Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1983, Síða 19
18
DV. FÖSTUDAGUR18. NÖVEMBER1983.
DV. FÖSTUDAGUR18. NOVEMBER1983.
27
Iþróttig
SnjallirDanirá
afmælismóti
Víkings
íbadminton
í tilefni af 75 ára afmæli Knattspymufé-
lagsins Víkings og 10 ára afmæli badmin-
tondeiidarinnar, gengst deiidin fyrir sér-
stöku afmælismóti um næstu helgi, þ.e.
laugardaginn 19. nóvember og sunnudag-
inn 20. nóvember.
Mótið vcrður haldið í Laugardalshöll og
hefst kl. 13.00 á laugardeginum. Á sunnu-
dcginum fara síðan fram undanúrslít og
úrsiit í öllum flokkum.
Keppt verður í öllum aldursflokkum
unglinga.
Sérstakir gestalcikmenn koma á mótið
frá Danmörku. Eru það dönsku ungUnga-
meistaramir Mortcn Sandal og Henrik
Olsen.
Báðir þessir leikmenn eru þekktir í sínu
heimalandi.
Reiknaö cr með mikiili þátttöku alls
staöaraf landinu.
BjamiogHalldór
sigurvegarar
Þeir Bjarai Friðriksson og Halldór Guð-
björnsson urðu sigurvegarar í þeim
tvcimur flokkum sem keppt var I á
Reykjavíkurmótinu i Júdó. Bjarai sigraði í
þyngri þyngdarflokknum, -f 80 kg, en
Halldór í — 70 kg flokki.
Þátttaka var frekar dræm en margar
góðar glimur sáust á mótinu og greinilcgt
er að júdómenn era í góðri æflngu um
þessar mundir. Úrslit mótsins urðu annars
þessi.
—70 KG. FLOKKUR
1. Halldór Guðbjörnsson
2. Karl Erlingsson
3. Hilmar Jónsson
+80 KG. FLOKKUR
1. Bjarni Friðriksson
2. Kristján Valdimarsson
3. GísiiWium
Júdófélagi R.
Armanni
Ármanni
Ármanni
Ármanni
Armanni
-AA.
Watford kaupir
Enska 1. deildarliðið Watford keypti i
gær Morris Johnson frá Glasgowliðinu
Partick Thistlc fyrir 200 þúsund sterlings-
pund. Mikfll markaskorari og hann mun
leika sinn fyrsta ieik með Watford á iaug-
ardag gegn Man. Utd. á Old Trafford í
Manchester. -hsím
Holte efst í
Danmörku
Michael Berg hjá Holte var í miklum
ham gegn nýliðum HJK í dönsku 1. deildar-
keppninní í handknattleik. Michael fékk að
leika lausum hala ailan timann og skoraði
9/1 mörk i 29—20 sigri Holte.
Fredr. KFUM fékk skeli á heimavelli
sínum á móti Skovbakken. Skovbakken
vann 24—16 eftir að hafa ieitt 14—8 í hálf-
leik.
Holtc hefur nú tekið forystuna í deildar-
keppninni með 8 stig. Gladsaxe hefur
einnig fengið 8 stig úr 5 lcikjum en marka-
tala Holte er betri. -AA
Hefur nefbrotn-
að tólf sinnum
— Phil leikmaður ársins
hjá Liverpool
Það er harka í ensku knattspyrounni — á
henni hefur Chris Nicholl, Grimsby, fengið
að kenna. Þessi norður-irski landsliðsmað-
ur, sem nú er 37 ára og var einn þekktasti
leikmaður Southampton um árabil, befur
nefbrotnað tóif sinnum í knattspyrnuleikj-
um.
Phil Neal, enski landsiiðsbakvörðurinn
hjá Liverpooi, befur verið kjörinn „leik-
maður ársins” hjá Liverpool á siðasta
leiktímabUi af fylgjendum liðsins.
fþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþrótt
íþróttir
íþróttir
fþróttir
ým
.
Atli Hilmarsson á fleygiferð í leik í 1. deildarkeppninni í bandknattleik. Það mun mikið mæða á honum svo og öðrum útileikmönnum FH í leikjunum gegn ísraelska
liðinu Maccaby. -AA/DV-ljósmynd Óskar.
