Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Qupperneq 14
14
DV. LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR1983.
ROKKSPILDAN
ROKKSPILDAN
ROKKSPILDAN
Mezzoforte.
Húkkt á tónlelkum
Umsjónarmaöur rokkspildunnar
fór enn einu sinni á fótinn í leit að
unglingum héma einn daginn og
fann þrjú stykki mjög fljótlega. Lík-
lega vegna þess að bærinn er fullur
af þeim. . . En hvað um það, við-
mælendur mínir heita Hrafnhildur,
Bjarni og Sonja og em 2/3 hlutar
þessa hóps í skóla en 1/3 er svo hepp-
inn að hafa fengið vinnu, sem mun
vera afar fátítt nú á tímum. Þau hafa
öll aldur, samanlagt slaga þau hátt í
hálfaöld.
— Músik, krakkar?
Hrafnhildur: Ert’að bjóð’okkur. . . .
ókei, ég er alveg ótrúlega afskaplega
hrifin af Culture Club, þó sérstaklega
Boy George, hann er æðisgenginn,
alveg æðisgenginn. Annars er svo
mikið af góðum hljómsveitum í
gangi að þaö ruglar mann eiginlega
svolítið ef maður á að reyna aö segja
eitthvaö ákveðið.
Bjarni: Já, það er alveg rétt hjá
henni en þó finnst mér persónulega
hljómsveitin Men at work standa feti
framar, allavega þessa stundina.
Sonja: Eg er algerlega sammála
Hrafnhildi.
— En íslensk?
Bjami: Auðvitað hlustar maöur líka
á hana, jú, jú, mér finnst Þursamir,
Stuðmenn, Egó, Grýlurnar. . . . og
Þeysarar skara framúr. Þetta eru
grúppur með pottþétta spilara. Svo
maöur minnist ekki á Mezzoforte,
þeir eru sko góðir.
Sonja: Eg get tekið undir það sem
hann sagði, nema sumt, það gef ég
skít í. Það hefur gerst svo margt og
mikiö hérna heima undanfariö í tón-
list, ég er ekki hrædd við að segja
alveg hreinskilnislega frá aö mér
fannst þetta alveg ferlegt hérna einu
sinni, enda var ég þá diskófrík og
voðaleg pempía. En þegar ég fór aö
pæla betur í þessu og hætta aö vera
neikvæð gagnvart því rann upp fyrir
mér að þetta var alls ekki svo slæmt
og núna er ég önnum kafin við aö
fylgjast meö litlu hljómsveitunum
sem eru að koma undir sig fótunum.
Bjami: Æi, ég er orðinn hundleiöur á
þessu pönk flippi í tónlist hérna. Vita
menn ekki að pönkið er dautt og þaö
sem er dautt er dautt.
Hrafnhildur: Æ, góði besti, vertu
ekki að tala um þetta. Það er ekki öll
ný tónlist hér undir áhrifum af pönki,
síður en svo.
— Þið hljótið þá að sækja tónleika?
Sonja: Eg og Habba gerum mikið að
því og skemmtum okkur ævinlega
vel, við förum svona að meðaltali
einu sinni í viku en náttúrlega koma
peningar og annaö inn í dæmiö, t.d.
bíó, böll og veikindi.
Bjarni: Þegar eitthvað sem vekur
áhuga minn er spilað skelli ég mér
svona yfirleitt en ég er ekki eins
húkkt á tónleikum og þær, maður
verður að eiga fyrir annarskonar
skemmtunum líka. Þú meinar
menntaskólaböllum og kvikmynda-
húsum.
Bjarni: Hittir naglann á höfuðið.
— Og síðasta spurning. Haldiði ekki
að íslensk tónlist eigi bjarta framtíð
fyrir sér?
Sonja: Alveg örugglega, þetta er allt
rétt að byrja og það er ekki auðvelt
að drepa þetta, ekki nema ýtt verði á
kjarnorkutakkann hábölvaðan. Þá
gæti þetta líklegast eitthvað breyst.
Bjarni: Jú, þaö vonar maður, þetta
kemur allt meö hækkandi sól og
góöum árangri.
Hrafnhildur: Eg væri asni ef ég tryði
því ekki. Og heyrðu, fyrst þú átt ekki
mynd af okkur máttu alveg birta
mynd af Boy George.
Hljómsveitin The FaU er á Ustanum og að öllum líkindum megum við búast
við að hljómsveitin heimsæki okkur einhvern tímann á næstu mánuðum.
NIR LISTI
Eftir nokkrar vangaveltur, ábendingar og umræðu hefur umsjónarmaður-
inn ákveðið að gera smávægilega breytingu á síðunni. I síðustu viku birtist
óháði vinsældalistinn hér á síöunni og stóð tU að hann yrði birtur vikulega en
eftir vangaveltur, ábendingar og umræðurnar áðurnefndu hefur enn orðið
breyting á. Við fellum óháða vinsældalistann úr stuðbúðinni niður og tökum
upp á að birta 10 uppáhaidslög einhvers tónlistarmanns þessa og þessa
stundina, í staðinn. Og fyrstur fyrir valinu varð Einar Örn fyrrum PP
maður og núverandi iss! — maður.
PSYCHIC TV - guiltless
SWELL MAPS — readaboutseymor
THENORMAL - tvod
V/RGIN PRUNES — pagan love song
VEL VET UNDERGROUND — white Hght/white heat
STANYA - Hf
VONBRIGOI - ekkert
THEFALL — marquis cha cha
THROBBING GR/STLE — discipline
BIRTHDAYPARTY - blastoff
Hljómsveitin Gulture Club.