Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Page 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR8.MARS1983.
'41
„Ljósmyndarinn Emile Zola”:
STÓRVIÐBURÐUR FYRIR ÁHUGAFÓLK
UM UÓSMYNDUN OG MYNDUST
— segir Ivar Gissurarson hjá Ljósmyndasaf ninu
Camilla og Snorri á háskólatónleikum
Fimmtándu háskólatónleikar
vetrarins veröa í Norræna húsinu í
hádeginu á miövikudaginn kl. 12.30.
Camilla Söderberg og Snorri örn
Snorrason leika á blokkflautur og
lútu í hálftíma. Þau eru sem kunnugt
er pottur og panna í félaginu Musica
Antiqua, sem undanfariö hefur leit-
ast viö aö kynna ögn eldri músík en
þá sem venjulegaerkölluöklassík.
A þessum stuttu tónleikum flytja
þau verk eftir Tékkann Gottfried
Finger, f. 1660, Daniel Demoivre,
sem ekkert er vitaö um nema nafniö,
en er líklega franskur frá líkum
tíma, og loks eftir tvo völunda ba-
rokktímans, Johann Sebastian Bach
og Georg Philip Telemann.
öllum er heimill aðgangur fyrir
30—50 kr. eftir þjóöf élagsstööu.
Viðskiptafræðinemarnir umhverfis og uppi á Jötni, stærsta lyftara Isiendinga. Lyftari þessi er notaður til gáma-
fiutninga á Sundahafnarsvæöinu.
Ivar Gissurarson segir að Emile Zola hafi veriö farinn að líta á sig sem ljós-
myndara fremur en rithöfund. DV-mynd Sv.Þ.
Reykjavíkurlög-
reglan sigraði
A-liö iögreglunnar i Reykjavík sigr-
aöi í sjöunda landsmóti lögreglunnar í
innanhússknattspyrnu, sem haldiö var
á Akranesi um helgina. Þaö var vel aö
sigrinum komiö, því þaö vann alla sína
mótherja.
Mótiö hófst á föstudagskvöld og var
fram haldiö á laugardag. Níu iiö tóku
þátt í mótinu víös vegar aö af landinu.
Friöjón Þórðarson dómsmálaráö-
herra afhenti sigurvegurunum verö-
launin i Golfskáia Leynismanna á
Akranesi á laugardag.
Eitt óhapp varö í keppninni, lög-
reglumaöur af Akureyri fótbrotnaði á
föstudagskvöld. Þá tognaöiannar.
Ýmsir kunnir kappar tóku þátt í
mótinu, menn eins og Karl Hermanns-
son og Björgvin Björgvinsson.
Mótið þótti takast meö ágætum.
-JGH
„Hér er um stórviöburö aö ræöa
fyrir áhugafólk um ljósmyndun og
myndlist yfirleitt,” sagði Ivar Giss-
urarson hjá Ljósmyndasafninu um
sýninguna Ljósmyndarinn Emile
Zola, sem nú stendur y fir á K jarvals-
stööum.
„Þessar myndir hafa stórkostlegt
listrænt jafnt sem sögulegt gildi. Þær
eru í einstökum gæðaflokki hvaö
tækni varöar og myndbyggingu — og
um leiö ómetanleg heimild um líf
höfundarins sjálfs á árunum 1895 til
dauðadags.
Sögulegt gildi myndanna felst
einnig í því aö þær sýna okkur París
eins og hún var um og eftir síðustu
aldamót. Ber þá sérstaklega að geta
bygginga þeirra sem reistar voru
vegna heimssýningarinnar og eru
flestar horfnar í dag.