1. deildar-keppnin í sundi um helgina:
Stefnir í tvísýnustu
bikarkeppni síðustu ára
„Það má reikna með að þetta verði
einhver tvísýnasta bikarkeppni i
sundi, sem háð hefur verið og þrjú lið
koma til greina sem sigurvegarar,
Héraðssambandið Skarphéðinn, Ægir
og Akranes. Ég tel að innan við tíu stig
skeri úr um röðina. HSK sigraði í fyrra
eftir langa sigurgöngu Ægis,” sagði
Guðmundur Arnason, ritari Sundsam-
bands íslands, þegar DV ræddi við
hann i gær. Bikarkeppnin í 1. deild
hefst í kvöld i Sundhöllinni kl. 20.00,
síðan verður keppt á laugardag og
sunnudag. Keppnin hefst báða dagana
kl. 15.00. Liö frá fimm félögum keppa í
1. deild, auk þeirra sem áður cru
nefnd, UMF Njarðvík og Sundfélag
Hafnarfjarðar.
Nær alit besta sundfólk landsins
tekur þátt í bikarkeppninni, sem er
stigakeppni milli félaganna. Frá
Svíþjóð koma Tryggvi Helgason,
Selfossi, sem mun sópa inn stigum
fyrir HSK, og Ragnheiður Runólfs-
dóttir, Akranesi. Hún hefur náð prýði-
legum árangri í Svíþjóð og má búast
við m jög harðri keppni milli hennar og
Guörúnar Femu Ágústsdóttur í bringu-
sundi. Þá kemur Kristín Guðmunds-
dóttir frá Danmörku og styrkir lið
Ægis vel.
Guörún Fema verður mjög í sviðs-
ljósinu. Hún fær ekki aðeins harða
keppni frá Ragnheiöi í bringusundinu
heldur einnig frá Bryndísi Olafsdóttur
frá Þorlákshöfn — eins sterkasta
/Í
Guðmundur
Haraldsson
sá besti
Guðmundur Haraldsson knatt-
spymudómari var valinn besti dóm-
ari 1. deildarkeppninnar árið 1983.
Er þetta þriðja árið í röð sem
Guðmundur verður aðnjótandi
þeirrar viðurkenningar. 1 öðru sæti
varð Sævar Sigurðsson og Grétar
Norðfjörð í þriðja sæti. Gísli
Guðmundsson var valinn besti
dómari 2. deildar en Sæmundur
Víglundsson varð í öðru sæti. Á
myndinni hér að ofan eru talið frá
vinstri Sæmundur Vígiundsson,
Grétar Norðfjörð, Guðmundur
Haraldsson, Sævar Sigurðsson og
Ómar Kristjánsson, forstjóri Þýsk-
Qenska versiunarféiagsins, en það
sá um keppnina og veitti verðlaun.
DVJjósmynd Óskar öra Jónsson.
Mikið er í húfi fyrir
íslenskan handknattleik
— segir Atli Hilmarsson um leiki FH á móti Maccaby. Fyrri leikurinn í kvöld í Laugardalshöll
„Ef við náum að sýna jafn góða leiki
gegn Maccaby og við höfum sýnt til
þessa í 1. deildarkeppninni, þá eigum
við góða möguleika á að komast í 8-liða
úrslit IHF Evrópukeppninnar. Það er
vissulega mikill hagur fyrir okkur að
leika báða leikina hér á landi og ég á
' ekki von á öðru en að áhorfendur f jöl-
menni á þessa leiki þar sem hér er um
alvöruleiki að ræða og mikið er í húfi
fyrir islenskan handknattleik,” sagði
Atll Hilmarsson, handknattleiks-
maðurinn snjalli í FH, en hann leikur
sinn fyrsta Evrópuleik í kvöld.
Ég hef ekki tapað stigi með FH
hingað til og ég sé enga ástæðu til aö
nokkur breyting verði þar á um
helgina. Aöall FH-liðsins og það sem
fært hefur liðinu velgengni á þessu
leiktímabili er fyrst og fremst frábær
samstaða og góður andi. Við eigum
einnig sterka einstaklinga í öllum stöö-
um sem ná vel saman og ekki skiptir
máli þó einhverjir eigi slakan dag,
aðrir taka þá við. Breiddin er mikil.
