Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Síða 2
2
DV. LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR1983.
Samgönguráðherra fór ekki að vilja Flugráðs:
Pétur Einarsson
flugmálastjóri
Samgönguráöherra, Steingrímur
Hermannsson, tilkynnti í gær að hann
heföi skipað Pétur Einarsson sem flug-
málastjóra frá 1. mars næstkomandi.
Pétur veröur þar meö annar flugmála-
stjóri íslenska ríkisins.
Pétur Einarsson er 35 ára gamall,
lögfræöingur aö mennt. Hann hefur
starfað hjá Flugmálastjóm frá 1978,
þar af sem varaflugmálastjóri frá 1.
september 1980. Viö fráfall Agnars
Kofoed-Hansen var Pétur settur flug-
málastjóri.
Víst er að skipan Péturs á eftir að
veröa mjög umdeild. Samgönguráð-
herra hefur meö ákvöröun sinni gengið
framhjá samróma og eindregnu áliti
Flugráös sem iagöi til aö Leifur
Magnússon yrði skipaður.
Leifur Magnússon er nú flugrekstr-
arstjóri Flugleiöa. Áður haföi hann
starfaö hjá Flugmálastjórn í tæp átján
ár, þar af sem varaflugmálastjóri í
fimmár.
Ákvöröun Steingríms á ekki síst eftir
aö valda deilum af þeirri ástæöu aö
Pétur Einarsson er flokksbróðir hans.
Hér á eftir fara fyrstu viðbrögö viö
ákvöröun Steingríms. Ennfremur er
sagt frá þeim umsækjendum sem helst
voru álitnir líklegir til aö hreppa stöö-
una. Ekki tókst DV aö ná tali af sam-
gönguráðherra í gær þrátt fyrir ítrek-
aöartilraunir.
-KMU.
I rökréttu samhengi
við aðrar ákvarðanir
— segir Leifur Magnússon
„Þessi ákvöröun viröist vera í
rökréttu samhengi við aðrar
ákvaröanir ráðherrans,” sagði
Leifur Magnússon. Hann var
spuröur hvort hann áliti þetta póli-
tíska stööuveitingu:
,,Ég get ekkert sagt um þaö. Menn
verða aö draga sínar ályktanir
sjálfir.”
— Þú segir í samhengi viö aðrar
ákvaröanir. Geturþúnefntdæmi?
„Þiö þurfið ekki annað en aö fletta
í gegnum ykkar eigiö blað, gegnum
ráöherraferil hans og sjá hvemig
ákvaröanaferill hans er. Eg get
ekkert annaö sagt en aö mér viröist
þessi ákvöröun hans vera í rökréttu
samhengi viö það sem á undan er
gengiö,’ ’ sagöi Leifur Magnússon.
-KMU.
Flugráð hef ur tap-
að leiknum
— segir Albert Guðmundsson
Albert Guðmundsson alþingismaður
og fulltrúi i Flugráði.
„Flugráö áleit Leif, miöaö viö
reynslu og menntun, hæfastan af um-
sækjendum. Meira get ég ekki sagt,”
sagði Albert Guömundsson alþingis-
maöur, en hann á sæti í Flugráði, er
DV innti hann álits á ákvöröun sam-
gönguráðherra.
„Staöreyndin er aö ekki er farið að
tillögu Flugráðs um flugmálastjóra.
Hér er veriö aö ráöa framkvæmda-
stjóra Flugráös. Viö kusum aö mæla
meö Leifi Magnússyni aö því aö viö
álitum hann heppilegastan í stööuna af
þeim sem sóttu.
Eg vil á sama tíma aö þaö komi fram
aö Pétur Einarsson hefur gegnt
stööunni meö ágætum, þennan stutta
tíma sem hann hefur veriö þama.
Hann hefur gegnt bæöi stööu varaflug-
málastjóra og flugmálastjóra í ágætu
samstarfi viö Flugráö.
En Flugráö hefur auösjáanlega
tapaö þessum leik. Það er ekkert
annaö eftir en aö óska sigurvegaranum
góös gengis,” sagöi Albert. Hann var
spuröur hvort hann teldi aö pólitík
heföi skipt sköpum varðandi þessa
stööuveitingu:
„Eg vil nú ekki dæma um þaö. En
eitt er víst aö ráöherra telur sig hafa
máttinn þótt dýröina vanti.”
-KMU.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
í Reykjaneskjördæmi26.—27. febr. 1983.
RANNVEIG
TR Y GG V ADÖTTIR
• K-jósum þjódinni frelsi og
fjárhagslegt sjálfstœÖi
• Kjölfestan er heimilin
• Kjósum Rannveigu á alþingi
Skrifstofa Rannveigar er í Aðalstræti 4,
uppi, símar 16396 og 17366,
opin um helgina kl. 1—7.
STUÐNINGSMENN.
Um Pétur Einarsson
Pétur Einarsson er fæddur í
Reykjavík 4. nóvember 1947. Hann
lauk lögfræöiprófi frá Háskóla Is-
lands árið 1977. I umsókn hans um
embætti flugmáiastjóra kemur
fram að prófritgerö hans hafi f jaliaö
um réttindi og skyldur handhafa
flugrekstrarieyfis.
Aö námi loknu rak hann eigin lög-
fræöiskrifstofu og fasteignasölu í
nokkur ár. Hann var skipaöur full-
trúi flugmálastjóra 1. ágúst 1978 og
varaflugmálastajóri og fram-
kvæmdastjóri flugvalla utan Reykja-
víkur og Keflavíkur 1. september
1980.
