Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Side 22
30
DV. MÁNUDAGUR14. FEBRUAR1983.
Sænski tónlistarfræðingurínn, Göran Bergendai og Jón öm Marinós-
son, tóniistarstjóri útvarpsins, takast hlýtt í hendur, enda vel kunnugir.
Á milli þeirra stendur Ey/ólfur Melsted. Bergendal hefur lagt mikið af
mörkum tilþess að kynna og auka hróður íslenskrar tónlistar eríendis.
DV-mynd GVA.
Svipmyndir frá afhendingu
menninsarverðlauna DV _
Guðmundur Jónsson, óperusöngvari með meiru, var örlðtur a snuss-
ið sitt að vanda. Hór hefur honum tekist að leiða Eyjólf Melsted tón-
listargagnrýnanda i freistni. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, sem
á milli þeirra stendur, virðist þó vera mjög efins um ákvörðun
Eyjólfs. Og Magdalena Schram, formaður leiklistarnefndarinnar,
hefur greinilega gaman af að sjá menn lenda á hálli braut. — Birgir ■
Sigurðsson leikritahöfundur og Jónas Kristjánsson ritstjóri hœtta sár
ekki einu sinni nærri Guðmundi. enda allur varinn góður.
Jón Viðar Jónsson leiklistar-
stjóri (til vinstri á myndinni) ó
greinilega allra veðra von frá
Ólafi okkar Jónssyni, bók-
menntafræðingi, leiklistar-
gagnrýnanda — og sórfræð-
ingi i hvers konar opinberum
krufningum. Gunnar Kvaran
listfræðingur, sem hefur
óhemju gaman af öllum
„happenings", bíður spennt-
ur og glottandi átekta.
Ekki mó gleyma alvöru Hfsins...
Hér eiga þeir tal saman Ellert B.
Schram ritstjóri og útgáfustjór-
arnir Hörður Einarsson, fram-
kvæmdastjórinn okkar. og
Sveinn R. Eyjólfsson, stjórnarfor-
maður DV.
Sigrún Guðjónsdóttir, er hannaði
verðlaunagripina í fyrra, stendur
hér ó milli þeirra Sören Larsen
og Sigrúnar Einarsdóttur, „for-
eldra" verðlaunamunanna i ár.
DV-mynd GVA.
Matthias Viðar Sæmundsson gagnrýnandi, Þurið-
ur Baxter, fulltrúi Guðbergs Bergssonar og Máls
og menningar, Andrés Kristjánsson ritstjóri og
Rannveig Ágústsdóttir eiga hér spjall saman. —
Hún kann að meta góða brandara, hún Rann-
veig.
DV-mynd GVA.