Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1984, Side 9
DV. FÖSTUDAGUR 27. JANUAR1984.
9
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Sýklafjöldinn getur aukist mjög þegar matvæli eru kæld í langan tíma viö stofuhita.
Moðsteiking:
Getur valdið matareitrun
— segir Valdimar Brynjólfsson heilbrigðisf ulltrúi
Moösteiking nefnist matreiösluaö-
ferö sem færst hefur nokkuð í vöxt í
seinni tíö. Þessi aðferð er fólgin í því
aö maturinn er steiktur eöa soðinn
viö lágan hita í langan tíma. En meö
þessari matreiðsluaöferö getur hætt-
unni veriö boöiö heim.
„Hættan er fólgin í því aö þegar
hitinn fer ekki yfir 60°C drepast ekki
þeir gerlar sem kunna aö leynast í
matvælunum,” sagöi Valdimar
Brynjólfsson, heilbrigöisfulltrúi á
Akureyri, en hann skrifaði nýlega
grein um hættur samfara moösteik-
inguíblaðiö DagáAkureyri. „Þessir
sýklar eða gerlar geta komiö frá
þeim sem meöhöndla matinn og
einnig leynst í matvörunni sjálfri og
ef um mikið magn er aö ræöa geta
þeir valdiö matareitrun. Gerlar vaxa
best við 7—60°C hita og fjölgar mjög
ört á skömmum tíma. Viö bestu
vaxtarskilyröi fjölgar þeim um
helming á hverjum 20 mínútum sem
líða. Sem dæmi um hversu hratt þeir
f jölga sér getum viö hugsaö okkur aö
ef einn gerill er í upphafi
steikingarinnar er fjöldinn oröin 1
milljaröur eftir 10 tíma,” sagði
Valdimar Brynjólfsson.
Valdimar sagði ennfremur aö
þegar þessir gerlar, sem yfirleitt
væru klasasýklar, fengju aö fjölga
sér á þennan hátt mynduðust eitur-
efni í þeim. Þetta eiturefni væri ekki
hægt aö fjarlægja úr matnum þó svo
aö hitinn færi yfir 60°C í lok
steikingarinnar. Ráöiö til að hindra
þetta væri aö hita matinn strax í upp-
hafi yfir 60°C og drepa meö því alla
gerla sem væru í matnum og steikja
síöan viö lágan hita á eftir.
Valdimar sagöi aö sýklamyndun
ætti sér einnig staö í matvælum
undir öörum kringumstæöum.
Hættan á sýklamyndun væri fyrir
hendi þegar sviöasulta væri gerö.
Algengt væri aö fólk léti hana kólna á
eldhúsborðinu áöur en hún væri
kæld. En einmitt á þeim tíma væri
kjöriö tækifæri fyrir sýklana aö
grassera. Einnig ætti þetta sér oft
staö þegar matur væri kældur áöur
en hann er settur í ísskáp. Best væri
aö setja matinn, t.d. matarafganga,
strax í ísskápinn. 1 þaö minnsta væri
ekki ráölegt aö láta hann standa í
langan tíma áður en hann væri settur
í ísskáp. Hitastig í ísskápum væri
yfirleitt undir 4°C og viö þær
aöstæður þrif ust gerlar ekki.
Valdimar sagöi einnig að þaö væri
mjög mikilvægt aö þegar einhver
fengi matareitrun aö þaö væri til-
kynnt til læknis eöa heilbrigöisyfir-
valda. Meö því væri mögulegt aö
rannsaka orsakirnar sem væri mjög
mikilvægtaðvita um.
-APH
HVAÐ ER MOÐSTEIKING?
,,Eg hef heyrt um svokallaða moð-
suöu og mun þaö vera gömul mat-
reiösluaöferö sem tíðkaðist hér á
landi áöur fyrr. Moösuðan fór þannig
fram aö suöan var látin kom upp í
pottinum og látiö sjóöa í 4—5
mínútur. Síðan var potturinn settur í
moðkassa, sem var kassi
einangraöur meö moði. Þar var
maturinn síðan látinn vera yfir
nóttina,” sagöi Hilmar B. Jónsson
matreiðslumaður þegar viö spuröum
hvaö moösteiking væri.Hann sagöist
einnig muna eftir því aö móðir sín,
sem starfaði í mótuneyti Vífilsstaöa-
spítala, heföi notað þessa aðferö.