Öll stjórnun innan sem utan vallar er
til fyrirmyndar og þjálfarinn er góður.
Allir þessir þættir eru nauðsynlegir til
að lið geti náð góðum árangri og það er
virkilega gaman að starfa með jafn
’metnaðargjömum hópi manna. Mér
líst því vel á þessa leiki við Israels-
menn þó að þær upplýsingar sem
okkur hafa borist varðandi liðið séu
litlar.
Atli Hilmarsson hefur leikið 23 lands-
leiki fyrir Islands hönd og er nú í lands-
liðshóp Bogdans Kowalczyk landsliðs-
þjálfara. Síðustu tvö árin lék Atli með
v-þýska liðinu Vfl Hameln og átti
stóran þátt í að liöiö vann sér þátttöku-
rétt í 2. deildinni v-þýsku á þessu
keppnistímabili. Nú eftir dvölina ytra
væri gaman að heyra áiit Atla á hand-
knattleiknum hér heima.
„Ég get ekki sagt annað en að ég hef
orðið fyrir vonbrigðum með leik
liðanna í 1. deildinni til þessa. Reyndar
hafa margir snjallir leikmenn horfið af
sjónarsviöinu og það hefur sitt að
segja. Leikmenn eins og Þorbergur
Aöalsteinsson, Aifreö Gíslason, Ámi
Indriðason, Olafur Jónsson og Olafur
H. Jónsson spila ekki lengur í 1. deild-
inni' og það munar mikiö um slíka
menn hjá okkur þar sem breiddin er
ekki mjög mikil. Ég á mér þó þá von að
liö eins og Víkingur og Valur eöa
Stjaman fari aö rétta úr kútnum og
sýna sitt rétta andlit. Við það veröur
handboltinn skemmtilegri og áhorf-
endur láta þá ekki sitt eftir liggja.”
-AA.
Siggi Grétars leyfis-
laus í Vestur-Berlín
þýsku blöðin segja að Breiðablik vilji fá peninga fyrir hann
Því var slegið upp í v-þýsku press-
unni í Berlín að íslenski landsliðs-
maðurinn Sigurður Grétarsson fengi
ekki leyfi frá Breiðabliki á íslandi til
að leika með Tennis Borussia Berlín.
Það sem á stendur munu vera peninga-
viðskipti sem félögunum hefur ekki
tekist að semja um enn. Sagt er að
Breiðablik fari fram á háa peninga-
upphæð sér til handa og að Sigurður
leiki með Bcriín sem lánsmaður í
vetur.
„Við i stjórn knattspymudeildar
Breiðabliks erum að bíða eftir KSI-
plaggi undirrituðu að utan og þegar
það hefur borist munum við taka málið
fyrir. Ég get ekki sagt um það og þaö
hefur ekkert verið rætt um slíkt hjá
okkur að peningar komi inn i myndina
varðandi leyfið til Sigurðar. Við bíðum
eftir áöumefndu plaggi og sjáum svo
til,” sagði Kristján G. Þorvalds, vara-
formaður knattspymudeildar Breiða-
bliks í gær, aðspurður um þetta mál.
tromps HSK-liðsins. Þá verða kepp-
endur eins og Ingi Þór Jónsson, sá fjöl-
hæfi sundmaður frá Akranesi, Eðvarð
Eðvarðsson, Njarðvík, Guðbjörg
Bjarnadóttir, HSK, og Olafur Einars-
son, Ægi, meðai keppenda. Jóhann
Björnsson, hinn ágæti sundmaður, sem
keppt hefur fyrir Keflavík, verður nú í
liöi Njarðvíkur.
Þær reglur eru nú að hver keppandi
má ekki keppa nema í fjórum greinum
en hér á árum áður var það oft svo að
keppendur voru varla komnir upp úr
lauginni eftir keppni að þeir þurftu að
stinga sér tii sunds í næstu grein. Þetta
gerir það að verkum að þeir fjöl-
hæfustu verða að velja og hafna.
Þannig keppir Ingi Þór ekki í baksundi
í bikarkeppninni og fleiri hafa orðið að
velja á milli greina. hsím.
