Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Síða 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS1983.
Útlönd
Útlönd
Utlönd
Útlönd
RAÐIST
GEGN
MAFÍ-
UNNI
Lögregluyfirvöld í Palermo á Sikiley
tilkynntu á sunnudag aö í velheppnaðri
lögregluaögerð heföu 834 einstaklingar
verið handteknir grunaðir um aðild að
Mafíunni. I þessari aðgerð tóku þátt
8700 lögreglumenn. Talsmaður lög-
reglunnar sagði að ennfremur hefði
lögreglan endurheimt 291 stolinn bíl,
einn milljarð líra af stolnu fé, tekiö 175
haglabyssur og herriffla og 140
skammbyssur auk sprengiefna og
eiturlyfja.
Lögreglumennirnir sem notuðu þyrl-
ur og leitarhunda stóöu 548 menn að
verki við glæpi og handtóku 286 menn
sem þegar hafði verið gefin út hand-
tökuskipun á. Talsmaöur lögreglunnar
sagði að með þessu hefði f jölda Mafíu-
f jöiskyldna verið gert ókleift að starfa.
Eftir að Carlo Alberto dalla Alto
hershöfðingi var myrtur í Palermo i
september síðastliðnum samþykkti
ítalska þingiö ný lög sem veittu lög-
reglunni mikil völd og gerðu aögerðirn-
ar um helgina mögulegar. Með þessum
lögum er lögreglumönnum heimilt að
rannsaka bankareikninga og milli-
færslur sem notaöar eru til að fela fé
og leggja niðurstöður sínar fram sem
sannanir fyrir rétti, en það var áöur
bannað. Löggæslan hefur með þessu
brugðist við hinum nýja stíl Mafíufor-
ingja, sem haga sér eins og fram-
kvæmdastjórar stórfyrirtækja og hafa
sína lögfræðilegu og f jármálalegu ráð-
gjafa.
Ekki var mikið um stór nöfn meöal
hinna handteknu en þó var meðal
þeirra 17 ára sonur mannsins sem tal-
inn er yfirmaður Mafíunnar í Napolí,
LuigiVollato.
Byrjuðu
á því að
fellagengi
Fyrsta verk ástralska verkamanna-
flokksins eftir kosningarnar um helg-
ina var að fella gengi Ástralíudollars
um 10% i von um að stöðva straum
fjárfestingarfjármuna úr landi.
Nýja-Sjáland beið ekki boðanna og
felldi einnig að bragði sinn dollar um
6% svo að útflutningsvamingur þeirra
yrði ekki dýrari en Ástralíumanna.
Kolanámumenn
brýndir til verkfalla
Félagsbundnir kolanámumenn í
Bretlandi, um 200 þúsund talsins,
ganga til atkvæða í dag um hvort hefja
skuli allsherjarverkfall vegna lokunar
einnar námu. Arthur Scargill, leiðtogi
þeirra, hefur brýnt þá mjög og segir aö
þeir verði að berjast eða horfa á starf
þeirra eyðilagt.
Formaður kolaráðs ríkisins hefur
varaö kolanámumenn við því að verk-
fall þeirra gæti staðið mánuðum sam-
an án þess að áhrifa af því gætti í land-
inu.
Ráðið haföi ákveðið að loka og hætta
rekstri óhagkvæmrar námu einnar í
Wales. Einnig hefur spurst út að
stjórnin ætli að ráöa bandarískan iðju-
höld, Ian MacGregor, næsta formann
kolaráðsins en það stýrir rekstri kola-
náma ríkisins. MacGregor stjómar
eins og stendur stáliðjum ríkisins, sem
hafa verið, eins og kolanámurnar,
þungur baggi á ríkissjóði en hann hef-
ur mjög dregið saman rekstur þeirra
og fækkað starfsliði á síðustu þrem ár-
um.
Þótt ekki sé víst að MacGregor taki
við embættinu hefur Scargill, leiðtogi
kolanámumanna, varað félaga sína
við erfiðum tímum framundan ef þeir
fái MacGregor yfir sig. — „Stjórnin
ætlar aö eyðileggja þennan iðnað,”.
segir hann.
Lofar hann félögum sínum stuðningi
annarra verkalýösfélaga og stuttu
verkfalli ef þeir fylki sér á bak við
hann.
í október í haust leitaði Scargill
verkfallsheimildar en það var fellt
með 61% atkvæða. Síðasta allsherjar-
verkfall kolanámumanna var 1974 og
reið íhaldsstjóm Edwards Heath að
fullu. En þá vom kolabirgöir af skom-
um skammti og orkukreppan nýskollin
á með margföldun olíuverðs.
Kolanámumenn i Bretlandi ganga til atkvæða í dag um verkfallsheimild.
