Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Side 36
44
DV. MANUDAGUR14. FEBRUAR1983.
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið
ER CUFF KOMINN
INNUR KULDANUM?
Upptökum á myndinni Brainstorm
(Hugarflug) sem Natalie Wood lék í,
þegar hún lést með sviplegum hætti,
er enn ólokið. Það er sagt að myndin
sé ekki aöeins mikilvæg fyrir leik-
stjórann, Douglas Trumbull, heldur
ekki síður fyrir leikarann góökunna,
Cliff Robertson.
Cliff Robertson hefur leikið i
mörgum myndum og þykir mikil-
hæfur ieikari. „Ég held að fólk
geri sór ekki grein fyrir að ég hef
verið „frystur" i HoHywood,"
segir Cliff. Á myndinni er hann i
hlutverki Charly ásamt leikkon-
unni Claire Bloom.
Þaö var nefnilega þannig að
myndin var sú fyrsta meiriháttar
sem hann lék í frá því hann kærði
hinn áhrifamikla kvikmyndafrömuð
David Begelman fyrir að hafa falsað
ávísun með því aö nota nafn sitt.
Robertson hafði ekki fengið
hlutverk í um fjögur ár, fyrir utan
eitt minni háttar í mynd sem gerðist
á Florida eftir þennan atburö þegar
hann var beðinn um að leika í Brain-
storm. Enginn vildi fá hann í vinnu
og honum fannst hann svo sannar-
lega vera úti í kuldanum. „Eg held
að fólk geri sér ekki grein fyrir að ég
hef verið „frystur” í Hollywood,”
sagði Cliff nýlega.
Þrátt fyrir þetta ákvað Douglas
Trumbull að nota Cliff í myndina
Brainstorm. Sagt er aö Cliff muni
ætíö verða honum þakklátur.
„Douglas tók nokkra áhættu,” viður-
kennir Cliff fúslega.
Frá því Cliff lék í Brainstorm
hefur hann leikið í myndinni Star 80
sem Bob Fosse stjómaði. Sú mynd er
um fyrrum Playboy-leikfangið
Dorothy Stratten sem var myrt af
eiginmanni sínum. Og Cliff leikur
sjálfan Hugh Hefner, eiganda Play-
boy-fyrirtækisins.
En þeir sem vildu gátu séð hina
einu sönnu Dorothy Stratten í hinni
frábæru gamanmynd They AU
Laughed sem nýlega var sýnd á
kvikmyndahátíð í London. Nokkuð er
síðan myndin var gerð.
I myndinni beinast allra augu aö
hinni undurfögru Stratten, en þó
leikur hún aukahlutverk í myndinni.
Aðalhlutverkin eru leikin af þeim
Audrey Hepburn og Ben Gazzara.
En hvað sem þessu líður virðist
sem Cliff Robertson sé að komast á
fullt skrið aftur og hann hafi fengið
byr í Hollywood. Nýlega fóru fram
upptökur á myndinni Class þar sem
hann lék á móti leikkonunni Jacklin
Bisset. Og hann vonast til að geta
leikið fljótlega í myndinni Charly II,
en hann fékk óskarsverðlaun fyrir
leik sinn í Charly I.
„Býflugna-
Hann þolir vel suð hann Jim
Johnson sem býr í Atlanta í
Bandaríkjunum. Nýlega setti
hann heimsmet í býflugnarækt
með því að rækta býflugnaskegg
sem samanstóð af 35000 býflugum.
Þetta er langstærsta skegg sem
búiö hefur verið til. Fyrra metið,
samkvæmt Heimsmetabók
Guinness, var skegg með 21000
býflugum.
Okkur finnst skeggið á Jim
frekar óhugnanlegt og í raun ótrú-
legt aö nokkur maður skuli fást til
að gera svona hluti. Teljum við að
„Býflugna-Jim” ætti að raka af
sér skeggið hið snarasta.
Clayderman að hjóla.
Clayder-
man slær
engar
feilnótur
Belgíski píanóleikarinn Richard
Clayderman gerir fleira en að
spila á píanó. Hann ku, eftir heim-
ildum okkar, nefnilega vera
íþróttagarpur hinn mesti.
Við heimili sitt hcfur hann komið
upp góðri æfingaaðstöðu. Og sagt
er að hann byrji hvern dag með því
að trimma og vinda bolinn.
Og á eftir er það auðvitað sund-
sprettur. Já, kappinn syndir hvorki
meira né minna en þúsund metra
daglega. Hinn sæmilegasta æfing
finnst ykkur ekki? Greinilegt að
Clayderman slær engar feilnótur á
morgnana.
Jón og Þérey -/starfskynnlng.
Jim" er
sagöur
ísuöandi
„Afsakið, seljið þið nokkuð Gillette
rakvélarblöð i þessari verslun?"
Sundkonan
Sigfríð
— íþróttamaður
Vestmannaeyja 1982
Kim Wilde hefur
faríö aftur
Nú um þessar mundir er sagt ad söngkonunni Kim
Wilde, sem lengi hefur verið talin mjög góð söngkona,
hafi farið mikið aftur í listinni. Ekki er vitað hvað
hefur valdið þessari afturför hjá henni. En illar tungur
segja að það fyrsta sem hún verði að gera sé að fara til
söngkennara. iuarteinn
ntarfakynning.
Sigfrið með verðlaunin.