Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Blaðsíða 40
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33
SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
Verðlagsstjóri
vill ekkertsegja
Verölagsstjóri, Georg Olafsson,
vildi í morgun ekkert segja um
hugsanleg viðbrögö Verðlagsstofn-
unar við þeirri samþykkt borgarráðs
Reykjavíkur að hækka fargjöld SVR
um25af hundraöi.
Verðlagsráð var búið að
samþykkja hækkun til Landleiða og
Strætisvagna Kópavogs um 25 af
hundraði. Ennfremur var ráðiö búið
að ákveöa aö heimila SVR sömu
hækkun, svo framarlega sem
fyrirtækið óskaði eftir því. Borgin
hækkaði hins vegar án þess aö vera
búin að biöja um hækkun. -KMU.
NÝSAMTÖKÁ
AKUREYRI
Jafnrétti milli byggðarlaga nefn-
ast ný samtök er stofnuð voru á
Akureyri í gær. Þá var haldinn fyrsti
fundur samtakanna á Hótel KEA.
Pétur Valdimarsson forstjóri sagði
í samtali við DV aö hér væri um að
ræða samtök fólks úr öllum flokkum.
Þau hefðu verið lengi á döfinni og
væru stofnuð til mótvægis við þann
einhliöa áróður sem rekinn er fyrir
Reykjavík og Reykjaneskjördæmi í
kjördæmamálinu og þær hugmyndir
semuppieruum „einn mann, eitt at-
kvæði”.
-PÁ
Framsóknarmenn
á Austurlandi:
Niöurstödurpróf-
kjörsóhaggaðar
Framsóknarmenn á Austurlandi
héldu kjördæmisþing um helgina þar
sem listi fyrir komandi alþingiskosn-
ingar var endanlega samþykktur.
Almennt prófkjör fór fram dagana
29. og 30. janúar. Var einróma
samþykkt á þinginu nú að niöur-
stöður úr því skyldu standa
óbreyttar. Efstu sæti listans eru þvi
þannig skipuö: 1. Halldór
Ásgrímsson, 2. Tómas Ámason, 3.
Jón Kristjánsson, 4. Guðrún
Tryggvadóttir, 5. Þórdís Bergs-
dóttir. -JBH.
Tannlæknanemar
fááminningu
Háskólaráð hefur veitt fimm tann-
læknanemum áminningu vegna
agabrots. Nemamir fimm hafa enn-
fremur sæst á að taka á sig það tjón
sem varð á lesstofum tannlækna-
deildarinnar við Aragötu þann 2.
febrúar síðastliðinn. Þá hefur fimm-
menningunum, sem allir eru langt
komnir í námi, verið meinuð afnot af
lesstofum háskólans í framtíðinni.
-KMU.
T
wk M
LOKÍ
Hvers vegna vi/l verð/ags-
stjóri ekki lögbann nú?
Alþýðubandalagsmenn leituðu til stjórnarandstöðunnar vegna vísitölumálsins:
MAKKIÐ A ÞINGI
ÍHÁMARKIÍDAG
Makkið á Alþingi um framgang
þingmála, þinglausnir, kjördag og
önnur skyld mál, nær væntanlega
hámarki í dag. Lokatillaga for-
manna flokkanna um nýtt kosninga-
kerfi er í buröarliönum eftir að miö-
stjóm Framsóknarflokksins sam-
þykkti framhald þátttöku í smíðinni.
Forsætisráðherra mun væntanlega
tala fyrir f rumvarpi um nýtt vísitölu-
kerfi framfærsluvísitölu í dag.
Alþýöubandalagsmenn munu bíða
átekta, þótt þeir séu á móti
— horfur á heildarsamkomulagi
frumvarpinu eins og það verður lagt
fyrir.
Formenn flokkanna og formenn
þingflokka hittust strax árla í morg-
un og þá voru fyrirhugaðir ýmsir
frekarifundirídag.
Samkomulagshorfur varöandi
kosningakerfið og framlagning
frumvarpsins um nýtt visitölukerfi
kemur til móts við kröf ur sj álf stæðis-
manna í stjórnarandstöðu. Þeir
munu því væntanlega hleypa bráða-
birgðalögunum í gegn, nema
breytingartillögu sjávarútvegsráð-
herra. Horfur eru á að heildarsam-
komulag sé því í deiglunni.
Frumvarpið um nýtt vísitölukerfi
er flutt í andstööu við alþýðubanda-
lagsmenn, sem hafa hótað því að
huga að stjómarslitum, nái máliö
fram að ganga. Þeir munu hins
vegar sjá til „í bili”, enda afar ólík-
legt af tæknilegum ástæðum að
málið komist gegn um þingið á þeim
tíma sem til stefnu er. Þó leituðu
alþýðubandalagsmenn óformlega til
stjórnarandstæðinga í gær um að
hafna afbirgðum til umræðna um
málið á þingi en þeir höfnuðu.
