Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Side 7
DV. LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR1983. 7 Afleiðingar verðbólgunnar eru órannsakanlegar. Það er ekki hiö einasta að verögildi peninganna minnki jafnt og þétt, heldur eru dæmi þess aðþeirminnkisjálfir. Að þessu komust starfsmenn veitingastaðarins Asks er þeir voru að SONGVA- KEPPNI í SJÓN- VARPI Keppt verður í söng í sjónvarpinu dagana 23.-25. mars. Sigurvegarar í þeirri keppni keppa síöan til úrslita í beinni útsendingu úr sjónvarpssal þann 30. april. Keppnin er ætluð fólki á aldrinum 18—35 ára. Allir eiga að syngja tvö ljóð, eitt íslenskt og annaö erlent, og eina aríu. Þarf að leggja fram í upphafi skrá um tvöfaldan skammt af slíku, einn í hvora keppni. Verðlaunin í keppninni eru vegleg svo ekki sé meira sagt. Fyrstu verðlaun eru réttur til þátttöku í söngkeppninni i Cardiff í Wales. Sú keppni fer fram í júlí. Einnig fær sigurvegarinn að syngja á tónleikum með sinfóníuhljómsveitinni. Önnur verðlaun eru 5 þúsund krónur og þau þriðju 3 þúsund krónur. Dómarar í keppninni eru Þorgerður 'Ingólfsdóttir, Eyjólfur Melsted, Jón Ásgeirsson, Kristinn Hallsson og Jón Þórarinsson. Sá síðastnefndi er for- maöur dómnef ndar. Umsóknarfrestur rennur út 15. mars. _____________________DS. Kvenna- frambod fundará Húsavík og Dalvík Á fundi hjá Kvennaframboðinu á Akureyri fyrir nokkru var ákveðið að kanna grundvöll fyrir sérstöku kvennaframboði á Norðurlandi eystra til næstu alþingiskosninga, segir í frétt sem DV hefur borist. Þar segir enn- fremur: 1 framhaldi af þessum fundi er nú á- kveðið að halda kynningarf undi i kjör- dæminu; i félagsheimilinu á Húsavík klukkan 14 á laugardag, 26. febrúar, og á Dalvík klukkan 15 á sunnudag. -KMU. gera upp dagsviðskiptin fyrir skömmu. Meðal seðlanna í kassanum fundu þeir allskrýtinn tíu króna seðil, sem í fljótu bragði virtist allur eitthvað vesælli en hinir sem lágu við hliö hans. Hvorttveggja var að hann var minni en' þeir svo og snjáðari. Við athugun kom í ljós að hér var ekki um falsaöan seðil að ræða, þar eð vatnsmerkið var á sínum stað og einnig þráöurinn í miðju hans. Starfsmenn Ásks töldu líklegast að þessi tiltekni seðill heföi óvart lent í þvottavél eins kúnnans — ekki þolað suðuna — og skroppiö af þeim sökum saman. Alténd er hann tæpum sentímetra styttri en við eigum að venjast, eins og myndin, sem fylgir þessum oröum, ber glögglega með sér. -SER. KRISTJANA MILLA Kjósum dugmikla hœfileikakonu á þing. Við minnum á að prófkjörið er opið öllum stuðningsmönnum Sjálfstœðisflokksins. SKRIFSTOFA STUÐNINGSMANNA KRISTJÖNU MILLU THORSTEINSSON ER AÐ HAUKANESI28 GARÐABÆ, SÍMI41530. Vertu meö í opnu próíkjörí í Reykjaneskjördœmi Gunnar G. Schram er í framboði af þvi að hann vill: - Að einn maður hafi eitt atkvœði. Fullan jöfnuð en ekki málamiðlanir - Að tekjuskattur aí launatekjum verði aínuminn - Nýja crtvinnustefnu í sjávarútvegi og iðnaði í stað gjaldþrota byggðastefnu - Breytt íbúðarlánakeríi sem tryggi að þrír íjórðu hlutar byggingarkostnaðar fáist á löngum lánum - Að skilyrði verði sköpuð íyrir móttöku sjónvarpssendinga írá gervihnöttum, sem hefjast munu í haust og ná til íslands Við hvetjum ykkur til að vera með í prófkjörinu og hafa þannig áhrif á íramboðslista Sjálfstœðisflokksins. Þið haíið vald til að velja Fylgismenn PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Á REYKJANESI26. OG 27. FEBRÚAR. Verðbólgan herðir tökin: NÚ MINNKA SJÁLF- IR SEÐLARNIR... sroUBANKÍ lOI Afc'ír-.O SEDÍABANKl /SLANDS Þessi skrýtni seðill fannst á veitingastaðnum Aski fyrir skömmu. Eins og myndin ber með sér er hann töluvert minni en eins og gengur og gerist með tíu króna seðla. Þó er þetta ekki falsaður seðill... DV-mynd Bjarnleifur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.