Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1983, Qupperneq 6
DV. FÖSTUDAGUR 28. OKTOBER1983.' '
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Ætla aö henda
gömlu eldflaug-
unum fyrir nýiar
Vamarmálaráðherrar NATO hafa
ákveðið aö fjarlægja 1.400 skamm-
drægar eldflaugar af eldri gerð
jafnharðan sem 572 nýjar meðal-
drægar eldflaugar verða settar upp í
Vestur-Evrópu.
Tveggja daga fundi ráðherranna
lýkur í Quebec í dag en í yfirlýsingu,
sem þeir sendu frá sér í gær, var skor-
að á Sovétríkin að fylgja fordæmi
bandalagsins í því að stöðva
vígbúnaðarkapphlaupið.
Ætlunin er að fjarlægja frá V-
Evrópu á næstu fimm eða sex árum
1400 gamlar kjamahleöslur eldflauga
svo að kjarnorkuvopnabirgðir NATO í
álfunni fari niður í 4.600 kjarnahleösl-
ur. — Er þetta viöbót við þær 1000
kjamahleðslur eldflauga sem sam-
Klofningur meðal
skæruliða
Klofningur virðist kominn upp
meöal gagnbyltingarmanna frá
Nicaragua sem bækistöðvar hafa í
Costa Rica. Berast fréttir af því að
Eden Pastora, oftast nefndur „Comm-
ander Zero”, hafi dregið skæruliða-
flokk sinn út úr bandalagi gagnbylting-
armanna, Lýðræðislega
byltingarbandalaginu (ARDE).
Sagt er að Pastora hafi sinnast viö
Alfonso Robelo, hinn pólitíska leiðtoga
samtakanna, sem mun hafa samið um
þjálfun fyrir skæruliðana undir hand-
leiöslu Bandaríkjamanna í Hondúras
og í Argentínu. — Pastora er yfir
maöur skæmliðanna.
Pastora, sem stýrir um 2000 manna
skæruliöaflokki, lét mjög að sér kveða í
byltingunni sem velti Somoza úr valda-
stóli í Nicaragua en hann komst síðan
upp á kant viö sandinista.
ARDE hefur ávallt þrætt fyrir að
hafa þegið aðstoö frá Bandaríkjunum.
þykkt var 1979 að teknar skyldu af
birgðunum.
Ráðherramir áréttuðu fýrri
ákvarðanir um að hrinda eldflauga-
áætlun NATO í framkvæmd og byrja
að koma upp skotpöllum 572 Pershing
H og Cruise-eldflauga í desember, ef
ekki semdist um annað við Sovétmenn
í Genfarviöræðunum.
TfDAR DAUÐAREFS-
INGAR í KÍNA
Mannréttindasamtökin Amnesty
International skoruöu í gær á kínversk
yfirvöld að hætta tíðum aftökum sem
Kosningar eftir sex mánuði
— segir forsætisráðherra Barbados um Grenada
Löndin sem stóöu að innrásinni á
Grenada gera ráð fyrir því að sex
mánuði taki að undirbúa kosningar, að
sögn Tom Adams, forsætisráðherra
Barbados. Adams sagöi einnig íviðtali
viö útvarpsstöð í London, aö hann von-
aöist til að bandarísku hermennirnir
gætu haldið heim mun fyrr.
„Við höfum vonast til að geta haldið
kosningar eftir þrjá mánuði en okkur
er tjáö aö þaö muni taka þann tima að
undirbúa kjörskrá og undirbúa kosn-
ingar,” sagði Adams í viðtalinu. Hann
sagði einnig að ákveðið heföi verið að
leggja niður her Grenada, en endur-
uppbyggja lögregluliö eyjarinnar.
Adams sagöi að samtök ríkja i
austanverðu Karíbahafi hefðu ákveðiö
að beita rétti sínum samkvæmt samn-
ingi samtakanna um ihlutun, ,,til
þess að endurreisa lög og reglu á
Grenada”. Adams sagði einnig að við-
komandi ríki í Karíbahafinu væru
undrandi vegna breskrar gagnrýni á
innrásina.
sagöar eru þær tíðustu er verið hafa
síöan 1970 og 71.
I bréfi, sem samtökin sendu Li
Xiannian, forseta Kína, segja þau aö
þeim sé kunnugt um yfir 600 aftökur
sem fariö hafi fram í 20 borgum og
sýslum í Kína síðan í ágúst.
Fólk hefur verið tekið af lífi í 15—40
manna hópum en áður er það látið
ganga um stræti „til sýnis” og vam-
aðaröðrum.
Amnesty, sem berst gegn dauða-
refsingu, segir að fjölgun dauðarefs-
inga í Kína gangi í berhögg viö álykt-
anir Sameinuðu þjóöanna sem hvetji
til þess að úr þeim sé dregið. —
Síbrotamaður, sem hefur verið
fundinn sekur um 29 af brot, á yfir höfði
sér dauðarefsingu.