Ánægjulegt
og spennandi
— segir Atli Eðvaldsson um samning
sinn viðPuma
„Það er spuraingarmerki hveraig
þetta þróast en það er gaman og spenn-
andi að standa í þessu. Forsagan á
þessum samningi minum við Puma-
fyrirtækið er sú að í vor hafði ég í
hyggju að yfirgefa Fortuna Diisseldorf
og gerast ieikmaður i Frakklandi en
forseti félagsins, Bruno Recht, kvaðst
geta gert eitt og annað fyrir mig og
meðal annars var þessi samningur
sem ég er mjög ánægður með,” sagði
Atli Eðvaldsson knattspyraumaður, en
hann er staddur hér á landi ásamt
Bernd Altmann, auglýsinga- og
markaðsstjóra Puma í Vestur-Þýska-
landi, til að kynna þær íþróttavörur
sem Puma framleiður og munu bera
■ if.nvi«>.. .
nafn Atla Eðvaldssonar.
Það er auðvitað mikill heiður fyrir
hvern íþróttamann að framleiðendur á
íþróttavörum hafi áhuga á aö gera sér-
samning við þá. Það eru eingöngu
sérstakir hæfileikamenn sem verða
þess aðnjótandi.
Fyrst um sinn munu íþróttavörur
þessar, sem eru knattspyrnuskór,
hiaupa- og joggingskór og íþrótta-
gallar, eingöngu verða á boðstólum á
markaönum hér heima. Ef velgengni
Atla í V-Þýskalandi verður hins vegar
jafnmikil í framtíðinni og hingað tii er
jafnvel hugsanlegt aö setja vörumar
einnig á markaðinn þar í landi.
-AA
Sigurður Grétarsson, hvítklæddur fremstur á myudinni, í iandsleik.
Góður sigur Laugdæla
Laugdælir unnu góðan sigur á Grindavík í
Keflavik i gærkvöldi en liðin léku í 1. deild
ísiandsmótsins í körfuknattlcik. Lokatölur
72-67 UMFLíhag.
Laugdælir voru sex stigum yfir í lcikhléi og
náðn 17 stigaforskoti í síðari hálfleik en þegar
sex minútur voru til leiksloks var munurinn
aðeins eitt stig. Ólafur Jóhaunsson skoraði
mcst fyrir UMFG eða 24 stig en Eyjólfur
Guðlaugsson 14, ÖU i fyrri hálfleik.
Unnar Vilhjálmsson var stigahæstur hjá
UMFL en ekki tókst okkur að fá uppgefið skor
hans þrátt fyrir itrekaðar tllraunir.
-sk.
Jft
Mikill klaufaskapur í
Kennaraháskólanum
— þegar ÍS vann UMFS 80-54 í körfu
**>.■-**■ ■■
■’ 'á-ar'
W
Atli Eðvaldsson fyrir miðju á blaðamannafundi sem umboðsaðili Puma á íslandi,
Sportvöruverslun Ingóifs Úskarssonar hélt. T.v. er Ingólfur Öskarsson umboðs-
aðili og t.h. við Atla situr Bernd Altmann, auglýsinga- og markaðsstjóri Puma í V-
Þýskalandi. DV-ljósmynd Úskar örn Jónsson.
I einhverjum lélegasta körfubolta-
leik sem undirritaður hefur séð um
dagana náðu lélegir stúdentar að sigra
botnliðið i 1. deild, Borgarnes, í
íþróttahúsi Kennaraháskólans með 80
stigum gegn 54. Staðan í leikhléi var
40—31ÍSívil.
Leikurinn í heild var dæmi um það
hvernig á ekki að leika körfuknattleik.
Hryllilega ljót mistök beggja liða út
allan leikinn og áhorfendumir tveir, ég
og kona ein á áhorfendastæöunum,
höföu lítið gaman af.
Guðmundur Jóhannesson skoraði
mest fyrir IS eða 24 stig og er mér það
hulin ráögáta hvemig hann fór að því.
Lélegasti leikur piltsins í langan tíma.
Besti maður IS var Ágúst Jóhannesson
og skoraði hann 15 stig. Árni og
Kristinn léku ekki með IS en það er
engin afsökun fyrir lélegum leik
liðsins.
