Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Side 1
Gunnar guggnaði
á 60 þingmönnum
— tekurupp formannatillöguna í
stjómarskrárfrumvarpið
Eftir fund stjórnarskrámefndar í
hádeginu í gær sendi Gunnar Thor-
oddsen samnefndarmönnum sínum
skilaboð um að hann væri hættur við
tillöguna um óbreytta þingmanna-
tölu, 60 alþingismenn. Hann tekur í
staðinn upp í stjórnarskrárfrum-
varp óbreytta formannatillöguna um
63 þingmenn, að frumkvæði Þórarins
Þórarinssonar ritstjóra, sem sæti á í
stjómarskrárnefnd.
Á fundi nefndarinnar i gær kynnu
forsætisráöherra drög aö fmmvarpi
um stjórnarskrármálið, sem byggt
er á tillögum nefndarinnar. Kvaðst
hann hafa í hyggju að flytja frum-
varpið í skjóli ráðherrastöðu sinnar.
Það sætti verulegri gagnrýni og bent
var á að ríkisstjómin hefði ekki
fjallaö um málið. Sérstaklega var
Gunnar varaður við að flytja tillögu
sem gengi í berhögg við tillögu for-
manna stjórnmálaflokkanna um
þingmannatölu og breytingar á
kosningalögum.
Gunnari var bent á að sh'kur
tillöguflutningur hefði óvemlegan
stuðning á Alþingi en gæti hins vegar
tafið allar breytingar í stjórnar-
skrármálum og stefnt þeim í hreinar
illdeilur.
Seinna í gær tilkynnti Guðmundur
Benediktsson, ráðuneytisstjóri í for-
sætisráðuneytinu, nefndarmönnum
að forsætisráðherra hefði ákveðiö að
söðla um í kjördæmamálinu.
Gert var ráð fyrir því í morgun að
forsætisráðherra legöi þá fyrir á
ríkisstjórnarfundi tillögu sína að
stjórnarskrárfrumvarpi og að þar
réöist hvort hann flytur frumvarpið
sem ráðherra eða þingmaöur.
-HERB.
Nýrnjósna-
þátturmeð
AlecGuinnes
ísjónvarpinu
— sjá bls. 39
•
Gengurum
skjótandi
kettií
Kópavogi
Stofnanakeppni T.R.:
Búnaðarbankinn vann
Hin sigursæla skáksveit Búnaðar-
banka Islands stakk enn einni fjöður í
hatt sinn í gærkvöldi þegar hún varð
efst í Stofnanakeppni Taflfélags
Reykjavíkur 1983. Teflt var á fjómm
borðum, 7 umferðir, með klukku-
stundar umhugsunartíma á mann, og
halaði sveitin inn 20,5 v., í ööm sæti
urðu sigurvegararnir frá í fyrra, sveit
Ríkisspítalanna, meö 19,0 v., í 3. sæti
Grunnskólar Reykjavíkur með 18,0 v.,
og 4.-6. Otvegsbankinn, Verka-
mannabústaðir og Flugleiðir með 16,5,
en alls kepptu 26 sveitir í A-riðli. Sigur-
sveit Búnaðarbankans skipa Jóhann
Hjartarson, Bragi Kristjánsson,
Hilmar Karlsson, Guðmundur
Halldórsson en fyrirliöi og varamaður
er Stefán Þormar Guðmundsson.
Keppni í B-riðli lýkur á miðviku-
daginn.
-BH.
Yfírlysmgm a vissan
hátt stefnumarkandi
segir Friðjón Þórðarson um ummæli Pálma Jónssonar
„Eg tel að þessi yfirlýsing þurfi
ekki að breyta miklu en hún er
stefnumarkandi á vissan hátt,”
sagði Friðjón Þórðarson í morgun
um hugsanleg áhrif orða Pálma
Jónssonar á sérframboðshugleið-
ingar Gunnars Thoroddsen. Pálmi
sagði í ræðu á kjördæmisráðsfundi
Sjálfstæðisflokksins í Norðurlands-
kjördæmi vestra að stjórnin ætti að
segja af sér strax að kosningum
loknum og engar áætlanir séu hjá
sjólfstæðisráðherrunum í stjóminni
að lengja lífdaga hennar. Friðjón
sagði einnig aö hann hefði aldrei
talið það líklegt að forsætisráðherra
færi í sérframboð.
Pálmi Jónsson sagði hins vegar í
morgun í samtali við DV: „Ég sé
ekki nein tengsl milli þessara mála.”
-JBH.
— sjánánarfrétt
ábls.3
Brugðið á leik á björgunarœfingu: Hundurinn gín við snjó-
boltanum. . . en skiptir snarlega um skoðun, þegar hann
finntír hvað hann er kaldur. Það er bara mannskepnan sem
borðarís. DV-myndirS.