Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Blaðsíða 19
18 19 Tilboð óskast í BMW 520 i árg. 1982, skemmdan eftir umferðaróhapp. Bifreiöin verður til sýnis aö Dugguvogi 9—11, Kænuvogs- megin, í dag og á morgun. Tilboðum sé skilað eigi síðar en þriðju- daginn 5. apríl. SJÓVÁ-TRYGGINGARFÉLAG ÍSLANDS H.F., SÍMI82500. Laus embætti sem forseti íslands veitir: Eftirtalin embætti héraðsdýralækna eru laus til umsóknar: Embætti héraðsdýralæknis í Barðastrandarumdæmi. Embætti héraðsdýralæknis í Kirkjubæjarklausturs- umdæmi. Embætti héraðsdýralæknis í Strandaumdæmi. Embættin verða veitt frá 1. júní nk. Umsóknir sendist landbúnaöarráðuneytinu, Arnarhvoli, og er umsóknarfrestur til 30. apríl nk. LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ, 23. mars 1983. PLÖSTUN PLÖSTUM VINNUTEIKNINGAR, VERKLÝSINGAR, VOTTORÐ, MATSEÐLA, VERÐLISTA, KENNSLULEIÐBEININGAR, TILBOÐ, BLAÐAÚRKLIPPUR, VIÐURKENNINGARSKJÖL, UÓSRITUNAR- FRUMRIT OG MARGT FLEIRA. STÆRÐ: BREIDD ALLT AÐ 63 CM. LENGD ÓTAKMÖRKUÐ. OPIÐ KL. 9-12 OG 13-18. LÆKJARGÖTU 2, NÝJA-BlÖHÚSINU S 22680 « núiar vörur irá þVska ■ • w 1__ Kápur kjólar dragtir buxur blússur m í nýiustu vor- og sum arVitunum rískuverslunín Laugavegi118 Sími28980 Menning DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983. Menning Mennin Blásaraflokkur í fremstu röð Kammermúsíkklúbburinn. — Tónleikar í Nes- kirkju 20. mars. Flytjendur: Blásarakvintett Reykjavíkur ásamt Gísla Magnússyni. Efnisskrá: Samuel Barber: Summer Music; Carl Nielsen; Kvintett op. 43: Wolfgang Ama- deus Mozart: Kvintett fyrir planó, óbó, klarínettu, horn og fagott I Es-dúr, KV 452. Blásarakvintett Reykjavíkur hefur starfað nú um tveggja vetra skeið og hefur á þeim skamma tíma haslað sér völl sem ein besta kammersveit á Islandi. Svo einkennilega vill samt til, að þrátt fyrir frábæran blástur hafa þeir félagamir ekki fyrr en nú leikið fyrir „eðlilegan” fjölda tónleikagesta. Hvort hér er um leifar af fordómum eða bara óheppni að ræða, treysti ég mér ekki til að segja um. En einhvem veginn er það samt svo, að blásarar laða ekki til sín áheyrendur til jafns við strengjaleikara, þótt frábærirséu. Samleikur ræktaður af alúð Það þarf ekki að orðlengja að tón- leikar Blásarakvintetts Reykjavíkur vom frábærir. Fyrsta verkið var Summer Music, sú fagra, en erfiða músík Samuels Barber. Hér var hún leikin í fyrsta sinn á Islandi og þykir mér miður að þess skyldi ekki sér- staklega getið í efnisskrá, sérstaklega Tónlist Eyjólfur Melsted þar sem Kammermúsíkklúbburinn fer jafnan nákvæmast og réttast allra meö upplýsingar um verkin og þeirra gerð á sínum prógrömmum. Eftir Summer Music léku félagamir eitt mesta stór- virkitónbókmenntanna fyrir blásara- kvintett, Kvintett Carls Nielsen. Þeir hafa leikið hann fyrr og leikið hann vel. Margir teldu það glæfraspil, aö leggja til atlögu við Nielsen- kvintettinn næst á eftir Summer Music. En ekki var það að merkja á leik félaganna. Samleikinn rækta þeir félagar af alúð. Gott dæmi um hann er hvernig heildarstyrkur hópsins helst jafn þótt styrkleikahlutföll innbyrðis breytíst og allar breytingar í hraða og styrk ganga jafnsnurðulaust fyrir sig og h já einum manni væri. Mozart skiptir flautunni út fyrir píanó í kvintetti sínum, einu af til- tölulega fáum verkum hans í Es-dúr. Þetta