Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1983, Blaðsíða 12
12
Frjálst.óháð dagblað
Utgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri. SVEINN R. EYJÓLFSSON.
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON.
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM.
Aöstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON.
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNUSSON.
Auglýsingastjó^ar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON.
Ritstjórn: SIDUMULA 12—14. SÍMI 86*11. Auglýsingar: SÍDUMÚLA 33. SÍMI 27022.
Afgreiösla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022.
Sími ritstjórnar: 86611.
Setning, umbrot, mynda og plótugerö: HILMIR HF., SIDUMULA 12. P rentun:
Árvakur hf., Skeifunni 19.
Áskriftarverð á mánuðí 250 kr. Verð í lausasölu 22 kr.
Helgarblað25 kr.
Vestræn ábyrgð á morðæði
Átakanlegasti álitshnekkir hins vestræna heims stafar
af stuðningi stjórnar Bandaríkjanna við hægri sinnuð
öfgaöfl í Rómönsku Ameríku, einkum Mið-Ameríku.
Hörmungarnar í E1 Salvador eru skýrasta dæmið um
þetta.
Þar í landi hafa dauðasveitir hersins myrt upp undir
40.000 óbreytta borgara á síðustu fjórum árum. Sum
morðin hafa veriö tilviljanakennd, en önnur beinzt að
hver jum þeim, sem hefur viljað styðja lítilmagnann.
I bandaríska læknaritinu New England Journal of
Medicine hefur rækilega verið skýrt frá, hvernig dauða-
sveitirnar hafa reynt að útrýma læknum, hjúkrunarkon-
um og sjúkraliðum, sem hafa stundað fátæka fólkið í
landinu.
Að baki dauðasveitanna er yfirstétt hinna gömlu og
ofsaríku landeigenda, sem eru að reyna að hindra, að
jarðnæði verði að hluta skipt meðal leiguliða. Þeir eru að
reyna að stöðva þróun, sem hófst í valdatíð kristilegra
demókrata.
Vinstri menn þorðu ekki að taka þátt í síðustu kosning-
um í E1 Salvador af ótta við æði morðsveitanna. Þá
misstu kristilegir meirihluta sinn í hendur róttækra hægri
flokka á borð við þann, sem vitfirringurinn d’Aubisson
stýrir.
Þá var búið að skipta 20% jarðnæðis landsins milli fá-
tækra bænda. Eftir kosningar hafa verið sett lög, sem
stöðva þessa þróun, þannig að ríkir landeigendur haldi
eftir að minnsta kosti þremur f jórðu alls lands.
Bandaríkjastjórn veit vel, að fyrri umbætur í land-
búnaði voru forsenda þess, að unnt væri að rækta í land-
inu miðjustefnu, sem væri laus við öfgarnar til hægri og
vinstri. Þetta hefur mistekizt síðan Reagan varð forseti.
Hernaður stjórnar E1 Salvador gegn skæruliðum, kost-
aður af Bandaríkjastjórn, gengur verr með hverjum
mánuði. Enda er blóðferill hersins slíkur, að hann er hat-
aður af allri alþýðu manna. Reglan er, að herinn þorir
ekki í skæruliðana og myrðir þorpsbúa í staðinn.
Upp á síðkastið er Bandaríkjastjórn farin að átta sig á,
að ekki er einhlít sú stefna Reagans forseta og Kirk-
patricks sendiherra að styðja alla þá, sem segjast vera á
móti kommúnistum, hversu ógeðslegir sem þessir skjól-
stæðingar eru.
Sendimenn Bandaríkjastjórnar, þar á meðal Bush
varaforseti, hafa flutt stjórnvöldum í E1 Salvador lista
yfir verstu morðvargana í hernum. Farið hefur verið
fram á, að þeir verði settir af og gerðir útlægir. En án
árangurs.
Hinn síðbúni partaskilningur Bandaríkjastjórnar hefur
minni áhrif en ella fyrir þá sök, að margvísleg öfgaöfl í
Bandaríkjunum styðja hinar blóðugu ofsóknir yfirstéttar-
innar í E1 Salvador gegn langsoltinni alþýðu landsins.
Bandarísku öfgaöflin styðja fyrirbæri á borð við
d’Aubisson með peningum, ráðum og dáð. I þeim hópi eru
Council on Inter-American Security, American Security
Council og National Strategic Information Center.
Öfgaöflin í Bandaríkjunum og E1 Salvador eru sam-
mála um, að útrýma þurfi kommúnistum. Þar með taldir
eru kristilegir demókratar, sem hingað til hafa verið
álitnir fremur hægri sinnaðir. Þeir hafa kerfisbundið
verið myrtir.
