Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Qupperneq 5
DV. ÞRIÐJUDAGU R 8. M ARS1983.
Þingsályktunartillaga:
Kapalkerfin
verði leyfð
— þar til ný útvarpslög verða sett
„Alþingi skorar á ríkisstjómina aö
beita sér fyrir því aö þau fjölmörgu
kapalkerfi, sem nú eru starfandi viös
vegar um landið, fái leyfi til áfram-
haldandi starfsemi í samræmi viö túlk-
un gildandi laga.
Ríkisstjómin skipi jafnframt nefnd
fimm manna sem hafi eftirlit meö
starfsemi kapalstööva, þar til önnur
skipan hefur veriö ákveöin meö
lögum.” Þannig hljómar þingsályktun-
artillaga sem 14 þingmenn úr Sjálf-
stæðis-, Framsóknar- og Alþýöuflokki
lögöu f ram á Alþingi nýlega.
Þingsályktunartillögunni fylgir
greinargerð þar sem segir meöal
annars aö á síöustu misserum hafi f jöl-
mörg kapalkerfi fyrir sjónvarp verið
stofnsett víðs vegar um landiö. Ágrein-
ingur hafi verið um lögmæti þessarar
starfsemi, en yfirvöld hafi ekki amast
viö henni fyrr en nú aö fyrirtækiö
Video-son hafi verið kært.
Bent er á aö í reynd hafi stjórnvöld
viðurkennt starfsemi Video-son meö
því aö leggja söluskatt á þjónustu þess
og einnig hafi þau tekið tolla og aö-
flutningsgjöld af innflutningi tækja
sem notuð hafi verið í þágu kapal-
stöðvarinnar.
Einnig er bent á í greinargeröinni að
á undanförnum misserum hafi út-
varpsstjóri gefið leyfi til útvarps á
vegum ýmissa hópa einstaklinga, sér-
staklega skólafólks. Væntanlega hafi
þetta veriö gert í skjóli þess að út-
varpsstjóri telur þaö ekki brot á út-
varpslögum. Því er mælst til þess að
ríkisstjórnin beini þeim tilmælum
sínum til útvarpsstjóra aö hann gefi út
sams konar leyfi til handa þeim kapal-
sjónvarpsstöövum sem fram aö þessu
hafa starfaö í landinu, þangaö til
Alþingi gefst ráörúm til aö ganga frá
nýjum útvarpslögum. Á meöan þetfa
millibilsástand vari sé skipuð sérstök
nefnd sem fylgist meö starfsemi þess-
ari þar til önnur skipan kemst á.
-SþS
óskarað
ráða
blaðburðarbörn
í eftirtalin
hverfi:
• BALDURSGÚTU
Uppl. áafgreiðslu
Þverholti 11.
AFGREIÐSLUMAÐUR
Oskum aö ráða sem fyrst röskan og áreiöanlegan afgreiðslu-
mann í málningar- og verkfæradeild. Upplýsingar á staönum
hjá deildarstjóra.
BTWl BYGGlNGAVÖRURl
ADDO |
BBIHBBBBBBHBBBBBBBBBBBHBBBBBHBBBBBBBBHBBBBBBBBBBBWBBK?
Stórt og greinilegt takkaborð
Vinnsluteljari
•
Strimill og
Ijósaborð
•
4ra
takka
minni
Fjölhæf reiknivél fyrir
allan reikning
KJARAINI HF
Ármúli 22 — Reykjavík — sími 83022
Ljósmyndasýning-
unni lýkur í dag
Síðasti dagur sýningar blaðaljósmyndara á verkum sinum er i dag.
Sýningin er á Kjarvalsstöðum og er opin frá kl. 14—22. Á henni eru rúmar
200 myndir 21 Ijósmyndara. Flestar af fréttnæmum atburðum eða frægu
fólki. Á myndinni eru 16Ijósmyndaranna sem að sýningunni standa.