Einn fyrri valdamanna á Grenada tók gísla og krefst brottfararleyfis til Guyana
Líbýumaður, sem handtekinn var í
Frakklandi fyrr í þessum mánuði,
verður h'klega látinn laus í dag, berist
ekki framsalsbeiðni frá ítölskum yfir-
völdum. Maðurinn, Rachid Said
Mohammed AbduUah, var handtekinn
samkvæmt beiöni Interpol, kærður
fyrir að hafa myrt Ubýskan kaupsýslu-
mann í Mílanó 1980.
Háttsettir franskir embættismenn
telja að handtaka AbduUahs hafi vald-
ið því að líbýsk yfirvöld töfðu brottför
franskra ferðamanna frá Líbýu um
þrjá daga fyrr í þessum mánuði.
Abdullah hefur lýst sig saklausan af
ákærunum og lögfræðingur hans sagð-
ist mundu krefjast þess að hann yrði
látinn laus, bærist ítölsk framsals-
beiðni ekki í síðasta lagi í dag.
Grunaður morðingi látinn laus?
Hudson Austin hershöfðlngi er sagður
vilja komast til Guyana og beita fyrir
sig gíslum til þess að verjast því að
verða tekinn til fanga.
aðspurðra vottað stuöning við aðgerð-
ina.
Fyrir ræðuna sögðu 64% aöspuröra
að þeir styddu innrásina.
Forsetinn talaði einnig um stefnu
Bandaríkjanna í Líbanon. 1 skoöana-
könnununum kom í ljós að 50% að-
spurðra voru fylgjandi veru hersins í
Libanon fyrir ræðuna en 80% voru
orðin fylgjandi henni eftir ræðuna.
Sumir hafa ásakað Reagan um að
hafa fyrirskipað innrásina til þess að
auka vinsældir sínar. Stjórnin leggur
hins vegar áherslu á að öryggi hinna
1000 Bandaríkjamanna á Grenada hafi
verið í hættu.
-Þórir í Kansas City.
„Við sköpum okkar eigin sögu,”
stendur á þessu spjaldi, sem Grenada-
menn hafa reist við flugvöll Kúbu-
manna á suðurodda eyjarinnar, en
Reagan heldur því f ram að Kúbumenn
og Sovétmenn hafi ætlað að móta sögu
Grenada.
Bandarískar herflugvélar og stór-
skotalið gerðu harða hríð í gær aö
Kúbumönnum sem sagðir eru enn
veita mótspyrnu á Grenada.
Fréttamenn nýkomnir frá Grenada í
nótt sögðu, að um 1000 Kúbumenn
berðust enn viö innrásarliðið á suður-
odda eyjarinnar. Eftir þeim er haft að
Hudson Austin, hershöfðingi í
þjóðvarðliði, hafi búist til vamar meö
nokkra gísla og neiti að sleppa þeim
nema hann fái að f ara til Guyana.
Á suðurodda Grenada voru Kúbu-
menn að gera flugvöll og það er
einkum í grennd við hann sem barist
er. Leyniskyttur í hæðunum umhverfis
flugvöllinn valda innrásarliðinu
erfiðleikum.
Enn er verið að flytja burt af eyjunni
bandarísku ríkisborgarana sem þar
voru.
Vamarmálaráðuneytið bandaríska
segir að innrásarliðið hafi fundið
miklar vopna- og skotfærabirgðir um
einn kílómetra frá flugvellinum, þar
sem nú er barist. Vom þetta sögð
kúbönsk og sovésk vopn. Bandarískur
liðsforingi sagði aö þarna heföu veriö
nægar birgðir til þess að vopna allar
skæruliðahreyfingar heims.
Kúbustjórn, sem sagði í fyrradag að
allri mótspymu Kúbumanna á Gren-
ada væri lokið, fullyrðir að fréttin um
fund vopnabirgðanna sé lygi úr
Bandaríkjamönnum því að
Bandaríkjamenn hafi sjálfir sett
vopnin þama til aö, ,finnast”.
Fyrstu bandarísku ríkisborgararnir
sem komu frá Grenada sögðu í gær að í
næsta nágrenni við höfuðborgina væri
byrjað að draga úr mesta stríðsdansin-
um og aðeins heyrðist stöku sinnum
hleypt af skoti. Höfuöborgarbúar vom
byrjaðir að hætta sér út á götur í
mataröflun.
Bandaríkjamenn hafa fylkt sér að
baki Ronalds Reagan forseta og styöur
mikill meirihluti þeirra innrásina í
Grenada. I skoðanakönnun sem gerð
var rétt eftir sjónvarpsræðu forsetans
í gærkvöldi, þar sem hann skýrði
ástæðumar fyrir innrásinni, höfðu 86%
Um 1OOO Kúbumenn
sagðir berjast enn
viö innrásarliðið