Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1984, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1984, Qupperneq 5
DV. FÖSTUDAGUR 27. J ANUAR1984. 5 Þœfingur er þetta! Þrátt fyrir ófaerö á gangstéttinni er ekki annað að sjá en þetta gangi ágœtlega hjá þessum Reykjavíkur- frúm. DV-mynd GVA. Kínamyndir dönsku sendiherraf rúarinnar: Ekki rétt að KODAK ^ firri sig ábyrgð hjá Hans Petersen „Þaö er alls ekki rétt aö Kodak tirri sig ábyrgö á Kodak-film- unum. Kjami málsins er sá aö allir þeir gæðaeftirlitsmenn og sér- fræðingar Kodak erlendis, sem skoðaö hafa umræddar þrjár filmur, hafa dæmt þær í lagi og ógallaöar,” sagði Ragnhildur Asmundsdóttir hjá Hans Petersen vegna fréttarinnar í fyrradag um Kínamyndir dönsku sendiherrafrúarinnar. „Viö hjá Hans Petersen höfum fyrir alla muni viljað aö frú Palludan yröi ánægð sem og allir okkar kúnnar og viö teljum aö viö höfum gert allt til að svo mætti verða. Hvaö myndirnar á þessum þremur filmum snertir þá eru þær af gráum líkneskjum í gulum sandi. Og þaö aö þessar myndir séu bláar er ekki rétt. Að okkar mati sýndu filmumar þá liti sem áttu aö vera en myndirnar voru þó ýmist of dökkar eða ljósar. Þá höfum viö ekki orðiö vör viö aö filmurnar væru of stífar. Og hvaö númerin neöst á filmunum varðar þá segja sérfræðingar Kodak aö þau hafi ekki áhrif á gæði filmanna. Þau séu sett á eftir aö filmurnar eru framleiddar. Allar filmur f rú Palludan í Kina- ferðinni vom frá Kodak. Af þessum filmum vom 7 slidesfilmur af um- ræddri gerð, 400 ASA Ektachrome Kodak. Hún notaði aöeins 3 þeirra og skUaöi hinum 4 eftir á vegna þessamáls. Viö tókum strax myndir með þessum 4 fUmum, tU dæmis af marg- litum blómum og notuöum tU þess sitt hvora myndavélina. Síöan sendum viö fUmumar á sinn hvorn staðinn tU framköUunar, tvær á hvom staö. Þess var ekki getið aö um prófraun væri aö ræöa. Niöur- staöan var sú aö alhr þeir litir sem við voram aö taka komu fram. Um 300 filmur voru á sama fram- leiðslunúmeri og umræddar fUmur. Þetta þýöir aö fyrst er ein stór filma framleidd og hún síöan klippt niöur i þrjú hundruð 36 mynda filmur. Allar hinar filmurnar á þessu framleiðslu- númeri hafa reynst í lagi. Eftir að fulltrúi sá frá Kodak í Englandi sem rætt er um í fréttinni átti fund ásamt okkur meö frú Palludan haföi hann samband viö Kodak í Hong Kong til aö reyna að láta þá útvega myndir af þeim líkn- eskjum sem voru á þessum þremur filmum. Þaö tókst því miður ekki. Og reyndar má geta þess aö ekki var hér um neinn sérfræðing í filmugerð aö ræða, heldur var hann staddur hér út af ööru. En okkur fannst rétt aö gefa frú Palludan kost áaöræða viöhann. Eftir þetta fengum viö þá hugmynd að láta litgreina myndimar fyrir prentun bókarinnar meö sér- stakri „scanner-tækni” hjá Kassa- gerö Reykjavíkur á okkar kostnaö. Það var gert og valdi frú Palludan þá sjálf 7 myndir af filmunum þremur sem hún ætlaði að nota í bókina. Aö okkar mati heppnaöist þetta þaö