Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1984, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1984, Síða 10
10 DV. FÖSTUDAGUR 27. JANUAR1984. Útlönd Útlönd Utlönd Útlönd Le Terrible — hinrt ógnvekjandi — kjarnorkuvopnakafbátur Frakka. FrakkarogNATO: AÐVERA AÐ VERA EKKI Iviöræðum um meöaldræg kjarn- orkuvopn sem leystust upp í Genf í nóvemberlok settu Sovét- menn m.a. þaö skilyröi aö kjarn- orkuvopn Breta og Frakka yröu tekin meö í reikninginn. Nýlega geröi Pierre Mauroy, forsætisráðherra Frakka, grein fyrir vamarstefnu stjómar sinnar og mikilvægi þess aö hennar mati að þessum vopnum yröi haldiö utan við slíkar umræður og óháöum NATO. En Frakkar sögöu sig úr hemaðarsamvinnu NATO áriö 1966 þótt þeir séu enn aöili aö varnar- samningi NATO. Mauroy sagði nýlega að ein megin- ástæöan fyrir því að Frakkar slitu sig frá sameiginlegu hernaöarbákni heföi veriö sú sjálfvirkni sem kæmi í kjölfar sameiningar heraflanna. Mauroy sagöi aö skýran greinarmun yröi aö gera á þeirri úrsögn og síöan þeirri staöföstu ákvörðun franskra stjómvalda aö bregöast ekki skyld- um sínum sem grundvölluðust á vamarsamningnum. Frakkar mundu framvegis sem hingaö til stuðla aö eflingu markmiða Atlants- hafsbandalagsins þótt þeir hefðu áfram sérstööu í varnarsamstarfinu, aö sögn Mauroy. Sagöi forsætisráð- herrann að Frakkar heföu enn skuld- bindingar viö NATO sem þeir myndu ekki bregðast. Máli sínu til staöfest- ingar benti Mauroy á þátt Frakka í borgaralegri samvinnu innan NATO. Sagöi Mauroy m.a. aö Frakkar væru sáttir við veru sína í Atlantshafs- bandalaginu þótt þeir vöruöu viö því aö sum aðildarríki innan banda- lagsins tækju á sig skyldur og kvaðir sem þeim ekki bæri samkvæmt samningum. „Atlantshafsbandalagiö er hernaðarbandalag sett á stofn í vamarskyni til aö gæta öryggis aöildarrikja sinna. Þaö er nauðsyn- legt aö hafa gætur á því hvemig hug- takiö öryggi er túlkaö í þessu sam- hengi,” sagöi Mauroy. Sagöi Mauroy að það væri skoðun franskra stjómvalda að Bandaríkin túlkuöu öryggi á annan hátt og kæmi þaö m.a. fram í því aö ógnin sem ætti aö steöja aö NATO-ríkjum væri yfirfærö á miklu víðtækara sviö. Þannig teldu Bandaríkjamenn aö varr.arsamstarfiö væri ekki bara bundið viö ríki NATO — heldur ætti þaö aö vera á alheimsvettvangi. Segir Mauroy aö þetta eigi viö sér-, staklega á viöskiptasviöinu og komi fram hjá bandarískum stjórnvöldum þegar þau hvetja önnur ríki, jafnvel ríki utan NATO, til refsiaðgerða gegn ríkjum kommúnista eins og tíðkast hefði mikiö undanfarin tvö ár. Tekur Mauroy svo djúpt í árinni til að undirstrika andúö Frakka á slíkum viöskiptahöftum aö þaö sé aðeins stigsmunur á slíkum höftum og eiginlegum hemaöarátökum en í sögunni hafi þaö tvennt alltaf farið saman. Varaði hann viö því aö Atlantshafsbandalagið færi út á þessa braut og frá hinu eiginlega markmiöi sínu. Þá varaöi Mauroy viö því aö NATO færi út fyrir land- fræðileg takmörk sín, sem væm nákvæmlega skilgreind í heiti Atlantshafssamningsins. Q ^^egir Mauroy að á fyrstu tveim- ur áratugum NATO hafi bandalagiö sýnt varkámi í þessu tilliti en slíkt hafi nú breyst. Segir Mauroy aö Frakkar geti ekki tekiö undir þá af- stööu að öllum heiminum stafi ógn af Sovétríkjunum eöa aö stefna eigi aö sameiginlegri mótspymu eöa aö stefna eigi að sameiginlegri mót- spymu gegn Sovétríkjunum. Vanda- mál sem liggi utan Atlantshafs- bandalagsins geti aöildarriki rætt og ráöfært sig um en þeim beri ekki aö taka sameiginlega ákvöröun í slíkum tilfellum. — Afstööu Frakka til spennunnar í samskiptum austurs og vesturs er hægt að lýsa með tveimur oröum: staðfestu og viöræðum, segir Mauroy. Frakkar vilja halda i heiöri alþjóða- lög en viö viljum jafnframt forða heiminum frá skiptingu í valda- blokkir austurs og vesturs. Réttur en ekki vald á aö sitja í fyrirrúmi. Þegar Frakkar ákváöu aö draga sig út úr hemaðarsamvinnu við NATO 1966 bentu margir á tortryggni franskra stjórnvalda í garð Bandaríkjanna. Stjómmála- fræðingurinn Edward A. Kolodziej segir aö utanrikisstefna Frakka á tímabilinu 1965 til 1968 hafi grund- vallast á því viðhorfi aö Bandaríkin væru mesta storveldi heims og af því gæti hlotist röskun á valdajafnvægi. Grein í Le Monde frá þessu tímabili ber yfirskriftina „Barátta gegn bandamanni” og vissu flestir við hvern var átt. Á sama tíma og Bandaríkin voru álitin heimsveldi voru Sovétríkin álitin dvínandi stórveldi. Stjórn De Gaulle leit svo á á þessu tímabili aö ógnarjafnvægið kæmi í veg fyrir átök og að óstöðugleiki innan sovéska stjómkerfisins myndi draga úr athafnasemi Kreml á utanríkis- sviðinu. Þaö var jafnframt álit Frakka, og ef til vill fleiri á þessu tímabili, aö ríki í Austur-Evrópu væm aö fá meira sjálfstæði undan járnhælnum í Kreml. En þetta var aðeins tveimur árum fyrir innrásina í Tékkóslóvakíu. Þess gætti enn- fremur í franskri utanríkisstefnu á umræddu tímabili aö meö Sovétríkj- unum yröi að stemma stigu viö of mikilli valdaþenslu Bandarikjanna. Afstaða Frakka til Víetnam, Kongó, friöargæsluhlutverks S.Þ. og deilna í Mið-Austurlöndum var um margt svipuð afstööu Sovétríkjanna á þess- um árum og þróunin virtist benda til þess að smátt og smátt myndi Atlantshafsbandalagið klofna þar eö kaldastríðsgrundvöllurinn væri hruninn — Evrópa myndi fjarlægast Bandaríkin og valdabarátta stór- veldanna myndi færast yfir í þriöja heiminn og þar myndu Frakkar sýna Sovétríkjunum samstööu gegn Bandaríkjunum. I ræðu og riti frá þessu tímabili kom glögglega í ljós hve andsnúin frönsk stjórnvöld voru Bandaríkj- unum. Bent var á aö ógnunin stafaði alls ekki fremur frá austri en vestri — stríð gæti sprottiö upp hvar sem væri. En aðalástæðan fyrir því að Frakkar báru sig „mannalega” og lýstu yfir sjálfstæði sínu gagnvart varnarsamstarfinu var vöxtur kjarnorkuvopnabúrs þeirra. Þessi afstaða Frakka og óánægja meö hemaðarstefnu NATO voru rökin sem færð voru fyrir úrsögninni úr hemaðarsamvinnu við önnur NATO-ríki. Þessi afstaða breyttist; hins vegar að nýj u