Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1983, Síða 5
DV. ÞREÐ JUDAGUR 22. MARS1983.
5
ÁSKORANIR TIL
DR. GUNNARS
ÓLEYFILEGUR
KOSNINGAÁRÓÐUR?
Það er óleyfilegur kosningaáróður
og kosningaspjöll að safna undirskrift-
um undir áskoranir um framboð til
þingmennsku eða loforð um kjörfylgi
svo og að undirskrifa slíkar áskoranir
fram yfir það sem tekið er fram um
meðmælendur með framboðslistum í
27. grein.
Framangreind orð eru upphafið að
133. grein laga númer 52 frá árinu 1959
um kosningar til Alþingis. Margir hafa
orðið til að efast um að undirskrifta-
söfnun sú sem Benedikt Bogason og
fleiri hafa staðið að um að skora á dr.
Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra
að leiða sjálfstætt framboö til komandi
alþingiskosninga sé í samræmi við
kosningalögin.
„Við teljum að þetta sé fyllilega lög-
legt,” sagði Benedikt Bogason
verkfræðingur.
„Það liggur enginn listi fyrir. Þetta
eru engin meðmæli og þetta er án
skuldbindinga um stuðning. Þetta er
bara áskorun á manninn þannigaðvið
teljum að þetta sé í samræmi við
lögin.”
— En þaö segir engu að síður í
lögunum ,,að safna undirskriftum
undir áskoranir um framboð til þing-
mennsku”. Er þetta eitthvað annaö
sem þið voruð að gera ?
„Við skoðuðum þetta nú aðeins og
höguðum okkar vinnubrögðum með
hliðsjón af því. Við teljum að þetta
gangi ekki á sveig við lögin. Þetta
hefur verið gert áður í kosningum að
menn hafa safnað svona undirskriftum
í laumi og átt þetta en ekki sýnt það.
Þegar textinn lá fyrir var þetta borið
undir lögfræðing og eins hvemig þetta
yrði unnið. Lögfræðingurinn taldi að
þetta væri tvímælalaust ekki brot, eins
og textinn hjá okkur hljóðaði. Að það
væri beinlínis verið að safna undir-
skriftum undir framboð sem hægt væri
að nota sem slíkar í þágu framboðsins,
heldur væri þetta rekið sem skipulögð
tilmæli. Við vorum ekki með opinbera
undirskriftasöfnun heldur gékk þetta
milli trúnaðarmanna sem höfðu svo
samband. „Við undirritaðir skorum á
dr. Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra að leiða sjálfsætt framboð til
komandi alþingiskosninga 1983.” Þetta
orðalag er talið vera alveg frítt frá að
vera brot á þessari reglu,” sagði
BenediktBogason. -KMU.
Lætur betur að
vinna innan flokks
— segir Helgi Már Arthursson
„Skýringin á því af hverju ég tek 4.
sætið á lista Alþýðuflokksins í Vest-
fjarðakjördæmi er sú að mér lætur
betur að sinna pólitískum áhuga-
málum mínum innan flokks en utan,”
sagði Helgi Már Arthursson í samtali
við DV í gær. Það hefur vakið nokkra
athygli að Helgi Már skipar sér nú í
raðir Alþýðuflokksmanna. Hann var
með Vilmundi Gylfasyni í uppgjöri
hans innan Alþýðuflokksins og tók auk
þess þátt í undirbúningi að stofnun
Bandalags jafnaðarmanna.
Helgi Már var spurður hvers vegna
hann hefði hætt að vinna í Bandalagi
Forseti íslands
til Frakklands
Forseti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, hefur þegið boð forseta Frakk-
lands, Francois Mitterand, um að
koma í opinbera heimsókn til Frakk-
lands dagana 12. til 15. april næstkom-
andi.
JBH
jafnaðarmanna. Sagði hann
skýringuna þá sem hann nefndi fyrir
því að taka 4. sætið fyrir vestan.
Aðspurður um hvort lagt hafi verið
að honum, einhvers staðar frá, að taka
sætið, sagði Helgi Már: „Það voru
ákveðnir aðilar fyrir vestan sem
óskuðu eftir því að ég gerði þetta.”
JBH
Sústutta
I DV á fimmtudaginn var sagt frá
„Sunnudegi í Skálafelli”. Þar birtist
meðal annars mynd af krakka að
renna sér á skíðum og með myndinni
var fjallaö um „þann stutta” eins og
hér væri strákur á ferð. Svo var
reyndar ekki, heldur var það stelpa. Sú
stutta heitir Ásta María og er alveg að
verða fimm ára. Um leið og við biðjum
Ástu Maríu afsökunar óskum við henni
til hamingju með afmælið sem er 10.
apríl.
-óm
utiuf
Kr. 617,- ogkr. 645,-
Póstsendum
GLÆSIBÆ
SÍMI82922
Aldrei meira úrval af kommóðum
3skúffur - 1375,- 4 skúffur - 1575,- 5 skúffur — 1778,- 6 skúffur - 1986,- 3 skúffur í stað einnar efst + 195,- Breidd 80 cm. Dýpt 40 cm. Hæð 56 til 101 cm.
4 skúffur - 1292,- 8 skúffur — 1980,- Breidd 45 cm. Dýpt 40 cm. Hæð 71 og 131 cm.
sunflMEffi
Háteigsvegi 20 - Sími 12811
ODYR
í þessari 15 daga póskaferð i sólskins- og skemmtanalífsparadísina á
Mallorka eru aðeins 8 vinnudagar.
Búið á glœsilegu og vinsœlu íbúðahóteli, TRIANON, alveg viö hina
vinsœlu Magaluf-baðströnd. Allar ibúðir meö sólsvölum út að ströndinni
móti sól. Svefnherbergi og stofur vel búnar húsgögnum, flísalögð böð og
vel búin eldhús meö öllu tilheyrandi. Lyfturnar ganga beint niður á sund-
laugarsvœðið þar sem einnig eru barir og lóttar matarveitingar. Sórstök
barnasundlaug. Af sundlauga- og sólbaðssvæði byggingarinnar er
gengið beint út í sondinn (þarf ekki einu sinni að fara yfir götu).
PÁSKAFERD TIL
MALLORKA
Brottför 30. mars — heimflug 13. apríl
— 15 dagar. Verð frá kr. 9.800
AÐRAR FERÐIR OKKAR:
KANARIEYJAR
alla þriðjudaga
LANDIÐ HELGA
páskaferð 29. mars
VOR Á MALLORKA
13. apríl—28 dagar.
NOTIÐ FJÖLSKYLDUAFSLÁTTINN / WWÆf - ^ \
og takip börnin míep í sólina / (Hugfaöir)
PANTIÐ STRAX ÞVÍ PLÁSSIÐ ER TAKMARKAÐ
Vssturgötu 17
Simar 10661,15331
og 22100