Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1983, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1983, Blaðsíða 4
; Mikil kirkju- sóknyfir jólahátíðina Kirkjusókn var meö mesta móti yfir jólahátíöina. Aösóknin aö miönætur- messu í Hallgrímskirkju á aöfangadag var svo mikil aö fjöldi manns varö frá aö hverfa og var þó setið í hverju homi, aö sögn Bemharðs Guðmunds- sonar, fréttafulltrúa Þjóðkirkjunnar. Voru dæmi þess að fólk kæmi þremur stundarfjórðungum fyrr til aö tryggja sér sæti undir messunni. Séra Sigur- björn Einarsson biskup prédikaði og Mótettukórinn söng. Aö sögn séra Bernharðs var mjög almennt aö fólk setti friöarljós út í glugga klukkan níu á aöfangadags- kvöld. Sagöist hann hafa heyrt að víöa úti á landi heföi veriö kerti í glugga á hverju húsi. Heföi þátttakan veriö mun meiri núna en á síöasta ári þegar bisk- upinn innleiddi þennan sið í fyrsta sinn. Séra Bernharður sagöi aö á að- ventunni heföi þaö komið í ljós aö eftir- sókn eftir boðskap jólanna væri að aukast. Nú væru enda aö komast upp ýmsar skemmtilegar heföir sem settu jólahátíöina í stærra samhengi. Nefndi hann sem dæmi friðarblysför sem farin var niöur Laugaveg á Þorláks- messu, þar sem kórar sungu en engin kröfuspjöld voru höfö uppi. Blysfarir voru einnig farnar á Egilsstööum og á Húsavík í tengslum viö söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar. Þá voru kirkjur víöa opnar til aö taka á móti framlögum til söfnunarinnar og var þar veitt kaffi. Söfnun Hjálparstofnun- arinnar mun nú þegar vera oröin ein stærsta söfnun sem farið hefur fram hér á landi en framlög munu nú vera komin á 12. milljón króna. ÖEF Séra Sigurbjörn Einarsson biskup messaði i miðnæturmessu i Hallgrims- kirkju á aðfangadagskvöld. DV. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER1983. / Kristskirkju var miðnæturmessa á aðfangadagskvöld. Til vinstri við altarið situr Hinrik Frehen, kaþólski biskupinn yfir íslandi. DV-myndir EÓ. I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari dauðþreyttur og fimm kílóum þyngri. Hversdagsleikmn tekur aftur við. Euda þótt mörgum finnist jólahald heldur snubbótt, þegar ekki fæst út úr því nema einn frídagur extra, þá má ekki gleyma hinu að jólin hafa margvíslega praktíska þýðingu. Allt frá því í nóvember geta menn slegið vandamálum og verkefnum á frest í nafni jólanna, og satt að segja er ekki hægt að byggja á neinu sem máli skiptir fyrr en eftir jól. Nú eru þau að vísu afstaðin en allir vita aö vikan milli jóla og nýárs er líka góð tU fyrirsláttar. Þá eru menn ýmist að jafna sig eftir jólaátið eða undirbúa sig fyrir nýársdrykkjuna, og þannig geta tunguliprir letingjar og ráðvandir skuldakóngar slegið sér frest fram á nýtt ár í anda gleði- legra jóla og farsæls komandi árs. Og ef einhverjum skyldi nú detta í hug að spyrja hvar jesúbarnið sé í öUu þessu umstangi, þá í guðanna bænum ekki færa það í tal fyrr en seinna. Ekki vekja pabba, ekki pirra börnin, ekki trufla mömmu við upp- vaskið. AUir eiga jú að vera góðir á jólunum. Dagfari. Ekki eru jólin fyrr gengin í garð en þau eru yfirstaðin. Maturinn gleypt- ur á nokkrum mínútum, gjafirnar rifnar upp á augabragði, jólatréð hrunið. Húsmóðirin er að niðurlotum komin eftir eldamennsku og uppvask og húsbóndinn leggst upp í dívan og ropar. Börnin dansa til málamynda í kringum jólatréð og úrvinda fjöl- skyldur æðibunast á milli ættingja meðan organdi grislingar rífast um jólagjafir án þess að hafa hugmynd um hver hafi gefið þær. Allir hamast semsagt við að vera góðir við sjálfa sig og aðra og eru því fegnastir þegar öllu þessu er aflokiö. Fréttir berast af trúarlegum sprengjutilræðum í fæðingarlandi frelsarans og írski lýðveldisherinn minnir á málstað kaþólskra, meö huggulegum jólasprengjum í mann- þrönginni í London. í Beirút brjótast út bardagar í takt við jólastemmninguna, án þess að nokkur taki eftir því að ráöi, enda flytur útvarpið þser fréttir að jólin hafi farið fram með allra friðsamieg- asta móti. Hátíðarblær hefur verið yfir öllu jólahaldi í hinum ýmsu byggðarlögum landsins og engra kirkjumuna er saknað úr guðshús- JÓLASTEMMNINGIN um, þrátt fyrir mikla kirkjusókn. Prestarnir í Hallgrímskirkju blessuðu sína endurheimtu kirkju- muni, þakklátir fyrir þá guðsforsjón að derrickar finnast hér á landi enn. Má jafnvel halda því fram að Derrick hafi nærri stolið senunni frá Drottni, þangað til jólin skullu yfir. En þar sem hvergi er minnst á þann fyrrnefnda i jólaguðspjallinu tókst okkur eins og endranær að halda upp á fæðingu frelsarans án teljandi af- skipta rannsóknarlögreglumanna. Og þar sem ekki á að hafa nafn Guðs að hégóma, skal tekið fram aö derrickarnir, sem komu með þýfið endurheimt . í Hallgrímskirkju á aðventunni eiga þakkir skildar fyrir vasklega framgöngu. Síbrotamenn- irnir stóðust þeim ekki snúning frek- ar en fyrri daginn og má lögreglan reyndar vera þeim þakklát fyrir að hafa stolið kirkjumununum. Það hefðu jú getaö verið einhverjir aðr- ir, og þá væri tómlegra um að íitast í Hallgrímskirkju á þessum jólum. Þannig hefur mannabyggð og mannkyn getað haldið upp ó heilög 'ól, hvcr eftir sínu höfði, - r áftur c . raaður veit af, verður hver að mæta >. il vinuu á nýjan leik, útkeyrónr og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.