í kjölfar innrásar- innar í Tékkóslóvakíu og atburöanna ímaí 1968. ■ ranska ríkisstjórnin styöur ákvörðun NATO frá 1979 um endur- nýjun kjamorkuvopna í Evrópu. Þótt Frakkar hafi ekki átt þátt í þeirri ákvöröun, telja þeir eins og Mauroy segir að bráðnauðsynlegt sé að mæta þeirri ógn sem stafar af Forsætisráðherra Frakka, Pierre Mauroy. uppsetningu sovésku SS-20 eldflaug- anna og koma aftur á jafnvægi í Evrópu. — Frönsk stjórnvöld hyggjast ekki blanda sér inn í afvopnunarviö- ræöur í Genf, þótt þau útiloki ekki möguleikann á því að draga úr víg- búnaöi sínum en slíkt verður ekki fyrr en stórveldin hafa náð samstööu um stjómun vígbúnaðar og árangur hefur náðst á því sviði, segir Mauroy. Um þátttöku Frakka í afvopnunar- málum segir hann aö uppfylla þurfi eftirfarandi skilyrði: — umtalsveröan samdrátt í kjam- orkuvopnabúrum stórveldanna sem hægt sé aö sýna fram á með sönn- unum. — marktækan niðurskurð hefð- bundinna ogefnavopnaíEvrópu. — engar tækninýjungar á sviði gagneidflaugakerfa. Segir Mauroy aö frönsk stjómvöki komi ekki auga á raunsæi krafna Sovétríkjanna um að reikna kjam- orkuvopn Frakka með í dæminu um meðaldræg kjamorkuvopn. — Vopn okkar em strategísk vopn sem eingöngu tengjast hemaöar- og varnarmálum okkar því þau veröa aðeins notuð í þeim tilgangi aö verja Frakkland þegar allt annaö þrýtur, segir Mauroy. Segir hann aö ekki megi líkja kjarnorkuvopnum Frakka viö kjarnorkuvopn Banda- ríkjanna sem nota eigi í þeim til- gangi að verja ríki Evrópu sem ekki búi yfir slíkum vopnum. Kjamorku- vq>n Frakka séu ekki í tengslum við hernaöarstefnu NATO um sveigjan-. leg viöbrögö (flexible response) og þeim sé ekki ætlaö aö mynda hlekk í keöjunni milli langdrægra kjam- orkuvopna Bandaríkjanna á heima- velli og meöaldrægra og hefðbund- inna vopna í Evrópu. Frakkar eiga nú 132 kjamodda, ; þar af 80 M-20 eldflaugar í kafbátum, . 18 S-3 eldflaugar og 34 Mirage IV flugvélar búnar kjarnorkuvopnum. — Þessir 132 kjarnaoddar ógna ekki Sovétríkjunum, segir forsætisráö- herrann. Þá segir Mauroy að utanrikisstefna Frakka nú mótist af þeirri afstöðu aö tengsl þeirra við önnur NATO-ríki mótist af styrk sem sveigjanleika — „viöviljum laga okkur aö þörfum bandalagsins án þess aö fórna ein- hverju af sjálfstæði okkar,” segir hann, „þaö tryggir varnir okkar, öryggi og vonir um frið og réttlæti. ” Hins vegar segir Mauroy að þaö sé einnig afstaða franskra stjómvalda nú og Mitterrands forseta aö ríki Evrópu ættu að reyna að þróast í átt til aukins sjálfstæöis frá stórvelda- blokkunum tveimur og myndi slík þróun draga úr spennu á alþjóöavett- vangi. Samtímis segir hann aö brýn ■nauðsyn sé aö styrkja ákvöröun ríkja í Vestur-Evrópu aö sýna festu í varnarsamstarfinu. Segir hann að það þurfi að gera lýöum ljóst hvað ógni heimsfriönum, sérstaklega á þeim tíma þegar barátta friöar- hreyfinga og þeirra sem aðhyllast hlutleysisstefnu varpi huiu á raun- veruleg markmiöSovétríkjanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.