Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1983, Qupperneq 34
34'
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS1983.
D/EGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
I skjóli Æskulýðsráðs:
Blaðaútgáfa,
tölvunámskeið,
skrautfiskar...
Á vegum Æskulýðsráös
Reykjavíkur fer fram margvíslegt
tómstundastarf. Það sem flestir
þekkja eru æskulýðsmiðstöðvarnar.
Þar starfa hópar unglinga í klúbb-
um. Þeir bera nöfn í samræmi við
megináhugamál, t.d. borðtennis->
klúbburinn og tónlistarklúbburinn.l
En þeir heita líka Skálkar, Dýrlingar
og Villikettir, svo nokkur dæmi séul
tekin. Þessir klúbbar taka síðan fyrir
ýmis verkefni. Við ákváðum að,
grennslast fyrir um blaðaútgáfu í
tveimur æskulýðsmiðstöðvum. í
Þróttheimum er nýútkomið blað í
Tónabæ er verið að vinna að blaði.
En Æskulýðsráð sér um fleira en
féiagsmiðstöðvar. Á vegum þess er
siglingaklúbbur, reiðskóli og fleira.
Ráðið sér einnig um ýmiss konar
tómstundastarf í skólanum. Þá geta
áhugafélög unglinga fengið inni að
Fríkirkjuvegi 11 án þess að borga
húsaleigu. Við litum inn eitt fimmtu-
dagskvöldið og þá var sægur barna,
unglinga og nokkrir fullorðnir mætt-
ir á fund hjá félagi íslenskra skraut-
fiskaáhugamanna, skammstafað
FISK.
Heimapósturinn íÞróttheimum:
„Fjallar aðal-
lega um
okkur sjálf'
„Blaðið fjallar um skíði, það er
viðtal við starfsmenn í Bláfjöllum í
því, strák sem sækir Þróttheima,
svona ærslabelg, og fieira.”
Það er Hugrún Haraldsdóttir úr rit-
nefnd Heimapóstsins, blaðs félagsmið-
stöðvarinnar Þróttheima sem taiar.
Við sitjum í aðalsal miðstöðvarinnar
og köllumst á yfir tónlistina. „Við
skrifuðum allt efni í blaðið sjálf. Næsta
blað ætlum við líka að vinna sjálf, sjá
um útlitið ogallt.”
— Hvað fannst þér þú læra mest á
þessu?
„Þegar ég byrjaði þá var ég fremur
léleg í stafsetningu. Þegar ég svo
þurfti að fara að skrifa lagði ég hart að
mér til að bæta það.”
Eruðþiðmörg?
„Það voru margir sem byrjuöu í
þessu en nú erum við 7 eftir.”
Hvemig borgið þið blaðið?
„Það er borgað með auglýsingum.
V ið fengum lítið af auglýsingum í þetta
skipti þannig að við höfum oröið að
biðja fólk um frjáls framlög þegar við
höfum boðið blaðið. Við ætlum að
ganga með það í hús í öllu hverfinu og
Tónlistarhópur Tónabæjar reynir að koma saman hugmynd að forsíðu blaðs sins. Á myndina vantar umsjónarmennina og hundana íhópnum. &V-ljósmynd GVA.
Tónlistarhópur Tónabæ jar í blaðaútgáf u:
Allt frá Iron Maiden til pillunnar
Tónlistarhópur Tónabæjar er að fara
að gefa út blað. Hópurinn er skipaður
slatta af strákum, tveimur stelpum,
tveimur leiðbeinendum og þremur'
hundum. Einn hundurinn var forfallað-
ur þetta kvöld.
Hvemig datt ykkur í hug að fara að gefa
út blað?
„Við héngum bara og gerðum ekki
neitt, svo datt okkur þetta í hug. Við
höfum aldrei gert þetta áður. Þetta var
forvitni, mikið.”
Hvernig skrifið þið blaðið? Var nám-
skeið fyrst um uppbyggingu greina og
fjrirsagna?
„Nei, við skrifuðum bara um það
sem okkur sýndist. Við prófuðum
okkur bara áfram og svo var gagn-
rýnt. Við skrifuöum greinarnar heima
og svo lásum við og umsjónarmennirn-
ir greinamar og gagnrýndum. ”
Hvað eruð þið gömul?
„Við erum 16 ára og elsti hópurinn í
Tónabæ. Við erum úr Hagaskólanum,
MH og Iðnskólanum.
Um hvað f jallar blaðið?
„Það er viðtal við DRON
(Danshljómsveit Reykjavíkur og ná-
grennis), grein um video, grein um Iron'
Maiden, hundahald, viðtal viö einn úr
hópnum sem vann í plakatkeppni
Æskuiýðsráðs. Svo er grein um pill-
una.”
Hver geröi hana?
önnur stúlkan í hopnum gengst við
því.
Hvers vegna skrifaðirðu um pilluna ?
„Eg rakst á bækiing frá landlækni.
Þetta liggur í apótekum, þar sem eng-
inn tekur eftir því. Svo er ekki víst að
allir þori að spyrja um svona
bækling,” skýtur einn strákurinn inn í.
Er gaman að gera svona blað?
Hópurinn lætur i ljós blendnar til-
finningar. Það kemur í 'ljós að það
langar að minnsta kosti engan til að
vera auglýsingastjóri. „Maður hefur
frekar misst áhugann á þessu drasli,”
segir einn bitur. Það eru þessar hel-
vítis auglýsingar. Það eru þó ekki aliir
svona neikvæðir í hópnum. Inn á milli
heyrast athugasemdir um að maður
þekki þetta nú betur.
Er enginn sem hefur farið út í þetta
af brennandi þörf fyrir að tjá sig á
prenti? Eru engar smásögur í blaðinu?
Böndin berast strax að annarri stúlk-
unni sem hefur sýnt hinum ljóð eftir
sig. Hin gefa fremur lítið út á innri
þörfina. Sum hafa bara unnið að
auglýsingaöflun, önnur hafa skrifað
grein og aflað auglýsinga, einn viöur-
kennir að hafa ekki gert neitt.
Ofreynsla, Skyggnir
eða Rifrildi
Hvað verður blaöiö stórt og hvernig
ætlið þið að dreifa því?
Það verður 3000 eintök. Því verður
dreift ókeypis um Hlíðamar og í hinar
féiagsmiðstöðvarnar.
Hvað á það að heita ?
„Við erum ekki búin að ákveöa neitt
nafn. Það koma þrjú nöfn til greina,
Ofreynsla, Skyggnir og Rifrildi.”
(Síðasta nafnhugmyndin mun tilkomin
vegna háværra skoðanaskipta sem
stundum f ara f ram í hópnum.)
Hvemig h'st ykkur á félags-
miðstöðvarnar?
„Þær eru ekki nógu vel sniðnar fyrir
krakka sem komnir eru yfir 15 ára.
Það hafa komið upp hugmyndir um að
að fá að breyta kjailaranum og hafa
hann fyrir unglinga sem em orðnir 16
áraogeldri.”
Hvað hafið þið gert fleira en pæla í
tónlist saman og reyna að koma saman
blaði?
„Við höfum farið í ferðalög í Saltvík
og ölfusborgir.”
Eruð þið í einhverjum fleiri klúbb-
um?
Einn .hefur verið í klúbb sem heitir
Kjallaraklúbburinn og annar er í
skíðaklúbb í Iönskóianum. „Má bjóöa
þér getraunaseðla,” segir hann. Eg af-
þakka og fer að tygja mig. Eftir situr
klúbburinn og er að fara að deila um
hvemig forsíða blaösins eigi að Uta út.