er afar viökvæm músík og erfitt að gæta jafnvægis milli slaghörpu og blásara. Hér tókst það vel, enda af- bragðs músíkantar að leik. Flygill Neskirkju er þó full harður og hygg ég að leikurinn hefði fallið enn betur saman með mýkra hljóðfæri. En harka píanósins var líka það eina sem ég (og ég vænti fleiri) var ekki fullkomlega ánægður með á þessum ágætu tónleik- um. -EM. Menning Menning DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983. B/ásarakvintett Reykjavíkur ésamt Gís/a Magnússyni pianó/eikara. Á myndinni er Gis/i sá eini sem er „óvopnaóur", enda dapurá svip. Tvær lygaherf erðir—fyrri grein Gegn friðar- hreyfingunum Fyrir rúmu ári var því slegið upp í fjölmiölum um gervallan hinn vest- ræna heim, er ungur Dani var hand- tekinn í Kaupmannahöfn. Hann var ásakaður um njósnir í þágu Rússa. En það sem mest áhersla var lögð á, var aö hann væri í forystusveit „dönsku friðarhreyfingarinnar” og sýndi með njósnabrötti sínu og nán- um kynnum við tiltekinn sovéskan sendiráðsmann, að þeir höfðu rétt fyrir sér sem afgreiddu friðar- hreyfingarnar í Evrópu sem ómark- tæka Rússadindla. 1 skosku dagblaöi var þessi ungi Dani meira að segja formaður „dönsku friðarhreyfing- arinnar”. Þetta var hvalreki. Arne Herlöv Pedersen varð á örskömmum tíma lifandi sönnun þess sem Moggar Vesturlanda höfðu haldið fram; að tilgangur friðarhreyfinga þeirra sem þá höfðu náð gífurlegu fylgi í Evrópu væri sá einn að undirbúa jarðveginn undir komu Rússanna með því að gera Vestur-Evrópu varnarlausa. Og ekki skorti sönnunargögnin: Ame Herlöv hafði þegið aö gjöf margar flöskur af vodku f rá vini sín- um, sendiráðsritaranum, þar á meðal níu á einu bretti; hljóm- flutningstæki líka, auk þess sem í skrifborösskúffu hans hafði fundist nafnspjald KGB-agents. Ofan á allt annað hafði um langt skeið verið fylgst meö ferðum Rússans og sími Ame Herlövs hleraður, og þá kom í ljós að sá rússneski hafði oft hringt úr símaklefum Kaupmannahafnar og heimsótt síðan hinn danska kunningja sinn grunsamlega oft eftir að hafa boöað komu sína á þann hátt. Og það í sendiráðsbíl svo að ekkert fór á milli mála hver var á ferðinni. Kjaflarinn i Haukur Már Haraldsson öll þessi magnþrungnu sönnunar- gögn voru tíunduð í fjölmiðlum, og margfalt fleiri raunar sem ekki veröa tínd til hér. Stórar myndir voru birtar og hreint ekki legið á þeirri staöreynd að þama færi enn af höfuðpaurum friðaraflanna. Danski innanríkisráðherrann fullyrti meira að segja í viðtali við sjónvarpið að enginn efi væri á sekt Ame Herlövs, — á heimili hans heföu fundist enn frekari sannanir, þannig aö ekkert færi á milli mála, Lagt hefði veriö hald á margvísleg skjöl, rituð á rúss- nesku. 50 krónur í gíró 1 janúar 1982 hitti ég Arne Herlöv Pedersen í Kaupmannahöfn, fyrir milligöngu sameiginlegs kunningja okkar sænsks, sem ég var með á fundi friðarhreyfinga í Evrópu og N- Ameriku þar í borg. Þá var mesti æsingurinn farinn úr fjölmiðlun- um og niðurstöðu rannsóknarinnar beðið. Við þremenningarnir eyddum saman kvöldi á hótelherbergi, þar sem Arne Herlöv sagði okkur hinum frá gangi málsins. Og það verður að segjast eins og er, að ég hef sjaldan orðið eins undrandi. Það var augljóst eftir því sem á frásögnina leið, að hér var á ferðinni þaulhugsuð á- róðursherferð gegn friðarhreyfing- unum, byggð