Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Blaðsíða 32
32
DV. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER1963.
Glæsilegt púnssett
Furubær í Ingólfsstræti 6 er lítil búö sem leynir
á sér. Þar er hægt aö fá fjölbreytt úrval af
margs konar gjafavöru hvort sem hún á aö
vera agnarlítil eða stór. í Furubæ fæst þetta
glæsilega púnssett sem samanstendur af púns-
skál með skeiö og loki og sex glösum. Settið
kostar 3.000 kr. en hvern hlut má einnig fá
stakan.
Frá Giorgio Armani
Þessar glæsilegu vörur eru allar frá hinum
þekkta franska tfskukóngi Giorgio Armani.
Hér er um aö ræöa mjög gott ilmvatn og sápur
meö heimsþekktu nafni, gjöf sem gleöur
marga konuna. Armanilfnan fæst í snyrtivöru-
versluninni Brá aö Laugavegi 74 og kosta ilm-
vötnin frá 670 krónum til 1.120. Sápan er á
aðeins 158krónur.
Jólaskórnir í Ölmu
Skóverslunin Alma, Laugavegi 46, hefur mikið
úrval af dömu- og herraskóm, bæöi spariskóm,
hversdagsskóm og kuldaskóm. Skórnir eru líka
á mjög góðu veröi, eins og þessir á myndinni,
en það eru .leöurkvenskór á 885 krónur og
leðurherraskór á 840 krónur.
Skór í jólapakkann
Þaö er alltaf gott aö fá nytsama jólagjöf. Skór
eru góö gjöf og örugglega vel þegnir af þeim
sem opna pakkann. Verslunin Skósel, Lauga-
vegi 60, hefur á boöstólum mikiö úrval af
fallegum og vönduöum skóm í jólapakkann,
hvort sem þaö eru svört leðurstígvél, sem allar
konur vilja þessa dagana, eöa góöir og fallegir
spariskór. Skósel sendir í póstkröfu um allt
land og sfminn er 21270.
Handunnar leðurvörur
í Leðurverki
Verslunin Leðurverk, Skólavöröustíg 17 a,
býöur upp á mikiö úrval af vönduðum,
íslenskum, handunnum leðurvörum. Má þar
nefna töskur, belti, bindi, buddur, lampa,
lyklakippur og hárspennur, svo eitthvaö sé
nefnt. Þessi vinsælu breiöu belti, eins og þau á
myndinni, eru til frá 200-2.000 kr. Leöurpokar
kosta 1.750 krónur.
Verslunin Bonný, Laugavegi 35, hefur á
boöstólum mikið úrval af hentugum og
skemmtilegum gjafavörum fyrir dömuna á
hagstæöu verði. Má þar nefna litlar leðurtöskur
sem gera stormandi lukku þessa dagana á 352
og 826 kr. Fjölbreytt úrval af beltum kostar
frá 136 kr., húfur, treflar og vettlingar í settum
á 365 kr., auk allra snyrtivaranna og gjafa-
kassanna. Á myndinni er t.d ilmvatn frá Max
Factor á 360 krónur, taska meö bodykremi,
sápu og baöolfu á 398 krónur og þannig mætti
lengi telja.
Hinn sígildi
Fálki
Listvinahúsið, Skóla-
vörðustíg 43, selur ýmsar
skemmtilegar gjafavörur.
Má þar nefna t.d. kera-
mikfálkann eftir Guö-
mund frá Miödal sem svo
margir þekkja. Fálkann
er hægt aö fá 45 cm háan
og kostar hann aöeins
2.500 krónur. Er þaö góö
og ódýr gjöf fyrir vini bæöi
innanlands og utan. Auk
fálkans góöa selur List-
vinahúsið fjölbreytt úrval
af vörum sem henta vel til
gjafa sem senda á til út-
landa.
Myndarammar við allra hæfi
Hjá versluninni Amatör, Laugavegi 82, er úr-
valiö af myndarömmum hreint ótrúlegt hvort
sem þú leitar eftir trérömmum eöa
smellurömmum. Smellurammarnir eru t.d. til
í 35 stæröum, hvorki meira né minna, og
ramma er hægt aö fá í Amatör fyrir 63 krónur
eöa meira. Þá er þar einnig mikið úrval af
myndaalbúmum sem alltaf eru vinsælar jóla-
gjafir og koma sér vel. Hægt er að fá lítil eöa
stór albúm frá 70 krónum upp í 600 krónur.
Hvað er klukkan?
Þú spyröir ekki slíkrar spurningar ef þú værir
kominn í verslunina hjá Hermanni Jónssyni í
Veltusundi 3b. Þar er nefnilega frábært úrval
af öllum mögulegum geröum af úrum og
klukkum auk allra skartgripanna, til dæmis
þessi Citizen kven- og karlmannsúr á myndinni
en þau kosta frá 1.795 upp í 6.800 krónur.
Húfur, lúffur og inniskór
Hér eru á myndinni hlutir sem verma vel í
kuldabolanum en þaö eru skór fyrir stóra sem
smáa, húfur og lúffur úr íslensku gærunni.
Húfur kosta frá 472—530 kr., lúffur frá 370—
480 kr. og skór frá 322—540 krónum. Allar
þessar hlýju og góöu gjafir fást í versluninni
Framtíðinni, Laugavegi 45. Munið kreditkorta-
þjónustuna.
Peysa, húfa
og legghlífar
Þetta fallega prjónasett
sem samanstendur af
peysu, húfu og legghlífum
er unnið úr íslensku ullinni
og er fáanlegt í mis-
munandi litum og
munstrum hjá versluninni
Framtíöinni aö Laugavegi
45. Settið fæst í fimm
stærðum og er hægt aö fá
allt saman á kr. 1155 eöa
allt stakt. Peysan kostar
755 krónur, legghlífarnar
265 krónur og húfan 135
krónur. Verslunin Fram-
tíöin er meö kreditkorta-
þjónustu.
Glösá
góðu verði
Þeir hjá Álafossi bjóða
upp á fleira en íslensku ull-
ina og vörur unnar úr
henni. í Álafossi er mikiö
úrval af vönduðum postu-
línsvörum. Þá eru þýsku
glösin, eins og þau á
myndinni, mjög vinsæl.
Glösin er hægt aö fá í
mörgum stæröum. Þessi
á myndinni kosta 60 kr., 76
kr. og 97 kr. og vínflaskan
í stfl kostar 1.495 krónur.