Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Blaðsíða 34
34 DV. LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR1983. Helgarvísur Helgarvísur Helgarvísur Helgarvísur 45. þáttur Fyrst skal þess getið aö þátturinn 12. febrúar var rangt tölusettur. Hann var hinn 43. í röðinni, en ekki 41. „Þjóstólfur” skrifar þann 12. janúar sl.: „Mér datt í hug um daginn að reyna að skrifa þér ljóðabréf, sem þú gætir birt í vísnaþætti þínum, ef þér sýndist svo og hóf verkið. Fyrr en varði var gráa gamanið tekiö að kárna svo mikið, að ég sá í hendi mér, aö þetta væri ekki birtingarhæft. En hvað um það, ég var kominn of langt til að hætta og ákvað að senda þér árangurinn til lestrar, þótt ekki sé hann birtingarhæfur. En þótt þig kunni að gruna, hver ort hafi, þá láttu ekki á því bera viö nokkurn lifandi mann — fyrir alla muni.” Eg held, að ég fari nærri um það, hver „Þjóstólfur” er, en hér birtist ljóðabréf hans óstytt: Gódan daginn, gledilegt gott og mikid hag-ár. Adstreymid sé aldrei tregt, œtíd fullur brag-lár. Löngu nidur lagdan sid, tjóðabréf að skrifa, dunduöu áar okkar við óðarsmíð til þrifa. Forðum daga fátt til bar, firnalangur tími áfram leið og ekki var útvarp, skjár né sími! ífábreytninni forðum var frétta sífellt beðið, Ijóðabréfið loft inn bar, lesið, numið, kveðið. Skýin tungti tæjast frá, taut í rökkri þagnar, dragast þá með drunum hjá dýrir strœtisvagnar. Hetjan Davíð hefð og völd hlaut ikosningunum, efndi loforð, tœkkar gjöld, lét af stórhýsunum. Til að jafna tapið skjótt tekjum, sem aðgagni, hækkun rétta finnur fljótt: far með strætisvagni. Orðin góðu ,,stétt með stétt” standa i flokksins merki, Davíð þykirþetta rétt, því er trúr í verki. Hættur að yrkja heim á leið hélt ég Ingólfsstrœti. Strætisvagn á viðstöð beið, valdi ég mér sæti. Fyrr í dag ég DV fann, dró það upp og fletti, leit í svip á leiðarann og las í einum spretti. Ritstjórans um rauðvínskok ryðjast bænda-vítur, æðisgengið orðarok ýlir, hvín og þýtur. Römm er særin svona manns, sýnist raunar vafi, að fyrir norðan feður hans frið ígröfum hafi. Og Helgi heldur áfram: „Mér hefur dottið í hug, að hún kæmist eigi verr til skila í þess- ari endurskoöuðu gerð: Maður kemur manns ístað myrkar vetrarnœtur. Fyrr en varir öðrum að ekkja hallast lætur. ” Eg held, aö tillaga Helga um aö breyta gömlum vísum og húsgögnum sé skýring á því, hve mönnum ber mjög á milli, hvernig hinar ýmsu vísur hafa upphaflega veriö af höfundi gerðar. Hagyrðingar breyta oft vís- um, stundum óviljandi, en oft yrkja þeir í eyðurnar, ef þeir kunna vísuna ekki alla. Eg get glatt lesendur þáttarins með því, aö Helgi Sæm mun að öllum líkindum leggja þættinum til meira efni síðar, því að hann segir í lok bréfsins: „Eg læt þig ef til vill heyra frá mér síðar, ef þú heldur áfram að vinna þjóðinni gagn og leggja henni undur- samlega hluti af mörkum.” Jón Gunnarsson, Melavegi 5 á Hvamms- tanga, heldur því fram með gildum rökum, að ég hafi rangfeörað vísuna „Tæmast rök- in, týnast gögn”. Jón segir, að Sigurði frá Haukagili hafi oröið hiö sama á í Vísnasafni