Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1983, Page 3
DV.FÖSTUDAGUR24. JÚNI1983.
3
Búrfell II á
eftir Blöndu
Sverrir Hermannsson iðnaöarráöherra: Góðir vegir raunveruleg byggðastefna.
Fjármagnað m.a. með „góðum” lánum frá Bandarikjunum vegna
sameiginlegra varnarhagsmuna landanna. DV-mjmd G.T.K.
— sagði iðnaðarráðherra á f undi
íKópavogi
„öll lán húsbyggjenda verða lengd á
næstu dögum,” sagði Matthías A.
Mathiesen, banka- og viðskiptaráð-
herra.á fundi í sjáKstæðisQokksfélaginu
i Kópavogi á mánudagskvöld. Bankar
og sparisjóðir munu hafa samstarf um
þetta við viðskiptaráðuneytið.
Matthías kvaðst hafa verið fylgjandi
sumarþingi um bráðabirgðalögin.
Sverrir Hermannsson, iðnaðarráð-
herra tók í sama streng. Töldu þeir að
þingið hefði getað afgreitt lögin á
hálfum mánuði til þremur vikum. Þá
hefði málið veriö frá og héngi ekki yfir
ríkisst-jórninni, þegar þing kemur
saman í haust. 1 samsteypustjórninni
þyrfti þó alltaf aö fara bil beggja.
Talsverö þykkja var í furtdar-
mönnum út af þessu máli og Richard
Björgvinsson taldi að Sjálfstæðis-
flokkurinn væri í hættu að tapa
áróðursstríðinu almennt. Fólk teidi
hann nú bara í ríkisstjóm til þess að
þjóna SlS. Þetta hefði mátt upplýsa á
sumarþinginu. Halldór Jónsson kvað
kísilmálmverksmiðjuna stefna.í annað
Grundartangaævintýri. Ekkert væri
heldur athugaö með staösetningu verk-
smiðjunnar frekar, aðeins hlýtt skipun
fyrri iðnaðarráöherra um þetta efni.
Um sölu ríkisfyrirtækja taldi hann
eftirsóknarverðast að kaupa Verölags-
stofnunina, ekki myndi skorta eftir-
spurn á hækkunarbeiðnum. Eggert
Steinsen tók í sama streng með kísil-
málmverksmiðjuna og Halldór og
sagði að helmingi dýrara væri að
byggja málmbræðsluofnana austur á
fjörðum en t.d. uppi á Grundartanga.
Alls tóku 10 fundarmenn til máls.
I svörum ráðherranna kom fram hjá
Sverri að endurskoöa mætti staðsetn-
ingu kisilmálmverksmiðjunnar. Besta
stóriðjukostinn taldi hann þó tvöföldun
álversins samfara endurskoöun raf-
magnsverðsins og næsta virkjun á eftir
Blöndu ætti að vera Búrfell II. Sverrir
kvað mjög fast að oröi um riftun kjara-
samninganna, enda gamall verka-
lýðsleiðtogi og ekki var hann
sáttur viö búvöruverðshækkunina.
Hann sagði vegabætur vera jafnbestu
byggðastefnuna og tvímælalaust ætti
að impra á því viö Bandaríkjamenn að
hagstæð lán til vegaframkvæmda hér
á landi væru vörnum beggja ríkjanna
tilgóðs.
Matthías sagði í sínum svörum að
ekki hefði verið jafnvíötæk samstaða
nú um kjördæmabreytinguna og 1959.
Varnarmál þjóðarinnar væru nú óum-
deild og hefði Alþýðubandalagið mikiö
lært í þeim efnum. Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra hefði
einnig lært mikið á síðustu árum, m.a.
að meta Sjálfstæðisflokkinn. Stefint
væri að því að breyta hinum ósann-
gjarna söluskatti í virðisaukaskatt og i
útflutningsmálum sagöist Matthías
alls ekki sætta sig við óbreytt kerfi
sölulauna á útflutningsuppbætur á
landbúnaðarafurðum. G.T.K.
Matthías A. Mathiesen viðskiptaráðherra: Lán allra húsbyggjenda verða lengd
með sérstöku samstarfi á milli banka, sparisjóða og viðskiptaráðuneytisins.
KARFAFRYSTING STÖDVUÐ
„Þetta er mikið vandamál, sumarið
er aðalveiöitíminn á karfa en nú stönd-
um við frammi fyrir því að þurfa að
stöðva frystingu hans á Rússlands-
markað næstu daga.” Það er Ágúst
Einarsson hjá Hraðfrystistöðinni í
Reykjavík sem hefur orðið og hann
heldur áfram. „Við verðum að freista
þess að veiða annað en karfann, en það
er lítill þorskur svo að útlitiö er allt
annaðengott þessa dagana.”
Vegna sölutregðu hefur skapast
nokkurt vandamál hjá útgerðar-
mönnum á karfaveiði. Aðalveiðisvæðið
er milli Vestmannaeyja og Akraness,
en stærsti markaðurinn hefur verið í
Rússlandi.
Að sögn Hjalta Einarssonarhjá Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna ákvað
stjóm sölumiðstöðvarinnar að stöðva
framleiðslu á karfaflökum til ráð-
stefnuríkjanna, en unnið væri að því að
beina framleiðslunni á aðra markaði.
AA
Skeiðarársandsmálið:
Dómur kveðinn upp á þriðjudag
Dómur verður kveðinn upp yfir
Grétari Sigurði Ámasyni í sakadómi
næstkomandi þriöjudag. Hann er
ákærður fyrir aö hafa orðiö Yvette
Bahuaud að bana á Skeiðarársandi 16.
ágúst síðastliðinn og fyrir aö hafa stór-
slasað Marie Luce Bahuaud, systur
hennar.
Aukamálflutningur fór fram í mál-
inu á miövikudagsmorgun og var þá
prófessor Olafur Bjamason kallaöur
fyrir dóminn. Prófessor Olafur fram-
kvæmdi kmfningu á líki Yvette
Bahuaud og þótti ástæða til að yfir-
heyra hann um dánarorsök. Niður-
stöður kmfningar voru þær, að sögn
Olafs Bjarnasonar, að haglaskotin ein
sér hefðu getað valdið dauða Yvette en
samverkandi dánarorsakir væru and-
nauö í farangursrými bifreiðar ákærða
og lost.
ás
NOTAÐI
■BILAR
VOLVO 244 DL 82
ekinn 20.000, beinsk. Verð kr.
380.000.
VOLVO 245 GL '82
ekinn 17.000, sjálfsk. Verð kr.
470.000.
VOLVO 244 GL '82
ekinn 22.000, beinsk. Verð kr.
410.000.
VOLVO 345 DL '82
ekinn 18.000, beinsk. Verð kr.
265.000.
VOLVO 244 GL '81
ekinn 8.000, sjáltsk. Verð kr.
375.000.
VOLVO 244 GL '80
ekinn 50.000, sjálfsk. Verð kr.
305.000.
VOLVO 244 DL'78
ekinn 78.000, beinsk. Verð kr.
190.000.
VOLVO 245 DL '77
ekinn 100.000, beinsk. Verð kr.
175.000.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
FRÁKL. lOtil 16.00.
VOiVOSAUURINN
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200
NYTT
YFIR
Arfells-skilrúm — hilluskilrum — skapa-
ski/rúm — handriðseiningar úti og inni
og húsgögn
1000
MÖGULEIKAR
Sýning
laugardag
kl. 9-4
ATH.
Hafið með ykkur mál
og þið fáið hönnun á
staðnum.
Armu/a 20
Simar: 84630 og 84635