Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Side 35
DV. MÁNUDAGUR14. FEBROAR1983. 43 Sandkorn__________Sandkorn_________________Sandkorn Halldór Ásgrímsson: Jónas málarbara vel! Betrumbófin Mönnum eru eflaust íminni róstur nokkrar í kringum brottlÖr Jónasar stýrimanns af Timanum fyrir nokkru. .Fyrir brottförinni var skrif- aður Halldór Ásgrímsson al- þingisframsóknarmaður og stjórnarformaður Tímans. Nú gerist það að Lionsmenn gæða sér á gómsætri villibráð fyrir nokkru og var þar aðalræðumaður Halldór Ás- grimsson. Að lokinni ræðu Halldórs fór síðan fram mál- verkauppboð og voru þar boðnar upp margar góðar myndir. Það var ekki laust við brosviprur á ásjónum Lionsmanna þegar Halldór tók að bjóða grimmt i eitt verkiö og vildi sig hvergi láta. Og verkið var eftir — nú auðvitað Jónas stýrimann! Sér ekki á ... „Þetta var nú ljóti bletturinn á stéttínni,” sagði maður nokkur viö lögfræölng hér i borg þcgar í tal barst kæra á hendur tveim lög- fræðingum sem hafa verlð í fréttum upp á síðkastið. Lög- fræðingurinn svaraði að bragöi: „Þaö sér ekki á svörtu.” Prófkjör með nafnleynd? Það vakti athygli nýlega að i Morgunblaðinu var greint frá fyrirhuguðu prófkjöri á Austurlandi. Þar var sagt að tiu manns gæfu kost á sér til sætis á lista. Hins vegar voru aðeins gefin upp átta nöfn. Eftir nokkrar umræður varð sú skýring ofan á og talin líklegust að til að efla sam- heldni i flokknum væru komn- ar nýjar reglur sem heim- iluðu frambjóðendum i próf- kjörum að óska nafnleyndar! Annar Þing eyrarfundur? í ágætri fréttafrásögn Þjóðviljans fyrir helgi var greint frá umræðum á þingi um umferðarmiðstöð i Borg- arnesi. Þar var m.a. sagt frá ræðu Stefáns Jónssonar alþingismanns og þar var meðal annars þetta skrifað: „Að næturlagi stæðu bilarnir opnir fyrir veðri og uppá- tektum næturhrafna, rúturn- ar færu oft illa af þessari meðferð og þannig væri ryðið (frammíkall: í rútunum?) mjög mikiö.” Það kemur ekki fram i frétt Þjóöviljans, hver það var sem greip svo skemmtiiega frammí fyrir ræðumanni. En það kæmi ekki á óvart að sá maður hefði komiö vlð sögu á fram- boðsfundinum á Þingeyri þar sem rætt var um kyngetu hrúta. Samfelld sérsamþykkt í frásögn Tímans fyrir helgi af sættum í deilu Hraðbergsmanna og útvarps- ráðs bregður fyrir skemmtilegu nýyrði. Þar segir að útvarpsráð hafi gert „samfellda sérsamþykkt”. Það er eins og þelr Tíma- menn hafi ekki búist við þvi af útvarpsráði að þaðan kæmi samfellt mál heldur aðeins sundurlausar athuga- semdir. Björn Borg snýr aftur? t Morgunblaðinu á miðvikudaginn gaf að líta athygUsverða íþróttafrétt. Sagt var frá því að tennis- leikarinn Björn Borg væri síður en svo óánægður með þá ákvörðun tennisyfirvalda að hann yrði að taka þátt í for- keppninni í Wimbledon ef hann vUdi taka þátt í loka- keppninni en fengi ekki að ganga beint inn í lokakeppn- ina. t fréttinni er það haft eftir Borg að hann muni taka þátt i undankeppninni og freista þess að komast i úr- sUt. Þetta er óneitanlega frétt- næmt því að fyrir ekki svo Iöngu mátti lesa fréttir þess Björn Borg: keppir að nýju, segir Moggi. efnis í Mogga, að Borg væri nú alfarið hættur keppni á mótum i tennis, en léki hér eftir aðeins sýningarleiki. Umsjón Ölafur B. Guönason Kvikmyndir Kvikmyndir I JENSEN FRAMAR ÖLLU ÖÐRU Kvikmyndir Kvikmyndir Tónabíó, PARTY: Nú er Bleik brugðið Tónabíó: PARTY. Stjórn: Blake Edwards. Handrit: Blake Edwards, Tom Er Frank Waldman. Kvikmyndun: Lucien Ballard. Aðalhlutverk: Peter Sellers, Claudine Longet, Merge Champion, Fay McKenzie, Steve Franken, Buddy Lester. Framleiðandi: Fernando Carrere. Samvinna Blake Edwards og Pet- er Sellers hefur jafnan leitt af sér sniUdargóðar grínmyndir. Þar hefur gleöin setið í