Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1983, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1983, Qupperneq 30
30 DV. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER1983. Menning Menning Menning Menning Kennarinn, Þórhallur, meö nem- endur sina á ferð. Ylfa Edelstein til hægri. Sjónvarp Baldur Hermannsson skyggnast dýpra í þessa dulúögu en svipmiklu persónu sem er hvort- tveggja í senn heillandi og fráhrind- andi. Tæknivinna er víöast hvar meö ágætum nema hvaö myndatakan var full snauö á köflum, til dæmis þegar kennarinn verður fyrir því óláni aö hrekkvísir nemendur læsa hann úti og hann stelst í sérrí ráöskonunnar til þess aö deyfa eggjar beiskjunnar; þá var og mjög undarlega aö mynda- tökunni staðið þegar námssveinninn músíkalski tók völdin í sínar hendur á söngæfingunni, hvort sem þar er nú um aö kenna leikstjóra eöa töku- manni. Klippari heföi stundum mátt vera aðgangsharöari viö krummann og sníöa af honum stélf jaörirnar því aö myndin er óþarflega langdregin og ROGGSEMISKOLASTJORANS Hver er. ... Sjónvarpsk vikmynd. Leikstjórn og stjórn upptöku: Hrafn Gunn- laugsson. Myndataka: örn Sveinsson. Hljóð og hljóðsetning: Böðvar Guðmundsson. Klipping: Jimmy Sjöland. Leikarar: Þórhallur Sigurðsson, Jón Viðar Jónsson, Ylfa Edelstein o.fl. Kvikmyndahandrit: Þorsteinn Marelsson. DrykkfeUdur alþýöuhljómUstar- maöur segir skiliö viö sollinn í höfuö- borginni og tekur sór fyrir hendur aö kenna viö heimavistarskóla nokkum langt úti á landi einn vetur. Honum er þungt fyrir brjósti því aö heima situr kona hans ung meö son þeirra lítinn en í aðra röndina hygg- ur hann samt gott tii glóöarinnar aö mega nú loksins helga sig lang- þráöum tónUstarstörfum er fleygar stundir gefast frá kennslunni um veturinn. Honum lyndir sæmilega viö nem- endurna sem þó eru ekki aldæla og luma á ýmsu. Hann reynir líka aö semja sig að þeim háttum sem skóla- stjórinn strangi viU viö hafa á staönum. En þaö kemur til dáUtilla árekstra milli hans og nemendanna sem leit- ast viö aö hrekkja einfarann og kemur þar mjög viö sögu stúlkutetur eitt úr borginni, rekin í dreifbýUð til þess aö mannast innan um sveita- börnin, eins og lengi hefur tíðkast á Islandi í veruleikanum. Svo ber til aö skólastjórinn harð- lyndi þarf að bregöa sér af bæ og felur kennaranum nýja umsjón skól- ans á meðan en honum verður á aö hnupla tveimur sérríflöskum frá ráöskonunni og þá fer í verra. Þegar skólastjórinn kemur aftur veröur hann æfur og lætur rútubil- stjórann leita meö sér um heimavist- ina. Þeir finna flöskurnar tómar í vist- arveru borgarstúlkunnar og gerir þá skólastjórinn sér hægt um vik og rekur hana umsvifalaust burt úr sínum húsum en sér í gegnum fingur viðkennarann. Allur er þessi kafU heldur ótrú- verðugur en áhorfandanum er samt ljóst aö nú hlýtur aö draga til mikUs uppgjörs í skólanum — en viti menn: þá er sjónvarpskvikmyndinni skyndilega lokiö og segir ekki meir af söguhetju vorri né öörum þátttak- endum í þessum atburöum. Hrafni Gunnlaugssyni hefur aö vanda tekist ágætlega til viö val á sum atriöi hefðu vafalítiö batnaö viö vægðarlausari kUppingu — til dæmis atriöiö þegar telpumar eru aö undir- búa hrekkinn meö boltana á bringun- umogýmis önnur. Þaö er hvorki leikurinn né tæknivinnan sem lýtir þessa sjónvarpskvikmynd og veldur því að hún reynist hvorki fugl né fiskur þegar upp er staöiö — bresturinn mikli er handritiö sjálft, eins og svo oft er um íslenskar sjónvarpskvik- myndir og sjónvarpsleikrit. Þaö myndi víst fáum detta