Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1983, Síða 7
DV. FÖSTUDAGUR18. MARS1983 '
7
Neytencfur Neytendur
Af flestum fermingarbörnum eru teknar margar myndir. Myndir ættíngj-
anna i kirkjunni eru þó ekki látnar duga heldur fara flest barnanna á Ijós-
myndastofur lika. Um verð á þjónustu þeirra er deilt hér á síðunni.
Formaður Ljósmyndarafélagsins
deilir á Verðlagsstof nun:
„Ætlar Verðlags-
stofnun að ákveða
hvaða þjónusta
boðin er?”
— gagnrýnin fellur um sjálfa sig,
segir fulltrúi verðlagsstjóra
Þórir H. Óskarsson, formaður Ljós-
myndarafélags íslands, skrifar:
Nú hefur enn ein verðkönnunin séð
dagsins ljós og eru það Ijósmynda-
stofumar, semskulu opineraðar. Þetta
erísjálfu sérágættogauglýsingfyrir
fagið í heild sinni. Hins vegar kemst ég
ekki hjá því fyrir hönd félags míns að
gera nokkrar athugasemdir við könn-
unþessa.
Könnun þessi er framkvæmd nú
eftir að Ljósmyndarafélag íslands
ákvaö sl. haust að gefa verðið frjálst,
m.a. til að binda ekki félagsmenn við
fast verð, á sama tíma og utanfélags-
menn gátu haft það sem þeim sýndist.
Verðlagsstofnun taldi ástæðu til að
hafa uppi eftirlit með verðskrá félags-
ins en utanfélagsmenn máttu vera í
friði.
Ut af fyrir sig er ekkert við verð-
kannanir að athuga en þær þurfa aö
vera heiðarlegar og þá sérstaklega
hvað varðar þjónustu fyrir ákveðið
verð. Kannanir þessar hjá Verðlags-
stofnun hafa nær undantekningarlaust
fengið á sig mótmæli frá viðkomandi
félögum eða einstökum aðilum, sem
telja sig hafa orðið fyrir rangtúlkun.
Það hættulegasta við þessar kannanir
er það, að sumir fjölmiðlar slá þessu
upp í stóru letri og vekja þá bara
athygli á því hvar veröiö er hæst og
hvar lægst en síðan er sagt dýrasti og
ódýrasti.
Ég vil eindregið vekja athygli á því,
að ef fólk kynnir sér hvað hver ein-
stakur hefur upp á aö bjóða kann það
aö riölast hver er dýrastur eða ódýr-
astrn-.
Það fáránlegasta við þessa könnun
er hins vegar þaö, að upp er slegið
myndatökum með inniföldum stækk-
unum, svo ekki sé talað um postulíns-
platta, en slíkt er fyrst og f remst sértil-
boð hjá þeim sem á annað borð vilja
bjóða það og er þá ekki verið að tala
um slíkt sem skilyiði. Það hlýtur að
telj ast m jög hæpið fy rir V erölagsstofn-
un meö sinn fjölda starfsmanna aö
vinna ekki betur en svona, eða ætlar
Verðlagsstofnun sér þá dul að ákveöa
hvaða þjónustu menn eiga yfirleitt að
bjóða og þá jafnvel í formi þvingana?
Sumar ljósmyndastofur hafa ekki
einu sinni boðið myndatökur með inni-
földum stækkunum en Verðlagsstofn-
un gefur sér þær forsendur og ákveður
veröið hjá þeim, sem ekki vildu hafa
þessa við viðskiptapólitík með því að
bæta verði á umræddum stækkunum
ofan á venjulegt myndatökuverð og sér
þá hver heilvita maður að slík verð-
könnun er bara „húmbúkk”. Sú
myndataka, sem langalgengust er, er
aftur á móti látin liggja milli hluta en
það er myndataka með 12 myndum án
stækkana.
Þá er viðskiptavinurinn sjálfráður
um það eftir á hve margar stækkanir
hann kaupir, ef hann þá kaupir nokkr-
ar, því að fyrst þarf að koma í ljós
hvort myndatakan er þess virði. Ég vil
eindregið skora á allan almenning,
sem ekki hefur á annað borð bundiö
traust sitt við einhvern ákveðinn ljós-
myndara, að fara og kynna sér þjón-
ustuna, annaðhvort með því að heim-
sækja ljósmyndarann eða þá að lita á
myndir hans í útstillingu. Fyrir full-
orðið fólk t.d., sem gott þætti að færi í
myndatöku á 10—20 ára fresti, hlýtur
fleira að skipta máli en verðið.
