Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Side 28
DV. LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR1983.
D V kyniiir
Stoke City er stofnað árið
1863 og er því næstelsta félagið
í ensku deildarkeppninni.
Félaginu gekk illa að komast
inn í deildarkeppnina og var
það ekki fyrr en upp úr 1920
að félagið fór að iáta að sér
kveða í 1. deild og hefur að
mestu leikið í 1. deild frá síð-
ustu heimsstyrjöld, að fáum
árum í 2. deild undanskildum.
Félaginu hefur aðeins tekist að
vinna einn markverðan titill á
þessum árum en það var árið
1972 að félagið varð deildar-
bikarmeistari undir stjórn
Tony Waddington sem hefur
lengst allra verið fram-
kvæmdastjóri hjá félaginu, eða
í 19 ár.
Félagið hefur haft innan
sinna raða marga fræga knatt-
spyrnumenn og má þar nefna
þá sir Stanley Matthews, Gord-
on Banks, Peter Shilton og
Alan Hudson, en þessir leik-
menn voru ávallt bestu leik-
menn Iiðsins á meðan þeir léku
með félaginu. Staða félagsins í
dag er nokkuð góð, miðað við
að félagið er ekki ríkt af
peningum og það voru því
margir sem spáðu því falli í 2.
deild en af því verður varla.
Tveir kunnir kappar — Mickey Thomas og Mark Chamberlain.
Brendan O’Callaghan.
Liðið hefur komið mjög á óvart
fyrir að leika mjög góðan
sóknarleik og hefur það komið
nokkuð niður á vörn félagsins
en ef það batnar á félagið að
geta unnið hvaða lið sem er.
Leikkerfi Stoke City er 4—3—
3, en sóknarleikurinn er mjög
stífur. Þannig eru miðjumenn
Iiðsins allir mjög virkir í
sóknarleiknum og svo má ekki
gleyma miðverðinum Dave
Watson sem ávallt tekur mik-
inn þátt í sóknarleik liðsins,
enda sterkur skallamaður.
Hjörtur Harðarson.
Leikmenn Stoke
PETERFOX
markvörður hóf feril sinn hjá Sheff-
ield Wednesday en gekk illa aö vinna
sér stöðu í liðinu og var þá seldur til
Stoke þar sem hann var í fyrstu
varamarkvörður en náði fljótlega í
sæti í aðalliði og hefur haldið því
síðan. Hefur leikiö 171 deildarleik
fyrir Shefield Wednesday og Stoke
City.
DEREK PARKIN
hægri bakvörður, hóf feril sinn hjá
Huddersfield Town en var fljótlega
seldur þaðan til Wolverhampton
Wanderers þar sem hann lék næstu
15 árin og á hann eitt met með fé-
laginu þ.e. hann hefur leikið flesta
deildarleiki fyrir félagið, 501. Var
gefin frjáls sala á siöasta keppnis-
tímabili og gekk þá strax til liðs við
Stoke. Hefur leikið 594 deildarleiki
fyrir Huddersfield Town, Wolver-
hampton Wanderes og Stoke City.
PETER HAMPTON
vinstri bakvöröur, hóf feril sinn hjá
Leeds United en náði aldrei á þeim 7
árum, sem hann var hjá félaginu, að
vinna sér fast sæti í aðalliði og var
því seldur til Stoke City árið 1980
fyrir 80.000 pund og hefur hann verið
fastamaöur í liöinu síðan.
PAUL BRACEWELL
miðvallarspilari, kemur úr unglinga-
liöinu og ávann sér fljótlega sæti í
aöalliöi þar sem hann hefur haldiö
stöðu sinni síðan. Var fyrirliði liðsins
á tímabili. Hefur leikið 112 deildar-
leiki.