Hann hlaut réttindi atvinnuflug-
manns áriö 1980. Hann rak fiugskól-
ann Flugtak ásamt fleirum um nokk-
urra áraskeiðframtil 1. júní 1980.
I umsókn hans segir:
„Hef unnið ýmisleg og margþætt
félagsmálastörf frá 15 ára aldri s.s.
Ungmennafélag Islands, Slysa-
varnafélag íslands, áhugamanna-
félög í flugi, Æskulýössamband
Islands. Eg hef einnig átt sæti í
ýmsum opinberum nefndum s.s. í
stjóm félagsmálastofnunar Kópa-
vogs í nokkur ár, stjórn aöstoöar
Islands viö vanþróaðar þjóöir,
Kjaradeilunefnd, iánasjóö íslenskra
námsmanna o.m.fl.”
I umsókn Péturs segirennfremur:
„Hef sótt ýmis námskeið af marg-
víslegu tagi s.s. vegna starfa viö
tölvu, bókhald, stjómun fyrirtækja,
skattarétt, og í logsuöu, rafsuöu og
argonsuöu og sótt fjölmörg námskeið
lögmannafélags Islands o.fl.” -KMU.
Um Leif Magnússon
Leifur Magnússon er fæddur í
Reykjavík 22. október 1933. Hann
lauk prófi í rafeindaverkfræði frá
tækniháskólanum í Hannover í V-
Þýskalandi áriö 1960.
„Eg hef starfaö að islenskum flug-
málum í rúm 22 ár, þar af tæp 18 ár
viö stjórnunar- og tæknistörf hjá
flugmáiastjórn og sl. rúm 4 ár við
hliðstæð málefni íslensks og alþjóð-
legs flugrekstrar,” segir í umsókn
Leifsumembætti flugmálastjóra.
Hann var verkfræöingur flug-
öryggisþjónustu Flugmálastjórnar
frá október 1960 til mars 1963 er hann
varð framkvæmdastjóri flugöryggis-
þjónustunnar. Hann var fjármála-
legur framkvæmdastjóri Fiugmála-
stjómar frá 1969 til 1972, ritari Flug-
ráðs frá 1972 til 1978, varaflugmála-
sljóri frá 1973 til 1978, varafor-
maður Flugráðs frá 1973 tii 1979 og
formaður Flugráðs frá 1980.
A árunum 1960 til 1978 var Leifur
fulltrúi á 45 alþjóðlegum ráöstefnum
um flugmál, meöal annars forseti
275-manna ICAO-ráöstefnu um
blindaðflugskerfi 1978.
Hann hefur átt sæti í 14 opinberum
nefndum sem meöal annars f jölluðu
um flugöryggismál, skipulagningu
björgunarmála, flugrekstur
Landhelgisgæslunnar, vamir gegn
flugránum, varnarsamninginn,
viðhaldsmál, skipulag og rekstur
flugmálastjórnar, nýja flugstöð á
Keflavíkurflugvelli. Þá hefur hann
átt sæti í nefndum Alþjóðaflugmála-
stofnunarinnar.
Frá því í júlí 1978 hefur hann verið
framkvæmdastjóri flugrekstrar-
sviös Flugleiða. Hann hefur einnig
átt sæti í stjóm Arnarflugs sem
formaður.
Leifur Magnússon er handhafi
einkaflugmannsskírteinis og svif-
flugmannsskírteinis með kennara-
réttindum. Hann er kunnur fyrir
afrek í svifflugi; margfaldur
íslandsmeistari á því sviði, annar
Islendingurinn sem nær Gull-C FAI-
afreksstigi og sá fyrsti sem nær
„demantsflugi”.
Hann hefur setið í stjómum áhuga-
mannafélaga í flugi, fyrirtækja fööur
síns, Magnúsar Þorgeirssonar,
Verkfræöingafélagsins o.fl. -KMU.
Flugráð: ^
Mælti sam-
hljóða og
eindregið
með Leifi
„Flugráð leggur samhljóöa og
eindregið til aö Leifur Magnússon
veröi skipaður flugmálastjóri. Hann
hefu ótvírætt aö baki víðtækustu
reynslu og þekkingu umsækjenda á
öllum þáttum íslenskra flugmála, þar
á meðal varöandi starfrækslu íslensku
alþjóöaflugþjónustunnar á Islandi,
ásamt öörum alþjóðlegum sam-
skiptum Islands á sviöi flugmála.”
Þannig hljóöaöi umsögn Flugráös
eftir aö ráöið haföi metið umsækjendur
um embætti flugmálastjóra. Auk
Leifs Magnússonar og Péturs Einars-
Þorgilsson, markaösstjóri Feröa--
Þorgilsson, markaösstjóri Ferða-
málaráös, Erna Hjaltalín, fyrrv. yfir-
flugfreyja, Grétar H. Öskarsson,
framkvæmdastjóri loftferöaeftirlits
Flugmálastjómar, Gunnar Finnsson,
starfsmaöur Alþjóöaflugmála-
stofnunarinnar, Gunnar Helgason,
hæstaréttarlögmaöur, Gunnar
Sigurösson, flugvallarstjóri Reykja-
víkurflugvallar, Haukur Hauksson,
framkvæmdastjóri flugöryggisþjón-
ustu Flugmálastjórnar, Þorgeir Páls-
son, dósent í kerfisverkfræði við
Háskóla Islands og Þorsteinn Þor-
steinsson, tæknistjóri Landhelgis-
gæslunnar.
-KMU.