Astæöan fyrir moösuöu var m.a. sú
aö rafmagn og kyndingarkostnaöur
sparaöist.
Hann sagöi ennfremur aö hér væru
einnig fáánlegir sérhannaöir pottar
sem byggðust upp á svipaöri aðferð
og moösuöa.
Hann haföi hins vegar ekki heyrt
um moösteikingu en nokkuö algengt
væri nú oröið aö matur væri steiktur
viö lágan hita. En þá væri yfirleitt
steikt viö 80—100°C hita. Nautasteik
byrjar t.d. ekki aö tapa lit fyrr en viö
60—80°C. I Bandaríkjunum væru til
sérhannaöir ofnar til aö steikja mat í
viðláganhita.
Hilmar sagöi aö það væri ekki rétt
aðferð aö kæla matvæli viö stofuhita
áöur en þau væru sett í ísskáp.
Ástæðan fyrir því að það væri al-
menn trú manna aö svo ætti aö gera
mætti rekja til þeirra tíma þegar
kælitæki voru mun lélegri en nú. Þá
þótti ekki ráðlegt aö setja heitan mat
inn í ísskápa vegna þess aö viö þaö
myndaðist mikið hrím í þeim. Nú
væri hins vegar ekki ástæöa til aö
óttast slíkt. Best væri aö setja plast-
filmu yfir matinn strax og setja hann
síðan beint í ísskápinn.
-A.P.H.
iíannprtmberölumn €rla
Snorrabraut 44 — pósthólf 5249 Sími 14290.
HÚRPULEIKUR
Stærð 50 x 50,
saumað með
dökkryðrauðu
Verð kr. 330.
ASTARENGLARNIR
Stærð 20 x 20, saumað með brúnu, 2 saman í
pakkningu. Verð kr. 220.
ENGLABÖRN í GLEÐI 0G S0RG
Stærð 40 x 40 cm, saumað með brúnu, 2 sam-
an í pakkningu. Verð kr. 360.
Tilbúnir rammar og mikifl úrval af rammalistum. Sérhæf-
um okkur i innrömmun á handavinnu. Vönduð vinna.
ALEIGAN
Stærð 50 x 70, saumað
með brúnu. Verð kr. 380.
TRÚLOFUNARHRINGAR
Okkar sérgrein er trúlofunar-
hringar. Mjög gott og fjöl-
breytt úrval. Sérstaklega góð
aðstaða til að skoða og velja
hringana. LÍTIÐ IIMIM
Sendum litmyndalista
JÓN og ÓSKAR,
Laugavegi 70, 101 Reykjavik, simi24910.
BJOÐUM EINNIG:
fiskréttahlaðborð
fyrir hópa og
samkvæmi,
köld borð,
smurt brauð
og snittur.
Verið velkomin.
KVÖLDIN
BYRJA AFTUR ÖLL
FIMMTUDAGS-,
FÖSTUDAGS- OG
LAUGARDAGSKVÖLD
mi^
wmm
Grandagarði 10-Sími: 15932
Tilboð óskast
í eftirtaldar bifreiðir í tjónsástandi.
árg. 1979
árg. 1978
árg.1973
árg. 1981
árg.1980
árg. 1979
árg. 1979
árg. 1982
árg. 1978
Bifreiðirnar verða til sýnis að Melabraut 26
Hafnarfirði laugardaginn 28. janúar frá kl. 1—5. Til-
boðum sé skilað til aðalskrifstofu, Laugavegi 103,
fyrir kl. 5 mánudaginn 30. janúar.
Brunabótafélag íslands.
Skoda120 L
Chevrolet Nova
Volvo 145
Lada Sport
Mazda 929 L
AMC Concord
Toyota Starlet
Fiat Ritmo
Audi 100 LS
Gefjun AKUREYRI