fyrirrúmi og ekkert tekið alvarlega. Spaug má finna út úr öUum hlutum — og það hefur þessum mönnum tekist í flestum sinna kvikmynda. Tónabíó hefur nú tekið tU endur- sýninga eina af kvikmyndum Edwards þar sem SeUers fer sam- kvæmt venju með aðalhlutverk. Þessi kvikmynd, Party, er komin á fimmtánda aldursárið, var tekin 1968, og af þeim sökum þykir tiUilýðUegt aö birta gagnrýni um hana. Upphaf myndarinnar gefur vissulega vonir um kómískt og skemmtilegt verk. Þar fylgjumst við með upptöku á Hollywood-stórmynd og þætti misheppnaðs leikara af ind- verskum ættum í verkinu, leikinn af Peter Sellers. Upphafsatriðiö er óviöjafnanlega fyndið og skal ekki reynt aö lýsa því hér. En framhaldið er því miður ekki eftir því. Eftir að sá indverski er svo að segja búinn að eyðUeggja töku síðari hluta stórmyndarinnar með seinheppni sinni og einfeldni, hringir framleiðandinn í leikstjórann og spyr hann frétta. Segir hinn síðar- nefndi frá prakkarastrikum þessa leikara og ákveða þeir í sameiningu að útiloka hann frá frekari leik í HoUywoodmyndum. Til staðfesting- ar skrifar framleiðandinn nafn þess misheppnaða niður á blað hjá sér á skrifstofu sinni í HoUywood. I bræði sinni hefur hann ekki áttað sig á hvaða blað hann haföi undir pennanum, í þetta skiptið nefnUega nafnalista yfir gesti sem hann hyggst bjóða í samkvæmi í viUu sinni næstu helgi. Þegar einkaritarinn fær svo boðsUstann í hendur, hringir hún vitanlega í þann indverska sem og hina. Seinheppna leikfíflið verður náttúrlega upp með sér að fá að sitja samkvæmi svo stórs númers í kvik- myndabransanum sem fram- leiðandinn er. Hann þarf ekki að hugsa sig tvisvar um hvort hann fari. Þetta er stóra tækifærið hugsar hann og skelUr sér í bleiku jakka- fötin og rósrauða bindið flaksast um vangann þegar hann ekur í þriggja hjóla sportbílnum sínum í veisluna. Sem að líkum lætur verður nærvera þessa indverska einfeldnings í sam- kvæminu til þess að það fer á annan veg en tU var ætlast. Allt fer úr böndunum, hvert óhappið eltir annað og sök Indver jans er jafnan einhver í þeim öUum. Peter Sellers fer vissulega á kostum í hlutverki sínu. Hann er uppistaða myndarinnar, hún stendur og feUur með þætti hans í atburða- rásinni. Túlkun SeUers á seinheppna einfeldningnum er dæmalaus, enda maöurinn vel þjálfaður í því gervi. En það vantar allt annað tU að gera þessa mynd áhugaverða. Ef hlut SeUers sleppir þá er kvikmyndin Party, slöpp og á köflum langdregin. Teygt er úr ágætum bröndurum og þeir jafnvel endurteknir í sífellu. Sömu atvikin eru látin henda hvað eftir annað meö svo til sömu blæ- brigðunum. Það er því fátt sem situr eftir þegar upp er staöið nema innUegur leikur SeUers. Þaö má vel vera að fóUt hafi tekið bakföll af hlátri af að horfa á þessa mynd fyrir fimmtán árum, en með augum sam- tímans er þessi mynd hvorki nógu brjálæðisleg né meinfyndin til þess að hægt sé aö hafa góða skemmtun af henni. Það vantar alla smellni, allan hraða í atburðarásina og stígandi og fjölbreytni húmorsins tU að svo megi verða. Og er þá Bleik brugðið, því slíkt hefur sjaldnast vantað í samvinnu SeUers og Blake Edwards. -Slgmundur Ernir Rúnarsson. Patcr Sellers bjargar þvi sem bjargað verður i mynd Biake Edwards, Party. EfþættiSellers sleppir er myndin slöpp og á köflum langdregin. JENSEN ' BÍLAÚTVÖRP HÁTALARAR TÓNJAFNARAR Saltkjöt “3 SPRENGIDAGINN Veljið sjálf sprengidagssaltkjötið úr saltkjöts- bökkunum okkar. Opið til kl. 8 í kvöld og til hádegis á morgun irumarkaðurinnhf. \4Ír|Ár múla 1A. Sími 86111. JENSEN EF ÞÚ ERT KRÖFUHARÐUR HLUSTAÐUÁJENSEN ÁÐUR EN ÞÚ KAUPIR TÆKI í BÍLINN ÞINN! CAR AUDIO Gunnar Ásgeirsson hf. , Suóurlandsbra^t 16 Sími 913520(D/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.