Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1983, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1983, Blaðsíða 20
20 DV. MÁNUDAGUR16. MAl 1983. David Bowie hefur fram á þennan dag veríö lítt ginnkeyptur fyrir tísku- straumum í rokktónlist og haft lítið saman viö þá aö sælda. Hann hefur eins og uppátækjasami strætisvagna- bilstjórinn farið sínar eigin leiðir — og okkur hlustendunum ekki orðið meint af nema síður væri. Því er það dálítið kyndugt aö meistarinn skuli nú allt i einu vera lagstur á sveif með tiskunni og búinn að fá upptökustjóra af diskóættum til þess að hljóðrita nýja breiðskífu. Debbí Harry, fyrrum söngkona Blondie, fór einnig í smiðju til Nile Rogers úr Chic og þau suðu saman plötuna Koo-Koo að mig minnir. Sú plata var ömurleg. Og hvernig reiðir Bowie af? Hann er auövitaö mikiu sterkari persónuleiki og mikilhæfari tónlistarmaður en svo að hann fari tómhentur úr smiðjunni, en hitt er deginum ljósara að Let’s Dance er ekki eins rismikil og síðustu plötur David Bowie. Við sem höfum af athygli fylgst með ferli Bowie gegnum tíðina gerum ugg- laust meiri kröfur til hans en annarra rokktónlistarmanna. Hann er einn af fáum rokkurum siðustu ára sem hafa staðið uppúr meðalmennskunni; hann hefur komiö víða við í völundarhúsi rokksins og skarað framúr í hverju sem hann hefur tekið sér fyrir hendur. Og nú þegar hann gengur til liðs við meðalmennskuna þykir manni þaö duh'tiðsúrtíbrotið. Let’s Dance er metnaöarlaust verk og höfðar einkanlega til fótanna eins og nafngiftin ber með sér. Sjálfsagt eignast hann mýgrút af nýjum aðdá- endum því dansrokk af þessu tagi er í hávegum haft nú um stundir. En víst er tónlist hans miklu bitastæöari en obbi þeirrar danstónlistar sem völ er á; hefði þetta verið fyrsta plata ein- hvers nýgræðings gæti ég ausið úr skálum gleði minnar. En til David Bowie geri ég meiri kröfur. NYJAR PLÖTUR Sumpart minnir þessi plata á Young Americans þar sem Bowie geröi sóltónlistinni skil á sínum tíma. ,,Shake it” gæti til að mynda hæglega verið af þeirri plötu og ef til vill „Without You” líka. Kunnasta lagiö af plötunni er titillagiö „Let’s Dance”, rumpugott lag, sem hefur tyllt sér á toppsæti vinsældalista og ekki yrði ég hissa þó fleiri lög plötunnar ættu eftir að sjást ofarlega á listum. Bowie eyöir að mínum dómi öllu púðrinu á fyrri hliö plötunnar; þar eru bestu lögin auk titillagsins: „Modern Love” (næsta smáskífa?), „China Girl” og „Without You”. Einkennilega útsetningu á „Cat People” er að finna á béhliðinni, aö sönnu rokkaðri en hin fyrri, en geril- sneydd og búið að rífa burt þetta dásamlega intró! Bowie hefur síðustu misserin sinnt tónlistinni óverulega en leiklistinni því meira. Nú leggur hann upp í hljóm- leikaferð um Evrópu og kemur von- andi hingað í sumar. Það er því ofur skiljanlegt að hann vilji hafa tónlistina fjöruga og skemmtilega; hvort tveggja tekst honum með ágætum. En þegar fram líða stundir hygg ég að Let’s Dance veröi ekki talin í hópi merkilegustu verka David Bowie þrátt fyrir góða spretti. -Gsal. DAVID bovwie. BONNIE TYLER - FASTER THAN THE SPEED OF NIGHT Ytrí búningur mikill en innihald lítið Fyrir nokkrum árum gerði lagið It’s a Heartache garðinn frægan. Það náði að komast efst á flestalla vinsældalista heims enda grípandi og huggulegt lag. Það var ung og óþekkt söngkona Bonnie Tyler, sem söng þennan óð með sérkennilegri rödd sem minnti oft á tíðum á hása rödd Rod Stewart. Margir bjuggust við meiru frá þessari söngkonu en eins og svo margir aðrir söngvarar sem ná toppnum í fjnrsta skiptið rey ndist erf itt að halda í f undna frægð og brátt varð Bonnie Tyler öllum gleymd og horfin eða svo hélt maður. En nú víkjum við sögunni til Banda- ríkjanna, þar býr maður ernefnist Jim Steinman. Hann er og hefur verið afkastamikill lagahöfundur og stjórn- andi við plötuupptökur. Sérstaklega er hann þekktur fyrir samstarfiö við Meatloaf, þann fituhlunk. Hámarkið á því samstarfi var platan Bad Out Of Hell, þar sem allt það besta sem þessir tveir heiðursmenn gátu gert kom fram. En samstarf þeirra entist ekki og fóru þeir í sína áttina hvor með frekar misheppnuðum árangri. Jim Steinman