LEITA ANDOFSMANNA
HÚS ÚR HÚSI
Yfirvöld Zimbabwe hrósa sigri í aö-
gerðum stjórnarhersins gegn upp-
reisnaröflum í næststærstu borg lands-
Tíu námsmenn
dæmdir
Tíu námsmenn af albönskum ættum
voru dæmdir til fangelsisvistar, frá
einu ári, til fimm ára, fyrir ógnanir
gegn ríkinu og að dreifa and-
júgóslavneskum áróðri, í borginni Pec
á Kosovo-sjálfsstjómarsvæðinu í Júgó-
slavíu fyrir síðustu helgi.
Kosovo er fátækasta svæði Júgó-
slavíu og eru íbúar þar flestir Albanir.
Þar urðu uppþot og átök milli lögreglu
og albanskra þjóðemissinna 1981 og þá
létust að minnsta kosti níu manns.
Eftir þær óeirðir vom tæplega sex
hundruð manns hneppt í fangelsi fyrir
þátttöku í óeirðunum og að hafa skipu-
lagt og tekið þátt í starfsemi ólöglegra
þjóöernisfélaga.
ins, Bulawayo, en stjórnarandstaðan
kallar það morð og ofsóknir.
Fréttamönnum var sagt í gær að
þriggja daga húsleitir í Bulawayo að
uppreisnarmönnum og vopnum hefðu
borið góðan árangur. Forstöðumaður
upplýsingamála vísaði á bug fréttum
um að herflokkamir hefðu verið sendir
til höfuðs Nkomo og Zapuflokki hans.
„Nkomo er móðursjúkur,” sagði
Justin Nyoka. ,,Ef við ætluöum að
drepa hann mundi þaö ekki vefjast
fyrir hemum. En Nkomo veit að
hrannast hafa upp gegn honum sann-
anir með vitnisburðum andófsmanna
sem handteknir vom um helgina.”
Stjórn Mugabes forsætisráðherra
hefur sakað Zapusamtökin um að
styðja uppreisnarmenn með það fyrir
augum að ræna völdum. Stöku ráð-
herrar hafa lagt til að samtökin verði
'bönnuð.
Nkomo er í felum en gaf sig fram viö
erienda fréttamenn um helgina og
sagði að Mugabe vildi hann feigan.
Hitt virðist þó staðfest aö herinn hafi
gert húsleit heima hjá Nkomo og
drepið einkabílstjóra hans.
Hersveit sérþjálfuð í Norður-Kóreu
hefur farið hús úr húsi í Bulawayo og
handtekið fjölda manna sem sagðir
voru andsnúnir stjóminni. Flestir vom
atvinnulaus ungmenni.
Fjöldi kvenna tekur virkan þátt í
skæruhernaði á vegum Sendero
Luminoso en Carloto Tello Cutti
var talin helsti aðstoöarmaður yfir-
manns hreyfingarinnar, Abimael
Guzman, eftir að Edith Kagos dó í
viðureign við hermenn árið 1982.
Carlota Tello Cutti, sem kölluð var
„camarada Carla”, var um tíma í
haldi, en flúði úr fangelsi árið 1982
eftir að skæruliðar gerðu árás á
fangelsið. Með henni flúðu rúmlega
þrjú hundmð fangar en sextán lét-
ustíátökunum.
Enn finnast
líkin
Lögregluyfirvöld i Assam hafa
fundið enn fleiri lík eftir átökin í
Assam-fylki á Indlandi. Lögreglu-
menn segjast hafa talið um 200 illa
farin lík sem fundust á eyju í
Brahmaputra-á og sagt er að líkin
gætu verið mun fleiri, allt aö500.
Taliö er að allt að 2700 manns
hafi verið drepin og 27000 manns
orðið heimilislaus eftir óeirðimar
sem urðu fýrir kosningarnar í
Assam, en innfæddir Assambúar
vilja reka aðflutta Bengali brott úr
ríkinu.
FRÉTTIR
BERBER
gólfteppi á ótrúlega hagstæðu verði. Vegna sérstaklega hag-
stæðra magninnkaupa bjóðum við Berber ullarblöndu- og
aiuiiarteppi frá aðeins kr. 285pr. m2
Komið og skooio eða hringið og við sendum sýnishorn
Berber 50% acryl + 50% ull kr. 285.
Berber 50% acryl + 50% ull grófg. kr.
Berber 30% acryl + 70% ull kr. 335.
Berber 100% ull kr. 390.
345.
Staðgreiðs/uafs/áttur—greiðs/uski/má/ar
OPIÐ: MÁNUD.-FIMMTUD. 8-18, FÚSTUD. 8-19, LAUGARD. 9-12.
>••«
BYGGINGAVORUR
f HRINGBRAUT 120: Simar: Timburdeild ..28-604
Byggingavörur 28-600 Málningarvörur og verkfæri. 28-605
L Gólfteppadeild 28-603 Flisar og hreinlætistæki . 28-430
.HRINGBRAUT 120 (Aökeyrsla frá Sólvallagötu).