Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Blaðsíða 24
24 DV. LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR1983. Okkar menn í handbo/ta eru staddir í HoHandi. Sem kunnugt er þar yfir B-heimsmeistarakeppnin í handknattleik. ísiendingar eru með Spánverjum, Belgum og Svissiendingum. Eftir tveggja ieikja umferð komast tvö efstu iiðin úr þeim riðii ímilliriðilþar sem keppt ve um sæti í úrsiitariðii B-keppninnar. Sigurvegarar keppninnar þeir sem hafna í öðru sæti komast svo áfram. Fyrir t ferð á ólympíuleikana í Los Ange/es sem verðaaðári. Það/iggur fyrir ís/enska / landsliðinu að ieika sjö leiki á tíu dögum í Jki , þessari ferð þess tii Hollands. Helgarviðtal við Hilmar Björnsson, landsliðsþjálfara okkar manna í B- keppninni í Hollandi „Keppnin er ásköpuö manninum aö mínum dómi. Það aö sanna sig gagn- vart umhverfinu er svo — aö ég held — sá hvati sem leiðir hann út í sjálfa keppnina. Hinsvegar er þaö margt annað sem gerir þaö aö verkum aö keppnisíþróttir verða spennandi fyrir menn, til dæmis og ekki síst félagsskapurinn sem af þeim hlýst. Hann hefur geysilega mikið að segja. Og svo er þaö þessi samtrygging hópíþróttanna sem veröur þegar mönnum tekst vel upp og þeir ná góöum árangri. Þaö gefur þeim .. . hvaö á maður aö segja ... á- kveöna fullnægingu.” Keppt í öllu alls staðar I þínu tilviki, þegar þú varst ungling- ur. Af hver ju lástu ekki bara uppi í sófa sem antisportisti og slappaðir af ? „Eg veit þaö nú ekki almennilega hvemig á því stóð aö ég leiddist út í keppnisíþróttimar. Ætli það hafi ekki komið mest af sjálfu sér. Strax sem smápolli kynntist ég þessum keppnis- anda og gleöi og ærslum honum sam- fara. Þetta varö smám saman hluti af manni sjálfum. Það var keppt í öllu og ails staðar, keppt í húsasundum, ái götunum, gangstéttunum og stigunum heima. Hvarvetna var keppt að ein- hverju takmarki. Og fljótt komst maö- ur aö því aö skemmtilegast var að vera bestur, duglegastur, að minnsta kosti liötækur í hvaöa íþrótt sem var. Því fór maöur aö leggja sig fram, æfa og reyna aö sýna hvaö í manni bjó. Þetta er þaö sem ég held aö flestir strákar hafi upplifaö á sínum unglings- árum. Ailt qr keppni í þeirra hugum.” — Þú ert fæddur og uppalinn vestur- bæingur og gekkst því eðlilega í raðir KR-inga. Segöu mér eitthvað af þess- um ríg, sem maður lætur sér detta í hug aö hafi verið meiri milli liöa á árumáðuren nú er? „ Já, ég er ekki frá því aö þessi rígur hafi veriö meiri hér áöur fyrr en núna. Hann var líka meira áberandi. Þessi ár, þegar ég var aö alast upp vestur í bæ, var sá tími, þegar KR stóö nokkuð upp úr hvaö getu snerti í keppnisíþrótt- unum. Sérstaklega í knattspymunni þar sem gullöld ríkti hjá KR-ingum. Og það er alltaf þannig meö þau félags- lið, sem standa sig vel, aö þau eru öfunduö af öðrum. Af þessum sökum beindist rígurinn mikiö aö KR. Til þess aö nefna dæmi um ríg þess- ara ára, þá get ég sagt smásögu. Þann- ig var aö einu sinni sem oftar vorum viö strákarnir í yngri flokkum KR að spila leik í fótbolta viö eitthvert liðið úti á Melavelli. Þaö var hellirigning þennan dag, hvasst og leikmenn óöu leöjuna upp í ökkla. Eftir leikinn kemur Sigurður heitinn Halldórsson (sem var mikill frömuöur innan KR) inn í klef- ann okkar og sér að einn okkar stendur á útataðri KR-skyrtunni sinni. Sig- urður veröur alveg æfur, rýkur aö pollanum og þrífur í hasti undan hon- um skyrtuna. Og segir svo í reiði: „Vogaröu þér aö standa á íslenska fán- anum, drengasni! ” Þetta lýsir kannski vel þeim anda sem var þá — og hefur kannski nokkuö dofnað hin síðari ár.” — Þú hefur veriö, eins og sagt er,j sannur sportisti á þessum árum? „Þaömá kannski oröa þaö þannig aö skólinn hafi ekki haft beint forgang. Sportiö var númer eitt og svo kom námiö þar á eftir. Hugsunarhátturinn gagnvart skólanum var ekki háleitari en sá að klára prófin