Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1983, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1983, Blaðsíða 31
DV. FÖSTUDAGUR18. NOVEMBER1983. 39 Úr kvikmyndinni„Húsið"sem nú fær mjög góða dóma og veróiaun eriendis. „Húsið” fær lofsam- lega dóma í Variety Eins og við sögðum frá í blaðinu í vikunni, fékk íslenska kvikmyndin „Húsið” sem gerð er af Saga Film, þrenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni Fantasy Film Festival, sem lauk i Brussel um síðustu helgi. Þarna voru sýndar 43 myndir — allt myndir sem fjalla um dularfulla at- burði — og komust 22 þeirra í keppni um verölaunin sem veitt voru. Voru þessar 22 myndir frá 14 löndum. Athygli vakti, að á þessari hátíð fékk myndin „Kami Kaze 1989”, sem hinn þekkti leikstjóri Wolf Grenn stjórnaði, engin verðlaun. Var þetta mjög umtöl- uð mynd, og þá kannski mest fyrir þaö að þetta var síðasta myndin sem Rainer-Werner Fassbinder lék í. Saga Film sem framleiddi myndina „Húsið” hefur nú gert samning við þýska fyrirtækið Studio Hamburg um dreifingu á myndinni. Er reiknað með að það gangi vel eftir verðlauna- veitinguna um helgina, en engin mynd fékk þar eins mörg verðlaun og hún. Myndin var fyrir skömmu sýnd á sameiginlegri kvikmyndahátíð Noröurlandaþjóðanna í Ástralíu og Nýja Sjálandi. Hlaut hún þar mjög lofsamleg ummæli. Er meöal annars skrifaö um hana í hinu fræga kvikmyndatímariti Variety, sem út kom í síöustu viku, og fær hún þar mjöggóöa dóma. -klp- „Nauðsynlegt að gera ráð fyrir baðhúsi” — segir í at hugasemd f rá rekst rarfélagi Ölf usborga „Þegar hugað var aö framtíðarupp- byggingu staðarins þótti nauðsynlegt að gera ráð fyrir baðhúsi og jafnvel sundaöstöðu, einkum með tilliti til þess að ekki er baöaöstaöa í 22 húsanna á svæðinu, svo og þess hlutverks staöar- ins að vera orlofsstaður.” Svo segir m.a. í orðsendingu rekstrarstjórnar Ölfusborga sem bor- ist hefur DV vegna skrifa blaðsins um baðhúsbyggingu í Ölfusborgum. Segir ennfremur að ákveðið hafi verið að kaupa annað húsið sem verka- lýðsfélögunum í Vestmannaeyjum hafi verið gefið eftir gos, og breyta því í baðhús.Síðan segir: Þann 1. október 1981 geröu arkitektamir Þorvaldur Kristmunds- son og Magnús Guðmundsson nýja kostnaöaráætlun um þær breytingar. Sú áætlun hljóðaði upp á kr. 699.600,- (miöað viö byggingavísitölu í sept. sl. kr. 1.861.574,-). Á aðalfundi í Sam- eignar- og rekstrarfélagi ölfusborga sem haldinn var 27. febrúar 1982 var kynnt tillaga um breytta tilhögun baðhússframkvæmda. Var þar m.a. gert ráð fyrir að flytja baöaöstööu frá þeim stað sem upphaflegar tillögur gerðu ráð fyrir, og að byggja nýtt hús frá grunni. Þessi tillaga fékk ekki hljómgrunn á fundinum, en jafnframt var ákveðið að standa við fyrri ákvörð- un um breytingu hússins og staðarval. I samræmi við það voru framkvæmd- ir loks hafnar í ágúst 1982. Þegar ljóst var að framkvæmdin yrði kostnaðar- samari en ráð haföi verið fyrir gert, m.a. vegna vegðbólgu, var haldinn fundur í fulltrúaráöi rekstrarfélags ölfusborga 9. desember 1982, og leitað eftir afstöðu húseigenda til fram- kvæmdanna í Ijósi hins aukna kostn- aðar. Var þar samþykkt að haldiö skyldi áfram framkvæmdum við gerð baðaðstöðu í ölfusborgum og var stjórninni heimilað að innheimta hjá húseigendum framlög til baðaðstöö- unnar. A fundi í félaginu í febrúar 1983 var síðan ákveöin frekari tilhögun greiðslna frá húseigendum svo að ljúka mætti verkinu. Var framkvæmd- um að mestu lokið í ágúst 1983. Kostnaöurinn við breytingamar var þá orðinn kr. 1.697.000.-skv. upplýsing- um frá Bókhaldstækni. Sú tala gæti breyst til hækkunar við endanlegt upp- gjör framkvæmdanna. Talan 2,5 milljónir kr., sem mikið hefur verið hampaö i blööunum mun vera komin frá Halldóri Bjömssyni en þá tölu gaf hann blaðamanni DV og hafði hann þá í huga kaupverð hússins og kostnað við uppsetningu þess í upphafi. Ástæðan fyrir drætti á þessum framkvæmdum frá 6. mars 1980 til ágúst 1982 er einfaldlega sú að á árinu 1974 komu í ljós gíf urlegar skemmdir á hitaveitukerfi oriofsbyggðarinnar í Ölfusborgum, þannig aö endumýja varð aUar lagnir bæði utan og innan á öUu svæðinu. Framkvæmd þessi stóö yfir rúmlega 2 ár og kostaði þá tugi mUljóna kr. Það fé var fengið að láni hjá lífeyrissjóðum og bönkum aö stærstum hluta. Við þetta komst rekstrarfélagiö í mikinn fjárhagsvanda sem það hefur fyrst á þessu ári komist út úr. Aðalfundur Sameignar- og rekstrarfélags Ölfusborga hefur dreg- ist. Fundurinn hefur nú verið ákveðinn hinn 26. nóvember