Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Page 48
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33
SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1983.
Ólaf ur Ragnar Grímsson:
ÁBENDING
ÚLFARS
FURÐULEG
„Ég hef engin skilyröi sett fyrir því
aö skipa fjóröa sætiö á lista Alþýöu-
bandalagsins í Reykjavík,” sagöi
Olafur Ragnar Grímsson þegar DV
bar undir hann frétt í blaðinu í gær um
ástæöur þess aö Ulfari Þormóössyni
var ekki falin kosningastjórn flokks-
ins.
„Þaö er stjórn Alþýðubandalagsins
í Reykjavík sem ákveður hver er
kosningastjóri og hún leitaði ekki álits
míns um val á mönnum.
Mér var ekki kunnugt um valið fyrr
en þaö var um garö gengiö. Ummæli
Ulfars Þormóössonar í frétt DV eru
hins vegar sérkennileg og vekja fleiri
spurningar en þau svara. Eins og
kunnugt er hefur Ulfar Þormóðsson
veriö kosningastjóri bandalagsins í
Reykjavík í öllum kosningum síöan
1978. Hann er auk þess formaður í
stjórn útgáfufélags Þjóöviljans og for-
maöur flokksins hefur falið honum
mörg trúnaöarstörf.
Ábending Ulfars um aö spyrja mig
er því furðuleg og viröist til þess eins
fallin aö skapa grunsemdir í minn
garö.” -HERB.
Hætta Asíuflugi
Flugleiöir hafa sagt upp samningi
sínum um flug fyrir Air India í Asíu frá
1. mars næstkomandi. Er það gert þar
sem ekki náðist samkomulag viö flug-
menn Flugleiöa um aö erlendar
áhafnir önnuðust flugiö yfir háanna-
tímannísumar.
Undanfarin ár hefur Air India-flugiö
veitt um fjörutíu flugliöum Flugleiða
verkefni þann hluta ársins sem
Atlantshafsflugið er í iágmarki. Yfir
sumartímann hafa hins vegar erlendir
flugmenn veriö fengnir til að leysa af
þá íslensku. Á þaö fyrirkomulag gátu
flugmenn Flugleiða hins vegar ekki
sæst nú.
Missir þessa samnings gæti þýtt aö
Flugleiöir þyrftu að segja upp fjölda
f lugmanna næsta haust. -KMU.
Vinnuslys á Akranesi:
Stúlka lenti
í færibandi
Stúlka um tvítugt maröist illa á
hendi þegar hún lenti meö höndina í
færibandi í hraðfrystihúsinu Heima-
skaga á Akranesi um klukkan tvö í
gærdag. Stúlkan var aö þrífa færi-
bandiö, sem var í gangi, er slysiö varö.
Hún var flutt á sjúkrahúsið á Akranesi
tilaöhlynningar. -JGH.
LOKI
Laglega tókum við þá
þessa Spanjóla.
Fylgst meö HM-leiknum í B-keppninni í sjónvarpinu í gær. Eftir því sem lengra leið á leiklnn varð minna gaman aö
fylgjast með þessari fyrstu sjónvarpssendingu af íþróttakeppni íslensks liðs erlendis. DV-mynd Bjarnleifur.
ÍSLAND VARD ENGIN
HINDRUN FYRIR SPÁN
—Spánn sigraði 23-16 í Breda í Hollandi
Frá Sigmundi Ö. Steinarssyni,
fréttamanni DV á HM-keppninni í Hol-
landi:
„íslenska liðið kom mér mjög á
óvart í þessum leik — ég hef aldrei
áður séð svona baráttulaust landslið
frá íslandi,” sagöi JuanUria,leik-
reyndasti maöur spænska landsliðsins,
eftir leikinn. „Fyrir utan baráttuna
vantar liðið sýnilega stjórnanda — inni
á vellinum — ég sá engan slíkan í
þessum leik.”
„Viö veröum aö horfast í augu við
þaö aö Spánverjamir eru í öömm
styrkleikaflokki en við,” sagöi Olafur
Jónsson, fyrirliöi landsliösins, eftir
leikinn. „Spánverjamir vora mjög
sterkir og fljótir að sjá okkur út. Þeir
áttu skiliö aö sigra í leiknum en ekki
svonastórt.”
Bjarni Felixson lýsti leiknum úr sjón-
varpshúsinu viö Laugaveginn og tókst
það mjög vel. Myndin var tekin þegar
leikurinn stóð yfir.
DV-mynd Bjarnleifur.