án þess þó aö mikið klúður yrði úr. Aö minnsta kosti var sportiö mér meira en námiö, og það er kannski gildurmælikvarði á þaö hvort maöur er mikill sportisti eöa ekki.” Keppnisíþróttirnar hrekja fóík frá sér — Nú er það staðreynd aö mjög margir unglingar hætta afskiptum af keppnisíþróttum á vissu tímaskeiöi — um fjórtán til sextán ára aldur — en aðrir ná aö halda áfram. Af hverju helduröu aö þetta stafi? „Þaö er alveg rétt að mikill fjöldi unglinga hættir í keppnisíþróttum ein- mitt um þennan aldur. En það er ekki þar með sagt aö hinir hæfari eöa betri haldi áfram. Ástæðumar fyrir því aö fólk hættir að æfa íþróttir á þessum aldri eru mjög misjafnar að mínum dómi. Þaö koma mörg önnur áhugamál til sögunnar. Við getum nefnt til dæmis hitt kyniö. Einnig er þetta spurning um félags- skapinn: I hvers konar félagsskap viö- komandi er og hvort vinir hans halda áfram æfingum. Það ræöurmiklu. En því miöur þá er þaö reyndin aö margir detta út á þessum aldri, of margir, og oft bestu og efnilegustu unglingamir. I þessu sambandi meg- um viö ekki gleyma því að íþróttimar, og þá sérstaklega keppnisíþróttirnar, hrekja beinlínis vissan fjölda frá sér. Ástæðan er einfaldlega sú aö keppnisí- þróttin hampar aöeins þeim besta, eöa mest þeim besta. Og þaö er kannski gallinn viö þetta keppnisform, sem viö búum viö, að það velur úr og fælir frá allt of mikið.” — Hvaö um þig? Hélstu áfram af sjálfsdáðum eða varstu rekinn áfram? „Eg bjó alltént ekki viö neina utan- aökomandi pressu, sem skipaði mér að halda áfram, hvorki frá foreldmm, öörum skyldmennum né vinum. Ég var allt frá bamæsku mjög heillaður af öllu sporti, allri hreyfingu og þeim leik sem hægt er aö fá út úr íþróttum. Það held ég aö hafi ráöiö mestu um aö ég hélt áfram.” — Hvaö olli því aö handboltinn varð ofan á undir lokin frekar en önnur í- þróttagrein? „Eins og ég sagöi í upphafi þessa viðtals þá varö ég strax sem strákur mjög virkur í allskyns keppni. Og síðar meir tók ég svo að æfa og keppa í svo til öllu sem hægt var aö keppa í. Ég æföi og spilaði handbolta, fótbolta, körfu- bolta og hvað þetta nú allt heitir. Um sextán ára aldur komst ég í unglingalandsliðið í handbolta og upp úr því valdi ég þá keppnisíþrótt sem aðalgrein. Ég gutlaði að vísu áfram í fótbolta á sumrin. En handboltinn náði smám saman alg jörri y firhönd. ” Stráklingurinn sem landsliðsþjálfari Þú tekur viö sem þjálfari unglinga- landsliðsins aöeins nítján ára gamall stráklingur og skömmu síðar velur stjórn handknattleikssambandsins þig sem þjálfara aöallandsliösins. Hvaö olli því aö svo ungur maður var ráöinn í stöðuna? „Þessari spumingu á ég nú dálítiö erfitt með að svara s jálfur. En eins og þú segir, þá haföi ég þá þegar veriö meö unglingalandsliöiö og um þessar mundir voru kynslóöaskipti í íslenska handboltanum, hvaö þjálfara og leik- mönnum við kom. Og einhverra hluta vegna tók stjóm H.S.I. þá ákvöröun aö velja mig í þetta þjálfarastarf. Ég sem m'tján ára kálfur greip þetta tækifæri auövitað fegins hendi, gat að sjálf- sögðu stolts míns vegna ekki neitaö þessu boði. Aö minnsta kosti fannst mérþaðþá.” — Varstu upp meö þér af stöö- unni? ,,Ég veit ekki hvort svo hefur veriö. Eiginlega fannst mér eftir á sem ég hefði hlaupið á mig með því að taka boðinu. Viðbrögö almennings viö þessu vali voru heldur blönduö. Menn höfðu ýmsar skoðanir á því aö svo ungur strákur ætti aö taka við landsliöinu. Eg man til dæmis eftir oröum eins kunns handknattleikskappa í þessu sam- bandi, en hann sagöi um ráöninguna: „Á nú eggið aö fara að kenna hæn- unni?” Þetta er kannski gott dæmi um viöbrögðin frá þessumtíma.” — Það voru einmitt nokkur læti út af þessari ráöningu! „Já, já. Eg man til aö mynda eftir blaöamanni eins dagblaösins hérna í bænum sem lagði sig sérstaklega eftir KRAT ÉG OF EI DI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.