Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1983, Page 25
DV. MÁNUDAGUR 3. OKTOBER1983.
Kþróttir
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
óttir
Iþróttir
Iþróttir
íþrótt
Iþróttir
Gunnar með
þriggja
mánaða
samning
Elns og viö skýrðum frá í síðustu viku
hefur Gunnar Gíslason gert samning við
v-þýska, 2. deildarliðið Osnabríick. Er hér
um þriggja mánaða samnlng að ræða og
ætlar Gunnar að fara sér hægt og kynnast
öllum aðstæðum áður en lengra cr haldið.
Sinn fyrsta leik gætl Gunnar leikið á
föstudaginn kemur og þá gegn Brauns-
chweig í bikarkeppuinni. Það sem á stend-
ur er skeyti frá KSÍ og ef það berst á rétt-
um tíma verður Gunnar í liði Osnabriick.
-AA
Þjalfari
Stuttgart
var að
hefna sín
— meðþvíaðsetja
Corneliusson út íkuldann
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — fréttamanni ,
DV íSvíþjóð:
— Sænska blaðið Expressen sagði frá
því í gær að þjálfari Stuttgart, Helmut
Benthaus, hefði sett sænska landsliðs-
manninn Dan Corneiiusson út úr liði StuU-
gart fyrir leik liðsins gegn Köln á iaugar-
daginn. Blaðið sagði að þjálfarinn hefði
gert þetta vegna þess að hann hefði verið
óhress með aö sænska knattspyrnusam-
bandið hefði náð að setja pressu á Stutt-
gart, sem þarf að láta Comeliusson lausan
í landsleik Svia og ftala.
Expressen segir að það sé furðulegt að
einn af markhæstu leikmönnum V-Þýska-
lands sé ekki látinn ieika. -GAJ/-SOS.
Reykjavíkurmótinu
íkörfu lokið:
Valsmenn
meistarar
Valsmönnum tókst að næla sér í Reykja-
víkurmeistaratitilinn í körfuknattleik í
gær er þeir sigruðu ÍR-inga með 75 stigum
gegn 69. Staðan í leikhléi var 37—35 Val í
vil.
í þessum úrslitaleik mótsins brá oft fyrir
góðum körfuknattleik hjá báðum liðum en
hittni Valsmanna var betri þegar á leikinn
leið og það gerði gæfumuninn.
A undan léku KR-ingar gegn liði Fram
og sigruðu KR-ingar verðskuldað með 88
stigumgegn68.
Tveir leikir voru háðir á laugardag. Val-
ur burstaði IS, 86—69, og mikilli mara-
þonsviðureign IR og KR lauk með eins
stigs sigri KR 92—91. Þurfti að framlengja
leikinn þrívegis til að knýja fram úrslit. Er
slíkt einsdæmi í landi þessu. -SK.
f leiktíma þegar Steinar Birgisson
uu sem mistókst. Það kom alltof oft
ot án þess að hafa leikið vörn and-
DV-ljósmynd EJ.
Langskyttan Lars C. Haneborg skor-
aði sjö mörk fyrir Kolbotn og þjálfar-
inn Gunnar Helgevold fjögur.
-sos
„Spiluð-
um ekki
eins
og lið”
— sagðiGuðmundur
Guðmundsson,
fyrirliði Víkings
„Á meðan við spilum eins og 7 ein-
staklingar þá er ósköp eðlllegt að við
komumst ekki áfram. Við spiluðum
hreinlega ekki eins og lið. Þeir eru
seigir en engu að síður áttum við að
komast áfram. Það ber þó að geta þess
að við erum með nýtt lið. Höfum ekki
þessa einstaklinga sem báru uppi leik
liðsins síðasta ár og það tekur alltaf
tima fyrir menn að venjast nýjum að-
stæðum,” sagði Guðmundur Guð-
mundsson, fyrirliði Víkings, eftir
Evrópuleikinn í gær.
Það var ósköp dauft yfir mönnum í
herbúðum Víkinga eftir leikinn sem er
náttúrlega eðlilegt, en verst þótti
mönnum að tapa fyrir liði frá C-þjóð
eins og einn komst að orði.