Skatturinn á verslunar- og
skrifstof uhúsnæði samþykktur:
I gegn með at-
kvæði Vilmundar
Framlenging á sérstökum eigna-
skatti á verslunar- og skrifstofuhús-
næöi þokaðist áfram í neöri deild
Aiþingis í gær. Frumvarp um skattinn
náði til 3. umræöu eftir atkvæða-
greiöslu meö nafnakalli. Þaö var
samþykkt meö 21 atkvæöi gegn 19. Vil-
mundur Gylfason studdi f rumvarpiö á-
samt stjórnarliðum.
Ef Vilmundur heföi á hinn bóginn
greitt atkvæöi með stjórnarand-
stæöingum, heföi frumvarpiö falliö á
jöfnum atkvæðum.
Þessi skattur á verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði, sem er 1,4% af fast-
eignamati, var tekinn upp til bráöa-
birgöa 1979 og hefur síðan veriö
framlengdur árlega meö sérstökum
lögum hverju sinni. Innheimta
skattsins á þessu ári er áætluð nema
49,5milljónum króna.
-HERB.
Skóli fatlaðra
fær stórgjöf
Lionsklúbburinn Njörður hefur fært
skóla fatlaöra sextíu þúsund krónur aö
gjöf. Peningunum veröur variö til þess
að greiða kostnað við akstur nemenda í
og úrskóla.
Júlíus S. Olafsson, formaöur Lions-
klúbbsins Njarðar, afhenti Jóni As-
geirssyni, framkvæmdastjóra Rauöa
kross Islands, peningagjöfina. Jón Ás-
geirsson tók viö gjöfinni fyrir hönd
þeirra sem átt hafa samstarf um aö
koma skólanumá fót.
Lionsfélagar öfluöu f járins meö sölu
heröatrjáa á ári fatlaðra.
Einnig hafa borist framlög frá
öörum aöilum. Hjálparstofnun
kirkjunnar gaf kr. 30.000, Styrktar-
félag lamaðra og fatlaöra kr. 10.000 og
Tryggingastofnun ríkisins lagöi fram
kr. 15.000 sem nota á til aö kaupa
námsbækur.
-MAM/starfskynning.
VERÐLÆKKUN
Vegna hagstæöra samninga við ATOMIC og CABER getum
viö boðið ótrúlega hagstætt verð á ATOMIC skiöum og CABER
skíðaskóm.
Hér er þó aðeins um mjög takmarkaö magn að ræða
ATOMIC SKÍÐI
ARC Carbon Bionic
ARC Bionic Team SL
ARC Bionic Team RS
ARC Excellent
Var
Var
6.640,00
6.450,00
6.450,00
3.790,00
Var
Nú
4.650,-
4.515,-
4.515,-
2.653,-
Nú
MID Bionic
MID Dominator
MID Supreme
MIDSport
5.950,00 4.165,- ARCWorldcup 140-175 2.350,00 1.645,-
5.277,00 3.695,- ARC Worldcup 120—130 2.285,00 1.599,-
3.550,00 2.485,- ARC Pro 160—170 1.997,00 1.397,-
2.710,00 1.895,- ARC Pro 140—150 1.847,00 1.295,-
ARC Pro 120-130 1.696,00 1.187,-
CABER SKÍÐASKÖR
Var Nú
Gold2 4.470,00 2.680,-
Sideral 4.265,00 2.560,-
Equipe 3.678,00 2.250,-
Impulse 3.115,00 1.865,-
Equipe Jr. 2.355,00 1.415,-
Targa 2.030,00 1.215,-
Mirage 1.641,00 985,-
Devil 1.405,00 845,-
Alfetta 1.245,00 745,-
Pioneer 1.065,00 640,-
gengi 03031983.
Á
§P0RTVAL
ILAUGAVEG1116, VID HLEMMTORC-
SÍMAR 14390 £t 26690