vel aö myndirnar vora orðnar nothæfar. Við báöum samt frú Palludan, sem hefur veriö mjög elskuleg í alla staöi, aö hafa samband viö okkur ef hún væri ekki ánægö meö þessa lausn. Þar sem hún hafði ekki sam- band héldum viö þar meö að málið væri leyst og aö viö hefðum getað j hjálpaö eftir bestu getu.” -JGH. Fór með þrjár 400 ASA filmur til Rússlands: Myndirnar helbláar — úr framköllun „Eg fór í einstaklega skemmtilega ferð til Rússlands nú í vor, liklega þá einu á lífsleiöinni, og það væri synd aö segja aö Rússland hafi komið mér rautt fyrir sjónir í gegnum linsuopið. Eg var meö þrjár 400 ASA Kodacolor filmur sem ég tók á en þegar þær komu úr framköllun hér heima voru myndirnar helbláar,” sagði Ingimar Sigurösson lögfræðingur en hann haföi samband viö DV í framhaldi af frétt blaösins á miövikudaginn um dönsku sendiherrafrúna sem fór til Kína aö taka myndir af skúlptúram meö heldur slæmum árangri. „Mér var sagt aö hér væri mann- legum mistökum um að kenna og buðu þeir hjá Hans Petersen mér upp á tvær filmur í skaöabætur sem ég þáði. Eg sá ekki ástæöu til aö gera veður út af þessu, mannleg mistök geta alltaf átt sér staö,” sagöi Ingi- mar. „En mér fannst athyglisvert að lesa frétt DV á miðvikudaginn um sendiherrafrúna og Kínaferöina. Hér viröist eitthvað svipaö vera á ferö- inni.” -EIR. Kvennaframboð kvartar yfir fréttaflutningi: Situr við sama borð og aðrir f lokkar — segir Erna Indriðadóttir Kvennaframboðiö í Reykjavík hefur í bréfi til útvarpsráös kvartaö yfir fréttaflutningi rikisfjölmiölanna í tengslum viö fjárhagsáætlun Reykja- víkurborgar. Sagöi Guörún Jónsdóttir borgarfulltrúi aö þess hefði ekki verið gætt aö öll sjónarmið kæmu fram. „Ef ríkisfjölmiöill á aö gæta hlut- leysis þá ber honum skylda til aö sjá til þess að sjónarmið allra sem hafa á bak viö sig ákveðinn fjölda kjósenda komist á framfæri,” sagði Guðrún. Ema Indriðadóttir, sem séð hefur um fréttaflutning af borgarmálefnum fyrir útvarpið, kvaöst ekki sammála Kvennaframboöinu. „Þaö er rangt aö Kvennaframboðinu hafi veriö gert eitthvað lægra undir höföi í fréttum útvarpsins en ööram flokkum minnihlutans í borgarstjóm,” sagöi Ema. „I minnihlutanum eru fjórir flokkar og það gefur auga leið að í stuttu fréttainnskoti er ekki hægt aö tala við fulltrúa allra flokkanna fjög- urra og f ulltrúa meirihlutans um hvert einasta mál sem viötal er tekið út af.” I bréfinu til útvarpsráös er kvartað yfir grófu misrétti gagnvart Kvenna- framboöinu og bent á aö af um 160 breytingartillögum viö fjárhags- áætlunina hafi 99 komiö frá Kvenna- framboöinu. Einnig segir aö Kvenna- framboöinu hafi aldrei veriö gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sinum varðandi fjárhagsáætlunina á fram- færi. Ema sagöi hins vegar aö þegar fjár- hagsáætlunin hafi verið lögö fram hafi verið greint ítarlega frá viöbrögöum allra minnihlutaflokkanna. Viö síöari umræöur hafi aðeins veriö greint frá helstu breytingartillögunum og