Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Blaðsíða 19
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS1983.
*19
- segir
Hans
[Hasse)
Alfredson
í spjalli
umlífs-
viöhorf
sínog
listræna
þúsund■
þjala-
smíöi
Texti: Franzisca
Gunnarsdóttir
Myndir: Einar
Ölason
illa lyktandi, grimmir sóðar i augum
Toltekanna. Það er því mikið álitamál
hvor menningin varð til þess að
„íinna” hina og er undir því komið frá
hvaða sjónarhóli mat þess fer fram.
Eg tel það vera með ólíkindum að skip
Evrópumanna hafi verið þau einu sem
héldu ferð sinni áfram eða þá hröktust
lengra en jafnvel til stóð í upphafi. Svo
hver fann hvað og hver varð árangur-
inn?
Víöa, til dæmis á Kyrrahafseyjum,
verður krístinboð til þess aö spilla sak-
leysi og koma af stað ótöldum hörm-
ungum og grimmd, svo sem á Samoa-
og Fiji-eyjum. Þama var áður fyrr
paradís á jörð. Að vísu áttu sér stað
átök en þaö var ekkert í samanburði
við hvað fylgdi í kjölfar Evrópumanna.
Þeir komu með græðgina með sér og
eyðilögðu fjölda þjóðfélaga sem áður
höfðu verið saklaus, hrein og óeigin-
gjörn. Tæplega verður því haldið fram
að kristnin hafi fært heiminum frið.
Víkingarnir hafa verið sagðir svo
grimmir, frumstæðir og menningar-
snauöir. Þetta er ekki satt og þarf ekki
annað en að lesa Isiendingasögurnar
til þess aö sjá þaö. Maður hættir sér út
á hálan ís við að beita mælikvarða
einnar menningar á aðra. Ekki voru
riddarar Englands, Frakklands og
Þýskalands víkingunum mildari.
Kristindómurinn
til bóta?
Það er erfitt að segja til um hvort
kristindómurinn hafi orðið til bóta.
Sumt hefur hann bætt en annaö kann
að hafa versnað. Hvernig metur mað-
ur slíkt?
I sögu Olafs helga er kafli sem ég hef
gaman af. Þar segir frá Islendingi sem
mig minnir að hafi heitið Þórarinn.
Hann svaf í sama skála og konungur og
að morgni verður jöfrinum starsýnt á
fót Þórarins er stóð undan ábreiðunni.
Konungur hafði aldrei séð svo ljótan
fót og afskræmdan, og hló við svo Þór-
arinn vaknaði og spurði um hlátursefn-
ið. Konungur sagði honum það og
kvaöst skyldu veðja um að ljótari fót
væri h vergi að f inna.
Þórarinn var fljótur að taka veðmál-
inu og sýna hinn fótinn sem honum
þótti öllu ljótari, því þar vantaði stóru-
tána. Hann taldi sig nú hafa unnið veð-
málið. Konungur vildi þó ekki sam-
sinna því þar eð sá fóturinn hlyti að
vera skárri; minna væri af honum!
Svo f jarska margt hlýtur að flokkast
undir matsatriði. Gagnrýnendur telja
sig til dæmis of oft vera þess um
komna aö lýsa því yfir að þetta sé gott
og hitt lélegt. Það er reginmunur á að
seg ja þetta er og mér f innst þetta vera.
Þeir ættu að fará sér varlega og gæta
þess að láta það koma einhvers staðar
fram í gagnrýninni að þetta er skoðun
og ekki algilt mat.
Listamanni slátrað
Sumir þeirra slátra listamanni með
glöðu geði til þess eins að geta sýnt sig;
faríö á kostum í einhverri setningu, aö
eigin mati. Það er ekkert sérstaklega
skemmtilegt að verða fyrir þess háttar
meöferð fyrir eitthvaö sem maður hef-
ur skrifað. En gagnrýni af þessu tagi
getur verið lamandi fyrir leikara sem
kannske þarf að standa á sviði,
frammi fyrir heilu leikhúsi, jafnvel
sama dag og óhróöur eða háö hefur
birst um leik hans. Það er annaö þegar
bók eða kvikmynd eiga í hlut, en þetta
með aö standa á sviði sama dag, það
getur verið m jög erf itt.
Hvað sem hver segir, þá verður
listamönnum tíöhugsaö um kannske
þennan erna neikvæða dóm meðal
hugsanlega níu lofsamlegra.”
Ekki kvaðst Hans Alfredson vera
trúaður, sagðist vera efasemdamaður.
— ,,En ég hef áhuga á trúmálum. Trú-
aður maður er alveg viss í hjarta sínu.