-AA.
tur Harðarson i kröppum dansi. Hörður
DV-ljósmynd EJ.
Óagaður leikur
Víkings varð
þeim að falli
Fyrsti stórleikur ársins á hand-
knattleikssviðinu varð því miður
ekki að neinum stórleik fyrir hand-
knattleiksíþróttina. íslandsmeist-
arar Vikings urðu að lúta í lægra
haldi gegn norska liðinu Kolbotni
og verður það að teljast áfall fyrir
islenskan handknattleik. Norð-
menn hafa verið i miklum öldudal í
handknattleik undanfarin ár á
meðan við íslendingar höfum verið
að spreyta okkur á efri vígstöðv-
um. Hvort tap Víkinga í gærkvöld
er breyting á hlutum mála skal
ósagt látið en ekki verður komist
hjá því að segja að Norðmennirnir
verðskulda áframhaldandi veru
sina í Evrópukeppni meistaraliða.
Á meðan einstaklingsframtakið
var yfirráðandi í leik Vikings réði
liðshcildm rikjum hjá Kolbotni og
þegar upp var staðið fögnuðu þeir
sigri og sjaldan hefur sést jafnvel
leikandi norskt félagslið hér á
landi.
Víkingur fór út i þennan leik með
tveggja marka minus og það er
ekki mikill munur þegar um
Evrópukeppni er að ræða. Hlutur
áhorfenda var góður og hjörtu
þeirra rúmlega 1800 áhorfenda er
lögðu leið sina í Laugardalinn slógu
öll með liði Víkings. En það er aug-
ljóst að Vikingsliðið i dag og Vik-
ingsliðið undanfarin ár er ekki það
sama. Þeir reyndu kappar Páll.
Björgvinsson, Árni Indriðason,
Þorbergur Aðalsteinsson og Ólafur
Jónsson skilja eftir sig stór skörð
sem eðli málsins vegna er erfitt að
fylla. Þegar mest á reyndi í ieikn-
um í gærkvöld urðu Víkingum á
mikil mistök þar sem fljótfærni og
hugsunarleysi varð dýrkeypt. Og
sjálfsagt hefði liðið aldrei átt
möguleika ef ekki hefði komið til
góður leikur Harðar Harðarsonar í
seinni hluta seinni hálfleiks svo og
það að Kristján Sigmundsson
stappaði í sig stálinu og varði
sem sannur markvörður síðasta
korterið. Að öðru leyti var allur
sóknarleikur Víkings óagaður og
það kom fram í þessum leik að liðið
á nokkuð í land með að ná saman
sem heild þó að flestir einstakling-
ar þess hafi verið í liðinu síðustu
3—4ár.
Hlutskipti Rudolfs Havlik, hins
tékkneska þjálfara Víkings, er ekki
öfundsvert. Hann tekur við marg-
földum íslandsmeisturum með til
þess að gera nýtt lið þar sem búist
er við mlklu eins og alltaf er hjá liði
sem náð hefur toppárangri. En
Víkingar þurfa ekki að skammast
sín, liðið hefur yfir góðum leik-
mönnum að búa og verður án efa
sterkt í vetur eins og endranær. AA.
„Reynsluleysið
gerði gæfumuninn”
— sagði Rudolf Havlik, þjálfari Víkings
„Það er leiðinlegt að Víkingur
náði ekki að komast áfram að
þessu sinni. Ég myndi segja að
það væri fyrst og fremst reynslu-
leysi að kenna. Möguleikarnir
voru fyrir hendi en þegar mest á
reyndi var rétt hugarfar ekki til
staðar.
Staðreyndin er sú að Víkingur hefur
misst máttarstólpa, leikmenn sem
hafa borið uppi leik liðsins og það tekur
alltaf tíma að byggja upp sterkt lið.
Efniviðurinn er fyrir hendi og með þol-
inmæði og réttu hugarfari verður Vík-
ingur áfram í fremstu röð íslenskra fé-
lagsliða,” sagði Rudolf HavUk, þjálf-
ariVíkings.
-AA.
Rudolf Havllk, þjálfari Víkings.