Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1983, Side 23
DV. MANUDAGUR 3. OKTOBER1983.
23
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Létt hjá Valsmönnum
J6n Pétur Jónsson, gamll refuriun i
Valsliðinu, skoraði 7 mörk á Akur-
eyri.
Frá Antoni Benjaminssyni — frétta-
manni DV á Akureyri:
— Það er greinilegt að harður vetur
er framundan hjá KA-liðinu í 1. deildar
keppninni i handknattleik. Valsmenn
komu hingað i heimsókn á föstudaginn
— þar sem þeir unnu sigur, 23:18, yfir KA á Akureyri
og héldu aftur til Reykjavikur með tvö
stig í pokahominu eftir að hafa unnið
léttan sigur yfir KA, 23—18.
Magnús Gauti Gautason, mark-
vörður KA, kom í veg fyrir að sigur
Valsmanna yrði stærri — hann varði
mjög vel í leiknum og var besti maður
valiarins ásamt Einari Þorvarðarsyni,
markverði Valsmanna, sem varði
einnig mjög vel.
KA-menn byrjuðu vel og skoraöi Jó-
hann Einarsson fyrsta mark leiksins.
Þeir héldu síðan yfirhöndinni þar til
um miöjan fyrri hálfleikinn að Jón Pét-
ur Jónsson jafnaði og eftir þaö náöu
Valsmenn góðum tökum á leiknum —
komust yfir 14—9 fyrir leikhlé og þeir
héldu því forskoti út leikinn.
Jón Pétur Jónsson var mjög sterkur
hjá Val — sérstaklega í fyrri hálfleik
þegar hann hélt Valsliðinu á floti með
góðum mörkum. Steindór Gunnarsson
lék einnig vel — mjög ógnandi á lín-
unni.
Útlendingar
á skotskónum
—Juventus komið á toppinn
Juventus skaust upp á toppinn á
Italiu þegar félagið lagði Lazio að velli,
1—8, á útivelli. Það var Frakkinn
Michel Platinl sem skoraði mark
Juventus, eftir sendingu frá Boniek.
Leikmenn Lazio fengu gullin tskifsri
til að skora — þeir Bruno Giordano og
danski táningurinn Michael Laudrup
fóru illa með fsri sín.
Brasilíumaðurinn Zico heldur
uppteknum hætti — hann skoraði sitt
sjötta mark þegar Udinese gerði jafn-
tefli, 1—1, við Verona.
Liam Brady skoraði fyrir Sampdoria
gegn Fiorentina, en það dugði ekki til
sigurs því aö gestimir svöruöu með
tveimur mörkum.
Roma tapaði 1—2 gegn Torínó.
Brasilíumaöurinn Cerezo skoraöi fyrir
Roma, en Argentínumaðurinn Patricio
Létthjá
Jóhanni Inga
Jóhann Ingi Gunnarsson og lið hans
Kiel í v-þýska handboltanum áttu ekld i
neinum erfiðleikum í fyrstu umferð
Evrópukeppninnar. Kiel dróst á móti
skoska liðinu East Kilbride og vann
heimaleikinn 43—8 eftir að hafa leitt
22—1 i hálfleik. ' -AA
Hernandez skoraði tvö mörk fyrir
Torínó.
Þess má geta að Roberto Pruzzo náði
ekki að skora úr vítaspyrnu fyrir
Roma.
Juventus er með sjö stig eftir fjóra
leiki en Roma, Fiorentina og Torinó
eru með sex stig og síðan koma
Udinese og Verona með fimm stig. SOs
Frábærir
dómarar
— David Turner
staddur hérálandi
Dómgæsla þeirra Gunnars Braga
Guðmundssonar og Davids Tumer á
úrslitaleik Reykjavikurmótsins vakti
athygli margra fyrir þær sakir hversu
góð hún var.
David Tumer, dnn snjaliasti dómari
heims, hefur dvalið hér undanfarna
daga og leiðbeint dómurum okkar
samfara því að hafa dæmt leiki í
Reykjavíkurmótinu. Er vonandi að
dómarar hafi lært eitthvað af kappan-
um og ekki var annaö að sjá í leik Vals
og IR en að Gunnar væri þegar búinn
að læra heil ósköp. Dómgæsla hans var
hreint útsagtfrábær. -SK.
And rés fór
á kostum
— skoraði átta mörk fyrir GUIF og er
markahæstur í Svíþjóð
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — frétta-
manni DV í Svíþjóð:
— tslendingurlnn Andrés
Kristjánsson var heldur betur í sviðs-
ljósinu, þegar „Ailsvenskan” í hand-
knattleik hófst nú fyrir helgina. Andres
átti stóran þátt í því að GUIF, sem hef-
ur orðið fyrir mikilii blóðtöku, vann
óvæntan stórsigur, 27—17, yfir
Visby/Gute.
— „Andres sýndi snilldarleik og bar
af í liöi GUIF. Ahorfendur klöppuðu
Islendingnum hvað eftir annað lof í
lófa fyrir glæsileg gegnumbrot hans og
átta stórglæsileg mörk,” sagði sænska
blaðiö Sud-svenska um Andrés sem er
nú markahæstur í Svíþjóð með átta
mörk. Þess má geta að , JBobban”
Anderson gat ekki leikið með GUIF
vegna meiðsla. *
Kroppskultur vann óvæntan sigur,
26—23, yfir Heim og nýliðar
Redbergslid lögðu Ystad að velli, 25—
22. -GAJ/SOS
íþróttir
íþróttir
Jóhann Einarsson og Erlingur Krist-
jánsson voru frískastir hjá KA-mönn-
um, ásamt Magnúsi Gauta sem lék
sinn 300 leik með KA-liðinu.
Mörkin í leiknum skoruöu þessir leik-
menn: KA: Jóhann Einarsson 4/1, Erl-
ingur Kristjánsson 4/3, Jón Kristjáns-
son 2/1, Magnús Birgisson 2, Þorleifur
Ananiasson 2, Sigurður Sigurösson 2,
Jóhann Bjömsson 1 og Logi Einarsson
1.
Valur: Jón Pétur 7, Jakob Sigurðs-
son 4, Steindór Gunnarsson 4, Bjöm
Bjömsson 2, Stefán Halldórsson 2,
2 og Brynjar
Valdimar Grímsson
Harðarson 2/2.
Ævar Sigurðsson og Grétar Valdi-
marsson dæmdu leikinn sem var auö-
dæmdur. Þeir skiluðu hlutverki sínu
vel.
-AB/-SOS.
Flutninga-
bílstjórar
- vörubíla-
eigendur.
Útvegum með mjög stuttum fyrir-
vara frysti- og kœlitœki fyrir
flutningabila.
2 stœrðir, POLAR 1200 og POLAR
2000. Auðveld isetning. Mjög gott
verð.
Vinsamlegast hringið og fáið nánari
upplýsingar.
FRYSTI- OG KÆLIVÉLAR.
Ertu að hugsa um að koma þór upp frysti- eða kæliklefa? Leitaðu þá eftir tilboði
frá okkur um tækjabúnað, það getur borgað sig.
Við erum með umboð fyrir hið heimsþekkta bandariska frystitækjafyrirtæki,
YORK.
Sendum þór tilboð ón nokkurra skuldbindinga af þinni hálfu.
Frysti- og kæligámar hf.
SKÚLAGÖTU 63 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 25880