nk. og verða reUcn- ingar félagsins þá lagðir fram. Næturakstur fyrir Kópa- vogsunglinga — hefst væntanlega með næsta diskókvöldi í Agnarögn Akveðið hefur veriö að Strætis- vagnar Kópa vogs geri tilraun tU þess að reka næturakstur eftir diskókvöld í nýrri félagsmiöstöö í bænum. Agnarögn. Þar kom hins vegar upp drykkjuvandamál fyrir þrem vikum, annað diskókvöldið frá opnun, og var ekkert diskótek síðustu tvær helgar. Búist er við því að ungUngarnir hafi nú áttað sig á þvi, hvaða afleiö- ingar vandamál af þessu tagi geta haft í för með sér og þess vegna verði diskótek aftur jafnvel um næstu helgi. Er þá ætlunin að SVK sendi vagn um allan bæinn eftir diskótekiö, um klukkan hálftvö aðfaranótt laug- ardags. Forstöðumaur SVK, Karl Áma- son, segir það skUyrði af hálfu SVK að fulltrúi útideildar Félagsmála- stofnunar verði meö í förum. Hugmyndir voru uppi um nætur- akstur úr Reykjavík, þegar sem mest bar á KópavogsungUngum á HaUærisplaninu við Aðalstræti. Nú hafa þeir unglingar að mestu flutt sig á skemmtistaðinn D-11 við Smiðju- veg í Kópavogi, svo að ekld er taUn þörf á næturakstri SVK úr Revkja- vík, unglinganna vegna. D-14 hefur svo gamla herrútu I næturakstri um aUt höfuðborgarsvæðið. I samtaUnu við Karl Ámason sagöi hann þaö mjög áríöandi aö góö sam- skipti næðust mUU SVK og ungling- anna, ef næturaksturinn ætti að eiga framtíð fyrir sér. Það væri af nauð- syn að hafa yrði sérstakan gæslu- mann útideUdar með í fömm í þess- ari tUraun, því að dæmi væra um að- súg að vagnstjórum og lögregluað- gerðir þeim til vemdar. HERB Athugasemd frá Landssambandi iðnaðarmanna: Óheillaspor — ef sexmannanefnd ákvarðar veiðskráningu eggja Framkvæmdastjórn Landssam- bands iönaöarmanna hefur sent frá sér athugasemd vegna umræðu þeirrar sem orðið hefur um verð- skráningu á eggjum. Landssambandið samþykkti á fundi í síðasta mánuði að draga full- trúa sinn úr sexmannanefnd ef verð- skráning á eggjum yrði felld undir nefndina eins og rætt hafði verið um í sambandi viö stofnun eggjasamlags. I athugasemd Landssambandsins segir að í framhaldi af þessari sam- þykkt hafi málsvarar Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins og fram- kvæmdanefndar Sambands eggja- framleiðenda drepið umræðunni á dreif og vUjandi eða óvUjandi ekki haldið sig við kjarna málsins. Hafi þeir bendlað stjóm Landssambands- ins við ummæli og skoðanir sem hún hefur aldrei viðhaft. Landssambandið viU því koma eftirfarandi athugasemd á fram- færi: ,díið sanna í þessu máli er á hinn bóginn það að fyrirhugaðri stofn- un eggjadreifingarstöðvar hefur ekki verið mótmælt af hálfu Lands- sambandsins. Stjórn Lands- sambands iðnaöarmanna telur þaö hins vegar óheUlaspor, verði orðið viö kröfum vissra afla þess efnis, að Framleiðsluráð landbúnaðarins, með aðstoð sexmannanefndar, ann- ist verðskráningu aUra eggja á inn- lendum markaði. Eggjafram- leiðendur hafa til þessa ekki notið atbeina Framleiðsluráðs land- búnaðarins og sexmannanefndar við verðlagningu á eggjum. Hefur í þess- ari búgrein rikt samkeppni og hafa risið upp eggjabú sem án ríkisforsjár og styrkja hafa getað boðið egg sín á viðunandi verði, að minnsta kosti miðaö við sumar aðrar landbúnaðar- afurðir. I lögum er svo fyrir mælt að landbúnaðarráöherra geti ákveðið meö reglugerð að Framleiðsluráðið skuli annast verðskráningu á eggj- um, ef eggjaframleiöendur óski þess. Ræður sexmannanefnd engu um þá ákvörðun. I slíkri skipan felst að allir verði að selja egg sín á sama verði, nauðugir vUjugir, og varðar refsingu ef einhver byöi þau á lægra verði en hið opinbera skráða verð segði til um. Skipti engu þótt einstakir eggjaframleiðendur gætu sýnt fram á að tilkostnaður þeirra við framleiðsluna væri aðeins brot af hinu opinbera verði.” Stjórn Landssambandsins bendir á að eggjaverð hafi veruleg áhrif á verð innlendrar kökuframleiðslu og þar með samkeppnishæfni fyrir- tækja í brauð- og kökugerð gagnvart erlendum keppinautum. Hjá fyrir- tækjum í þessari iðngrein starfa nú mUIi 600 til 700 manns. „Þessir aðUar eiga rétt á því að afkomu þeirra sé ekki teflt í tvísýnu,” segir í niðurlagi ithugasemda Landssambandsins. OEF Leiðrétting: Skákáhugamaður skal það vera Guðmundur Búason alþingismaður var sagður mikiU „skákmaður” í við- tali sem birtist í DV á mánudag. Þarna átti að standa „skakáhugamaður”, og er Guðmundur beðinn velvirðingar á þessu. SÝNING laugardag kl. 9—16. Ármúla 20 Fteykjavík Símar 84630 og 84635

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.