þessi paradís umhverfis og mann-
legra samskipta, sem
mannfræðingurinn vildi vera láta.
Freeman komst að því að stúlkum á
Samoa-eyjum er annt um skírlífi sitt
og nauðganir eru þar tvisvar og
háifu sinnum tíðari en í Bandaríkjun-
um. í stað trúleysis kunna Samoar
biblíuna aftur á bak og áfram og
mega þakka það trúboðum. Hið
frjálsa líf undir pálmatrjánum, sem
varð fyrirmynd uppeldishátta tutt-
ugustu aldar, hafði aldrei við rök að
styðjast.
Samoar em eins og annað fólk á
jarðkringlunni, og ekkert bendir tU
annars en þeir séu háðir sömu erfða-
eiginleikum og hegðunarvanda-
málum og aðrir. En rangar
kennlngar Mead hafa leitt yfir
Vesturlönd meiri upplausn í
uppeldismálum en gott þykir.
Fósturmóðir hinna flibbalausu,
þeirra sem koma nær óklæddir á
mannamót, lét Ula blekkjast af
stríðnum, ungum stúlkum, sem
sögðu henni tröUasögur af kynlífi,
sem aldrei var lifað. Og nú sitjum við
uppi með tUbúinn Samoa-Iýð, sem
aldrei hefur verið kennd nein hegðun
og gengur um í vímu mynsturleysis,
af því svoleiðis áttu þeir á Samoa að
hafa gert. Svarthöfði.