Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1983, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1983, Blaðsíða 6
Rakarastofan Klapparstíg Sími 12725 Hárgreiðslustofan Klapparstíg Tímapantanir 13010 RYÐVÖRN sf. SMIÐSHÖFÐA 1, S. 30945 Orösending til bifreiðaeigenda: Eigendur bifreiða úrg. '81 og eldri; vinsamlegast hugið að endurryðvörninni. Það er mesti sparnaðurinn. ttHr RYÐVÖRN MIKIÐ ÚRVAL aTI PRJÚNAGARNI. 1 Mikið úrval af bóní- ullargarni og alullar- garni AUK ÞESS MIKIÐ URVAL AF PRJÓNUM, SMÁVÖRUM TILBÚNUM DÚKUM 0G SMYRNA. TÍSKUGARN, VENJULEGT GARN HVERGI MEIRA ÚRVAL. SJÓN ER SÖGU RÍKARí PÓSTSENDUM DA GLEGA . HOF I - INGÓLFSSTRÆT11 Sími 16764 ppor crniCTiv/rrTO'TTrr rp crtir^ * rr\ tr 'rr'T-r 'trr DV. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER1983. Þetta er fyrsta einbýllshúsið sem byggt er úr steinsteyptum einingum, framleiddum á Austfjörðum. Eigandi bússins er Hreinn Halldórsson, fyrrum kúluvarpari, sem nú býr á EgUsstöðum. DV-mynd Einar Rafn HaraldsSon. Egilsstaðir: Framleiðsla hafin á stein- steyptum einingahúsum Byggingafyrirtækið Brúnás á Egils- stöðum hefur hafið framleiðslu á stein- steyptum einingahúsum. Framleiðslan hófst í haust og er því enn á byrjunarstigi. Nú þegar hefur fyrirtækið byggt eitt fjós og verið er að leggja síöustu hönd á smíði einbýlis- húss fyrir Hrein Halldórsson, Stranda- manninn sterka. Ragnar Jóhannsson, skrifstofustjóri Brúnáss, sagði í samtali við DV aö enn færi starfsemi þessi fram úti undir beru lofti. öll tæki væru hins vegar komin og meiningin væri að reisa verk- smiðjuhús úr einingum á næsta ári ef allar áætlanir standast. Starfsmenn við framleiðsluna hafa alla jafna veriö fjórir og sagði Ragnar aö smíða þyrfti tíu hús á ári til þess að verksmiðjan stæði undir sér. Aftur á móti yrði hægt að framleiða um 25 hús á ári með góðu móti þegar allt væri komiðífullangang. Brúnás smíðar einbýlishús og eru. þau frá 112 fermetrum aö flatarmáli. Fyrirtækiö hefur teikningar fyrirliggj- andi, en væntanlegum húsbyggjendum er einnig heimilt að koma með eigin teikningar. Verð þessara einingahúsa er rétt tæp ein milljón króna fyrir um 130 fermetra hús. Þá er það tilbúið undir tréverk og málningu, raflagnir eru komnar að hluta, en pípulögn vantar. Brúnás er fyrsti aðilinn á Aust- fjörðum, sem framleiðir steinsteyptar einingar til húsbygginga, en slík fyrir- tæki eru til á nokkrum öðrum stöðum á landinu. -GB Föst yfirvinna sundur- /fðuð eftir kynjum Jóhanna Siguröardóttir alþingis- maöur hefur lagt fram fyrirspurn til fjármálaráðherra um hvernig greiðsl- ur fyrir fasta yfirvinnu og afnot starfs- manna af einkabílum skiptist milli kynja. 1 fylgiriti með ríkisreikningnum fyrir áriö 1982 voru þessir kostnaðar- liðir tilgreindir sérstaklega og sundur- liðaðir eftir ríkisstofnunum. Þar kom fram að greiðslur ríkissjóðs til ríkis- starfsmanna vegna afnota þeirra af einkabílum sínum í vinnutíma námu á árinu 1982 tæpri 51 milljón króna. Greiðslur vegna fastrar yfirvinnu námu 32,4 milljónum króna. Jóhanna fer fram á aö þessir liðir verði sundur- liðaðir eftir kynjum og að f jármálaráö- herra svari fyrirspurninni skriflega. I skýringum ríkisbókhaldsins með fylgiritinu kom fram að níu stofnanir höfðu ekki skilað upplýsingum þeim sem beðið var um. Þessar stofnanir eru Skálholtsskóli, Búnaðarfélag Is- lands, Veiöistjóri, Fiskifélag Islands, Aflatryggingasjóöur sjávarútvegsins, Síldarútvegsnefnd, Brunabótafélag Is- lands, Landsvirkjun og Orkubú Vest- fjarða. Jóhanna spyr því einnig hverjar hafi verið launagreiðslur, bif- reiöa-, risnu- og ferðakostnaður þess- ara stofnana og hvort þær séu undan- þegnar þeirri upplýsingaskyldu sem kveðið er á um í lögum um ríkisbók- hald, gerð ríkisreikninga og fjárlaga. ÖEF Tillögur nefndar um endurskipulagningu sjúkratrygginga: Tryggingaumboð inn á heilsugæslustöðvamar — og sjúkrasamlög lögð niður, spamaður 13,5 milljónir I heilbrigðis- og tryggingamálaráöu- neytinu liggja fyrir tillögur nefndar um endurskipulagningu sjúkratrygg- inga. Lagt er til að sjúkrasamlög sveitarfélaga verði lögð niöur, að Tryggingastofnun ríkisins annist allar sjúkratryggingar og að umboö færist frá sýslumönnum og fógetum á heilsu- gæslustöðvarnar. Sparnaður í tryggingakerfinu er talinn verða 13,5 milljóniráári. Þetta eru megintillögur nefndarinn- ar. Hún færir rök fyrir því að flytja tryggingarnar inn á heilsugæslu- stöðvarnar eða tengdar stofnanir. Þær heyra undir sama ráðuneyti en núver- andi umboö undir dómsmálaráöuneyt- ið. Þó er talið hugsanlegt að nýta núverandi skrifstofur sjúkrasamlagá í stærstu kaupstöðum. Nefndin telur tví- skiptingu trygginganna óhagkvæma og rekstur sjúkrasamlaga ósamstæðan innbyrðis. Með því að færa tryggingarnar undir einn hatt hjá Tryggingastofnun komi allt fjármagn til þeirra frá ríkinu og hlutdeild sveitarfélaga falli niður með aflagn- ingu sjúkrasamlaganna. Gæti það orðið liður í frekari breytingum á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Skýrt er frá því aö nú séu rekin 25 umboð Tryggingastofnunar, þar af 23 hjá sýslumönnum og fógetum en tvö á vegum sjúkrasamlaga. Sýslusjúkra- samlög eru nú 20, 19 rekin af sýslu- mönnum og eitt hjá kaupstaðarsam- lagi. Kaupstaöasamlögin eru 20 og þau stærstu með eigin skrifstof ur. Nefndin telur þetta kerfi flókið og ekki í samræmi viö þá þjónustu sem ætlunin er að veita. Auk þess feli það í sér fjármunasóun og þjóöhagslega óhagkvæmni. HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.