Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1983, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1983, Blaðsíða 3
DV. FÖSTUDAGUR'18. NOVEMBER1983. 3 „Framnesvegarmáliö" svokallaöa varö tll þass að borgarstjóri skipaöi nefnd um hundahald i Reykjavík. Nú hefur þessi nefnd fengiö tillögur Hundarœktarfóiags íslands um hundahald i höfuöborginni. Á sunnudags- kvöldið veröur almennur fundur á Hótel Sögu þar sem tillagan verður skýrö fyrir áhugafólki um hundahald. DV-mynd S. Eitt af mörgum skilyrðum Hundaræktarfélags íslands vegna hundahalds í Reykjavík: Eigendur hunda sæki námskeið í meðhöndlun dýra — almennur fundur um skilyrðin á Hótel Sögu á sunnudagskvöld „Leyfishafi geri sér grein fyrir á- byrgð sinni gagnvart hundinum og um- hverfi sínu og hafi náð lögaldri. Eig- anda er skylt að sækja námskeið varðandi meðhöndlun dýra.” Þannig hljóðar eitt af þeim skilyröum sem Hundaræktarfélag Islands hefur sett í tillögu sinni um að borgarstjóm Reykjavíkur veiti leyfi til hundahalds í Reykjavík. Tillagan og skilyrðin hafa verið afhent sérstakri nefnd um hundahald í Reykjavík sem borgarstjóri skipaði eftir „Framnesvegarmáliö” svokallaða. Að sögn Vals Tryggvasonar, gjald- kera Hundaræktarfélagsins, verður tillagan kynnt á almennum fundi Hundaræktarfélagsins sem haldinn veröur í Súlnasal Hótel Sögu á sunnudagskvöldiö klukkan átta. „Við vonum að sem flest áhugafólk um hundahald mæti,” sagði Valur. Önnur skilyrði í tillögunni eru þessi: 1. Hundurinn skal skráður hjá borgaryfirvöldum svo og nafn eiganda eða ábyrgðarmanns. 2. Skráningargjald sé tvö þúsund krónur, en árgjald fimm hundruö krónur sem greiðist 1. mars ár hvert. Við greiðslu skal sýna hunda- hreinsunarvottorð og tryggingarskír- teini. 3. Hundurinn skal bera hálsól og númer svo að unnt sé að rekja hann til eiganda. Hund án merkis og ólar má taka í vörslu yfirvalda sem auglýsir hundinn eftir nánari reglum og skal hans vitjaö innan 14 daga og hann leystur út gegn gjaldi. Verði hans ekki vitjað innan 14 daga er heimilt að ráöstafa honum eöa aflífa á mannúðleganhátt. 4. Hundurinn skal ætíð hafður í ól á götum borgarinnar, í skemmtigörðum og leiksvæðum og varðar brot sektum. Lausa hunda, sem eru merktir skal meðhöndla á sama hátt og ómerkta, nema hvaö reynt skal að hafa uppi á eiganda og honum gert að leysa hundinn út gegn áföllnum kostnaði. 5. Hundur skal vera ábyrgðar- tryggður hjá viðurkenndu trygginga- félagi. Skírteini skal sýnt við greiðslu hundagjalds. 6. Hundurinn skal hreinsaður gegn innyflaormum á hverju ári eftir nánari fyrirmælum yfirvalda. Vottorð um hreinsun skal sýnt við greiðslu hunda- gjalds og skal það eigi vera eldra en þriggja mánaöa. 7. Hundaeiganda ber að fara eftir öörum þeim reglum sem heilbrigðis- yfirvöld setja á hverjum tíma. 8. Valdi hundur nágrönnum ónæði vegna hirðuleysis eiganda, er eiganda skylt að verða sér úti um fræðslu og lagfæra ástandiö. Sé um ítrekað brot aö ræða og orsökin sinnuleysi eiganda eru viöurlög sektir sem fara hækkandi við ítrekaöbrot. 