í hug að senda Uö út á land tU upptöku á sjónvarpskvikmynd án þess aö hafa meöferðis segulbönd og hljóðnema; ennþá síöur þætti mönnum fýsilegt aö fara á stúfana án þess aö hafa kvikmyndatökuvél í farangrinum og nú er eiginlega mál til komiö aö Lista- og skemmtideild sjónvarpsins geri sér ljóst aö það er líka öldungis ófært aö hefja upptökur án þess aö hafa boðlegt handrit til þess aö styöjastvið. GrundvaUarhugmyndin aö „Hver er. ..” er út af fyrir sig ákaflega áhugaverö og allt gott um hana aö segja. Það eigast viö þama þrír aðilar, hver meö sína sögu og sér- kenni: alþýöuhljómlistarmaðurinn breysklyndi, skólastjórinn harölyndi og svo nemendahópurinn, svo sundurleitur en samhentur samt þegar því er aö skipta. . SamspU þessara aöila stefnir í mikilsháttar uppgjör, en þaö uppgjör birtist aldrei — í þess stað rennur upp á skjáinn Ustinn meö nöfnum leikara ogtæknimanna: myndinnier lokiö. Þaö er hvimleiöur siöur íslenskra handritshöfunda aö bera því viö, þegar óhönduglega tekst tU um enda- lok verka þeirra, aö endirinn sé skUinn eftir opinn, aö áhorfandinn sé látinn botna söguna og þar fram eftir götunum; en allt er þetta fyrirsláttur og aðeins vísbending þess aö höfund- inn skorti skilning eöa hugmynda- flug sjálfan til þess aö botna sögu sína á einhverja viðhlítandi vísu. En þegar þannig er í pottinn búiö á Lista- og skemmtideUd aö temja sér þesskonar röggsemi, einurð og harö- lyndi sem Jón Viöar Jónsson auð- sýndi nemendum sínum óstýrilátum, og senda höfundum handritin heim til frekari vinnslu og nauðsynlegra umbóta. —og handritahöf undar sjónvarpsins Þórhallur Sigurösson í hlutverki sínu. leikurum í hlutverk myndarinnar og má þaö furöu gegna hve vel honum nýtast hinir mörgu lítt vönu leikarar sem hér eiga hlut aö máli. ÞórhaUur Sigurösson, Laddi, kemst vel frá sínu hlutverki sem alþýðuhljómlistarmaðurinn veik- lyndi og þó að hann sé mönnum kunnastur fyrir gamanleik og grín- vísur, þá er nú ljóst aö honum lætur ekkert síöur aö fást viö hin veiga- meiri verkefni og vonandi bjóðast honum fleiri tækifæri til þess aö sýna hvaö í honum býr í þeim greinum. Jón Viöar Jónsson, leiklistarstjóri hljóövarpsins, fer meö hlutverk skólastjórans stranga; hann er maður dulur í skapi, haröur og fá- skiptinn, gleöisnauöur, dimmur og skuggalegur. Jón Viöar er ágætlega menntaöur í leikhúsfræðum en ekki er kunnugt aö hann hafi sjálfur ástundaö leiklist til þessa. Hopum hefur þó lánast að skapa heilsteypta, spennandi og eftirminnilega persónu í þessu verki og var þaö miöur aö handritshöfund- ur skyldi ekki gefa kost á því aö Jólasveinar leggja nú einn af öðrum aftur af stað til heimkynna sinna í fjöH- unum eftir annasama tíð. Þessa kátu sveina h 'rtti Ijósmyndari DV i miðbæ eykjavíkur, þegar hvað mest gekk á, á Þorfáksmessu. m/_____-í r:_ó Góð kirkju- sókn r í Arnes- kirkju Á jóladag messaöi séra Einar Jónsson í Ámeskirkju á Strönd- um. Kirkjusókn var góö. Snjómokstur fór fram til þess að fólk kæmist í kirkju. Er það sjaldgæft aö mokaö sé snjó í- Arneshreppi. Fólk frá öUum bæjum í sókninni, nema frá Reykjafiröi, komst til messu. Á Reykjafiröi býr dugnaöarkonan Guöfinna Guðmundsdóttir ásamt sambýlismanni sínum og einu heimasætunni í Árnes- hreppi. Má segja meö sanni aö þetta sé síðasti bærinn í dalnum, síðan fólkiö flutti frá Djúpuvík sl. haust. Árnesingar meta mikils sinn unga prest, séra Einar. Hann er bóndi býsna skæöur og tekur þátt í búskap meö safnaðarfólki sínu. -Regína.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.