Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1983, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1983, Page 17
DV. LAUGARDAGUR18. JUNI1983. 17 Bílar Bflar Bflar Bflar Bflar í tilraunastofunum er líkt eftir ójöfn- um á veginum... Verda að standast hraða og átök Á fullri ferð inn í eina beygjuna. Hliðarálagið á dekkin er gifurlegt og gúmmíreykinn leggur frá bilnum. . . .eða viðnám gegn utanaðkomandi hlutum mælt. Það er loft sem ber bílinn uppi, hjól- barðinn er aöeins umbúðir utan um það. Til að „umbúðimar” skili sínu hlutverki rétt þurfa þær að vera i sam- ræmi við það notagildi sem þeim er ætlað. I öllum akstri hvort sem er á fólksbíl- um eða vinnuvélum koma upp tilvik sem álag á hjólbarðann verður miklu meira en venjulega. I hönnun hjólbarð- ans þarf því að taka tillit til marghátt- aðra aðstæðna, sem jafnvel koma sjaldan eða aldrei fyrir. Til að reyna hjólbarða við hinar ýmsu aðstæður er hjá tilraunastöð Goodyear í Colmar-Berg í Luxemburg sérstök kappakstursbraut þar sem allar gerðir hjólbarða eru þolprófaðar rækilega áður en fjöldaframleiðsla hefst. Brautin er um fimm kílómetra löng og er í mörgum hlykkjum auk langrar brautar til hraðaksturs. Mikill bílafloti er notaðurtil hjólbarðaprófun- ar bæði á eigin framleiöslu verksmiðj- anna svo og til samanburðar á dekkj- um frá helstu keppinautum. Auk akstursins á kappakstursbrautinni, þar sem bæði fara fram þolprófanir með akstri í krákustígum, hraða og í bleytu, er einnig floti bíla í stöðugum akstri um hraöbrautir í nágranna- löndunum. Á hverju ári fer einnig hópur tækni- manna með bíla til aksturstilrauna í snjó og ís. Er þá ýmist farið til norð- urhéraða Svíþjóðar ' eða til fjalla í Sviss. Á brautinni í Colmar-Berg hefur verið komið fyrir fullkomnum búnaði til að mæla viðnám hjólbarða i bleytu. Á einum stað í brautinni er felld þykk Það gengur mikið á þegar fulllestuðum vörubíl er ekið í krákustígum eftir tilraunabrautinni. Traktorinn þessi malar hring eftir hring með fjarstýringu svo hægt sé að mæla þoi hjóibarðanna í akstri. glerrúða í malbikið. A glerið er hellt tveggja millimetra vökvalagi sem bílamir eru látnir aka yfir á ýmsum hraðastigum, en síðan er fylgst með viönáminu með sérstökum ljósmynda- og mælitækjum neöanfrá. Myndimar hér á síðunni sýna vel muninn á nýjum og hálfslitnum hjólbarða við akstur i bleytu. Eftir að hafa skoöað aðstæður á tilraunabrautinni bauð A. Beauchef, sem stjórnar tilraunaakstri Goodyear, í ökuferð um brautina. Sest var upp í bíl af gerðinni Opel Senator og ein sú æsilegasta ökuferð sem ég hef farið í hófst. Byrjað var á því að koma bílnum á góöa ferð, nálin á hraðamælinum var farin að sýna háa þriggja stafa tölu. Þegar fullri ferð var náð var framund an svæði á beinu brautinni þar sen vatn var látiö renna stööugt yfir braut ina og þar höfðu verið búnir til mei keilum krákustígar sem aka þurfti um Síöan var ekið á miklum hraöa í beygj- um eftir brautinni og var ökuleikni Beauchef með ólíkindum, svo hratt var farið í sumar beygjurnar. I einni beygjubrautinni var vatnsflóð látið ganga yfir bílinn og brautina en farið á 90 km hraða í beygju sem venjulegir ökumenn hefðu talið sig fullsæmda af að fara á einum þriðja i hraðans. Þrátt fyrir að tilraunabrautin hafi verið í notkun í mörg ár og þar hafi verið eknar nokkrar milljónir kíló- metra hafa ekki orðið nein óhöpp í akstri. Til öryggis eru allir bílamir í tilraununum búnir því öflugasta velti- búriseméghef séð. Fulllestaðir vörubílar voru einnig í akstri á brautinni og var ótrúlegt að sjá hve mikið álag var sett á dekkin í akstrinum án þess að lát y rði á þeim. Það var greinilegt að verksmiðjurn- ar leggja mikla áherslu á að reyna hjólbarða við allar hugsanlegar aðstæður þannig að þegar bíleigendur setja þá undir bíla sína eigi þeir að geta ekið ánþessaðhafaáhyggjur. En aðalatriðið er eins og Beauchef sagði að hver ökumaður geri sér grein fyrir þeim aðstæðum sem ríkja í daglegum akstri og velji sér dekk í samræmi við það og bíllinn sjálfan. -JR Bíllinn stendur á „glugganum”. Nákvæmar fótosellur setja af stað ljós- eða kvikmyndavél undir gierinu sem myndar viðnámið á mismunandi hraða. Myndirnar sýna hvernig viðnám nýs hjólbarða og hálfslitins mæiist á mismunandi hraða. Efri línan sýnir nýjan hjólbarða. Til hægri er viðnámið mest á hægum hraða en hefur minnkað sáraiítið þótt bíllinn sé kominn á 125 km hraða á myndinni yst til vinstri. Neðri línan sýnir háifslitinn hjólbarða og þar minnkar snerti- flöturinn verulega eftir því sem hraðinn eykst og yfir 100 km hraða „flýtur” hjólið í bleytunni, sem þó er aðeins tveggja inillimetra vatnsiag ofan á glerinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.