Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Page 37
DV. MANUDAGUR14. FEBRUAR1983.
45
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Hór má sjá eiganda Playboy-fyrir-
tækisins, Hugh Hefner, innan um
hóp fallegra stúlkna. Cliff
Robertson leikur Hugh Hefner i
nýjustu mynd sinni, StarSO.
Leikkonan hlatalie Wood var að
leika í myndinni Brainstorm á
móti diff Robertson þegar hún
lóst með sviplegum hætti. Brain-
storm er myndin sem gaf diff
tækifæri á ný i Hollywood þegar
honum hafði verið útskúfað eftir
að hafa kært kvikmyndafrömuð.
John
Elton John, skrautlegur að vanda.
veðjar
Elton John, eigandi
Watford og tónlistarmaður
hefur nú gefið út þú yfirlgs-
ingu að hann veðji við hvern
sem er að Watford verði
Englandsmeistari.
Bjartsýnn hann Elli.
Watford er í þriðja sœti í
fyrstu deild sem stendur,
fimmtún stigum ú eftir
Liverpool.
Sveinn -/starfskynning.
Elton
Sigfríð Björgvinsdóttir, 16 ára Eyjasnót, var fyrir skömmu
útnefnd íþróttamaður Vestmannaeyja fyrir árið 1982. Það er Rótarý-
klúbbur Vestmannaeyja sem nú, eins og undanfarin ár, hefur veitt
þessa viðurkenningu. Sigfríð varð sunddrottning Eyjamanna á
síðasta ári og einnig sexfaldur Vestmannaeyjameistari. Hún hefir
sýnt miklar framfarir á árinu og er vel að þessari viðurkenningu
komin, einnig fyrir prúða framkomu og mikið keppnisskap. Þess má
láta getið að tvíburasystir Sigfríðar, Guðný, er einnig góð sundkona.
FOV/Þórey - námskynning.
Hór tekur Sigfrið við verðlaunagripunum.
DV-myndir: Guðm. Sigfússon.
4 1
.jza. 'jájSL
Úrslitakeppninni var sjónvarpað um gervöll Bandaríkin og vakti mikla athygli. Hór stendur Renóe uppi
sem sigurvegari. Talið frá vinstri, norska stúlkan Anette Stai, sem sigraði 1980, Bileen Ford, Renóe og
kynnirinn á keppninni, leikarinn Lee Majors. Mynd: Revven Kopitchinski.
Andlit hennar var
mér óþekkt fyrir ári
en nú er hún með eftirsóttustu fyrirsætum i heimi
„ Jú, það virðist vera mikill áhugi á
keppninni og nú þegar hafa margar
þátttökutilkynningar borist. En ég
vil endilega hvetja aliar stúlkur til að
gera sér grein fyrir hvílíkir mögu-
leikar eru á ferðinni með því að taka
þátt ( keppninni,” sagði Katrín Páls-
dóttir, umboðsmaður Ford Models á
Islandi, þegar Sviðsljósið ræddi við
hana um Ford-módelkeppnina sem
nú stendur yfir.
Keppnin er þekkt víða um heim
undir nafninu The Face of the 80’s og
gefur óþekktum stúlkum mikla
möguleika á að rjúka upp á stjörnu-
himininn sem fyrirsætur. Urslit
keppninnar veröa kynnt á Stjörnu-
messu DV, 7. apríl næstkomandi, en
ábendingar og þátttökutilkynningar
þurfa að hafa borist Vikunni fyrir 20.
febrúar þ.e.a.s. næsta sunnudag.
Stúlkan sem vann í keppninni í
fyrra er dönsk og heitir Renée Toft
Simonsen. Hún er sautján ára,
bláeygð, 1,80 metrar á hæð og vegur
52 kíló.
Renée var gjörsamlega óþekkt í
Danmörku. Hún bjó í Arósum og
gekk í menntaskóla. En dag einn
ákvað hún að slá til. Hún fór inn á
ritstjórn danska blaösins Extra
Bladet og sótti um aö taka þátt i
Ford-módelkeppninni. Og hún var
ekki að hafa fyrir því að láta sig
dreyma um aö verða útnefnd, hvað
þá að sigra í keppninni. En Renée
hefur heldur betur slegið í gegn frá
því hún kom viö hjá þeim á Extra-
blaðinu.
Hún er með eftirsóttustu fyrir-
sætum í heimi og prýddi meðal
annars forsíðu enska blaðsins Vogue
í janúar síðastliðnum.
Vcrðlaunin sem Renée fékk fyrir
að sigra í keppninni var þriggja ára
samningur við Ford Models sem færir
henni að minnsta kosti milli 100 og
200 þúsund dollara. Og henni er spáð
glæstri framtíð sem sýningarstúlka.
Af sögunni um Renée sést greini-
lega að Ford-módelkeppnin er
stórkostlegt tækifæri fyrir allar
ungar stúlkur. Og hver veit nema
einhver þeirra stúlkna sem hafa
labbað inn á Vikuna með þátttökutil-
kynningu feti í fótspor Renée — og
standi uppi sem sigurvegari og með
samning viö Ford-Models upp á
vasann.
JGH.
Danska stúlkan Renóe Toft Simonsen lallaðí inn á ritstjórn danska
blaðsins Extra Bladet og sóttí um að taka þátt i Ford-módelkeppninni.
Hún stóð siðan uppi sem sigurvegari i keppninni. Við getum sagt að
hún hafi ekki sett sjálfri sór stólinn fyrir dyrnar heldur nýtt tækifærið
sem var i boði.