9. Við ítrekað brot á reglum þessum, svo og ef eigandi eða ábyrgöarmaður hunds er ber að því að fara illa með hund sinn, getur borgar- stjóri svipt viðkomandi leyfi til að haldahundinn.” -JGH. LEITAÐI JÖKULFJÖRÐUM Leitin í Jökulf jörðum að tveimur I gær leituðu varðskip, þyrla og vél- áhafnarmeðlimum þyrlunnar TF-RÁN báturinn Siggi Sveins. Meðal annars bar ekki árangur í gær. Afram verður flaug þyrlan meö fjörum. leitað. -KMU. Aldrei meira af út hafsrækju en nú — ætti að vera óhætt að veiða enn meira, segir Ingvar Hallgnmsson f iskif ræðingur Allt stefnir nú í það að úthafs- rækjuaflinn verði yfir fimm þúsund tonn í ár sem er mun meira en nokkru sinni fyrr. Þegar þessar veiðar hófust 1974 var aflinn ’74 tonn, en ’78 fór hann að taka talsvert við sér og varð 1360 tonn það árið., Síðan hefur hún aukist í smástökkum og í stóru stökki í ár. Þá hefur afurðaverð verið gott fyrir rækjuna allt árið. I ljósi hrakfara annarra fiskistofna eftir góða veiði var Ingvar Hallgrimsson fiskifræðingur spurður um rækjuveiðihorfur í náinni framtíð. „Við erum bjartsýnir á góða veiði úthafsrækju í náinni framtíð. Það er ljóst að úthafsveiðin hefur aukist hér við land og miðin eru alltaf aö stækka eöa ný mið að finnast. I sumar fóru tvö hafrannsóknaskip til rannsókna austur af landinu og gefa niðurstöður þeirra rannsókna góðar vonir um úthafsrækjuveiði þar en þær hafa nánast ekki verið reyndar þar hingaðtil. Þrátt fyrir góöar horfur er útilokaö aö allur sá floti sem á í erfiöleikum vegna verkefnaskorts geti snúið sér að rækjuveiði, en þetta er vissulega góö búbót,” sagði Ingvar. Er hann var spuröur um ástæðu fyrir vaxandi rækjustofni um leið og aðrir fiskistofnar viröast minnkandi, sagði hann það reynslu úr Barents- hafi frá V-Grænlandi og Alaska aö rækjuveiði færi vaxandi þegar öðrum fiskistofnum hnignaði enda étur t.d. þorskur mikið af rækju. Nokkrir bátar frá Eyjafirði og einn frá Húsavík ætla að halda rækjuveiðum áfram til áramóta. Að lokum má geta þess að innfjaröar- rækjuafli hefur nokkum veginn staöið i staö sl. tíu ár. -GS. KARLSEFNIS-SMYGUÐ: Sjómaðurinn látinn laus Skipverjinn af togaranum Karls- efni sem tekinn var á bryggjunni í Reykjavík fyrir um mánuði með 11,3 kg af hassi í fórum sínum hefur nú verið látinn laus úr gæsluvaröhaldi. Hann var úrskurðaður í 30 daga gæsluvarðhald og var sá tími að renna út þegar honum var sleppt í gær. Telur fíkniefnalögreglan að hann hafi þegar sagt frá öllu sem máli skipti og þurfi hann þvi ekki að vera í gæsluvarðhaldi lengur. Maðurinn sem hann benti á að hefði útvegað peningana til kaupanna er enn í gæsluvaröhaldi. Mun lítið hafa fengist út úr honum um málið. Báðir þessir menn hafa áður komið við sögu hjá fíkniefna- deildinni, en þeir ráku, áður saman fyrirtæki í Reykjavík. -klp- NÝJUNG Á ÍSLANDI TROPICAL AIR PLANTS HITABELTIS SÚREFNISBLÓM Hema sf„ heildverslun. Hverflsgðtu 108, slmsr 26771 - 45664. Volvo 244 DL '82 ekinn 30.000, beinsk. Verð kr. 370.00. Volvo 245 DL '82 ekinn 21.000, beinsk., m/topp- lúgu. Verð kr. 410.000. Volvo 244 GL '81 ekinn 60.000, sjálfsk., m/læstu drifi, plussáklæði. Verð kr. 370.000. Volvo 343 DL '82 ekinn 20.000, beinsk. Verð kr. 280.000. OPIÐ Á LAUGARDÖGUM FRÁ KL. 13-17. VOLVOSAUURINN Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200 Volvo 244 DL '79 ekinn 69.000, beinsk. Verð kr. 260.000. Volvo 244 GL '79 ekinn 104.000, sjálfsk. Verð kr. 250.000. Volvo 245 DL '78 ekinn 65.000, beinsk. Verð kr. 240.000. Volvo 244 DL '78 ekinn 80.000, beinsk. Verð kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.