Jón Bjarnason hjá Ljósmyndastofu
Kópavogs hefur einnig sent blaðinu
mótmæli við verðkönnun Verðlags-
stofnunar. I þeim segir hann meðal
annars að lítt sé aö marka verðkönnun
á fermingarmyndatökum þegar aðeins
tveir aðilar af 17 gefi upp verð sem
gildi útallan fermingarmyndatímann.
Haft var samband við Verðlags-
stofnun vegna þessara bréfa. Þar
varð Jóhannes Gunnarsson fulltrúi
fyrir svörum. Hann sagði:
„Vegna ummæla Þóris H. Oskars-
sonar, formanns Ljósmyndarafélags
Islands, sem talar fyrir hönd ljós-
myndara um verðkönnun á fermingar-
myndum, þykir Verðlagsstofnun rétt
að taka fram að ekki er hægt að bera
saman verð á ákveðinni þjónustu
nema sú þjónusta sé fyrir hendi hjá
þeim aðilum sem verð er kannað hjá. I
þessari könnun er lagt til grundvallar
verð á myndatöku, 12 löppum og 2
stækkunum, einfaldlega vegna þess að
nokkrar stofur selja ekki þessa þjón-
ustu nema allir þessir liðir, þar með
taldar stækkanimar, séu innifaldir.
Reyndar er tekið fram í skýringum
með könnuninni að í slíkum tilvikum sé
val neytandans óeðlilega mikið skert.
Jafnframt skal á þaö bent aðeinnig erí
könnuninni birt verð hjá öllum ljós-
myndurum á myndastærð þeirri sem
tekin er með í fermingarmyr.datök-
unni. Þannig geta neytendur séð í meg-
inatriðum hvað myndataka og 12 lappar
kosta án stækkunar á hverri einstakri
stofu, en gera má ráð fyrir að flestir
þeir sem kaupa slíka þjónustu geri það
einmitt til þess að fá stærri myndir
heldur en lapparnir em. Gagnrýni
Þóris fellur því um s jálfa sig.
Varðandi ummæli Jóns Bjarnason-
ar er rétt að fram komi að verðskrá
einstakra ljósmyndastofa gildir tiltek-
inn tíma. Þess vegna var ekki hægt að
birta könnunina á annan hátt en gert
var. Einnig þess vegna var það tekið
fram í könnuninni hversu lengi verðið
gildir á hverri einstakri stofu.
Verðlagsstofnun telur að könnun
þessi á verði á ljósmyndastofum gefi
rétta mynd af því verði sem gildir á
ljósmyndastofum á höfuðborgarsvæð-
inu.” DS
VIÐ TELJUM
að notaðir
VOLVO
bílar
séu betri
en nýir bflar
af ódýrari
gerðum
Volvo 245 GL'82
ekinn 25.000, beinsk., ljósblár. Verð kr. 325.000.
Volvo 244 DL '82
ekinn 30.000, beinsk., rauður. Verð kr. 250.000.
Volvo 244 DL '82
ekinn 18.000, sjálfsk., rauður. Verð kr. 275.000.
Volvo 244 GL '82
ekinn 3.000, sjálfsk., ljósblár. Verð kr. 315.000.
Volvo 244 GL'80
ekinn 39.000, sjálfsk., gullsanseraður. Verð kr.
220.000.
Volvo 244 DL '78
ekinn 58.000, beinsk., beige. Verð kr. 160.000.
Volvo 345 GL '80
ekinn 30.000, beinsk., koparrauður. Verð kr.
160.000.
Volvo 343 DL '78
ekinn 50.000, sjálfsk., silfurgrár. Verð kr. 90.000.
OPID LAUGARDAGA FRÁ KL. 10-16.
V)
VELTIR
SUÐURLANDSBRAUT 16
m '
JkC,rbUXU' Otiöld buxnaelni, kjólelm og
jnd og m
fró HlenuntoríJ1-
*vmsmjusALA*
SAMBANDSVERKSMIÐJANNA Á AKUREYSI