DAVE WATSON (ENGLAND)
miðvörður, hóf feril sinn hjá Notts
County en var fljótlega seldur þaðan
til Rotherham United þar sem hann
lék um tíma áður en hann var seldur
til Sunderland, en fram að þeim tíma
hafði hann leikið sem miðframherji,
en þegar hann fór til Sunderland var
hann færöur í stööu miövaröar þar
sem hann hefur leikið síðan. Var
meðal annars bikarmeistari með
Sunderland 1973 en var skömmu
seinna seldur til Manchester C. fyrir
200.000 pund. Þaðan lá leið hans til V-
Þýskalands til Werder Bremen en sú
dvöl var stutt og fór hann þá til
Southampton sem hann lék með um 2
ára skeiö þar til hann missti stööu
sína og kom þá tilboð frá Stoke City
sem hann ákvað aö taka til að reyna
aö halda sæti sínu i enska landsliðinu
fyrir heimsmeistarakeppnina. Hefur
leikið 587 deildarleiki fyrir Notts
County, Rotherham Utd., Sunder-
land, Manchester City, Southampton
og Stoke City.
GEORGEBERRY(WALES)
miðvörður, hóf feril sinn hjá Ipswich
Town en náði aldrei að vinna sér sæti
í aöalliði og var því seldur frá félag-
inu og fór þá til Wolverhampton
Wanderes sem hann lék með næstu 7
árin, en var síðan gefið óvænt frjáls
sala frá félaginu síöasta sumar og
gekk hann þá til liös við Stoke. Hefur
leikið 145 deildarleiki fyrir Wolver-
hampton Wanderes og Stoke City.
IAN PAINTER
framherji, kemur úr unglingaliðinu
og vann sér sæti í aöalliði um síðustu
jól og hefur staöiö sig það vel að hann
hefur haldið því síðan. Hefur leikið 10
deildarleiki.
SAMMY McILROY (NORÐUR
ÍRLAND)
miðvallarspilari, hóf feril sinn hjá
Manchester United og var fasta-
maður í liði þeirra í meira en 8 ár.
Var síðastur þeirra leikmanna sem
léku undir stjórn Sir Matt Busby til
aö fara frá félaginu. Missti stöðu
sína í liðinu á síöasta keppnistimabili
og var þá seldur til Stoke City fyrir
350.000 pund. Var í liði Norður Ira í
heimsmeistarakeppninni á Spáni.
Richie Barker.
Richie
Barker
Framkvæmdastjóri liðsins,
Richie Barker, lék sem leik-
maður með liðum Derby
County og Notts County og er
ferli hans sem leikmanns lauk
gerðist hann þjálfari hjá
Shrewsbury Town og síðar
framkvæmdastjóri félagsins.
Þegar honum bauðst starf
aðstoðarframkvæmdastjóra
hjá Wolverhampton Wand-
erers tók hann því og varð fé-
iagið meðal annars deildar-
bikarmeistari þegar hann var
hjá því. Hann tók síðan við
starfi framkvæmdastjóra hjá
Stoke City árið 1981 og hefur
honum tekist að byggja upp
I nokkuð gott lið fyrir lítið fé.
Hefur leikið 386 deildarleiki fyrir
Manchester United og Stoke City.
BREN O’CALLAGHAN (ÍRLAND)
miðframherji, hóf feril sinn hjá
Doncaster Rovers og lék hann með
þeim í 6 ár áöur en hann var seldur
til Stoke City árið 1977 fyrir 60.000
pund og hefur hann verið fastamaður
í liðinu síöan. Hefur leikiö 381
deildarleik fyrir Doncaster Rovers
og Stoke City.
MICKEY THOMAS (WALES)
sóknartengiliður, hóf feril sinn hjá
Wrexham og lék með þeim í nálægt
átta ár, en var þá seldur til
Manchester Utd. fyrir 300.000 pund
og lék hann með liðinu næstu þrjú
árin að hann var seldur til Everton
fyrir 450.000 pund en honum likaði
ekki veran þar og var hann þá seldur
til Brighton fyrir 400.000 pund en þar
Dave Watson — miðvörðurinn sterki, sem lék áður með Sunderland,
Man. City, Werder Bremen og Southampton.