Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Síða 8
8 DV. ÞRIÐ JUDAGUR 8. MARS1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
CIA HEFUR HERT NJÓSNIRNAR
síðan Iranskeisara var bylt 1979
William Casey, forstjóri CIA, leyni-
þjónustu Bandaríkjanna, sagöi í gær
að stofnun hans heföi eflt mjög
aögerðir til „upplýsingaöflunar” í
löndum sem mikilvæg þykja hags-
munum Bandaríkjanna, eins og
Egyptalandi, Saudi Arabíu, Pakistan
og Mexíkó.
Tiltók hann aö þetta væri upplýs-
ingasöfnun til aö meta „óstööugleik-
ann” í þessum lykillöndum og fleirum,
sem hann ekki tilgreindi nánar, þegar
hann sat í gær fyrir svörum um breyt-
ingar á CIA, sem geröar heföu verið
eftir 1979. — Það var árið sem
Iranskeisara var bylt en þaö kom mjög
flatt upp á Washingtonstjómina, sem
kunni CIA litlar þakkir fyrir skort á
viövörunum.
Casey vildi kenna Carter forseta og
fleirum um og sagöi aö slíkt gæti ekki
hent í dag. — ,,Ár hvert metum viö
stööuna í öllum löndum sem em mikil-
væg í einu eöa ööru tilliti,” sagöi for-
stjórinn á fundi meö hópi sjálfboða-
fólks sem ávallt er tiltækt til starfa á
vegum stjómarinnar á ófriöartímum.
Tœpara mátti það varla standa hjá íbúum í hjól-
hýsahverfi í Pacifica suður af San Francisco á
dögunum, þegar þar gekk yfir mikið hvassviðri
með úrhellisrigningum og stórstraumsbrimgarði.
Ber myndin það með sér. — Fimm manns létu lífið
hér og þar í Kaliforníu íþessu ofstopaveðri.
Danirglíma við bákniö
Danska ríkisstjómin vill skera niö- veröa aö jafna hallann meö spamaði
ur framlög til sveitar- og bæjarstjórna sem naumast veröur gert öðmvísi en
um 3 milljarða danskra króna á næsta meö fækkun starfsfólks. Er búist viö aö
ári. Jafnframtleggurstjóminbannvið þúsundum opinberra starfsmanna
því aö sveitarstjómir bæti sér þennan verðisagtuppumnæstuáramót.
mun upp meö hækkun skatta. Þær -Inga Huld í Danmörku.
Skrimtu
sjö mánuði
á Suður-
skautinu
Sovéskur vísindamaöur lést og tutt-
ugu félagar hans áttu á hættu aö fr jósa
í hel eftir að eldsvoði varö í sovéskri
rannsóknarstöð á Suðurheimskauts-
landinu í apríl á síðasta ári. Þessar
fréttir fhitti sovéska dagblaðið Izvestia
ekki alls fyrir löngu.
Samkvæmt frásögn blaðsins varö
eldur laus þegar kviknaði í rafölum
stöövarinnar vegna þess að rafalarnir
vom ekki tengdir rétt. Þar meö slökkn-
aöi á hitakerfi stöövarinnar og á
tækjum til þess aö þíöa snjó. Einn
vísindamannanna dó í eldinum og ótt-
ast var um líf hinna því engin leiö var
aö senda flugvél eftir þeim vegna
veöurs. Hitastig var um þessar mundir
—64 gráöur. En hópnum tókst aö gera
viö rafalana svo þeir skiluöu nokkurri
orku og héldu lífi þar til flugvél komst
til þeirra sjö mánuðum seinna.
Hópurinn mun hafa veriö að rannsaka
eöli syöra segulskautsins.
Umsjón:
Guðmundur
Pétursson
Stórslys i kolanámu í Tyrklandi
Konur og börn biöu grátandi á
staðnum í morgun á meöan björgunar-
sveitir leituöu enn þrjátíu manna, sem
saknað er eftir gassprengingu í kola-
námu á Svartahafsströnd Tyrklands.
Vitað er um 67 látna.
Sprengingin í gær varö 300 metra
niðri i Armutchuknámunni skammt
frá Eregli-bæ, sem er um 200 km aust-
ur af Istanbul. Þykir þetta versta
námuslys sem hent hefur í Tyrklandi í
f jölda ára.
