Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Page 24
24 DV. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER1983. Manson borvél Hverju heimili er nauósynlegt aö eiga borvél. Þess vegna er Manson borvél einmitt heppileg jólagjöf handa eiginmanninum. Manson borvél fæst í Byggingavörudeild Sambandsins að Suðurlandsbraut 32 og kostar 5.395 kr. Manson er sænskur höggbor með rafeindastýrðum rofa og hraöastillingu. Hann er 620 vött og snýst 1775-2350 snúninga á mínútu. Vatnsnudd- haus f rá Damixa Byggingavörudeild Sam- bandsins að Suðurlands- braut 32 býður hin góðu frá Damixa, til dæm- is þennan vatnsnuddshaus sem hægt er að fá í þrem- ur útfærslum. Stakur haus kostar 944 kr., með krók 1.057,20 kr. og með stöng 1.532,60 kr. Baðvogir Eldhúsvogir í mörgum stærðum Fuglabúr í úrvali í Dýraríki, Hverfisgötu, er mikið úrval af fuglabúrum, hvort sem þú vilt lítið eða stórt. Nú fyrir jólin verða þeir í Dýraríki með sérstök jólatilboösverö á dýrabúrum og fylgja þá með í kaupunum allir þeir hlutir sem í góðu búri eiga að vera auk matarins. Jafnvel er hægt að fá dýrin líka. Veröið er frá 1.700 krónum. Einnig fæst úrval af jólafötum á poodlehunda. Það er alltaf gott að eiga góöa baðvog. Þeir hjá Byggingavörudeild Sambandsins að Suöurlandsbraut 32 státa af því að eiga mesta úrval bæjarins af baðvogum, hvort heldur sem er tölvustýrða eða venjulega. Baðvogir er hægt aö fá frá 349 kr. Fúin fura Nú er farið að gera fallegustu hluti úr furu sem hefur aðeins fengið að fúna. Þessir hlutir hafa gert stormandi lukku um allan heim og eru nú komnir hingaö í gjafavöruverslunina Hnoss, Dalshrauni 13. Osta- eða pizzubakkar kosta 295 og 379 krónur, bakki með salt- og pipar- staukum og krús með skeið 495 kr„ bakki með tveimur leirskálum og tveimur hnífum 821 kr.,. ostakúpa og salatskál — hvort sem þú vilt heldur þá snýrðu bara settinu viö —1.195 kr. og salatgaffalsett 295 kr. Opnunartími Hnoss er á laugardögum frá 10—17, sunnudögum frá 13— 17 og alla vírka daga frá 9—6. Sænskt keramik í versluninni Hnoss, Dalshrauni 13, er geysilega mikið úrval af fallegu sænsku kera- miki í bleiku og bláu. Þessir keramikhlutir sem eru á myndinni eru fáanlegir í bleiku og verðið er: skál 996 kr„ vasi 515 kr„ kertastjaki 515 kr„ grísir 947 kr„ fuglar 515 kr. og bambi 842 kr. Byggingavörudeild Sambandsns að Suðurlandsbraut 32 hefur ekki aðeins úrval af baðvogum. Eldhúsvogirnar eru einnig í fjöl- breyttu úrvali, tölvustýröar, venjulegar, óvenjulegar og alla vega — jafnvel sér- hannaðar litlar vogir fyrir þá sem þurfa að vigta hvert gramm ofan í sig — hentugt fyrir þá sem eru í megrun. Vogirnar kosta frá 449,45—1.103,55 kr. Litla megrunarvigtin kostar 236,45 kr. Scandecor plakötin heimsfrægu í Myndinni, Dalshrauni 13 í Hafnarfiröi, færöu yfir sextíu mismunandi geröir af Scandecor plakötunum heimsfrægu. Stærðin 42X59 er vinsæl jólagjöf og kostar aðeins 75 krónur. Álrammi í sömu stærð kostar 580 kr. og smellurammi í sömu stærð 284 kr. í Myndinni er opið á laugardögum frá 10—17 og á sunnu- dögum frá 13—17 auk allra virkra daga frá 9— 6. Síminn er 54171 FURUHILLUR^ Útsötustablr: REYKJAVlK: JL-Husið húsoagnadeild, Liturinn Slðumúla 15. KÓPAVOGUR: Byko Nýbýlavegi 6, HAFNARFJÖRÐUR: Málur Reykjavlkurvegl 10, KEFLAVlK: Dropinn, AKRANES: Verslunin Biarg, BORGARNES: K.B. Borgamesi, HELLISSANDUR: K.B., ÖLAFSVlK: Verslunln Lára, STYKKISHÖLMUR: Húsið, PATREKSFJÖRÐUR: Rafbúð Jðnasar, BOLUNGARVlK: Jðn Fr. Einarsson, ISAFJÖRDUR: Húsgagnaverslun Isafjarðar, HVAMMSTANGI: Versl. Sig. Pálmas., BLÖNDUÖS: Kaupfélag Húnvetninga, SAUDARKRÓKUR: Hátún, SIGLUFJÓRDUR: Bðlsturgerðin, ÖLAFSFJÖRÐUR: Versl. Valberg, DALVlK: Versl. Sogn, AKUREYRI: Grýtan Sunnuhllð, HÚSAVlK: Kaupfélag Þlngeyinga, EGILSSTAÐIR: Verslunarfélag Austurlands, SEYÐISFJÖRDUR: Versl. Dröfn, NESKAUPSTAÐUR: Nesval, REYÐARFJÖRÐUR: Lykill, FASKRÚÐSFJÖRÐUR: Versf. Pðr, VlK, Kaupféiag V-Skaftfelling, VESTMANNAEYJAR: Porvaldur og Einar, SELFOSS: Vöruhús K.A. Jólagjöf gæludýranna Dýraríki, Hverfisgötu, hefur bæði lifandi dýr í búöinni til sölu og einnig allt sem þarf handa gæludýrunum. Að sjálfsögðu mega heimilis- dýrin ekki gleymast um jólin og þess vegna býður Dýraríki upp á sérstakan jólaglaöning handa þeim, svo sem jólasokka sem sér- staklega eru útbúnir handa hverju dýri, hvort sem það eru hundur, köttur, fuglar, hamstrar eða önnur dýr. í jólagjöf dýranna er ýmislegt góðgæti. Klukkuljós í versluninni Rafkaup, Suöurlandsbraut 4, er geysilega fjölbreytt úrval af fallegum og vönduöum lömpum, til dæmis þessi á myndinni, en það er Ijós með vekjaraklukku á 1.420 kr. Án klukkunnar kostar hann 1.035 kr. Þá fást einnig þessir skrifboröslampar sem eru með statífi fyrir blöð, penna, bréfaklemmur og fleira smádót á 996 krónur. Allir þessir lampar eru fáanlegir í mörgum litum. Allar gerðir af römmum í Myndinni, Dalshrauni 13, er ótrúlegt úrval af römmum; álrömmum, smellurömmum og fleiri tegundum. Álrammi af stærðinni 20X25 koxtar 270 krónur og smellurammi, 18X24, kostar 76 krónur. í þessa ramma er hægt að fá yfir tvö hundruð mismunandi gerðir af vinsælum kortum frá Scandecor á aðeins 22 kr. stk. í Myndinni er opið alla virka daga frá kl. 9—6, á laugardögum frá 10—17 og sunnudögum frá 13—17.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.