á svo fáránlegum sökum aö um hreint hneyksli hlyti að verða að ræða þegar yfir lyki. Astæðuna fyrir því að hann varð fyrir valinu taldi Arne Herlöv vera þá, að hann væri þekktur kommúnisti og umgengist mjög bæði Rússa og Norður-Kóreumenn, auk þess sem hann hefði ferðast mikiö handan jámtjaldsins og talaði rússnesku að auki. Hefði jafnvel unniö að þýðingum úr því máli. • .. hér var á ferðmni þaulhugsuð á- róðursherferð gegn friðarhreyfingunum, byggð á svo fáránlegum sökum að um hreint hneyksli hlyti að verða að ræða þegar vfir lyki.” J Hin umdeilda handtaka Danans, Arne Herlöv Pedersen. Það kom f ram hjá Arne Herlöv aö hann haföi aldrei verið félagi í nein- um friöarsamtökum, í Danmörku eða utan; þaöan af síður forystu- maður slíkra samtaka. Hann minntist þess að hafa einu sinni greitt 50 króna gíróseðil sem sendur hafði verið til hans í fjáröflunarskyni af Samstarfsnefndinni um frið og öryggi, sem er eins konar regnhlíf- arsamtök þeirra ótalmörgu samtaka sem vinna að friðarmálum í Dan- mörka Aö auki hafði hann verið í sex-manna leshring sem kom saman ööru hverju og f jallaði um ýmis mál, þar á meðal afvopnunarmál. Þar með voru afskipti hans af friöar- málum upptalin. Vinátta og vasaútvarp Arne Herlöv hafði verið mikill vinur eins af sendiráðsriturum sovéska sendiráðsins í Kaupmanna- höfn, eins og fram kom Iiér að framan, og það var það eina sem stóðst í ákærunum á hendur honum. En þá vaknar spurningin: Síðan hvenær varðar það við lög að eiga viniaf einhverju tiltekni þjóðemi? Þessi vinur hans hafði oft komið í heimsóknir á heimili Arne Herlövs, gjaman með veigar í farangrinum Kom jafnvel þó nokkuð oft fyrir að hann gisti. Sendiráösbílnum var þá lagt fyrir framan húsið, með CD- merkinu og öllu tilheyrandi, þannig að ljóst mátti vera að þarna var ekki um neina leynifundi að ræða. Þegar Ame Herlöv og sambýliskona hans ákváðu að ganga í hjónaband á árinu 1981, buðu þau fjölmörgum gestum til veislu, þar á meðal þessum rússneska vini sinum. Hann kom færandi hendi í brúökaupsveisluna; níu flöskur af vodku lagði hann til samkvæmisins, en auk þess gaf hann dóttur þeirra hjóna vasaútvarp í tilefni dagsins. Það var einmitt þetta vasaútvarp dótturinnar sem í fréttum frá lög- reglu hét hljómflutningstæki og var orðið að miklum stereo-græjum í f jölmiðlum áður en yfir lauk. Nafnspjald og glósubækur Við leit lögreglunnar á heimili Ame Herlövs fannst nafnspjald í skrifborðsskúffunni. Á spjaldið var prentað nafn eins af starfsmönnum sovéska sendiráðsins sem komið hafði í heimsókn og gefið hús- ráðendum spjaldið eins og gengur. Undir nafn mannsins var vélritaö skýrt og greinilega; KGB-AGENT. Hvílík himnasending! Lögreglan þurfti ekki frekari vitnanna við; hér hafði KGB-spæjari komið og sekt húsráöanda lá því ljós fyrir. Sú staðreynd virtist hins vegar ekki flækjast fyrir lögreglunni, að það erí meira lagi hæpið að njósnarar yfirleitt — KGB, CIA eða hverrar annarrar þjóöar sem verkast vill — gangi með nafnspjald með sh'ku starfsheiti. Enda kom í ljós að ein- hver kunningi Arne Herlövs hafði séð þetta nafnspjald á skrifborðinu, stungið því í ritvélina sem þar stóð ogvélritaö KGB-AGENT. Loks er að geta allra þeirra skjala á rússneskri tungu sem upptæk höfðu verið gerð á heimili þeirra Pedersens-hjóna. Það kom í ljós, að