gaf út sólópiötu sem vakti litla hrifningu enda voru lögin nánast endurtekning á iögunum sem hann samdi fyrir Meatloaf. Einhverjum snjöllum hefur dottið í hug að samræma hæfileika tveggja fallandi stjarna eða Bonnie Tyler og Jim Steinman og gert þessa hugmynd sína að veruleika og útkoman er platan sem um ræðir í þessum pistli, Faster Than The Specd Of Night, sem skrifuð er á nafn Bonnie Tyler og ætlunin hefur tekist, eitt lagið af plötunni, Total Eclipse Of The Heart, hefur meðal annars vermt efsta sæti breska vinsældalistans. En þó Bonnie Tyler sé skrifuð fyrir plötunni þá leynir sér ekki hver er við stjómvöhnn, áhrif Jim Steinman eru mjög greinileg og er ekki laust við að Bonnie Tyler minni mann stundum á sjálfan Meatloaf þótt ekki hafi hún gert þaö áður. Jim Steinman hefur að vísu ekki samiö nema tvö lög af níu lögum plöt- unnar, titillagiö Faster Than The Speed Of Night og hið vinsæla lag Total Echpse Of The Heart, en útsetningar hans á öðrum lögum eru þaö keimh'kar aö jafnvel gamall slagari eins og Have YouEver Seen The Rain fer að líkjast JimSteinmanlagi. Það er kannski stærsti gallinn við plötuna hversu mikil áhrif Jim Stein- man hefur á gerð hennar því hann er greinilega orðinn uppiskroppa með hugmyndir og þrátt fyrir mikinn ytri búning verða lög hans frekar leiðinleg til lengdar og glansinn fljótur að fara af þeim. Bonnie Tyler er alls ekki slæm söng- kona. Hún er með sömu hásu röddina sem virðist frekar hafa þroskast meö árunum, en hræddur er ég um að frægðin í þetta skiptið verði skamm- vinn ef hún hyggur á áframhaldandi samstarf með Jim Steinman. -HK. MARILLION: SCRIPT FOR JESTER’S TEARrj BROSTNAR VONIR BILAKLÚBBUR AKUREYRAR heldur SLICK-50 torfærukeppni sunnudaginn 29. maf nk. 1 febrúarhefti hins virta tímarits Sounds birtust úrslit úr vinsældavali sem blaðið stóð fyrir ekki alls fyrir löngu. Þar voru lesendur meöal annars beðnir um að nefna bestu nýju hljóm- sveitina sem komið hefði fram á síðustu misserum. Efst varð hljóm- sveit sem kallast Marilhon og skaut hún sveitum á borð við Asia, Culture Club og Yazoo ref fyrir rass. Ekki furða að nokkur spemíingur væri th staðar þegar breiðskífu þeirra Script For Jester’s Tear var rennt undir náhna. Ekki síst þar sem þeim drengj- um hafði af fróðum mönnum verið jafnað við risa á borö við Genesis og Jethro TuU. MariUion skipa þeir Mick Pointer tirommur, Pete Trewavas bassi, Steve Rotheray gítarar, Mark KeUy hljóm- borð og söngvarinn heitir því ágæta nafni Fish. Og á SFJT eru aðeins sex lög og ÖU í lengra lagi svo sem við má búast. Satt að segja sá ég gömlu Genesis fyrir mér um leið og fyrstu tónarnir Uðu fram. Nánar tUtekið Selhng Eng- land By The Pound. Og eftir því sem á leið rann það upp fyrir mér að tónlist MarUhon er miður heppnuö stæling á Genesis. Það verð ég að segja alveg eins og er. Meira að segja fiskinum sjálfum, þótt ágætis söngvari sé, svipar meira en Utið til Peter Gabriel' eins og hann var fyrir nokkrum árum. I lögunum sex er mikið um skipt- ingar. Þar skiptast á hraðir og hægir kaflar, hefðbundin gitarsóló og hljóð- gervlakaflar a la Tony Banks. Þó finnst mér eins og áhrif þunga rokksins séu greinUegri í tónlist MarUhon heldur en var hjá Gabriel og co. Kannski vegna þess hve trommumar eru áberandi — taktfastar og þungar. Ekki svo að skilja aö platan sé út í gegn leiðinleg áheyrnar. Oft bregður fyrir góðum sprettum. En í heildina nær hún sér aldrei á strUc. Fiskurinn semur textana ásamt því að flytja þá. Oftast eru þeir torræðnir í meira lagi og kippir þar enn í kynið. Hann á þó sína góðu spretti, tU að mynda í The Web, Chelsea Monday og Forgotten Boys. Lögin eru sem fyrr segir löng og þar skiptast á skin og skúrir. Besta lagið er að mínu mati titUlagið, The Web og Chelsea Monday. TU gamans má skjóta því hér inn að eitt lagið heitir Garden Party og þar hefur Mezzoforte óneitanlega betur. Að öhu samanlögðu er ég dálítið hissa á að þetta skuh vera talin bjart- asta vonin í Sounds. Því hér eru á ferð- inni gamlar lummur og, að mér finnst, eftiröpun sem missir marks. En smekkurinn er víst misjaf n. -TT.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.