Kvennaframboöiö þar setið viö sama borð og aðrir flokkar. -Þó.G. Tollum stórfækkað — og hæstu tollar lækkaðir miktö Endurskoöun tollskrár miöar nú vel og er stefnt að þyí aö ný tollskrá taki gildi fyrir vorið. Meö henni veröur toll- um stórfækkaö og hæstu tollar lækk- aöir mikið. Engu aö siður þarf ríkis- sjóður að ná óbreyttum tekjum af toll- um fyrst um sinn og verður þaö aöal- lega gert með vörugjöldum á afmörk- uðum flokkum. Tollskráin er nú einhver mesti frum- skógur i ríkiskerfinu, aöaltollþrep eru um tugur, vöragjöld og alls konar álög um tuttugu og þar að auki hátt, tíma- bundið vörugjald í tveim þrepum. Aöaltollþrep era upp í 80% og tíma- bundið vörugjald 24% eða 30% sem leggst á viðkomandi vörur og tollinn líka. Aukagjöldin era upp í nokkur pró- senthvert. Þá er einnig unniö aö tölvuvæðingu á Tollstjóraskrifstofunni í Reykjavík. Þaö og einföldun tollskrárinnar segir Bjöm Hermannsson tollstjóri geta skipt sköpum í öryggi og hraöa viö toll- afgreiðslu. Hann býst ekki við því aö hætt verði aö gera skriflegar fyrir- spumir að skilyrði fyrir upplýsingum um tollflokkun vamings. En áður var nóg aö hringja. „Breytingin olli óánægju fyrst en síöan hefur vaxiö skilningur á því aö öðru vísi verður ekki fyllsta öryggis gætt. Eg á ekki von á aö viö breytum aftur, að minnsta kosti ekki fyrst um sinn,”segir Bjöm Hermannsson. -HERB. UK0 Fæst á næsta blaðsölustað Toyota Cressida árg. 1982, dísil, 5 gira, ek. 100.000 km, brúnn. Verð kr. 330.000,- Toyota Cressida árg. 1978, 4 dyra, 5 gira, ek. 49.000 km, grœnn. VerO kr. 170.000,- Toyota Cressida dx árg. 1981, 5 gira, ek. 30.000 km. VerO kr. 300.000,- Toyota Starlet árg. 1979, ek. 34.000 km, grár. Verfl kr. 95.000,- Þarfnast sprautunar. Toyota Carina DX árg. 1982, ek. 17.000 km, drapplit. VerO kr. 280.000,- Toyota Cressida árg. 1979, 2 dyra, ek. 85.000 km, blár. Verð kr. 185.000,- Toyota Cressida árg. 1978, ek. 88.000 km, blár. VerO kr. 150.000,- Toyota Corolla Liftback árg. 1980, sjálfsk., 1800 cc vél, ek. 50.000 km. Verð kr. 220.000,- Subaru 1600 árg. 1978, ek. 110.000 km, brúnn. Verð kr. 110.000,- Toyota Carina DL árg. 1980, sjálfsk., ek. 53.000 km, vinrauður. Verðkr. 220.000,- Dodge sendibill árg. 1978, ek. 59.000 km, hvitur. Verð kr. 175.000,- Daihatsu Charade Runabout árg. 1980, ek. 62.000 km, blár. Verfl kr. 155.000,- Toyota Carina DL árg. 1981, sjálfsk., ek. aðeins 19.000 km, brúnn. Verð kr. 260.000,- Mjög fallegur bíll. Toyota Landcruiser station árg. 1981, ek. 85.000 km, hvitur. Verfl kr. 700.000,- (Spil, upphækkaður. ENIMFREMUR TIL SÖLU: Chevrolet Citation árg. 1980, 4 cyl., ek. 36.000 km, vinrauður. Verfl kr. 240.000,- Saab 99 GL árg. 1981, ek. 28.000 km, brúnn. Verfl kr. 290.000,- Mitsubishi L-300 árg. 1982, ek. 19.000 km, hvitur. Verð kr. 270.000,- Sæti fyrir 8. breifl dekk og felgur, hliómtæki) OPIÐ LAUGARDAGA § TOYOTA SALURINN Nýbýlavegi 8, sími 44144.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.