Myndirnar frá einkalífi Zola eru
þannig aö þær hljóta aö vekja meö
okkur djúpar tilfinningar. Til dæmis
hefur honum tekist að festa á filmu
sérstæöa fegurð hjákonu sinnar. Og
myndirnar af bömum þeirra bera
þess glöggan vott að Zola þótti vænt
Þaö er sérstaklega áhugavert aö
hægt er aö lifa sig inn í myndirnar,
ef svo má aö oröi komast. Eöa rétt-
ara sagt, það andrúmsloft sem fram
kemur í einkalífsmyndunum. Þannig
fer ekki á milli mála aö Zola leið vel
með bömum sínum og hjákonu,
JeanneRozerot.
Hann er aftur á móti öllu þyngri á
brún í nálægð konu sinnar, Alexand-
rine. — Sagt er að hann hafi alltaf
haft samviskubit vegna sambands
sínsviö Jeanne; fundisthannveraaö
drýgja hór.
En af hverju fór þessi mikilsvirti
rithöfundur að snúa sér að ljósmynd-
un í æ ríkari mæli? Svo var komið aö
hann var farinn aö líta á sig sem ljós-
myndara f remur en rithöfund.
Hinn kunni ljósmyndari, Jean
Dieuzaide, sem hefur haft veg og
vanda af uppsetningu þessarar sýn-
ingar, telur aö „fundum” Zola og
ljósmyndunarinnar hafi óhjákvæmi-
lega borið saman. Því hafi valdiö
meðfædd athyglisgáfa Zola og tii-
raunir hans til aö greina, í venjuleika
hversdagsins, hluti sem vaninn
meinar okkur aö s já.
Menningarfulltrúi franska sendi-
ráösins, Daniel Charbonnier, hefur
sýnt frábæra natni viö að útvega okk-
ur íslendingum vandað franskt
menningarefni, enda er þessi merki-
lega sýning hér aö hans frumkvæði.
Hér em á ferðinni 135 stórar
sepia-myndir; úrval þeirra hartnær
8000 mynda sem Emile Zola tók síö-
ustu árævisinnar.
Sýningin skiptist í fjögur megin
„thema”: a) Heimssýningin í París,
áriö 1900; b) Myndir frá blóma- og
skemmtigörðum Parísar, auk friö-
sælla sveitalífsmynda; c) Myndirfrá
útlegöinni í Englandi, 1898 og ’99;
Myndir úr einkalífi Zola. Henni lýkur
8. mars.
Þessi sýning er haldin á vegum
menningardeildar franska sendi-
ráösins og Ljósmyndasafnsins. Og er
okkur, sem áhuga höfum á ljósmynd-
um og list yfirleitt, óblandiö ánægju-
efni”. -fg.
Viðskiptafræðinemar:
VISINDALEIÐANGUR
TIL EIMSKIPS
A hverju ári fara nemar í síðari
hluta viöskiptafræði við Háskóla Is-
lands í svokallaöan „vísindaleiðang-
ur”. Er hér um aö ræða hvort tveggja í
senn, lið í námi og í félagsstarfi þeirra.
Föstudaginn 25. febr. sl. sótti stór hóp-
ur viðskiptafræðinema EIMSKIP heim
i því skyni aö kynnast starfsemi og
stjórnun fyrirtækisins. Hópnum, um80
manns, var boðið að ferðast í rútum
um vöruafgreiðslusvæði EIMSKIPS í
Sundahöfn og kynna sér starfsemina
þar, vörugeymslur og tæki þau sem
þar eru notuð. Að þessu loknu héldu
nokkrir deildarstjórar fund meö viö-
skiptafræðinemunum í Kaupþingssaln-
um í Pósthússtræti. Var þar fjallað um
skipulag og stjórnun EIMSKIPS og
þær breytingar sem geröar hafa verið
á flutningaskipulagi félagsins á undan-
fömum árum. Margar fyrirspurnir
bárust og í lok fundarins var Félagi
viöskiptafræöinema afhent gjafa-
áskrift aö Wall Street Joumal. I þess-
ari heimsókn fengu viöskiptafræöi-
nemar innsýn í möguleg viðfangsefni
þeirra í framtíðinni og höföu bæöi nem-
ar og aðrir gagn og gaman af.