En dauðaslys eru tíö í tyrkneskum
námum og f jöldi þeirra sem farist hafa
á síöustu tíu árum er nú kominn upp í
630.
Ættingjarnir, sem biöu viö námuna,
voru ekki úrkula vonar um að þeirra
nánustu kynnu aö komast lífs af því aö
86 var bjargað lifandi en þó slösuöum
upp í gærkvöldi og í nótt.
Mörg likin voru hroðalega farin af
sprengingunni og eldinum sem braust
út á eftir og var erfiöleikum bundiö aö
berakennslá þau.
Orsakir.; þess að gasiö lak út, eða
kviknaöi í þVí, eru ókunnar.
Ekki meiri
Reagan
Meirihluti Bandaríkjamanna,
57%, vili ekki að Reagan Banda-
ríkjaforseti bjóði sig fram að nýju
þegar kjörtímabil hans rennur út.
I könnuninni tóku þátt rúmlega
eitt þúsund manns, en hún var gerð
á vegum Newsweek tímaritsins.
Samkvæmt könnuninni átti George
Bush varaforseti mestan stuöning
meöal Repúblikana sem forseta-
efni ef Reagan byöi sig ekki fram.
Engin
kjarnavopn
í Finnlandi
Mauno Koivisto Finnlandsforseti
hefur lýst því yfir að Finnar muni
ekki líða þaö að sovésk eða önnur
kjamavopn veröi sett upp á land-
svæöi þeirra. „Við munum ekki
leyfa aö kjamavopn verði flutt til
landsíns. Það er móögun við ná-
granna okkar að halda slíkt.”
Þetta sagöi Koívisto í ávarpi til
þingsins í Helsinki áður en þing-
menn héldu heim til undirbúnings
fyrir kosningar sem haldnar veröa
20.—21.mars.
Óháð
ríki þinga
Leiðtogar frá um hundrað ríkj-
um Asíu, Afríku og Rómönsku
Ameríku hafa komið saman í Nýju
Delhi, á þing bandalags óháöra
þjóöa sem þar er haldið. Fidel
Kastro, forseti Kúbu, sem verið
hefur formaöur samtakanna frá
því á þinginu 1979 í Havana, setti
þingiö en við formannsembættinu
mun taka Indira Gandhi, forseti
Indlands.
Búist er við að stórveldin tvö,
Bandaríkin og Sovétríkin, muni
veröa gagnrýnd á þinginu. Sovét-
ríkin fyrir íhlutunina í Afghanistan
og Bandaríkin fyrir afskipti af mál-
efnum Miö-Ameríkurík janna og ey-
rík janna i Karabíska hafinu.
Hékk ífiugvél
til Kanada
Pólskur flugvirki, Ryszard Kuz-
minski, flúði land meö flugvél
pólska flugfélagsins Loí til Kanada
um helgina. Hann faldi sig í hjóla-
geymslu flugvélarinnar.
Kuzminski sagðist hafa flúið því
honum hefði verið hótað aö hann
myndi missa atvinnu sína, ef hann
undirritaði ekki eiöstaf þess efnis
aö hann héti pólsku stjóminni holl-
ustu sinni. Hann sagöi aö margir
Pólverjar byggju við sams konar
ógnir.
Þegar flugvélin kom til Montreal
stökk Kuzminski niöur úr hjóla-
geymslunni og leitaði uppi lög-
reglumenn og gaf sig á vald þeirra.
Honum hefur verið veitt timabund-
iö landvistarleyfi í Kanda. Kona
hans og sonur uröu eftir í Póllandi.
Næstráð-
andi skæru-
liði drepinn
Einn helsti leiðtogi skæruliöa-
hreyfingarinnarSendero Luminoso
í Perú, Carlota Tello Cutti, var
skotinn til bana í átökum viö her-
sveitir stjómarinnar í Lima 21.
febrúar sl. Iik hennar fannst í
Huancasoncas, þorpi sunnan við
Ayacucho. Ekkert hefur veriö
skýrt frá því opinberlega hvemig
þaö vildi til að hersveitimar fundu
hana.