Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Síða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR8. MARS1983.
3
Gengið frá lista Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi vestra:
SJALFSAGT AÐ RIKIS-
STJÓRNIN SEGIAF SÉR
— strax að loknum kosningum, sagði Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra
Krossanes strandað í höfninni á Breiðdaisvik 2. febrúar siðastliðinn. Siðan hefur skipið komið með 170
tonn að iandi.
Fundur kjördæmisráös
Sjálfstæöisflokksins á Noröurlandi
vestra var haldinn á Blönduósi á
laugardag. Kjömefnd bar fram lista
til alþingiskosninga. Séra Gunnar
Gíslason, fyrrverandi prófastur
Glaumbæ, mælti fyrir áliti kjör-
nefndar á fundinum. Þá kvaddi
Pálmi Jónsson ráöherra sér hljóös,
ræddi hann um bráðabirgðalögin,
vísitölufrumvarpiö og þaö helsta
sem er aö gerast í stjómmálum.
Pálmi lagöi áherslu á aö
Sjálfstæðisflokkurinn gengi alger-
lega óbundinn til kosninga hvað
varðaði stjórnarsamstarf eftir
kosningar. Taldi hann sjálfsagt aö
ríkisstjórnin segöi af sér þegar
kosningar hefðu farið fram, hvernig
sem þær færu. Hann taldi ekki
ástæöu til aö stjómin færi frá fyrir
kosningar, „nema nýjar orsakir
gerðu þaö knýjandi.” Eyjólfur
Konráö Jónsson alþingismaður lýsti
yfir ánægju sinni og taldi þaö eðlileg-
an gang málsins að reynt yrði aö
mynda nýja stjórn þegar kosningar
færu fram. Þess má og geta að
Friðrik Sophusson, varaformaöur
flokksins, var á fundinum og hélt
hann stutta ræöu.
Sex fyrstu sæti listans eru bindandi
samkvæmt úrslitum prófkjörsins,
menn samþykktu hann samhljóöa og
vom einhuga um þetta.
1. Pálmi Jónsson, ráöherra Akri.
2. EyjólfurKonráð Jónsson, alþingis-
maöur Reykjavík.
3. Páll Dagbjartsson, skólastjóri
Varmahlíð.
4. Olafur B. Oskarsson, bóndi í
Víðidalstungu.
5. Jón Isberg, sýslumaöur Blönduósi.
6. Jón Ásbergsson, framkvæmda-
stjóri Sauðárkróki.
7. Knútur Jónsson, skrifstofustjóri
Siglufiröi.
8. Pálmi Rögnvaldsson, skrifstofu-
maður Hofsósi.
9. Þórarinn Þorvaldsson, bóndi á
Þóroddsstööum.
10. Séra Gunnar Gíslason, fyrrver-
andi alþingismaður Glaumbæ.
-RR/HH
Hafa sótt
þann gula
rösklega eftir
strandið
Þaö var óskemmtileg sýn sem blasti
viö Breiödælingum þegar þeir fóru á
fætur aö morgni miövikudagsins 2.
febrúar siðastliöins. Aöalaflaskip
byggðarlagsins, Krossanesiö, lá
strandaö í höfninni.
Hið 250 tonna skutskip var að fara
frá bryggju í ofsaroki í höfninni á
Breiðdalsvík þegar þaö tók aö reka
upp í fjöru og strandaði um klukkan
hálfsjö um morguninn.
En betur fór en á horfðist. Krossa-
nesið náðist á flot um kvöldið, var þá
skoðað og reyndist óskemmt. Þaö hélt
síðan til veiöa um nóttina.
Skipiö hefur síöan sótt gull í greipar
Ægis. Frá strandinu og til febrúarloka
kom þaö meö 170 tonn af þorski aö
landi. Þykir skipverjum það ágætur
afli. -KMU.
Skyndihjálp
íKópavogi
Námskeiö i skyndihjálp verður
haldið í Víghólaskóla i næstu viku.
Hefst þaö i dag, þriöjudaginn 8. mars
kl. 20, veröur átta kvöld, samtals 32
kennslustundir og er opiö öllum 16 ára
og eldri.
Á námskeiðinu, sem haldið er á
vegum Rauða kross deildar Kópavogs,
veröur reynt aö veita sem mesta verk-
lega þjálfun.
Sýndar verða kvikmyndir um hina
ýmsu þætti skyndihjálpar. Auk þess
veröa kenndar nýjungar en þeirra
merkust er „MUNN-VIÐ-HÁIS
AÐFERÐIN”: Þaö er aöferð sem
notuö er viö endurlífgun fólks sem
andar um op á hálsi vegna þess aö
barkakýlið hefur veriö numiö brott
oftast vegna iUkynjaðrar meinsemdar.
Þetta námskeiö sem fer af stað i
næstu viku er lengra en fyrri námskeið
sem Rauða kross deild Kópavogs hefur
haldiö. Þess má geta aö námskeiðinu
lýkur með verkefni sem hægt er að fá
metið í fjölbrautaskólum og iðn-
skólum. -ÞG
LJÓS-
KASTARAR
„GRILL"
GRINDUR
MEÐ
LJÓSA-
FESTINGUM
Litir: svart,
hvítt.
BENSÍN
BRÚSAR
JEPPABLÆJUR
GRJOT-
SVUNTUR
ÚR VINYL Á
T0Y0TA
HI-LUX 79- 81
Jeppaeigendur
DRIF-
LOKUR
SPEGLAR
TVÆR
TEGUNDIR
„FIBER" HÚS Á PALLBÍLA
ÞAÐ ER LEIT AÐ BETRI
GREIÐSLUKJÖRUM.
STAÐGREIÐSLU-
AFSLÁTTUR
SENDUM
í PÓSTKRÖFU
MART
VATNAGARÐAR14
SÍMI 83188
HJÓLBARÐAR sem hafa þeg-
ar sýnt og sannað yfirburði
sína, bæði í snjó og öðrum
ófærum.
10-15 Q78-16
12~15 14/35-15
12-16 15/38.5-15
10.5-16 17/40-15
N78—15 18.5/44-15
P78-15
Q78-15
^jötbaröa^
Gott grip, góðir aksturs-
eiginleikar. Góð ending,
þ.e.a.s. FRÁBÆRIR AL-
HLIÐA HJÓLBARÐAR.
27- x 9.5-14
27 x 9.5-15 11 -x 16.5
9.5 x 15 35 x 11.5-15
11 x 15 35 x 14.5-15
„White-
spoke"
felgur
á
flestar
teg.
jeppa.
Topplúgur á flestar gerðir bif-
reiða. Reyklitaðar og með spegil-
gleri.
Fjaðrir og höggdeyfar á
Toyota Hi-Lux
PALL-
YFIR’
BREIÐSLUR
Á T0Y0TA
HI-LUX
MONSTER MUDDER