Frumvarpið snýst um nýjan
vísitölugrundvöll og að óbeinir
skattar og niðurgreiðslur verði tekin
út úr. Einnig orkukostnaður með sér-
stökum frádrætti. Verðbótatímabil
lengist úr þrem mánuðum í f jóra og
næst verði greidd kauphækkun 1.
apríl en ekki 1. mars. Er ályktað að
breytingamar minnki veröbólgu á
ári um 5-6%. HH/HERB
Listfestíva/inu „Gu/iströndin andar"lauk um helgina með viðhöfn, en það stóð yfir iróttar tvær vikur.
Þar kynntu verk sín um hundrað og tuttugu ungir listamenn úr borginni og viðar. í iokahófinu var sú
listaspíra er þótti sýna merkiiegasta framlagið til listarinnar á sýningunni verðlaunuð. Þar reyndist vera
tíkin Mjaiihvit. Á myndinni sóst hún taka við verðiaunum sínum — steiktri kótelettu — að viðstöddum
myndlistarmönnunum Valgarði Gunnarssyniog ÞorlókiKristinssyni. DV-myndEinar Ólason.
Tíu prósent
niðurskurður
Erfiðlega gengur aö fá áætlaðar
tekjur Akureyrarbæjar á þessu ári
til þess að hrökkva fyrir þeim rekstr-
argjöldum sem á fjárhagsáætlun
eru, hvað þá að einhverjar krónur
finnist til að greiða niður lán eöa
leggja í nýbyggingar.
Samkvæmt heimildum DV vantar
um 15 milljónir króna til þess að
áætlaðar tekjur dugi fyrir útgjöld-
um. Til viðbótar vantar svo rúmlega
30 milljónir í afborganir af lánum.
Það er svo matsatriði hve margar
milljónir menn vilja leggja í nýbygg-
ingar. Bæjarráösmenn hafa setið á
löngum og ströngum fundum við
gerð fjárhagsáætlunar að undan-
förnu. Var meiningin að hún kæmi til
fyrri umræðuí bæjarstjóm á morgun
en úr því getur ekki orðiö.
I dag verða fjárhagsáætlanir ein-
stakra stofnana og deiida bæjarins
endursendar forsvarsmönnum
þeirra með þeim fyrirtækjum að þeir
skeri niður útgjöld um 10%.
DS/GS, Akureyri.
Átök á Gunnarsholtshælinu:
Réðust með hnífum
að starfsmönnum
Þrír ölóðir vistmenn Gunnars-
holtshælis í Rangárvallasýslu stungu
lögregluþjón með hníf í læri, rif-
beinsbratu aðstoðarforstööumann
hælisins og veittu forstöðumanninum
áverka í miklum slagsmálum í fyrri-
nótt.
Fjórir vistmenn drykkjumanna-
hælisins, á aldrinum 20 til 25, höfðu
uppi háreysti þegar gæslumaður
hringdi í yfirmenn sína og bað um
aðstoð. Þetta var um klukkan þrjú
um nóttina. Forstöðumennirnir
ásamt lögregluþjóni, sem þarna var
gestkomandi, fóru á vettvang.
Reynt var að róa vistmennina
niður en það bar ekki árangur. Einn
þeirra leiö út af sökum áfengisneyslu
en hinir þrír réðust gegn starfsmönn-
um hælisins, vopnaðir tveimur
hnífum og flösku. Urðu snörp átök,
fyrst inni á herbergjum og göngum
hælisins en síöan utandyra.
Á sama tíma voru aðrir vistmenn
að ber jast við eld sem hinir ölóðu eru
grunaðir um að hafa kveikt í her-
bergjumsínum.
Vistmennirnir vom yfirbugaðir
áöur en lögreglulið frá Hvolsvelli
kom á staðinn. Einum tókst þó aö
láta sig hverfa út í myrkriö. Þá tókst
að ráða niðurlögum eldsins áður en
hann olli vemlegu tjóni.
Sá sem slapp virðist hafa farið fót-
gangandi niður að Hellu og stolið þar
bíl. Bíllinn fannst skammt frá Þjórs-
árbrú um tíuleytið um morguninn og
maðurinn síðar um daginn í Hvera-
gerði.
Áverkar á mönnum eru ekki mjög
alvarlegir. Lögregluþjónninn gest-
komandi fékk fimm sentímetra
djúpan skurð í vinstra læri eftir hníf.
Eitt eða tvö rif aöstoðarforstöðu-
mannsins eru brotin eftir þungt
spark. Þeir em og skornir á höndum
og framhandleggjum eftir eggvopn,
að sögn læknisins sem geröi að
meiðslum þeirra.
Tvær tómar áfengisflöskur f undust
í vistarverum vistmannanna. Starfs-
menn hælisins telja þó ólíklegt að
innihald þeirra hafi verið það eina
sem mennirnir innbyrtu þarna um
kvöldið ognóttina.
-KMU.