Ég hnýt ætíö um svo margt sem ég
gæti aldrei verið alveg viss um. Eg er
ætíð efins um allt sem er fullyrt. Það
sem kannske var rétt í gær kann að
vera rangt í dag. Það sem á við einn
mann á kannske ekki við annan.
Hvar er
sanngirnin?
Og hvar er réttlætið? Okkur Svíum
vegnar ef til vill betur með hverjum
deginum á sama tíma og aðrar þjóöir
búa við óþolandi raunir. Hvar er sann-
girnin?
Ég hef áhuga á siðgæðisvitund, sið-
ferði. Sjálfur er ég alls ekki til fyrir-
myndar i þeim efnum, en það dregur
ekki úr áhuga mínum. I framhaldi af'
því get ég alls ekki sætt mig við að all-
ur sá fjöldi inanna sem var uppi fyrir
kristni, eigi einhvers að gjalda. Af
hverju ætti það fólk að vera útskúfað
frá, segjum eilífu lífi eftir dauðann? Af
hverju ættu þær sálir að dveljast í ein-
hver ju úthverfi vítis? Hvað með Sókra-
tes ogPlaton?
Guð kristinna manna er almáttugur
og algóður, samtímis kann hann að út-
skúfa þér fýrir það eitt að geta ekki
trúaö á hann algjörlega hispurslaust.
Hann er kallaður Faðir. Hvaða elsk-
andi faðir myndi gera slíkt — gæti ekki
fyrirgefið barni sínu að trúa ekki á
hann í blindni? Eg á s jálfur börn. Gerðir
þeirra og viðbrögð gagnvart mér eru
mér svo sannarlega ekki alltaf að
skapi. Ég verð þó að fyrirgefa, og fyr-
irgef, hvað sem er, vegna þess að ég
elska þau. Þetta með mikilvægi trúar-
innar er því eitt atriði sem ég get ekki
sætt mig við í kristnum boðskap.
Siðareglur
náttúrunnar
Ef maður síðan tekur burt, eða horf-
ir fram hjá þeim þáttum sem maður
vill ekki kyngja í „fari” hins kristna
guðs; segist trúa á guð á sinn eigin
hátt — nú þá er maðui einfaldlega ekki
kristinn. Og þar með ekki trúaður, eins
og það orð er venjulega notaö. Þá hef-
ur maður búið til sinn eigin guö.
Eg held hins vegar að allar mannleg-
ar verur, hvar sem þær búa á hnettin-
um og hverju sem þær trúa, viti vel að
maður á ekki að drepa barn sitt eða
móður, stela frá föður sínum, né
sparka í litla bróður sinn. Það má síð-
an kenna slík viðhorf án þess að þurfa
endilega aö flækja einhverjum guði í
máliö. Það má hvetia til umburðar-
lyndis og mannkærlcika án þess. Og
ýmsu má breyta að skaðlausu, svo sem
óeðlilegum og ósanngjörnum hefðum á
borð við undirokun konunnar.
Eg tel að þaö sé til eitthvað sem við
getum kallaö siöareglur náttúrunnar
og þeim beri aðframfylgja.
Eg gleymi aldrei atviki úr æsku
minni. Kennarinn var að tala um að
guð væri almáttugur. Þá spurði einn
skólabræðra minna hvort guð gæti bú-
ið til stól sem enginn gæti setið í.
„Já. .., já, þaðgetur hann” — svaraði
kennarinn. „Getur hann sjálfur setið í
honum?” — spurði þá strákur.
Þessar hugmyndir um almætti eru
ekki rökréttar. Enginn er almáttugur
ogalgóður. Og ef guðværiþaðoghefði
skapað heiminn þá gæti hið ilia ekki
verið til. Hvaö er svo illt? Það er líka
matsatriði. Við flokkum svo margt
undir þaðorð.”
-FG
„Ég hnýt ætíð um svo margt
sem óg gætí aldrei verið alveg
viss um."
fSHIBR
________vogir, fyrir verksmiðjur,
frystihús, sláturhús, kjötvinnslustöðvar,
vöruafgreiðslur o. fi.
Vatnsvardar
Vogarpallar
afýmsum gerðum
MEÐ EÐA
ÁN PRENTARA
Strímil-
prentarí
Skýrir stafir í Ijósaborði
Þægilegt takkaborð.
Auðvelt að þrífa.
DAP-10
* Vogarþol. 5 stærðir: 6 kg, 30 kg,
150 kg og 300 kg.
* Vogargerð. 4 gerðir: Fyrirraf-
hlöður, með verðútreikningi, check-
vigtun, eingöngu vigtun.
Barðvogir, gólfvogir eða vogirsem
passa inn í færibönd.
PLASTPOKAR
O 82655
Plii.sf.os lií «£S82655
Miða-
prentarí
OSTAÐFESTAR PANTANIR OSKAST STAÐFESTAR STRAX