sínu III. hefti; Siguröur hafi, eins og ég, talið vísuna eftir Svein Hannesson frá Elivogum. Jón segir vísuna vera eftir vin sinn, Björn Sigurðsson Blöndal, sem látinn sé fyrir nokkrum árum. En Jón segist hafa skrifað vísu þessa ásamt mörgum fleiri eftir Birni sjálfum. Eg hef enga ástæðu til að rengja framburö Jóns Gunnarssonar. Auðvitað hefur þaö oft gerzt, aö landskunnum hag- yrðingum eins og Sveini Hannessyni hafi verið eignaðar snjallar vísur, sem aðrir hafa gert. Tíminn græðir opna und, eins þótt blæði núna. Blómin klæða tjúfan lund. Ljósið glœðir trúna. Ef á ferð ég vönkuð verð, vegagerð það kenni. Klýf með sverði sáttargerð. Sálir herði og brenni. Trautt er von, að ýtar yrki, ef að svona dýrt er kveðið. Vaskar konur veita styrki vœnum sonum óumbeðið. Margrét Olafsdóttir sendir „Skugga” kveðju í tilefni þess, aö hann hafi gerzt eitt- hvaö hvumpinn, er hann las draugavísuna. „Eg get ekki betur séö,” segir Margrét, „en að hann telji sig til drauga, og því fær hann þessar frámér”: Pað var skömm, að Skugga-anga skyldi ’ ég flækja í ósómann. Ei ég vissi, að afturganga í alvörunni vœri hann. Margrét botnar og kemur auga á, að fyrri- parturinn býöur upp á oddhendu: Munur er á mér og þér, má því hver einn trúa. Yður þéra allir hér, en mig ber að þúa. Margrét sendir sýnishorn af því, sem hún hefur veriö að sjóða saman „undanfarið”: Þó að skjólið skorti á, skafi í hóla bylur, helgum jólafriði frá flœðir sólarylur. Skúli sœll, mér er til efs, að þú vænta megir öllu lengra Ijóðabréfs, en lítið rollan segir. Frost er hér og fannalög, fennt er Reykjavíkin, umferðin því erfið mjög eins og pólitíkin. Leggja napran súg um svið sumir hafa fundið og kuldaútlit ekki við árstíðirnar bundið. Dregur yfir Daviðsborg dimman íhaldsskugga, myrkva slœr á mannvitstorg, myrkur á sálarglugga. Sé ég upp við Arnarhól umbrot Seðlabanka, augum gýt á stjórnarstól og stuðla mína þanka. Áföll stjórnin allmörg hlaut eins og dæmin sanna, Albert karlinn afturþaut inn til Geirfuglanna. Haukdal stokkinn undan ár, enda þyngist róður, Gunnar minn er mjög svo fár, mundar stýrið hljóður. Tautar í barm sér gugginn grár: ,,Gat ég betur hugað, hvort að brú á Ölfusár- ósinn hefði dugað? Fyrir svikin fyrri brot fyrirgefast honum og fylgi sitt við framapot fékk hjá Geir að vonum. Samskipti við svona mann svipta okkur trúnni, eftir svikin hefði hann hrósað sér af brúnni. ” Svomælti „Þjóstólfur”. Helgi Sæmundsson skrifar mér bréf og ávarpar mig: „Þú mikli eilífi andi.” Þessi ávarpsorð Helga Sæm. sanna það, sem ég hef reyndar löngu vitað, aö hann er dyggur aödáandi minn. Helgi sendir þessar stökur: íslenzkþjóð er engu lík. Ávallt menning hennar dafnar. Komin er í Keflavík kvæðahít, er vísum safnar. Gegnum myrkur geisli brýzt, gtaðnar lund og kviknar von. Húnvetningur heitir víst hítin þar í Babýlon. Víkur burtu víl og slen, vaknar sofinn lýður, er á skálum Skúli Ben skáldamjöðinn býður. Helgi segir, en ekki er ég viss um að allir veröi honum sammála, er þeir lesa orð hans: „Mér hefur dottið í hug að mæla meö því við þig, að þú efnir til