Hjá Borgnesingum var meðal-
mennskan alsráðandi en þeir Haf-
steinn Þórisson, Björn Indriðason og
Jón Pálsson þó bestu menn ef hægt er
aö nota slíkt orð. Björn og Hafsteinn
skoruðu 16 stig en Jón 11.1 liðið vantaði
Guðmund Guðmundsson og Hans
Egilsson. Guðmundur að virma en
Hans lét ekki sjá sig.
-SK.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþrótti.
íþrótt
íþróttir
Island vann
í góðum leik
-gegnUSAÍ
kvennahandknattleik
tsland vann Bandaríkjamenn 23—22 í
hörkuspennandi og skemmtiiegum lands-
’leik liðanna í kvennahandknattleik. Loka-
kafli leiksins var æsispennandi en íslensku
stúikunum tókst að halda forystunni til
ieiksioka.
Island leiddi 11—9i hálfleik og var 2 til 3
mörk yfir mestan hluta þess seinni.
Islensku stúlkurnar léku góðan handknatt-
leik og skemmtu f jölmörgum áhorfendum
í Seljaskóla mikið. Það er enginn vafi á að
við höfum sterku kvennalandsiiði á aö
skipa og ef taka á mið af ieiknum i gær-
kvöldi þá veröur enginn svikinn af að sjá
tvo leiki sem eftir eru í heimsókn Banda-
ríkjamanna. Bandaríkjamenn hafa tekið
stórstigum framförum og áttu íslensku
stúlkurnar oft í erfiðleikum með að hemja
langskytturþeirra.
Erla Rafnsdóttir bar af í íslenska liðinu
en einnig léku þær Guðríður Guðjónsdóttir
og Erna Lúðvíksdóttir vel.
Mörk Islands skoruðu: Guöríöur
Guðjónsdóttir 8/4, Erla Rafnsdóttir 6,
Erna Lúðvíksdóttir 4, Kristín Pétursdóttir
2, Ingunn Bernódusdóttir 2 og Margrét
Theodórsdóttir 1.
Polverjinn var
Kolbotn erfiður
— Belgíska liðið Neerpelt
vannKolbotn 20-15
Norska melstaraliðið í handknattleikn-
um, Kolbotn, sem sigraði tsiandsmeistara
Víkings í fyrstu umferð Evrópukeppnl
meistaraiiða, tapaði fyrri leik sinum í 2.
umferð með fimm marka mun. Það var í
Beigíu gegn Belgíumeisturum Sporting
Neerpelt, sem sigraði með 26—15. Kolbotn-
iiðið var talsvert frá sínu besta og réð lítið
við Pólverjann Wilonowski í Uði Neerpelt.
Hann átti stórleik, dreif samherja sína
áfram og skoraði sjálfur sex mörk. Lars
Chr. Haneborg var iangbesti leikmaður
Kolbotn. Skoraði nær öU mörk norska liðs-
lns eða tíu. Fjögur úr vitaköstum. Runar
og Vidar Bauer skoruðu tvö mörk bvor,
Svein Ivar Storkás eitt. hsim
lan Rush mark-
hæsturá
Englandi
Ian Rush, miðherji Liverpool, er mark-
hæstur i 1. deUd með 15 mörk. Siðan kom
Petcr Withe, Aston Villa, 13, Steve Archi-
baid, Tottenham, og Tony Woodcock,
Arsenai, með 12. í 2. deild er Dixon,
Chelsea, markhæstur með 15 mörk,
Parlane, Man. City, 13, Garner, Biackburn
12, og Hateley, Portsmouth, 11. í 3. deild
er Caldwell, Bolton, markhæstur með 15
mörk, Cork, Wimbledon, 14, og Edwards,
Sbeff. Utd. 12. -hsím
Þau keppa á NM
Fjórir tslendingar taka þátt í meistara-
móti Norðurlanda i badminton, sem hefst í
Helsinki í kvöld og lýkur á sunnudag.
Keppendur íslands f óru utan í gærmorgun.
Keppendur á mótinu verða 30 — aUt besta
badmintonfólkNorðurlanda. -hsím
Keppendur Islands á NM í Helsinki. Frá
vinstri Þorsteinn PáU Hængsson, Þórdis
Edwald, Kristin Magnúsdóttir, Broddi
Kristjánsson og Sigurður Kolbeinsson far-
arstjóri.
Iþróttir
(þróttir
iþróttir