Með sama áframhaldi hverfur hin lýðræðislega miðja í
E1 Salvador og Bandaríkjastjórn fær þá niðurstöðu, sem
hún óttast. Róttækir vinstri menn eflast og steypa í bylt-
ingu morðsveitum róttækra hægrisinna.
Jónas Kristjánsson.
DV. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 1983.
Laxveiði í sjó
— ónýtt auðlind?
Nýlega lét einn af fiskifræöingum
okkar í ljós þá skoðun sína, að til aö
fjölga atvinnutækifærum í landinu
ættum viö aö taka upp sjávarveiði á
laxi.
Fjölmiðlar gripu fljótt þessi ummæli
og spuröu m.a. veiöimálastjóra álits á
þeim. Veiðimálastjóri var gætinn í
svörum, en viðurkenndi þó aö afarlítil
þekking væri á ferli laxins í sjó.
Sjávarútvegsráöherra var einnig
spuröur og kvaöst hann því fylgjandi
aö þetta mál væri kannað. Formenn
veiðifélaga og stangveiðimanna
brugöu skjótt viö og lýstu furöu sinni á
slíkum tillögum.
En skoðum nú þessi mál nánar áöur
en áöurnefnd tillaga fiskifræöingsins
er fordæmd.
Þaö mun almennt viöurkennt aö
ferill laxms er afar lítiö þekktur frá því
hann yfirgefur ámar sem 15—20
gramma síli, þar til hann skilar sér
aftur (aö hluta?) sem 2—10 kg fiskur
upp í árnar. Ég segi að hluta því
reynslan sýnir aö í t.d. hafbeitar-
stööum þykir sæmileg útkoma ef 5%
seiöanna skila sér og sérlega gott ef
10% skila sér til baka. Hvaö verður þá
um 90—95% sem sleppt var í sjóinn?
Þaö bara ferst munu margir segja.
Sannleikurinn er sá aö enginn veit
hvaö um þau veröur.
Kjallarinn
Ólafur Þorláksson
bóndi, Hrauni ölfusi.
stór laxatorfa haldiö sig í nánd viö
skipið þar til í byrjun september, þá
hefði hún horfiö á 3 dögum. Hvaö varö
umhana?
Allmikil laxveiöi var í Grafarvogi
(viö Reykjavík) og viö Viðey. Þessi
sjávarveiöi var keypt upp fyrir æriö fé
almennmgs, því hún var talin orsaka
minni laxagöngur í Elliöaámar.
Hvergi hefi ég heyrt þess getiö aö veiöi
hafi vaxiö í Elliðaánum eftir þessa
friöun. Hvaö veldur þessu?
Á undanfömum árum hefir verið
sleppt talsverðu magni af sjógöngu-
seiðum viö Straumsvík og suöur í
Vogum á Vatnsleysuströnd. Menn sem
kunnugir eru á þessum slóöum hafa
sagt mér aö viö ströndina þama sé
krökkt af laxi um göngutímann, en
vegna aðstöðuleysis náist tiltölulega
h'tiö af honum. Hvaö veröur svo um
hitt sem ekki veiðist?
^ „En sé það nú svo að verulegur hluti af
laxi sem í sjónum er deyi þar drottni sín-
um engum til gagns, sér hver maður að það er
mikil sóun á verðmætum að nýta hann ekki.”
Laxasögur
Mig langar aö segja hér á eftir
nokkrar laxasögur sem vekja nokkrar
spumingar.
Þegar verksmiöjuskipið Hæringur lá
verkefnalaust rnni í Sundum viö
Reykjavík hér á árunum önnuöust 2
vélstjórar gæslu þess eitt sumar. Þeir
sögöu mér að um sumarið heföi geysi-
Eg gæti sagt margar sögur eftir
sjónarvottum um ótrúlega stórar laxa-
torfur á göngu meöfram ströndúini,
sem varla ganga nema aö litlu leyti í
ámar.
Hvers vegna var
Bjamfríði sparkað?