36% sóknarnýting
Sóknamýting ísl. liðsins var slæm í leiknum, 16 mörk skoruð í 44 sóknarlotum eða 36,3% — níu
mörk í f.h. í 21 sókn eða 42,8% — sjö mörk í s.h. úr 23 sóknum eöa 30,4%. Markvarsla var einnig
siæm. Kristján Sigmundsson varði þrjú skot, Einar Þorvarðarson eitt. Arangur einstakra
leikmanna:
Skot. Mörk. Skot Stangar Línusend Knetti Fiskuð
varin. skot. ingar. tapaö. víti.
Þorgils Ottar 3 2 1 0 0 1 2
Guöm. Guömundsson 2 2 0 0 0 2 3
Olafur Jónsson 2 0 2 0 0 1 1
Bjarni Guðmundsson 4 2 1 1 0 0 0
Kristján Arason 10 5 4 1 1 2 i
Sig. Sveinsson 3 2 1 0 1 1 0
Páll Oiafsson i 0 1 0 0 2 0
ÞorbjörnJenss. 0 0 0 0 0 1 1
Alfreö Gíslason 5 2 1 1 0 1 1
Hans Guömundsson 2 0 1 1 1 2 0
-SOS.
„Það vantaöi alla stemmningu í liöiö
í þessum leik. Eg held aö strákamir
hafi ekki trúaö því aö þeir gætu sigraö
Spánverjana,” sagöi Hilmar Björns-
son landsliðsþjálfari eftir leikinn.
„Þaö var engin barátta í þeim en hún
kemur vonandi í þeim leikjum sem viö
eigum eftir hér í keppninni. ”
Leikurinn var jafn framan af — jafnt
á öllum tölum upp í 7—7, þar sem
Island skoraöi oftast á undan. Síöan
hljóp allt í baklás hjá ísl. liöinu. Spán-
verjar skoruöu fimm mörk í röö.
Komust í 12—7 og úrslit voru ráöin. I
hálfleik var staöan 13—9 fyrir Spán.
Fljótt í síðari hálfleiknum náöi
Spánn sjö marka forastu. Komst í 17—
10 en ísl. liðinu tókst að minnka það
niður í f jögur mörk, 19—15. En þá seig
á verri hliðina aftur og Spánn skoraði
fjögur mörk gegn einu síöustu tíu
mínúturnar. Urslit 23—16 fyrir Spán.
Mörk Islands í leiknum skoruöu
Kristján Arason 5/3, Alfreð Gíslason 3,
Bjami Guömundsson 2, Guðmundur
Guömundsson 2, Þorgils Ottar Mathie-
sen 2 og Sigurður Sveinsson 2/2. Island
fékk níu vítaköst í leiknum. Nýttu
fimm. Spænsku markveröirnir vöröu
fjögur. Spánn fékk tvö vítaköst. Nýtti
bæði. Dómararpólskir.
Almennur borgaraf undur í Broadway um videomálið:
UNDIRSKRIFTASÖFNUN-
IN HEFST A MORGUN
„Eg hvet alla til þess aö mæta á
fundinn og sýna þannig samstööu
gegn þessari aðför,” sagði Ásgeir
Hannes Eiríksson, einn forvígis-
manna undirskriftasöfnunarinnar til
styrktar frelsi í fjölmiölun. Eins og
fram hefur komiö í fréttum sendi
ríkissaksóknari kæra á hendur
kapalsjónvarpsfyrirtækinu Video-
son. I framhaldi af því sáu forráða-
menn fyrirtækisins sér ekki annaö
fært en aö loka fyrirtækinu, a.m.k.
fyrst umsinn.
Almennur borgarafundur verður í
Broadway á morgun, sunnudag, þar
sem hefst undirskriftasöfnun til þess
aö mótmæla aðför yfirvalda. Söfn-
unin nær til alls landsins þar sem
þessi mál snerta alla landsmenn.
Kapalkerfi eru nú starfandi víða um
land, enda er hér á ferðinni ný
tegund f jölmiölunar.
Fundarstjóri á Broadwayfundin-
um veröur Albert Guömundsson al-
þingismaður. Á fundinn veröur boöiö
einum þingmanni Reykjavikur úr
hverjum stjórnmálaflokki. Fundar-
ritari veröur Sverrir Friöþjófsson,
forstööumaöur Fellahellis. Guö-
mundur H. Garöarsson, viöskipta-
fræöingur og fyrrverandi formaður
Félags áhugamanna um frjálsan út-
varpsrekstur, verður frammælandi.
Á eftir honum flytja þingmennimir
ræðursínar.
A fundinum veröur dreift undir-
skriftalistum til fólks þar sem menn
geta skráð nöfn sín til styrktar frelsi
í fjölmiðlun. Utvarpsstjóra veröur
sérstaklega boðið á f undinn. -JH.