endurskoðunar og þá helzt endurbóta á gömlum sæmilegum vís- um, prentuöum eða á húsgangi. Byrja ég þetta á því að endurskoða stöku eftir Erlu (Guðfinnu Þorsteinsdóttur frá Skjögrastöð- um á Skógum eystra) til að sýna þér fram á, hvað fyrir mér vakir. Þennan leik vissi ég haföan um hönd á Suðurlandi, þegar ég var unglingur og komst í fyrstu kynni við hag- mælsku og lausavísur. Finnst þér þetta ekki dágóö hugmynd og tilvalið, einnig fyrir Norðlendinga, að glíma við og betrumbæta vísur, sem hafa að geyma skemmtilegar hugmyndir, en gætu staðið til bóta um oröa- lag og frágang? Stundum gæti náöst með því móti það, sem kallast herzlumunur.” Og Helgi segir: „Erla (Guðfinna Þor- sleinsdóttir) orti þessa ágætu vísu: Maður kemur manns ístað mjög til ásta frekur. Fyrr en varir öðrum að ekkjan hallast tekur. ” Jón segir, að Björn hafi sagt sér, að vísumar séu tvær og í þessari röð: Fer að mæði, finn ég það, fátt um gæði l veri, hrollur læðist lúnum að lífs á flœðiskeri. Tœmast rökin, týnast gögn, trúin vökul dvínar. Grimm eru tökin, gleymska og þögn geyma stökur mínar. Jón Gunnarsson lýkur bréfi sínu meö þess- aristöku: Unga ,,skvísu ” elska má, ástin rís og dvínar. Hátt ég prísa og hetd upp á helgarvísur þínar. Hjörtur Jónsson, Laugavegi 26, skrifar þættinum mjög svo vinsamlegt og uppörv- andi bréf, sem ég þakka, — ekki veitir af hressingu í skammdeginu. Hjörtur botnar og hefur í huga, að fyrriparturinn er eftir Húnvetning (Ingibjörguhina húnvetnsku): Silur á staurnum sýnist mér soltið krumma-tetur. Húnvetningur sjálfum sér sultinn kennt um getur. Hjörtur segir: „I 41. þætti endar þú þátt- inn á fyrriparti, og það var einmitt hann, sem á sök á þessu bréfi: Trauðla ’ er von, að ýtar yrki, ef að svona dýrt er kveðið. Liggur við þeir Ijóðið kyrki, lítilsvirði skáldageðið. ” Hæstaréttarlögmaðurinn enn botna: P.S.P. sendir Upp til heiða hiilin þrá hugann leiðir víða. Á sænum freyðir báran blá, þar brttnar skeiðin fríða. Oft er þökin bylur ber bresta í klökum lœtur, gamlar stökur stytta mér strembnar vökunætur. Sannleikann ei sofna látt, sóma berðu tygin, því að aldrei semja sátt samvizkan og lygin. Reyndu þannig gera gott, gleði anna vekja, sýna granna vinarvott, vonzku ’ úr ranni hrekja. Eg verð að láta talsvert úr bréfi Margrét- ar bíða næsta þáttar. Því miöur berst mér svo til ekkert af fyrri- pörtum frá lesendum. Nú stendur þannig á, að um langan tíma hef ég ekki getaö ort eina einustu vísu, og fyrriparta get ég ekki smíð- að nema með harmkvælum. En þó læt ég lesendum þessa í té til að spreyta sig á, — það verður aö hafa það, þótt þeir séu af- spyrnulélegir: Holdiö þitt er alltaf eins, en andinn reiðubúinn. Allir bera um betri tíð í brjósti vonarneista. ,,Allt er betra en auðvatdið, ” Óli Ragnar segir. Nú vill kappinn Eiður eyða öllum hvölum. Enn einu sinni hvet ég lesendur að láta til sín heyra meö vísum og botnum. Eins og þeir sjá er mikill þurrður á góöum fyrripört- um, og væri gott, ef þeir leystu þann vanda. Skúli Ben Pósthólf 161 230 Keflavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.