Fyrir þrem árum var Bjamfríði
Leósdóttur, einum skeleggasta mál-
svara verkakvenna í landinu,
sparkað úr miöstjórn ASI. Fyrir
tveim árum var Bjarnfríöur felld í
formannskjöri í Alþýðusambandi
Vesturlands. Nú í ár hefur Bjamfríð-
ur tvívegis orðið fyrir baröúiu á and-
stæöingum sínum. Annaö var í
tengslum við kosningu um formanns-
starf í kvennadeild Verkalýösfélags
Akraness. Hitt var kosning í stjórn
Verkamannasambandsins á nýaf-
stöönu þrngi þess. Allir þessir
atburöir eru nátengdir. Þeir geta
kennt okkur margt, m.a. um mafíu-
starfsemi flokkanna innan verka-
lýöshreyfingarinnar, um afdrif raun-
verulegra verkalýðssinna þegar þeir
reyna aö berjast rnnan embættis-
mannakerfis hreyfingarúinar og
ekki síst um það hvernig því er tekiö
aö konur berjist fyrir konur án þess
aö taka upp starfshætti og viömiðan-
irkarlanna.
Allaballamakk
á ASÍ-þingi
A Alþýöusambandsþinginu áriö
1980 tókust m.a. hinar „sögulegu
sættir” Sjálfstæðisflokksins og
Alþýöubandalagsins, og var þaö í
fyrsta sinn sem ríkjandi ríkis-
stjórnarmynstur var beinlínis látið
ráöa samsetningu miöstjórnar ASI.
Skipan eöa rööun í miðstjórn ASÍ fór
því ekki fram fyrst og fremst meö
hagsmuni félagsmanna ASI aö
leiðarljósi. Niöurstaöan varö sú
sem s já má í töflunni hér aö neöan:
Miðstjórn ASÍ 1980-84
Ríkisstjórnarflokkar
Alþýöubandalag: 5 fulltr., þar af
forseti
Guðmundur
Sæmundsson
verkamaður á Akureyri.
/
Sjálfstæöisflokkur: 3 fulltr., þar af
varaforseti
Framsóknarflokkur: 2 fulltr.
Stjórnarandstæðingar
Alþýöuflokkur: 3 fulltr.
Óháðir flokkum (en hugsanl.
stuðningsmenn ríkisstj.)
„Vinstri óháöir”: 1 fulltr.
„Hægri óháöir”: 1 fulltr.
Bjarnfríði feykt út
Annaö sem sögulegt má telja
varðandi miðstjórnarkjöriö var aö
uppstillingarnefnd þúigsúis ákvaö
— gegn mótmælum Bjarnfríöar
sjálfrar — aö stilla henni ekki upp
til endurkjörs í miöstjórnúia. Þar
haföi hún þó aðeins setið í eitt kjör-
tímabil — 4 ár. Ástæðan lá í augum
uppi fyrir alla þá sem þarna voru,
þótt ekki fengist hún sögö berum
orðum. Alþýöubandalagið varö
aö fórna einu miöstjórnarsæti smu
til aö samkomulag gæti tekist við
Sjálfstæöisflokk. Þaö var því
ákvöröun Alþýöubandalagsúis aö
Bjarnfríöur skyldi sett út í kuldann.
Þau önnur sæti Alþýðubandalagsins
í miöstjórninni sem losnuöu voru
frátekin fyrir ákveðna prinsa. Þaö
var því engin tilviljun aö einmitt
Bjarnfríöur fékk aö fjúka. Hún
haföi veriö kosin í miðstjórnina ern-
mitt á túna þegar hún haföi oröiö
landsfræg fyrú beinskeytta forystu
í árangursríkri baráttu láglauna-
kvenna á Akranesi til aö bæta kjör
sín. Æösta forystan í ASI og Alþýöu-
bandalagúm haföi semsé ætlaö aö
beita hér sömu aðferðinni og
endranær: kippa upp í faðm sér því
fólki sem sýnt haföi af sér baráttu-
hug og temja þaö þar. Aö vísu
kostaði kjör Bjarnfríðar nokkra
ólgu og uppgjör innan Alþýöubanda-
lagsins, en þar kom aö forystan
sannfæröist um að sniðugast væri
að ganga að þessari kröfu „órólegu
deildarúinar”. Þaö kom sér líka vel
aö Bjarnfríður var kona, því aö um
þessar mundir var sú gagnrýni far-
in að brenna heitt á ASI-forkólfun-
um aö þeir vildu ekki hleypa konum
til áhrifa. En hvað um þaö, —
Bjarnfríður lét ekki temja sig. Hún
geröist ekki samdauna embættis
karlahópnum í miðstjórn ASI. Hún
hélt áfram aö treysta fremur á fólk
en forystu. Hún hikaöi ekki viö aö
fórna heidur hagsmunum flokks
srns en fólksms sem hún var aö
vinna fyrir. Hún spillti hinni ljúfu
eindrægni miðstjórnarfunda og var
í alla staöi óþolandi þeim karlasöfn-
uði sem þar sat og stritaði víö að
vera heilagur í framan og lunkinn í
pólitík.