Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1983, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1983, Blaðsíða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER1983. 7 Isak fékk gefins nýja skó Isak Stefánsson, 7 ára pilturinn í Kópavogi sem setti skóinn sinn út í glugga og varö síðan fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu aö skórinn, nýr spariskór, var skorinn og eyöilagöur fékk gefins nýja skó frá Skóverslun Kópavogs fyrir hátíöina. Spariskórnir voru á sínum tíma keyptir í Skóverslun Kópavogs. Er kaupmaöurinn þar frétti af þeim örlög- um, sem spariskórinn fékk, ákvaö hann aö gefa Isak nýja skó. Aö vísu haföi móöir Isaks keypt nýja spariskó handa honum strax eftir eyöi- legginguna þannig aö Isak mátti velja um skó. Hann valdi strigaskó, sem örugglega eiga nú eftir aö koma sér vel þegar sól fer aö hækka aftur á lofti. -JGH Þ að er nauðsynlegt fyrir trompmiðaeigendur að kunna að margfalda með 5. Trompmiðinn hefur nefnilega þá eiginleika, að hann fimmfaldar alla vinninga, sem á hann falla. í vinningaskrá HHI ’84 stendur t.d. 9 vinningar á eina milljón. Sá sem á trompmiðann afvinningsnúmerinu, hlýtur 5 milljónir í vinning — góð útkoma það! Líttu við hjá umboðsmanninum og náðu þér í tromp VINNINGASKRÁ FYRIR TROMPMIÐAEIGENDUR 1 @ 5.000.000 5.000.000 1 — 1.000.000 1.000.000 23 . - 500.000 11.500.000 298 — 100.000 29.800.000 2.415 — 20.000 48.300.000 12.212 - 12.500 152.650.000 50 aukav. 75.000 3.750.000 15.000 252.000.000 m-------------------------- „Gjörðu svo vel, ísak, og gleðileg jól,” sagði Ásgeir Jónsson í Skóverslun Kópavogs er hann gaf ísak nýja skó. DV-mynd EinarOlason. REIKNINGSDÆMI ] FYRIR TROMP IV ÍIÐAEIGENDUR --------,- Einfalt Skagaströnd: Sauma- stofa gefur bág- stöddum fatnað Frá Birgi Amarsyni, fréttaritara DV á Skagaströnd: Starfsfólk og forráöamenn sauma- stofunnar Víólu á Skagaströnd afhentu nýlega Rauða krossi Islands aö gjöf fatnað og teppi í tilefni af söfnun vegna bágstaddra fórnarlamba náttúruham- fara. Um er aö ræða 26 teppi úr uUarvoð og 88 ullarpeysur á börn og fuUorðna. fyrirtækiö gaf allt efniö og starfsfólkið vinnu sína viö saumaskapinn. Fyrirtæki Gunnars Jónssonar flutti varninginn endurgjaldslaust til Reykjavíkur. -GB Eyrarbakki: Hrað- frysti- stöðin 40ára Frá Magnúsi Karel Hannessyni, fréttaritara DV á Eyrarbakka. Hraöfrystistöö Eyrarbakka heldur upp á 40 ára afmæli sitt um þessar mundir. Byrjað var aö grafa fyrir húsinu á Þorláksmessu árið 1943 og tók það til starfa voriö eftir. Á þessum 40 árum hefur Hraðfrysti- stööin veriö aðalatvinnufyrirtæki Eyr- bekkinga og- aö jafnaöi hafa 60—70 manns verið þar á launaskrá, en fleiri á vertíðum. Nú er aftur á móti heldur dauft yfir húsakynnunum þar sem engin vinna hefur veriö þar í nokkurn tíma. En stefnt er aö því aö hefja fisk- verkun aftur eftir áramót. -GB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.