þarna voru þéttskrifaöar stíla- kompur á þessu torskilda, austræna máli, — glósubækur frúarinnar frá því hún lagöi stund á rússneskunám! Fjölmiðlarnir þögðu um niðurstöðurnar Þannig stóð ekki steinn yfir steini í ásökunum á hendur Arne Herlöv Pedersen um njósnir. En tilgangi herferðarinnar var hins vegar náð. Friðarhreyfingarnar höfðu orðið fyrir álitshnekki, tímabundnum að vísu víðast hvar, en álitshnekki eigi að síöur. Og sá var tilgangurinn. Ég beiö þess meö nokkurri á- ferg ju að heyra sagt f rá niðurstöðum rannsóknarinnar á máli Arne Herlövs hér heima, ekki síst vegna þess að mál hans haföi óspart verið notaö af fjölmiðlum til aö koma höggi á friðarhreyfingamar. Einnig hlaut það að vera fréttnæmt að rétt- arhneyksli á borð við þetta kæmist upp í einu hinna vestrænu lýðræðis- ríkja. Ekki aldeilis. Ég hef ekki orðið þess var, að í eitt einasta skipti hafi verið minnst á þá staöreynd í íslenskum fjölmiðlum, að fyrir tæplega ári var Arne Herlöv leystur undan öllum grun og ákærum á hendur honum vísað frá. Þá þögöu íslenskir fjölmiðlar, háðir sem óháöir, hægri sem vinstri. Þeirra áhugamál var að sverta þau öfl sem af einurð og með vaxandi afli hafa barist gegn auknum vígbúnaði Nató- landanna í Evrópu. Sannleikurinn skiptiþá ekki máli. Þetta mál rifjaðist upp fyrir mér í Kaupmannahöfn nýlega, þegar ég las í einu dagblaðanna þar um brott- vísun eins af starfsmönnum sovéska sendiráösins þar í borg, fyrir iönaðarnjósnir. Þá viðhafði einn af yfirmönnum lögreglunnar þau orð um það mál, að „við höfum pottþétt- ar sannanir í þessu máli, — hér er ekki um neitt Ame Herlöv-hneyksli að ræða”. Frekari vitnisburðar er ekki þörf, þótt vitanlega hafi þessi ummæli farið framhjá f jölmiðlum á Islandi. En upprifjun þessi leiðir einnig hugann að annarri lygaherferð sem enn er í fullum gangi. Það er á- róðursherferðin gegn Búlgariu, sem rædd verðurograkinsíðar. Haukur Már Haraldsson, blaðafulltrúi ASl. Verkstæði — varahlutaverslanir Motorcraft TRAUST MERKI - TOPP GÆÐI. SUPER AGR 22C Motorcraft er eirtn af stærstu bíl- kertafram/eiðendum heims. Vegna hagstæðra samninga getum við nú boðið motorcraft kerti á mjög hagstæðu verði í allar tegundir bíla. Heildsölubirgðir. ALMENNA VARAHLUTASALAN S.F. Skeifunni 17. Reykjavík. Símar 83240/41 Nú geta allir eignast stórkostlegan örbylgjuofn frá TOSHIBA ER—562 KR. 7.555. og sparað tíma og verulegar fjárhæðir í mat og orkukostnaði Toshiba er stærsti framleiðandi heims á örbylgjuofnum og búnaöi fyrir þá. Tækninýjungar koma frá Toshiba, — það nýjasta, DELTAWAVE dreifing, gefur þér besta fáanleg- an árangur í matseld og bakstri. Þjónusta sem þér býðst ekki betri. Þú færð íslenskan leiðarvísi að ofninum, matreiöslubók og þér er boðið á mat- reiðslunámskeið hjá Dröfn H. Farestveit hússtjórnar- kennara, menntaðri ítilraunaeldhúsi Toshiba í Englandi. Á námskeiöinu færðu fullkomin kennslugögn og uppskriftir á íslensku — Já, þetta allt stendur þér til boöa án auka- kostnaöar. Verö og kjör bjóðast ekki betri: Toshiba E R—562 kr. 7.500 — útborgun kr. 2.000 og eftirstöövar kr. 1.500 á mánuði (að viðb. kostnaði). Sláðu nú til og vertu velkominn íhóp ánægðra Toshiba eigenda örbylgjuofna EINAR FARESTVEIT & CO. Bergstaðastræti 10 A Sími 16995 HF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.